Morgunblaðið - 18.08.1996, Síða 1
88 SIÐUR B/C/D
186. TBL. 84. ARG.
SUNNUDAGUR 18. AGUST 1996
PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Á flótta frá Grosní
Reuter
ÍBÚAR Grosní hafa notfært sér hlé á bardögnm Rússa og Tsjetsjena til að flýja borgina. Borgin er nú að mestu á valdi
aðskilnaðarsinna eftir bardaga sem kostuðu hundruð manna lífið. í baksýn sést reykjarmökkur frá borginni.
Hussein J ór daní ukonungur hefur 1 hótunum við mótmælendur
Hyggst beita hörku til
að kveða niður óeirðir
Amman. Reuter.
HUSSEIN Jórdaníukonungur kvaðst í gær
hafa fyrirskipað öryggissveitum að beita
hörku til að kveða niður mótmæli gegn stjóm-
inni eftir að óeirðir blossuðu upp í borgum í
suðurhluta landsins vegna 117% hækkunar á
brauðverði fyrir tilstuðlan Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins.
Jórdanskur embættismaður sagði að kon-
ungurinn hefði ennfremur rofið sumarþing
sem rætt hefur ýmis lagafrumvörp síðustu
vikur. Að minnsta kosti 23 þingmenn af 80
leggjast gegn verðhækkuninni, sem er liður
í áformum stjórnarinnar um að draga úr nið-
urgreiðslum í matvælaframleiðslunni.
Þúsundir Jórdana börðust við öryggissveit-
ir í borginni Karak á föstudag þegar efnt var
til mótmæla gegn verðhækkuninni. Til átaka
kom einnig í nágrannabænum Mazar og borg-
unum Ma’an og Tafilah. Þetta eru alvarleg-
ustu átökin í landinu frá óeirðunum árið 1989,
en þær blossuðu einnig upp vegna efnahags-
aðgerða að tilhlutan Alþjóðagjaldeyrissjóðsins
og knúðu konunginn til að koma á víðtækum
lýðræðisumbótum.
Krefjast afsagnar stjórnarinnar
Ekkert lát var á mótmælunum í Karak í
gær og þúsundir manna gengu um göturnar
til að krefjast afsagnar stjórnarinnar eftir að
hafa borið eld að stjórnarskrifstofum og
bankabyggingum.
Verðhækkunin olli mikilli óánægju meðal
fátækra Jórdana, er bíða enn eftir efnahags-
legum ábata sem þeim var lofaður eftir frið-
arsamninginn við ísraela 1994. Þriðjungur
3,8 milljóna landsmanna eru undir fátækt-
armörkum.
Hussein konungur kenndi hreyfingum
vinstrimanna með erlend tengsl um óeirðirn-
ar. A meðal vinstrimannanna eru kommúnist-
ar, róttækir Palestínumenn og stuðningsmenn
stjórnvalda í írak og Sýrlandi.
Börn fái eftir-
nöfn mæðra
ÍTÖLSKUM karlrembum til mikillar
armæðu er nú iiugsanlegt að ítölsk börn
fái eftirnöfn mæðra sinna en ekki feðr-
anna.
Anna Finocchiaro, ráðherra jafnrétt-
ismála á Ítalíu, hefur lýst yfir stuðningi
við frumvarp sem skylda á foreldra til
að gefa börnum sínum eftirnafn móður-
innar fyrir giftingu en ekki föðurins.
Foreldrar, sem þegar eiga börn með
eftirnafn föðurins, mega þó velja milli
nafnanna eignist þeir fleiri börn, sam-
kvæmt frumvarpinu. Ennfremur er lagt
til að afnumin verði lög, sem kveða á
um að konur beri einnig eftirnöfn eigin-
manna sinna.
Þingmaður úr flokki kommúnista er
flutningsmaður frumvarpsins og segir
markmið þess að heiðra „sérstakt sam-
band móður og barns við fæðingu og
síðar“. Stjóm mið- og vinstriflokkanna
þarf að reiða sig á stuðning kommún-
istaflokksins til að halda meirihluta á
þinginu.
Frumvarpið hefur valdið miklu upp-
námi á Ítalíu, einkum meðal hægri-
manna.
Einn þingmanna stjórnarandstöðunn-
ar, Ombretta Fumagalli Carulli, sagði
fmmvarpið „skref aftur á bak“. „Þessi
hugmynd er dæmigerð fyrir arftaka
harðlínufemínistanna sem hrópuðu á
torgunum vígorð eins og „þetta er mitt
leg og ég ræð hvað ég geri við það“.“
Ef lagabreytingin yrði afturvirk
myndi Silvio Berlusconi, fyrrverandi
forsætisráðherra Ítalíu, heita Silvio
Bossi.
Ráð við „skorti
á hárlosi“
KARLMENN, sem eru farnir að fá
skalla, geta nú leitað til félags í Slóvak-
íu fyrir sköllótta karla. Félagið, sem
er skammstafað SCUB, hefur hafið her-
ferð til að fjölga með-
limunum og kynnt
smyrsl sem á að flýta
hárlosinu. Meðan
karlar út um allan
heim reyna ýmsar að-
ferðir til að koma í
veg fyrir skalia er fé-
lagið að undirbúa sölu
á smyrsli sem „læknar
þrálátan skort á hár-
Teily Savalas losi“, eins og formað-
ur félagsins, Willy Weber, orðar það.
Weber segir að smyrslið verði selt í
nokkrum litum; gulum fyrir þá er vilja
lítinn skalla sem minnir á hnéskel, gul-
rauðum fyrir þá sem vilja líkjast frans-
iskusmunkum, rauðum fyrir þá sem
vilja hækka kollvikin og bláum fyrir
aðdáendur Kojaks og leikarans Telly
Savalas.
AFTIIR í
AUSTUR-
ÁTT?
12
OSTAMAÐURINN
Á HORNINU