Morgunblaðið - 07.08.1996, Page 14
14 F MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Bjartsýni
ríkjandi á
fasteigna-
markaðnum
Eftirspum efbír fasteignum er nú mikil
og umsvif á markaðnum eftir því. Hér fjall-
ar Magnús Signrðsson um markaðinn
í viðtali við tvo kunna fasteignasala og
verðbréfasala.
í heild hafa langtímalán lánastofnana haft mikil áhrif á fasteignamarkaðinn. Þessi lán eru mikið
notuð til þess að endurfjármagna skammtímalán vegna íbúðarkaupa eða þá að greiða upp óhagstæð
lán, en vextir hafa Iækkað.
Morgunblaðið/Ásdís
VESTURBÆRINN er vinsæll eins og áður. Hjá Fasteignamark-
aðnum er nú til sölu efri sérhæð að Tómasarhaga 26 og er hún
155 ferm. að stærð. Hæðinni fylgir einstaklingsíbúð í kjallara,
sem er nær 40 ferm. og er hún með sérinngangi. Hæðin og íbúð-
in seljast í einu lagi og ásett verð er 15,5 millj. kr.
HJÁ Hraunhamri eru til sölu nýjar íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum
við Suðurbraut í Hafnarfirði. íbúðirnar eru ýmist 2ja eða 3ja
herb. Tveggja herb. íbúðimar eru um 78 ferm. og kosta 6.350.000
kr. fullbúnar án gólfefna en þriggja herb. íbúðirnar rúmir 94
ferm. og kosta 7.290.000 kr. án gólfefna.
AÐ er mjög bjart yfir fast-
eignamarkaðnum um
þessar mundir. Eftir-
spum er góð og viðskipti
lífleg. Þannig komst Jón Guðmunds-
son, formaður Félags fasteignasala,
að orði í viðtali við Morgunblaðið.
Þetta hefur gerzt með aukinni at-
vinnu og bjartari horfum á efna-
hagssviðinu. Byggingariðnaðurinn
hefur tekið vel við sér. Mikil eftir-
spum er eftir nýsmíði og hefur hún
farið vaxandi á undanfömum vik-
um.
Að sögn Jóns Guðmundssonar
hafa stærri eignir verið að seljast
og talsverð hreyfíng er einnig á
atvinnuhúsnæði. Þetta er ekki hvað
sízt að þakka fasteignalánum til
lengri tíma, sem nú eru í boði og
hafa haft í för með sér breytt við-
horf á markaðnum. Fasteignaverð
hefur samt staðið í stað til þessa,
en með aukinni eftirspurn er ekki
ólíklegt, að verð fari eitthvað hækk-
andi.
Miðbærinn eftirsóttur
Lítil breyting virðist vera milli
einstakra hverfa frá því sem var. —
Þó hefur eftirspurn stöðugt verið
að vaxa eftir íbúðarhúsnæði nálægt
miðborginni og í mörgum tilvikum
er sár vöntun á eignum á þeim svæð-
um, sagði Jón. — Sala á öllum gerð-
um af atvinnuhúsnæði hefur verið
lífleg að undanfömu og það allt upp
í mjög dýrt húsnæði. Laugarvegur-
inn heldur velli og eftirspurn verzl-
unareigenda eftir plássum þar hefur
farið vaxandi.
Húsnæði, sem þar kemur í sölu
eða leigu, hefur farið fljótt og fjöldi
fyrirspyijenda er alltaf um það hús-
næði, sem losnar. Fermetrinn í góðu
verzlunarhúsnæði við Laugaveg
hefur verið að seljast á bilinu
100.000-150.000 kr. og mjög góðar
útborganir em í boði. Ákveðin tengsl
em ávallt á milli leigu og söluverðs
og þvf má ætla, að leiga á þessu
svæði fari líka hækkandi.
Seljahverfíð er á uppleið. Með
bættum samgöngum er það hætt
að vera jaðarsvæði og margir líta
hýmm augúm til breikkunar á
Reykjanesbrautinni, sem ætti að
verða til þess að fjarlægðir minnki
enn. Það verður til þess, að hverfi,
sem áður vora talin vera í útjaðri,
færast nær í tíma og rúmi. Eftir-
spum eftir húsnæði þar ætti því að
aukast og verð að hækka, ef eitt-
hvað er.
Mikil ásókn hefur verið í íbúðar-
húsnæði í Kópavogsdal vegna góðr-
ar legu svæðisins og hefur dalurinn
þótt einn af betri kostum höfuðborg-
arsvæðisins um 1-2 ára skeið. At-
vinnuhúsnæði þar á eflaust eftir að
verða mjög eftirsótt, en hin hraða
þétting byggðar í Smára- og Fífu-
hvammslandi kallar á mikla upp-
byggingu þar fyrir verzlun og þjón-
ustu. Þau hverfi í Grafarvogi, sem
em lengst í burtu, hafa hins vegar
átt í vök að verjast gagnvart þessum
nýju hverfum í Kópavogi.
Að sögn Jóns Guðmundssonar
heldur Vesturbærinn alltaf sínu. Hjá
fasteignasölu hans, Fasteignamark-
aðnum, er nú til sölu efri sérhæð
að Tómasarhaga 26 og er hún 155
ferm. að stærð. í henni era tvær
samliggjandi stofur með teppi á
gólfum og svalir og ennfremur 2-3
svefnherbergi í svefnálmu. Eldhúsið
er með borðkrók, en sér þvottahús
er í kjallara.
Hæðinni fylgir einstaklingsíbúð í
kjallara, sem er nær 40 ferm. og
er hún með sérinngangi. Þar er stofa
með eldhúsaðstöðu fyrir utan bað-
herbergi, þar sem tengt er fyrir
þvottavél og ennfremur fataher-
bergi. Hæðin ásamt íbúðinni í kjall-
ara seljast í einu lagi og er ásett
verð 15,5 millj. kr. — Þetta er góð
eign á góðum stað, sagði Jón Guð-
mundsson að lokum.
Lítið óselt af nýjum íbúðum
í Firðinum
Fasteignamarkaðurinn í Hafnar-
firði er að mörgu leyti frábmgðinn
því, sem gerist í Reykjavík. í Firðin-
um er t. d. lítið til af óseldum nýjum
íbúðum í fjölbýlishúsum, en þar er
hins vegar til þó nokkuð óselt af
par- og raðhúsum í Setbergslandi.
I heild er verð á íbúðarhúsnæði þar
mjög sambærilegt við það, sem ger-
ist í Reykjavík og annars staðar á
höfuðborgarsvæðinu.
Að sögn Magnúsar Emilssonar,
fasteignasala hjá Hraunhamri í
Hafnarfírði, hefur salan gengið vel
í sumar og júlímánuður verið
óvenjugóður, miðað við að það er
hásumar. Góð hreyfing hefur verið
á notuðu húsnæði og framboð og
eftirspum em í jafnvægi. Verð er
svipað og verið hefur og kvaðst
Magnús ekki sjá neina hækkun
framundan.
— Það er lítið til hér af nýjum
íbúðum í fjölbýlishúsum, sagði
Magnús. — Hjá Hraunharnri höfum
við þó til sölu fáeinar nýjar íbúðir
við Háholt og Klapparholt auk nýrra
ibúða við Suðurbraut, sem bygg-
ingafyrirtækið Sigurður og Júlíus
hafa byggt. Það sem einkennir þær,
eru gæði miðað við verð. íbúðirnar
em í tveimur fjölbýlishúsum, sem í
eru 26 íbúðir og eru 12 þeirra óseld-
ar. Ibúðimar eru ýmist 2ja eða 3ja
herb. og verð þeirra að sjálfsögðu
mismunandi eftir stærð. Tveggja
herb. íbúðirnar em um 78 ferm. og
kosta 6.350.000 kr. fullbúnar án
gólfefna en þriggja herb. íbúðimar
rúmir 94 ferm. og kosta 7.290.000
kr. án gólfefna.
Húsin em hönnuð af Ársæli Vign-
issyni arkitekt. Þau standa hlið við
hlið og em all áberandi í umhverfi
sínu. Því veldur m. a. liturinn, en
húsin eru tvílit. Þau eru blágræn á
neðstu hæð en rauðbrún þar fyrir
ofan. Þakið er hvítt og klætt báru-
stáli. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð
í báðum húsunum nema á neðstu
hæð í því stærra, en þar em þær
þrjár.
Húsin em steypt upp á hefðbund-
inn hátt, en klædd að utan með
svokölluðu Steni, sem er varanleg
klæðning og mikil og góð reynsla
er komin á. Aðkoma að húsunum
báðum er frá frá Suðurbraut, en
meðfram henni er búið að setja upp
hljóðmön norðanvert við húsin tii
þess að draga úr umferðarhávaða,
þannig að íbúarnir eiga ekki að
verða fyrir truflun af völdum bíla-
umferðar.
Gott útsýni er frá efri hæðum
húsanna en allar eru íbúðirnar með
svölum nema neðstu hæðirnar. Þær
hafa aftur á móti sérlóð fyrir sig
sunnanvert við húsin og er útgengt
út á hana úr íbúðunum. Athygli
vekur mjög sérstæður horngluggi í
eldhúsi hverrar íbúðar. Þessi gluggi
gefur eldliúsinu skemmtilegan svip
og eykur útsýnið.
f f
EIGNAHOLLIN
FASTEIGNASALA
552-4111
Fúla" || Tasteignasala Hverfisgata 76 - 4.hæð
Félag || fa.steignaMai
2ja herb.
Pósthússtræti - glæsiíbúð
Frakkastígur - miðbær.
Glæsil. 3-4 herb. íb. sem er hæð og
ris. Ib. er öll uppgerð. Nýtt parket á
gólfum. Áhv. byggsj. 3,6 miilj. Verð
7,6 millj.
Grensásvegur
Mjög góð 72 fm íb. á 2. hæð I góðu fjölb.
f nágrenni Grensásdeildar. Mögul. er að
fá eignina með nýju parketi. Áhv. 4,8
millj. Verð 6,5 millj. Ath. góð grkj.
Vorum að fá I sölu 75 fm glæsilega íb. á 3.
hæð I þessu eftirsótta lyftuhúsi. Parket og
granit-flisar á gólfum, góðar innr. Mögul.
á bílstæði. Áhv. 3,0 millj. Verð 7,9 millj.
Bergstaðastræti - miðb.
Lítil snotur íb. með sérinng. I miðbæ
Reykjavíkur. Parket, ný eldh.innr. Mögul.
á baðstofulofti. Nýtt þak. Áhv. 1,2 millj.
Verð 4,2 millj.
Flyðrugrandi - KR-ingar
Glæsii. stór íb. á fráb. stað í Vesturbæ.
Parket, sérsm. eldh.innr. Gott skápa-
pláss. Suðursv. Útsýni. Sameiginl. sána-
bað i húsinu. Áhv. 3,8 millj. Verð 6,5
milij.
Mánagata - Ódýr
íb. sem kemur skemmtil. á óvart. Nýtist
mjög vel. Áhv. 1,9 mlllj. Verð 3,2 millj.
Njálsgata - miðbær
Mjög skemmtil. og snotur íb. Ný gólfefni
og fallegar innr. Verð 3,8 millj.
3ja herb.
Barðavogur - rishæð
Rúmg. íb. i þrib. á góðum og rólegum
staö. Áhv. byggsj. 3,5 millj. Verð 7,5
mitlj.
Vindás - bílskýli
Stórglæsil. íb. á 1. hæð i nýl. fjölb.
Parket. Glæsil. innr. Frábær eign sem
vert er að skoða strax í dag. Áhv. 3,5
millj. byggsj. Verð 7,3 mlllj.
4ra herb.
Tómasarhagi - rishæð
Frábær eign á besta stað í Vesturbænum,
með glæsil. útsýni yfir SkerjafjörÐinn og
18 fm sólrikum suðursv. Sjón er sögu rík-
ari. Verð 8,3 millj.
Garðabær - Hagaflöt
Gott ca 120 fm einb. á einum besta stað
á Flötunum með ca 45 fm bílsk. Nýtt
parket á holi og stofum. Stór og fallegur
garður. Hiti í plani. Verð 11,9 millj.
Mosfellsbær - Grundartangi
Litið og notalegt raðhús 75 fm. 2 svefn-
herb. Merbau-parket. Sólrfk suðurverönd.
Skipti óskast gjaman á stærri eign með
bílsk. Áhv. 3,5 mlllj. Verð 7,9 millj.
Hátún - sérhæð
Alveg einstök, björt og falleg sérhæð á
þessum eftirsótta stað. Parket á öllum
gólfum. Ca 40 fm skúr sem býður uþp á
ýmsa mögul. Áhv. húsbr. 4,8 millj. Verð
7,4 millj.
Jóhann Friðgeir Valdimarsson,
Helga Leifsdóttir, hdl., Valdís Viðarsdóttir, sölum.