Morgunblaðið - 30.06.1996, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 30.06.1996, Qupperneq 8
8 B SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 MORGUNBLAÐIÐ MBNLEYStSHAHW A þriðjudag heldur tónleika í Laugardalshöll breska poppsveitin Pulp, sem stendur nú á hátindi frægðarinnar. Síðasta plata Pulp seldist í bílförmum um heim allan og lagið Common People varð eins konar sumaróður víða um heim. Leiðtogi sveitarinnar, andlit henn- ar út á við og hugmyndafræðing- ur, Jarvis Cocker, er ólíkindaleg poppstjarna, renglulegur, gleraug- naglámur sem semur meinlega texta og djúphugsaða, sennilega einn fremsti textasmiður Bretlands nú um stundir. Hann stofnaði Pulp sem leið til að komast upp úr mæðunni í heimaborg sinni Sheffi- eld þar sem hann varð fyrir að- kasti fyrir útlit sitt og háttu, ekki síst að hann gekk í þýskum leder- hosen, rúskinnsstuttbuxum, „mömmu fannst þær smart“, segir hann. Jarvis Cocker er vinsamlegur í tali, hefur greinilega gaman af að velta lífinu fyrir sér og iðulega fer hann um víðan völl í svörum sín- um. Síðsumars á síðasta ári dró breska sídegispressan upp mynd af fíkniefnaóðu illmenni og ekki batnaði það þegar hann veittist að Michael Jackson fyrir smekkleysu þess síðarnefnda snemma á þessu ári, því þá var hann orðinn að of- beldishneigðum villimanni. Sé við- mótið aftur á móti lagt við útlitið kemur upp mynd af meinleysis- manni sem helst vill fá að „fílósóf- era“ í friði og hugsa um garðinn sinn. Faðirinn flúði fii Ástralíu Jarvis Cocker ólst upp hjá móð- ur sinni í Sheffield, en faðir hans flúði til Ástralíu til að komast und- an meðlaginu þegar Jarvis var sjö ára gamall. Rúskinnsstuttbuxurn- ar gerðu sitt til að Jarvis væri utan- veltu meðal skólafélaga og ekki batnaði það þegar drengurinn upp- götvaði pönkið 1978, þá sextán ára. Hann stofnaði strax hljóm- sveit sem hann vildi kalla Pulp, en félagar hans töldu hann á að bæta einhveiju við og Arabicus varð fyrir valinu. Arabicus Pulp lék þó ekki nema á fáeinum tónleikum, því Pulp-nafnið varð ofaná innan skamms. Breska poppsveitin Pulp kemur til landsins í dag og heldur tónleika hér á þriðjudag. Árni Matthíasson náði tali af leiðtoga sveitarinnar, Jarvis Cocker, og komst að því að þar fór hæg- látur gáfumaður, þó bresku síðdegisblöðin hafí dregið upp mynd af óðu illmenni. „Ég kunni vel að meta tónlist, en frumþörfin var að verða frægur og losna við dagleg vandamál, en eftir því sem ég komst til þroska áttaði ég mig á því að ég nyti tón- listarinnar og þess að vera að gera eitthvað sem ég trúði á,“ segir Jarvis Cocker aðspurður um frum- býlingsár Pulp. Þessi frumgerð Pulp lék helst lög eftir aðra sem von- legt er, byijaði á House of the Rising Sun, Mot- orhead-lögum og lék gjarnan hálft Wild Thing á tónleikum. Liðsmönnum var þó fleira til lista lagt því þeir gerðu 8 mm kvik- myndir, Spartveijarnir þrír og Spagettívestr- inn hittir Geimstöðina, en í síðastnefndu myndinni lék Jarvis Clint Eastwood. Þeir tóku líka upp fyrstu lögin sem lentu í höndunum á bjargvætti breskra bílskúrssveita, John Peel, þáttar- gerðarmanni hjá BBC. Honum leist svo á sveitina að henni var boðið að troða upp í þætti hans 1992. Hljómsveitin setti sig síðan í stell- ingar að bíða eftir frægðinni, en þegar hún lét á sér standa hættu félagar Cockers í sveitinni og fóru í háskóla. Kannski hefur það sitt að segja að Jarvis Coeker hefur óbeit á áttunda áratugnum; „átt- undi áratugurinn var samfellt afturhvarf til íhaldssemi og þröng- sýni. Sú kynslóð sem skemmti sér við að bijótast undan ægivaldi gamla fólksins var nú komin á þann aldur að hún vildi kæfa börn- in sín.“ Pulp It 1983 endurstofnaði Jarvis Cock- er Pulp og sveitin tók upp fyrstu plötu sína, It. Hann vill lítið tala um plötuna í dag, segir það eitt um hana að hún hafi verið tekin upp með hljóðnema sem Cliff Rich- ard söng sín helstu lög í og sé fyrir vikið ömurleg. „Ekki má gleyma því að ég var rétt skriðinn úr skóla. Ég hef aldrei haldið dag- bók, en þegar ég hlusta á gömlu plöturnar okkar fer ég hjá mér því það er ejns og að lesa opinskáa dagbók. Ég skammast mín þó ekk- ert fyrir þær, því þær eru bara spegilmynd þess sem ég var að hugsa á þessum tíma. Við höfum vissulega breyst mikið og á plötun- um má heyra að við erum einfald- lega að fullorðnast." Líkt og fyrri atlögur að frægð- inni bar þessi engan árangur og Pulp II leystist upp skömmu eftir útgáfu plötunnar og Jarvis Cocker kennir The Smiths um brotlendingu sveitar- innar; „þeir sendu frá sér sína fyrstu plötu um leið og við It og því fór sem fór“. Að þessu sinni gafst hann líka upp á tónlistinni og ákvað að fara í háskóla að læra ensk- ar bókmenntir. í há- skólanum í Sheffield kynntist hann Russell Senior og þeir ákváðu að endurreisa Pulp, en þess má geta að Russell hefur verið í Pulp upp frá því. Tónlist Pulp III var all frábrugðin því sem á undan var farið, nú las Cocker súrrealísk ljóð og liðsmenn léku undir. Sveitin tók upp nokkrar smáskífur og stefndi uppávið, var meðal annars boðið að hita upp á tónleikaferð stórsveitar um ger- vallt Bretland. Þá var það að Jar- vis vildi ganga í augun á einhverri stúlku og til að tryggja að hún tæki eftir sér lét hann sig falla út „Mér finnst alltaf jafn gaman að baða mig í sviðs- Ijósinu og mér finnst alltaf jafn gaman að leika á tónleikum." um glugga á þriðju hæð. Hann segist þakka for- sjóninni að hann skuli hafa lifað af fallið, en hann slas- aðist þó það illa, mjaðmar- grindarbrotnaði meðal annars, að hann varð að eyða nokkrum vikum á sjúkrahúsi og tveimur mánuðum í hjólastól. Þrátt fyrir óþægindin seg- ir hann að slysið hafi kom- ið sér vel. „Fram að því byggði ég flesta texta á aíhæfingum, en í sjúkra- húsinu áttaði ég mig því að eina leiðin til að yrkja eitthvað af viti var að líta inn á við og skoða smáatriði lífsins. Ég komst að því að ég fyr- irleit uppruna minn og ákvað því að sættast við sjálfan mig og vinna úr æskunni og unglingsár- unum eitthvað sem ég gæti nýtt í textagerð.“ Þegar Jarvis hafði náð sér eftir slysið fluttist hann inn í yfirgefna stál- verksmiðju og kynntist þar ýmsum furðufuglum og varð fyrir þeim áhrif- um sem skiluðu sér á þriðju breið- skífuna Freaks. Hann segir að nafnið sé meðal annars afrakstur vistarinnar í stálverksmiðjunni og að þeim félögum i Pulp hafi liðið eins og þeir væru hálfgerð óskepi. Þriðja breiðskífa Pulp vakti litlu meiri hrifningu en fyrri skífur og Jarvis var búinn að fá nóg af Sheffield og strögglinu. Til Lundúna 1988 fluttust þeir Jarvis Cocker og Russell Senior til Lundúna og Jarvis skráði sig í skóla að læra kvikmyndagerð. Sá búferlaflutn- ingur átti eftir að breyta lífi hans, því honum bauðst að hljóðrita nýja breiðskífu og hann komst í tæri við Acid House sem tröllreið höfuð- borginni og sér enn stað í tónlist sveitarinnar. Annað sem hann seg- ir að hafi ekki haft minni áhrif á hann er að hann komst í náin kynni við fáfræði og fordóma upp á nýtt og að þessu sinni ekki vegna þess að hann væri rindilslegur gleraug- naglámur, heldur vegna þess að hann væri sveitarvargur. „England hefur alltaf verið upp fullt með fáfræði. Ef fólk ekki skilur eitthvað þá fyllist það and- úð. Fyrir mér skiptir fjölbreytnin öllu máii og það sem er öruvísi er heillandi. England hefur alltaf ver- ið hrætt við hið óþekkta og ég fékk meira að segja að finna fyrir því þegar ég bjó í Mile End, eins og ég rek í samnefndu lagi á Train- spotting-disknum. Vegna þess að ég hafði ekki réttan hreim var ég útlægur ger; fékk ekki afgreiðslu í verslunum og börn hæddu mig á götum úti. Mér er fyrirmunað að skilja af hverju fólk er að vernda eins ömurlegt umhverfi fyrir ókunnugum, en þannig er Eng- land. England hefur reyndar sínar góðu hliðar og líklega er þessi þröngsýni örvun fyrir fólk að finna sér eitthvað nýtt og gera uppreisn gegn íhaldsseminni. Það er örugg- lega meðal skýringa á því hvers

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.