Morgunblaðið - 07.08.1996, Side 22
22 F MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Sumarið er tími
viðhalds utanhúss
Húseigandi verður að skilgreina, hvað fram-
kvæma á, segir Eyjólfur Bjarnason, verk-
fræðingur hjá Samtökum iðnaðaríns. Hann
þarf að hafa allnákvæmar kostnaðaráætlan-
ir og verklýsingar í höndum.
Morgunblaðið/Ásdís
AUKNING hefur orðið í viðhaldsverkefnum á þessu sumri. Þessi
mynd er af stóru fjölbýlishúsi við Safamýri, þar sem unnið erað
umfangsmiklum viðgerðum.
ÞETTA fallega nýuppgerða hús stendur við Óðinsgötu. Veðurfar
í vor og sumar hefur verið mjög hagstætt til viðgerða utanhúss.
Inokkur ár hefur verið talað um
að fyrir dyrum standi mikið
viðhald á fasteignum landsmanna.
Mikill fjöldi fasteigna sé kominn á
þann aldur að viðhalds sé þörf.
Einhverra hluta vegna hefur við-
haldsvinna ekki orðið jafnmikil og
ætla mátti. Samt sem áður eru
fjölmargir verktakar sem hafa sér-
hæft sig á sviði húsaviðgerða.
Lögð hefur verið vinna í að þróa
aðferðir og efni sem henta til mis-
munandi verkefna og aðstæðna. í
sumum tilfellum getur verið erfitt
að greina á milli hvaða aðferðir
og efni eru best í hveiju tilfelli og
því þarf góðan tíma og fagþekk-
ingu til að taka ákvarðanir um það.
Aukning í húsaviðgerðum
Nú bregður svo við að á þessu
sumri hefur verið nokkur aukning
í húsaviðgerðum og má segja að
þær hafi hafist fyrr á árinu en
áður hefur þekkst. Hver ástæðan
fyrir þessu er, er ekki gott að segja,
en nefna má að veðurfar var mjög
hagstætt á síðastliðnu vori og að
húseigendur eiga orðið auðveldara
með að fá lánsfé til þessara fram-
kvæmda en áður var. Húsnæðis-
stofnun lánar orðið til kostnaðar-
minni framkvæmda en áður og
fjármálafyrirtæki eru einnig tilbúin
til að lána til slíkra framkvæmda.
Þau fyrirtæki sem hafa sérhæft
sig í viðgerðum húsa koma víða
við. Ekki er eingöngu um að ræða
fyrirtæki í utanhúsviðhaldi heldur
eru þau líka í viðhaldi innan dyra,
t.d. pípulögnum, blikksmíði, múr-
verki og trésmíði. Hjá Samtökum
iðnaðaðarins er starfrækt Við-
gerðadeild. I henni eru verktakar
sem starfa í ofnagreindum iðn-
greinum.
Megin markmiðið með deildinni
er að hafa á einum stað verktaka
sem hafa sérhæft sig í húsavið-
gerðum og sem hafa sýnt það með
verkum sínum að unnið sé af fag-
mennsku. Lögð er rík áhersla á
að notuð séu viðurkennd efni og
að aðferðir séu samkvæmt nýjustu
og bestu vitneskju á hveiju sviði.
Það færist stöðugt. í vöxt að
gömul hús séu tekin í gegn og
endurnýjuð. Mörg dæmi eru um
slíkar framkvæmdir á undanförn-
um árum. Það er virðingarvert
þegar fólk leggur út í slíkt og þá
sérstaklega þegar eldri hús eru
færð í sitt upprunalega horf. í
húsum eru geymd mikil menning-
arverðmæti sem segja sögu lands
og þjóðar. Sorglegt er hve hið opin-
bera (ýmsir sjóðir) hefur lítið getað
styrkt þá sem leggja út í slíkar
framkvæmdir sem líkja má við
björgun menningarverðmæta.
Góður undibúningur
borgar sig
Eins og áður sagði getur húsa-
viðhald verið mjög flókin vinna sem
samsett er úr mörgum verkþáttum.
Ekkert verk er í raun líkt fyrri
verkum sem viðgerðaverktakar
hafa verið í áður. Reynslan er því
dýrmæt og nauðsynleg. Oft er
ekki hægt að sjá fyrirfram hvað
býr undir málningunni eða hvað
er undir veggklæðningum áður en
rifið er niður. Af þessum orsökum
koma oft upp verkþættir sem gera
viðgerðir dýrari en í upphafi var
áætlað. En því betur sem viðgerð-
ai’verkefnin eru undirbúin því
minni hætta er á að slíkir óvæntir
verkþættir komi upp.
Viðhald húsa getur verið tíma-
frekt og einnig kostnaðarsamt. Því
er mjög mikilvægt að allar slíkar
framkvæmdir séu undirbúnar af
kostgæfni. Húseigandi verður að
hafa skilgreint mjög vel hvað fram-
kvæma á og hafa nokkuð nákvæm-
ar kostnaðaráætlanir og verklýs-
ingar í höndunum áður en hann
gerir verksamning við verktaka um
ákveðna verkhluta.
Með þessu móti einu geta verk-
kaupi og verktaki verið vissir um
að verið sé að hefja verk sem vitað
er hvernig á að vinna og hvaða
lokapunkt það hefur. Það er of
algengt að ekki sé staðið að málum
með þessum hætti sem hér hefur
verið lýst og því verður útkoman
ekki sú sem samningsaðilar ætlast
til.
Húseigandinn hefur búist við
ákveðinni niðurstöðu og það hefur
verktakinn einnig gert. Aðilarnir
hafa haft sínar hugmyndir um
verkið. Héldu að þeir væru að
ræða um sama hlutinn en voru það
ekki. Báðir geta haft á réttu að
standa miðað við það sem þeir
„héldu“ að þeir hefðu gert samn-
ingsaðila sínum grein fyrir í upp-
hafi. Forðumst því tilviljanakennd
vinnubrögð við undirbúning verka.
Byijum undirbúning tímanlega og
verum viss um hvað á að láta fram-
kvæma.
Það hefur líka komið allt of oft
fram að dýrt er að fresta viðhaldi
húsa. Þeim mun lengur sem við-
gerðir eru dregnar á langinn, þeim
mun dýrari verða þær þegar upp
er staðið og geta í sumum tilfellum
orðið óviðráðanlegar.
Forðumst fúsk
Við hjá Samtökum iðnaðarins
leggjum því áherslu á það að við-
haldi húsa sé sinnt jafnt og þétt
og að til viðgerðastarfa séu einung-
is ráðnir verktakar, fagmenn, sem
hafa til þess þekkingu og reynslu.
Forðumst fúsk og slæm vinnu-
brögð, treystum fagmönnum fyrir
viðhaldsvinnunni. Eg vil einnig
benda á að mjög gott er að gera
viðhaldssamninga við ákveðinn
verktaka sem hægt er að leita til
með það sem aflaga fer í eigninni.
Hér á eftir fara nokkur atriði
sem ég tel að allir húseigendur og
verktakar ættu að hafa hugfast
þegar farið er í framkvæmdir:
Hvað á að láta gera við? Hver
metur umfangið? Hvernig á að
skilgreina verkið? Hver fram-
kvæmir hvað? Munum einnig eftir
nauðsyn þess að gera verksamn-
inga áður en verkið er hafið. Að
öðrum kosti er ekki til neitt hald-
bært sem segir til um hvað verkið
snýst um.
FASIE IGN ASALAN
FINNBOGI KRISTJÁNSSON LÖGG. FASTEIGNASALI
SÍÐUMÚLI 1 SÍMI 533 1313 FAX 533 1314
Opið frá kl. 9-18 virka daga.
Netfang: fron@mmedia.is
Rað- og parhús
Félag fasteignasala
ATH U G IÐ
FASTEIGNAEIGENDUR
Vegna mikillar sölu þá vantar okkur
á Fróni tilfinnanlega flestar tegund-
ir eigna á skrá. Ekkert skoðunar-
gjald. Myndum allar eignir bæði að
innan og utan án nokkurs kostnað-
ar, sem gerir það að verkum að
kaupendur geta skoðað þær eignir
sem við erum með á söluskrá í ró
og næði á skrifstofu okkar.
Einbýlishús
Blikastígur Tveggja ibúða hús. Hvor
íbúð er um 87 fm. Bílskúr fyrir hvora eign.
Ákv. 7,3 húsbréf. Ath. skipti.
Fagraberg Hf. um 153 fm faiiegt
hús sem er hæð og ris. 4 svefnherb. og
fallegur sólpallur og glæsilegur garður.
Verð 12,9
Klettagata Hf. Glæsilegt 304 fm
einbýlishús. Mjög vandaðar innréttingar
og öll önnur aðstaða í húsinu er eins og
best verður á kosið. Ef þú ert að leita þér
að stóru og góðu húsi láttu þá þetta ekki
fram hjá þér fara. Sjón er sögu ríkari.
Verð 17,9 millj.
Starengi Vandað 180 fm hús á einni
hæð með góðum innb. bilskúr. Fokhelt.
Verð 8,5 millj.
DalhÚS Fallegt parhús á rólegum stað
með innbyggðum bilskúr. Stutt í alla
þjónustu. Góður sólskáli og rúmgóð
svefnherbergi. Skipti óskast á minni
eign.
Sjávargata Tvö parhús 125 fm
hvort með góðum bílskúrum og stórri lóð.
Skipti á minni eign. Verð 12,3 millj.
Hæðir
Melhagi 102 fm efri sérhæð ásamt 28
fm bílskúr. 2 svefnherb., 2 skiptanlegar
stofur og suðursvalir. Áhv. 4,2 millj. Verð
8,95 millj.
Ránargata 79 fm íbúð í eidri stíi á 2.
hæð auk riss. 2 stQfur. Sérinngang-
ur.Verð 5,9 millj.
5 herb.
Mávahlíð 124 fm mjög rúmgóð íbúð
í risi með góðum kvistum. 2 stofur og 3
svefnherb. Athyglisverö eign. Verð 8,25
millj.
Skaftahlíð Um 105 fm íbúð. 3 svefn-
herb., stofa og borðstofa. Suðursvalir.
Gott útsýni. Verð 8,5 millj.
Tómasarhagi Vönduð og falleg
112 fm. íbúð í þríbýlishúsi á þessum vin-
sæla stað I vesturbænum. 3 svefnherb.
og 2 stofur. Fallegt útsýni yfir sjóinn. Verð
11 millj.
Vesturberg Góð 4ra til 5 herb. 98 fm
vönduð íbúð á 3ju hasð. Sérþvottahús.
Parket og teppi á gólfum. Verð 6,950 millj.
4ra herb.
Austurberg 85 fm snyrtileg Ibúð
auk 20 fm bílskúrs. Parket á gólfum.
Blokk er öll nýviðgerð að utan. Mikið
áhvílandi. Verð 7,2 millj. EKKERT
GREIÐSLUMAT.
Álfholt - Hfj. 100 fm vönduð íbúð
með sérinngangi. Stórglæsilegt útsýni er
úr íbúðinni í allar áttir. Verð 8,2 millj.
Framnesvegur 95 tm björt enda-
íbúð á 3. hæð. Gott parket, flísar og suð-
ursvalir. Glæsilegt útsýni. Verð 8,0 millj.
Kópavogur 104 fm snyrtileg íbúð á
3. og efstu hæð. Nýtt eldhús, parket og
gott skápapláss. Þvottahús og geymsla
inni i íbúð. Bílskýli. Verð 7,1 millj.
Neðstaleiti Falleg 122 fm rúmgóð
íbúð á 4. hæð. Góðar innréttingar, parket
og flísar. Tvöfalt stæði í bílskýli. Skipti á
minni eign.
Rauðarárstígur um 90 tm
skemmtileg íbúð í nýju húsi ásamt stæði
í bílskýli. Fallega innréttuð. Skipti á
stærri.
Ránargata 87 tm íbúð á 2. hæð.
Sérlega vönduð eign. Góð stofa, 3 svefn-
herb. Sér bílastæði. Verð 8,2 millj.
Stóragerði 95 fm íbúð á 3ju hæð. 2
svefnh. og 2 stofur. Bilskúr. Áhv. 4,3 millj.
og verð 7,5 millj.
Grafarvogur Glæsileg 88 fm 3ja
herb. íbúð. Hátt til lofts og sérstaklega
góðar innréttingar. Besta stæði í bílskýli.
Mjög mikið útsýni. Verð 8,3 millj.
Grensásvegur góö 68,5 tm 3ja
herb. ibúð á 2. hæð með flísum og park-
eti. Góð staðsetning. Gott verð 5,6 millj.
Hraunstígur - Hf. 70 tm ibúð á 2.
hæð í fallegu húsi. Áhvíl. góð lán, byggsj.
2 millj. og Líf. VR 1 millj. Verð 5,5 millj.
Langholtsvegur Rúmgóð og fai-
leg 3ja herb. 80 fm íbúð í þrlbýlishúsi sem
stendur á baklóð með aðkomu frá
Snekkjuvogi. Sérinngangur. Gott verð,
aðeins 5,9 míllj.
Meistaravellir Um so tm ib. á 2
hæð. Vel skipulögð íbúð. Verð 6,9 millj.
Nýbýlavegur 76 fm íbúð á jarðhæð
með 29 fm bílskúr. Parket á gólfum og
flísar á baði. Svalir. Sérþvottahús. Verð
7,5 millj.
Miðbær Rúmgóð 3ja herb. ib. á 4.
hæð. Parket. Suðursvalir. Ath. skipti. Útb.
um 1,7 millj. og afb. um 20 þús. á mán.
Verð 5,8 millj.
Vesturgata Stór og rúmgóð 104 fm
3ja herb. íbúð sem býður upp á mikla
möguleika. Mjög góð lán áhvílandi. Verð
7,9 millj.
íja herb.
Digranesheiði 61 fm bjðrt 2-3ja
herb. ibúð með sérinngangi. Sérþvotta-
hús. Verð 4,8 millj.
Drápuhlíð 59 fm 2-3ja herb. íbúð.
Nýtt eldhús, þak, dren og rafmagn. Sér
forstofuherbergi. Verð 5,3 millj.
Vesturbær 74 fm 2-3ja herb. íbúð á
3. hæð. Bilskýli. Nýlegar innréttingar.
Áhvíl. byggsj. og fl. Útb. 1,9 millj. og afb.
22 þús. á mán. Verð 6,850 millj.
Kleppsvegur 65 fm rúmgóð íbúð á
4. hæð. Tengt fyrir þvottavél. Svalir. Verð
5,2 millj.
Skipasund Rúmgóð 67 fm íbúð á
jarðhæð. Sérgarður. Nýtt þak. Skipti
koma til greina. Verð 5,5 millj.
SKOLAFOLK
Dunhagi 56 fm íbúð með sérinn-
gangi. Parket og nýlegar innréttingar.Góð
fyrstu kaup. Verð 4,750 millj.
Efstasund Falleg 3ja herb. risíbúð í
toppstandi á þessum vinsæla stað. Stór
garður. Gott verð 4,9 millj. Áhv. byggsj. 3
millj. EKKERT GREIÐSLUMAT.
Vesturbærinn Falleg 3ja. herb.
mikið endurnýjuð íbúð. Nýtt dren o.fl. Allt
sér. Verð 4,9 millj.
Skeggjagata 36 fm mjög falleg og
björt íbúð í kjallara á þessum eftirsótta
stað. Parket á gólfum og flísar á baði.
Verð 3,8 millj.
Vallarás Falleg og björt 2ja. herb.
íbúð á þriðju hæð í lyftuhúsi. Mikið útsýni.
Góðar svalir. Áhv. byggsj. Verð 4 millj.
Vesturbraut Hf. Sérstaklega
skemmtileg 48 fm 2ja herb. íbúð í mikið
endurnýjuðu tvibýlishúsi. Parket á gólf-
um. Ný eldhúsinnrétting ofl. VERÐ AÐ-
EINS 3,9 MILLJ.