Morgunblaðið - 30.06.1996, Side 12
12 B SUNNUDAGUR 30. JÚNÍ1996
MORGUNBLAÐIÐ
KVIKMYIMDIR
Eins og greint hefur
verið frá hér á síðunni
verður nýjasta Disney-
teiknimyndin, Hringjar-
inn í Notre Dame, sýnd
með íslensku tali um
jólin. í millitíðinni verð-
ur Disneymyndin
Guffagrín sýnd með ís-
lensku tali. Er það í takt
við þá þróun sem orðið
hefur hin síðustu ár. Is-
lenska talsetníngin hef-
ur fest sig svo í sessi
að nú er varla hægt að
frumsýna teiknimynd
hér á landi án hennar.
Talsetningin hefur enda
heppnast mjög vel í
flestum tilfellum og er
leikurum, sem nú hafa
hlotið nokkra þjálfun í
teiknimyndaleik, til
sóma og öðrum þeim
sem standa að taisetn-
ingunum.
ENGINN spennutryllir; Travolta og Duvall
í Fyrirbærinu.
Travolta leikur
fyrirbærið
Sigurganga Johns Travolta
í Hollywood heldur áfram.
Nýjasta myndin hans heitir
Fyrirbærið eða „Phenomenon"
en í henni leikur hann á móti
Robert Duvall, Kyru Sedgwick
og Forest Whitaker. Leikstjóri
er John Turteltaub. Fyrirbærið
er ein af sumarmyndunum í
og segir af ósköp venjulegum
manni í amerískum smábæ
sem verður fyrir eldingu og
breytist í sniliing með yfímátt-
úrulega hæfileika (svipað efni
og í myndinni „Powder", sem
sýnd var nýlega hér á landi).
Travolta verður að meiriháttar
fyrirbæri í bænum og tekst á
við hinar breyttu aðstæður og
viðbrögð vina sinna með sínum
hætti. Leikstjórinn Turteltaub
gerði síðast rómantísku gam-
anmyndina Á meðan þú svafst
með Söndru Bullock en virðist
nú feta í fótspor Frank Cap-
ras, sem sagði snilldarlega frá
undrum ameríska smábæjar-
lífsins í myndum sínum.
ALLS sáu um 6.000
manns spennutryllinn Bráð-
an bana með van Damme
í Laugarásbíói en sýningum
á henni er nú lokið.
Þúsund manns höfðu séð
McMullenbræðurna eftir
síðustu helgi, 2.000 „A
Thin Line Between Love
and Hate“ og 1.200 Á síð-
ustu stundu.
Næstu myndir Laugarás-
bíós eru„Screamers“ með
Peter Weller, „Up Close and
Personal“ með Robert Red-
ford en hún verður einnig
í Regnboganum, „White
Squall“ með Jeff Bridges
og „Mullholland Fall“ með
Nick Nolte.
Síðar í sumar koma svo
myndirnar „The Quest“
með van Damme og fram-
haldsmyndin Flóttinn frá
Los Angeles með Kurt
Russell undir stjórn John
Carpenters. í haust eru
væntanlegar myndirnar
„The Crow 2“, „Last Man
Standing“ með Bruce Willis
og Eyja dr. Moreau í leik-
stjórn John Frankenhei-
mers.
í BÍÓ
6.000 sáu Bráðan bana
Hver er framtíó þessara kallaf
DOPHA USARNIR
EINHVER besta myndin í
kvikmyndahúsunum í
Reykjavík undanfarnar vik-
urnar er skoska myndin
Trufluð tilvera eða „Train-
spotting“ eins og hún heitir
á frummálinu. Myndin hefur
vakið verðskuldaða athygli
hér heima og hlotið mjög
góða aðsókn. Næstum
10.000 manns hafa séð
hana, sem hlýtur að teljast
gott á skoska mynd hérlend-
is. í Bretlandi hefur hún
verið feikilega vinsæl og
auðvitað vakið mun meiri
athygli og harkalegri við-
brögð og þar er spurt í rit-
stjórnargreinum hvort
ástandið sé virkilega eins
slæmt á meðal dóphausanna
í Skotlandi og myndin lýsir.
Kvikmyndina gerir ungur
og upprennandi leik-
stjóri á Bretlandseyjum,
Danny Boyle að nafni, en
hann gerði spennutryllinn
„Shallow
Grave“ á
undan
henni og
hefur með
aðeins
þessum
tveimur
myndum
orðið helsta
von breska kvikmyndaiðn-
aðarins. Þeim iðnaði veitir
sannarlega ekkert af von-
arglætu eftir mörg mögur
ár. Myndin er skelfilega
raunsæ og grámygluleg út-
tekt á lífi dópista en ekki
laus við svartan húmor, sem
á sjálfsagt mikinn þátt í að
gera hana eins vinsæla og
raun ber vitni. Hópur lítt
þekkra leikara fer með hlut-
verk nokkurra heroínfíkla í
Edinborg sem hata skoska
smáborgaralífið en lifa fyrir
einn skammt í einu í við-
bjóðslegu dópbæli sínu og
eru svo útúr heiminum að
þau taka ekki eftir því þegar
ungbarn eins þeirra deyr á
endanum úr vannæringu.
Myndin fylgir mest ferðum
sögumannsins sem ný
stjarna á breska kvikmynda-
sviðinu leikur, Ewan
McGregor nafni, þar sem
hann m.a. reynir að hreinsa
sig af fíkninni, á frábæra
ræðu um aumingjaskap
Skota í samskiptum við
Englendinga og virðist á
endanum stefna í borgara-
legt líferni með þjófstolið fé.
McGregor, sem einnig var
skemmtilega brattur í
„Shallow Grave“, er nú
kominn til Hollywood að
leika á móti Nick Nolte í
spennutryllinum „Nig-
htwatch". Hann er 25 ára
gamall og þetta er í fyrsta
sinn sem hann vinnur í
Bandaríkjunum og menn
spyija hvort hann eigi eftir
að feta í fótspor Gary Old-
mans og Tim Roth og vinna
alfarið vestra. Öðru máli
gegnir um leikstjórann Bo-
yle og félaga hans tvo, hand-
ritshöfundinn John Hodge
og framleiðandann Andrew
Macdonald, sem eiga ekki
hvað sístan þátt í vinsældum
myndanna tveggja. Boyle
hefur fengið atvinnutilboð
frá Hollywood en hann og
félagar hans hafa einsett sér
að vinna heima og urðu í
raun þjóðhetjur þegar sú til-
kynning barst frá þeim.
Boyle hafnaði boði um að
leikstýra fjórðu Alien-mynd-
inni. I stað þess ætlar hann
að gera þriðju myndina sem
þeir félagamir framleiða og
heitir „A Life Less Ordin-
ary“ um Ijármálaævintýri
Skota nokkurs í Bandaríkj-
unum.
„Breska pressan gerir
mikið úr því að ég skuli fara
til Bandaríkjanna að vinna,“
hefur kvikmyndatímarit eft-
ir McGregor. „Ég geri það
ekki. Og ég ætla ekki að búa
þar. Margt gott er að gerst
í Bretlandi þessa stundina
og ég fer þangað sem vinnu
er að fá. Þangað sem góð
handrit verða til.“ Hann hef-
ur nýlokið við að leika í nýj-
ustu mynd Peters Gre-
eftir Arnald
Indriðason
enaways, „The Pillow
Book“, og Emmu, sem
byggist á sögu Jane Austen.
I sumar verður hann á ír-
landi að gera „The Serp-
ent’s Kiss“.
Breska pressan fylgist
grannt með þeim félögum
því McGregor, Boyle og
Macdonald gætu verið
mennirnir sem bresku bíó-
myndirnar hafa beðið eftir.
Synd ef þeir yrðu allir keypt-
ir til Hollywood.
Á FRAMABRAUT;
Ewan McGregor er
stórkostlegur í „Train-
spotting“ og er þegar
farinn að vinna í Holly-
wood.
Astralski leik-
stjórinn Baz
Luhrmann („Strickly
Ballroom") vinnur nú
við gerð nútímalegr-
ar kvikmyndaútgáfu
af Rómeó og Júlíu
eftir William Shake-
speare. Tökur fóru
fram í Mexíkó en
með titilhlutverkin
fara Leonardo
DiCaprio og Claire
Danes.
Myndin er látin
gerast í óþekkri stór-
borg og texti skálds-
ins er lagaður að
málfari unga fólksins
í dag. Rómeó er
brattur vel og ekur
um á silfurlituðum
blæjubíl og Júlía
stendur ástfangin úti
Luhrmann gerir
Rómeó og Júlíu
á svölum en dettur svo oní matreiddur svo því leiðist
sundlaug. Myndinni er ætlað ekki. Tökurnar gengu ekki
að höfða til unga fólksins sem andskotalaust fyrir sig í Mex-
sækir mest kvikmyndirnar (kó, vond veður og óhöpp
og er Shakespeare greinilega töfðu fýrir framleiðslunni.
Eólk
MÆvintýrið um Gosa og
lyganefið hans hefur verið
kvikmyndað undir stjórn
Steven Barron sem áður
gerði myndirnar um
stökkbreyttu ninja-skjald-
bökurnar. Gosi sjálfur er
í brúðulíki en leikarar af
holdi og blóði leika á móti
honum, m.a. Martin
Landau, sem leikur smið-
inn, og Genevieve Bu-
jold.
MÍ nýjustu mynd sinni
leikur Ray Liotta fjölda-
morðingja á móti Lauren
Holly undir leikstjórn
Robert Butlers. Myndin
heitir „Turbulence" og
fer mikill hluti hennar
fram í flugvél þar sem
fjöldamorðinginn Liotta
og flugþernan Holly beij-
ast upp á líf og dauða.
★ Breski leikarinn David
Thewlis er einn af þeim
sem farinn er að leika æ
meira í Hollywoodmynd-
um, að því er virðist þvert
gegn sínum vilja. „Þegar
ég kom út af Vatnaveröld
sór ég þess dýran eið að
vinna aldrei aftur í Holly-
wood. Fjórum vikum
seinna var ég staddur uppi
á kletti úti á reginhafi,“
er haft eftir honum. Nýja
Hollywoodmyndin hans er
Eyja dr. Moreaus sem
John Frankenheimer
gerir en Marlon Brando
fer með eitt aðalhlutverk-
anna.
MKvikmyndaleikur er eitt
af áhugamálum körfu-
boltaleikarans Shaquille
O’Neal en ný mynd með
honum verður bráðlega
frumsýnd vestra og heitir
hún „Kazaam“. Eftir lýs-
ingunni að dæma er hér
dæmigert þrjúbíó á ferð-
inni.