Morgunblaðið - 07.08.1996, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 07.08.1996, Qupperneq 14
14 F MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 MORGUNBLAÐIÐ Bjartsýni ríkjandi á fasteigna- markaðnum Eftirspum efbír fasteignum er nú mikil og umsvif á markaðnum eftir því. Hér fjall- ar Magnús Signrðsson um markaðinn í viðtali við tvo kunna fasteignasala og verðbréfasala. í heild hafa langtímalán lánastofnana haft mikil áhrif á fasteignamarkaðinn. Þessi lán eru mikið notuð til þess að endurfjármagna skammtímalán vegna íbúðarkaupa eða þá að greiða upp óhagstæð lán, en vextir hafa Iækkað. Morgunblaðið/Ásdís VESTURBÆRINN er vinsæll eins og áður. Hjá Fasteignamark- aðnum er nú til sölu efri sérhæð að Tómasarhaga 26 og er hún 155 ferm. að stærð. Hæðinni fylgir einstaklingsíbúð í kjallara, sem er nær 40 ferm. og er hún með sérinngangi. Hæðin og íbúð- in seljast í einu lagi og ásett verð er 15,5 millj. kr. HJÁ Hraunhamri eru til sölu nýjar íbúðir í tveimur fjölbýlishúsum við Suðurbraut í Hafnarfirði. íbúðirnar eru ýmist 2ja eða 3ja herb. Tveggja herb. íbúðimar eru um 78 ferm. og kosta 6.350.000 kr. fullbúnar án gólfefna en þriggja herb. íbúðirnar rúmir 94 ferm. og kosta 7.290.000 kr. án gólfefna. AÐ er mjög bjart yfir fast- eignamarkaðnum um þessar mundir. Eftir- spum er góð og viðskipti lífleg. Þannig komst Jón Guðmunds- son, formaður Félags fasteignasala, að orði í viðtali við Morgunblaðið. Þetta hefur gerzt með aukinni at- vinnu og bjartari horfum á efna- hagssviðinu. Byggingariðnaðurinn hefur tekið vel við sér. Mikil eftir- spum er eftir nýsmíði og hefur hún farið vaxandi á undanfömum vik- um. Að sögn Jóns Guðmundssonar hafa stærri eignir verið að seljast og talsverð hreyfíng er einnig á atvinnuhúsnæði. Þetta er ekki hvað sízt að þakka fasteignalánum til lengri tíma, sem nú eru í boði og hafa haft í för með sér breytt við- horf á markaðnum. Fasteignaverð hefur samt staðið í stað til þessa, en með aukinni eftirspurn er ekki ólíklegt, að verð fari eitthvað hækk- andi. Miðbærinn eftirsóttur Lítil breyting virðist vera milli einstakra hverfa frá því sem var. — Þó hefur eftirspurn stöðugt verið að vaxa eftir íbúðarhúsnæði nálægt miðborginni og í mörgum tilvikum er sár vöntun á eignum á þeim svæð- um, sagði Jón. — Sala á öllum gerð- um af atvinnuhúsnæði hefur verið lífleg að undanfömu og það allt upp í mjög dýrt húsnæði. Laugarvegur- inn heldur velli og eftirspurn verzl- unareigenda eftir plássum þar hefur farið vaxandi. Húsnæði, sem þar kemur í sölu eða leigu, hefur farið fljótt og fjöldi fyrirspyijenda er alltaf um það hús- næði, sem losnar. Fermetrinn í góðu verzlunarhúsnæði við Laugaveg hefur verið að seljast á bilinu 100.000-150.000 kr. og mjög góðar útborganir em í boði. Ákveðin tengsl em ávallt á milli leigu og söluverðs og þvf má ætla, að leiga á þessu svæði fari líka hækkandi. Seljahverfíð er á uppleið. Með bættum samgöngum er það hætt að vera jaðarsvæði og margir líta hýmm augúm til breikkunar á Reykjanesbrautinni, sem ætti að verða til þess að fjarlægðir minnki enn. Það verður til þess, að hverfi, sem áður vora talin vera í útjaðri, færast nær í tíma og rúmi. Eftir- spum eftir húsnæði þar ætti því að aukast og verð að hækka, ef eitt- hvað er. Mikil ásókn hefur verið í íbúðar- húsnæði í Kópavogsdal vegna góðr- ar legu svæðisins og hefur dalurinn þótt einn af betri kostum höfuðborg- arsvæðisins um 1-2 ára skeið. At- vinnuhúsnæði þar á eflaust eftir að verða mjög eftirsótt, en hin hraða þétting byggðar í Smára- og Fífu- hvammslandi kallar á mikla upp- byggingu þar fyrir verzlun og þjón- ustu. Þau hverfi í Grafarvogi, sem em lengst í burtu, hafa hins vegar átt í vök að verjast gagnvart þessum nýju hverfum í Kópavogi. Að sögn Jóns Guðmundssonar heldur Vesturbærinn alltaf sínu. Hjá fasteignasölu hans, Fasteignamark- aðnum, er nú til sölu efri sérhæð að Tómasarhaga 26 og er hún 155 ferm. að stærð. í henni era tvær samliggjandi stofur með teppi á gólfum og svalir og ennfremur 2-3 svefnherbergi í svefnálmu. Eldhúsið er með borðkrók, en sér þvottahús er í kjallara. Hæðinni fylgir einstaklingsíbúð í kjallara, sem er nær 40 ferm. og er hún með sérinngangi. Þar er stofa með eldhúsaðstöðu fyrir utan bað- herbergi, þar sem tengt er fyrir þvottavél og ennfremur fataher- bergi. Hæðin ásamt íbúðinni í kjall- ara seljast í einu lagi og er ásett verð 15,5 millj. kr. — Þetta er góð eign á góðum stað, sagði Jón Guð- mundsson að lokum. Lítið óselt af nýjum íbúðum í Firðinum Fasteignamarkaðurinn í Hafnar- firði er að mörgu leyti frábmgðinn því, sem gerist í Reykjavík. í Firðin- um er t. d. lítið til af óseldum nýjum íbúðum í fjölbýlishúsum, en þar er hins vegar til þó nokkuð óselt af par- og raðhúsum í Setbergslandi. I heild er verð á íbúðarhúsnæði þar mjög sambærilegt við það, sem ger- ist í Reykjavík og annars staðar á höfuðborgarsvæðinu. Að sögn Magnúsar Emilssonar, fasteignasala hjá Hraunhamri í Hafnarfírði, hefur salan gengið vel í sumar og júlímánuður verið óvenjugóður, miðað við að það er hásumar. Góð hreyfing hefur verið á notuðu húsnæði og framboð og eftirspum em í jafnvægi. Verð er svipað og verið hefur og kvaðst Magnús ekki sjá neina hækkun framundan. — Það er lítið til hér af nýjum íbúðum í fjölbýlishúsum, sagði Magnús. — Hjá Hraunharnri höfum við þó til sölu fáeinar nýjar íbúðir við Háholt og Klapparholt auk nýrra ibúða við Suðurbraut, sem bygg- ingafyrirtækið Sigurður og Júlíus hafa byggt. Það sem einkennir þær, eru gæði miðað við verð. íbúðirnar em í tveimur fjölbýlishúsum, sem í eru 26 íbúðir og eru 12 þeirra óseld- ar. Ibúðimar eru ýmist 2ja eða 3ja herb. og verð þeirra að sjálfsögðu mismunandi eftir stærð. Tveggja herb. íbúðirnar em um 78 ferm. og kosta 6.350.000 kr. fullbúnar án gólfefna en þriggja herb. íbúðimar rúmir 94 ferm. og kosta 7.290.000 kr. án gólfefna. Húsin em hönnuð af Ársæli Vign- issyni arkitekt. Þau standa hlið við hlið og em all áberandi í umhverfi sínu. Því veldur m. a. liturinn, en húsin eru tvílit. Þau eru blágræn á neðstu hæð en rauðbrún þar fyrir ofan. Þakið er hvítt og klætt báru- stáli. Fjórar íbúðir eru á hverri hæð í báðum húsunum nema á neðstu hæð í því stærra, en þar em þær þrjár. Húsin em steypt upp á hefðbund- inn hátt, en klædd að utan með svokölluðu Steni, sem er varanleg klæðning og mikil og góð reynsla er komin á. Aðkoma að húsunum báðum er frá frá Suðurbraut, en meðfram henni er búið að setja upp hljóðmön norðanvert við húsin tii þess að draga úr umferðarhávaða, þannig að íbúarnir eiga ekki að verða fyrir truflun af völdum bíla- umferðar. Gott útsýni er frá efri hæðum húsanna en allar eru íbúðirnar með svölum nema neðstu hæðirnar. Þær hafa aftur á móti sérlóð fyrir sig sunnanvert við húsin og er útgengt út á hana úr íbúðunum. Athygli vekur mjög sérstæður horngluggi í eldhúsi hverrar íbúðar. Þessi gluggi gefur eldliúsinu skemmtilegan svip og eykur útsýnið. f f EIGNAHOLLIN FASTEIGNASALA 552-4111 Fúla" || Tasteignasala Hverfisgata 76 - 4.hæð Félag || fa.steignaMai 2ja herb. Pósthússtræti - glæsiíbúð Frakkastígur - miðbær. Glæsil. 3-4 herb. íb. sem er hæð og ris. Ib. er öll uppgerð. Nýtt parket á gólfum. Áhv. byggsj. 3,6 miilj. Verð 7,6 millj. Grensásvegur Mjög góð 72 fm íb. á 2. hæð I góðu fjölb. f nágrenni Grensásdeildar. Mögul. er að fá eignina með nýju parketi. Áhv. 4,8 millj. Verð 6,5 millj. Ath. góð grkj. Vorum að fá I sölu 75 fm glæsilega íb. á 3. hæð I þessu eftirsótta lyftuhúsi. Parket og granit-flisar á gólfum, góðar innr. Mögul. á bílstæði. Áhv. 3,0 millj. Verð 7,9 millj. Bergstaðastræti - miðb. Lítil snotur íb. með sérinng. I miðbæ Reykjavíkur. Parket, ný eldh.innr. Mögul. á baðstofulofti. Nýtt þak. Áhv. 1,2 millj. Verð 4,2 millj. Flyðrugrandi - KR-ingar Glæsii. stór íb. á fráb. stað í Vesturbæ. Parket, sérsm. eldh.innr. Gott skápa- pláss. Suðursv. Útsýni. Sameiginl. sána- bað i húsinu. Áhv. 3,8 millj. Verð 6,5 milij. Mánagata - Ódýr íb. sem kemur skemmtil. á óvart. Nýtist mjög vel. Áhv. 1,9 mlllj. Verð 3,2 millj. Njálsgata - miðbær Mjög skemmtil. og snotur íb. Ný gólfefni og fallegar innr. Verð 3,8 millj. 3ja herb. Barðavogur - rishæð Rúmg. íb. i þrib. á góðum og rólegum staö. Áhv. byggsj. 3,5 millj. Verð 7,5 mitlj. Vindás - bílskýli Stórglæsil. íb. á 1. hæð i nýl. fjölb. Parket. Glæsil. innr. Frábær eign sem vert er að skoða strax í dag. Áhv. 3,5 millj. byggsj. Verð 7,3 mlllj. 4ra herb. Tómasarhagi - rishæð Frábær eign á besta stað í Vesturbænum, með glæsil. útsýni yfir SkerjafjörÐinn og 18 fm sólrikum suðursv. Sjón er sögu rík- ari. Verð 8,3 millj. Garðabær - Hagaflöt Gott ca 120 fm einb. á einum besta stað á Flötunum með ca 45 fm bílsk. Nýtt parket á holi og stofum. Stór og fallegur garður. Hiti í plani. Verð 11,9 millj. Mosfellsbær - Grundartangi Litið og notalegt raðhús 75 fm. 2 svefn- herb. Merbau-parket. Sólrfk suðurverönd. Skipti óskast gjaman á stærri eign með bílsk. Áhv. 3,5 mlllj. Verð 7,9 millj. Hátún - sérhæð Alveg einstök, björt og falleg sérhæð á þessum eftirsótta stað. Parket á öllum gólfum. Ca 40 fm skúr sem býður uþp á ýmsa mögul. Áhv. húsbr. 4,8 millj. Verð 7,4 millj. Jóhann Friðgeir Valdimarsson, Helga Leifsdóttir, hdl., Valdís Viðarsdóttir, sölum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.