Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 9

Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 9
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ 1996 B 9 vegna það koma svo margar góðar hljómsveitir frá Bretlandseyjum. Ef þjóðfélagið væri vel upplýst og allir samtaka og alltaf gott veður myndum við sennilega aldrei finna hjá okkur þörf til að semja lög,“ segir hann og kímir. Fullreynt í fjóröa Þó Jarvis segist hafa verið orð- inn of gamall til að taka þátt í klúbbamenningunni í Lundúnum hreifst hann af tónlistinni og þess sá stað á fjórðu breiðskífu sveitar- innar. Sú var hljóðrituð með sama mannskap og skipa Pulp í dag, auk Cockers og Russells Seniors, sem leikur á gítar og fiðlu, Candidu Doyle sem leikur á hljómborð, Nick Banks sem leikur á trommur, Steve Mackey sem leikur á bassa og Mark Webber sem leikur á gítar. Platan, sem kom út 1990, heitir Seperations og í stað Scott Walker og Leonard Cohen-stælinga er komið annað hljóð í strokkinn, nútímalegra og kraftmeira og meira að segja eitt house-lag, eða tilraun til slíks. Loksins virtist sveitin vera komin á beinu braut- ina, því smáskífa af plötunni var valin smáskífa vikunnar í NME. Næsta skref var að losna úr óhagstæð- um samningi við Fire-útgáfuna, en Jarvis Cocker segir að eini maður sem hann vilji illt sé stjóri þeirrar útgáfu. Pulp gerði samning við Island-útgáfuna 1992 og hóf vinnu við næstu breið- skífu. Sitthvað var til- af lögum í fórum sveit- arinnar og breiðskíf- unni His’n’Hers sem kom út 1993, var vel tekið af gagnrýn- endum og plötu- kaupendum. Enn átti sveitin þó nokk- uð í land að blanda sér í toppbaráttuna og því lá mikið við að næsta breiðskífa gengi vel. „Snobbað" niðuróviö Eitt af fyrstu lögunum sem sam- in voru fyrir fimmtu skífuna, Common People, segist Jarvis Cocker hafa samið snemma árs 1994 og byggt á kynnum hans af miðstéttarstúlku sem lýst hafði áhuga sínum á að „snobba" nið- urávið og deila kjörum með alm- úgafólki sér til gamans. Hann seg- ist hafa verið sannfærður frá því sveitin lauk við lagið að það þyrfti að gefa það strax út þó enn væri mikil vinna eftir við breiðskífuna sem það var ætlað. Island-útgáfan lét undan og lagið sló svo rækilega í gegn um heim allan að segja má að það r hafi verið helsta lag ■' sumarsins í flestum löndum, þar á meðal í Bretlandi. Meðal annars varð það til þess að Pulp var beðin að hlaupa í skarðið fyrir Stone Roses á rokkhátíðinni í Glastonbury og vakti gríðar- lega hrifningu. Breiðskífan sem fylgdi í kjölfarið, A Different Class, kom út síðast- liðið haust, og seldist vel, ekki síst eftir að næsta smáskífa, Sorted for E’s & Wizz, gerði allt vitlaust, en á umslagi smáskífunnar voru leiðbeiningar um hvermig ætti að rúlla marijuana- vindling. í kjölfarið gerði breska síð- degispressan harða hríð að Pulp fyrir að hvetja til fíkniefnaneyslu, en í raun er textinn í Sorted for E’s & Wizz meinhæðin lýsing á innihalds- lausu lífi dansfífla Bretlands sem dæla í sig Ecstacy til að komast í stuð og halda að þeir séu að breyta heiminum og út- breiða ást og ham- ingju með athæfi sínu. Lætin í gulu pressunni bresku juku til muna söl- una á breiðskífunni og Pulp stóð uppi með pálmann í höndunum eftir 1995; önnur vinsælasta hljóm- sveit Bretands, næst á eftir Oasis, sem enginn keppir við, og ekki við öðru að búast en frægðarferillinn héldi áfram. Hamost að Jackson Brit-verðlaunahátíðin breska er orðin helsta tónlistarhátíð Bret- lands og á síðustu hátíð var Pulp meðal þeirra hljómsveita sem til- nefndar voru til verðlauna, meðal Leiðtogi sveitar- innar, andlit hennar út á við og hugmynda- fræðingur, Jarvis Cocker, er ólík- indaleg popp- stjarna, renglu- legur, gleraug- naglámur sem semur meinlega texta og djúp- hugsaða, senni- lega einn fremsti textasmiður Bretlands nú um stundir. annars til verðlauna sem besta tónleikasveit ársins og fékk þau, en það sem meiri athygli vakti var að Jarvis Cocker reyndi að hleypa upp stórsýningu Michaels Jack- sons. Jackson var þá búinn að ganga fram af viðstödd- um með smekklaus- um hátíðar- flutningi á '/ lagi sinu Earth Song og stóð á sviðinu sem Messías að taka við sjúkum og lömuðum; leikendur búnir lörfum streymdu , til hans og hann / umfaðmaði alla og / leiddi til hásætis. Þá segist Jarvis Cocker / hafa fyllst slíkum við- f/ bjóði á smekkleysunni að hann rauk af stað og upp á svið. Mikið ■SJff®-'/ uppistand var af þessu, Cocker handtekinn og fluttur íjárnum á næstu lögreglu- stöð og því haldið fram af blaða- fulltrúum Jacksons að Cocker hefði ráðist á og slasað börn sem þátt tóku í skrautsýningunni. Þessi ásökun var snarlega dregin til baka daginn eftir því í ljós kom að Coc- ker hafði ekkert skaðað eða skemmt nema ímynd his mildiríka frelsara. Allt þetta umstang varð enn til að auka hróður Jarvis Coc- ker og Pulp og plötusala tók kipp í kjölfarið. Þrátt fyrir þessa uppákomu seg- ist Jarvis Cocker vera rólegasti maður og seinþreyttur til vand- ræða. „Kannski má rekja þennan hamagang til þess að ég vildi ekki verða meinlaus eins og hinar hljómsveitirnar sem slá í gegn; það er svo algengt að tónlistarmenn og hljómsveitir verði leiðinleg eftir að þau hafa náð á toppinn." Alltaf jafn gaman að leika á tónleikum Eins og áður er rakið stofnaði Jarvis Pulp á sínum tíma til að honum myndi ganga betur í samskipt- um við fé- laga sína og jafnaldra og hann segir að vissulega eimi enn eftir af þeirri löngun að standa á sviði og láta alla dást að sér. „Það kom- ast ekki allir í þá aðstöðu að geta staðið á sviði og fólk borgi fyrir að fá að heyra skoðan' ir þeirra,“ segir Jarvis og hlær við. „Mér finnst alltaf jafn gaman að baða mig í sviðsljósinu og mér finnst alltaf jafn gaman að leika á tón- leikum. Það er einfald- asta leiðin til að koma tónlist á framfæri og fá jafr.óðum viðbrögð. Það gefur sérstaklega góða til- finningu að hafa samið lag sem ég veit að er gott, en næst því kemst að ganga af sviði eftir vel heppnaða tón- leika. Ég hef mestar áhyggjur af því að það komist upp í vana að leika á tónleikum. Sem stendur erum við farin að spila það mikið að við verðum að gæta að okkur að verða ekki eins og vélmenni á sviðinu. Því leggjum við hart að okkur á hveijum tónleikum til gera þá að sérstakri upplifun.“ Jarvis segir frægðina sem hann hefur höndlað á síðustu árum hafa góðar hliðar og slæmar. „Ég kann því vel að við skulum hafa náð þetta langt eftir árin öll sem við höfum streðað,” segir Cocker en bætir við að það sé oft erfitt að vera ekki látinn í friði þegar hann er á ferli í Lundúnum. „Þegar ég fluttist til Lundúna á sínum tíma man ég hvað ég var hissa að sjá frægt fólk á götum úti, fólk sem ég hafði kannski séð í sjónvarpinu daginn áður, og líklega finnst fólki það sama þegar það sér mig á gangi niðri í bæ. Að öðru leyti hefur frægðin ekki breytt svo miklu og þó henni fylgi mikið af ferðalögum og sjónvarpsvinnu og álíka þá þýðir það ekki að ég sé hættur að semja texta um lífið og tilveruna; þó lífið sé ekki eins fjölbreytt og það var fyrir frægð- ina, þá á ég mikinn sjóð eftir sext- án ára streð við að komast á topp- inn. Það er ekki komið að því enn að ég fari að yrkja um hótelher- bergi og verður vonandi aldrei, ég held að ég myndi ekki lifa það af. Ég skrifa hvort eð er yfirleitt um hið liðna, því þá lendi ég síð- ur í vandræðum; ef ég sem texta um núverandi ástarsamband getur það gert lífið erfiðara,“ segir Cocker og hlær við. „Að vissu leyti hjálpar frægðin og allt umstangið sem henni fylgir mér við að semja tónlist og texta því það neyðir mig til að skipuleggja tímann betur. Þegar það er enginn tími aflögu verða stundirnar þegar ég get sest niður og samið texta eða lög svo dýrmæt- ar og nýtast svo vel. Ég var lengi atvinnulaus og hafði nógan tíma til að semja og skapa, en gerði . lítið af því; álagið er nauðsynlegt til að ná því besta fram.“ Ísland uppfyllti allar væntingar Jarvis Cocker hefur komið til Islands áður, kom hingað til lands í ágúst á síðasta ári í vikufrí. Hann segist hafa hrifíst af landinu vegna áhuga á eldfjöllum og meðal ann- ars segist hann hafa farið í Land- mannalaugar. „Mér fannst frábært að koma til íslands og landið upp- fyllti allar væntingar mínar,“ segir hann. „Helst vildi ég hafa meiri tíma til að skoða landið en þessa viku, en það er svo mikið að gera hjá okkur um þessar mundir að við komust hvorki lönd né strönd. Kannski gefst stund milli stríða síðar á árinu og þá gæti ég vel hugsað mér að koma aftur til ís- lands og þá fara hringinn, ekki síst ef það er eldgos í gangi.“ w Lokað mánudag UTSALAN hefst þriðjudag enellon Laugavegi 97, sími 552 2555

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.