Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 2

Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 2
2 'FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Hrafn frá Holtsmúla líklega felldur í dag LÍKUR eru á að þekktasti stóð- hestur landsins, Hrafn frá Holtsmúla, verði felldur í dag, en hann er orðinn 28 vetra gam- all og hættur að gegna hlut- verki sínu. Að sögn Víkings Gunnarssonar, deildarstjóra í hrossarækt á Bændaskólanum á Hólum, kemur sérfræðingur í uppstoppun þangað í dag til að skoða Hrafn og meta, en til stendur að stoppa hestinn upp og varðveita að Hólum. Eigendur Hrafns frá Holts- múla eru hrossaræktarsam- böndin í Skagafirði og á Suður- landi. Hrafn frá Holtsmúla er fæddur 1968 og að sögn Víkings tvímælalaust sá stóðhestur sem haft hefur mest áhrif í hrossa- rækt á íslandi fyrr og síðar. „Hann er kynfastur hestur og hefur gefið gott. Undan flestum stóðhestum kemur kannski eitt og eitt topphross og síðan mikið af lakara, en Hrafn hefur gefið óvenjuhátt hlutfall af framúrskarandi hrossum. Hann hefur verið not- aður um allt land, skilað miklum fjölda gæðinga, og ótrúlega margir synir hans eru stóðhest- ar sem eru í notkun. Ahrif hans eru þar af leiðandi ennþá meiri. Það er fátítt að hestar nái svona háum aldri, og með eindæmum að stóðhestar skuli vera við lýði svona gamlir,“ sagði hann. Víkingur sagði að Hrafn hefði lítillega verið notaður í sumar en árangurinn af því hefði reyndar verið heldur lé- legur og ákveðið hefði verið að fella hann. Hann sagði að ef niðurstaðan yrði sú að stoppa Morgunblaðiö/Valdimar Kristinsson hestinn upp yrði reynt að koma honum fyrir á góðum stað á Hólum. Morgunblaðið/Kristinn A Ovíst hvort skáksveitin kemst á Olympíu- mótið FJÁRÖFLUN Skáksambands íslands fyrir Ólympíuskákmót- ið sem hefst í höfuðborg Armeníu 15. september næst- komandi gengur illa og er óvíst að það ráði við að senda ólymp- íusveit Islands utan, að sögn Guðmundar G. Þórarinssonar forseta Skáksambands íslands. Kostnaður við ferð liðsins er talinn nema um þremur milljón- um kr. og á eftir að safna um milljón kr. til að hægt verði að senda skákmennina á mótið. Guðmundur segir 4-5 daga til stefnu til að ná því marki. Stjórnarmenn sambandsins leggi nú hart að sér við fjáröfl- un, en hún sé erfið. „Við erum að beijast í því þessa dagana að fá velviljaða aðila til að standa með okkur að þessari ferð. Það hefur hins vegar ekki tekist og er þungt undir fæti,“ segir Guðmundur. „Það er tvísýnt að okkur takist að senda liðið út, en ég reyni að vera frekar bjartsýnn, annað er ekki hægt.“ I liðinu eru þeir Margeir Pétursson, Jóhann Hjartarson, Hannes Hlífar Stefánsson, Helgi Ólafsson, Helgi Áss Grét- arsson og Þröstur Þórhallsson, og er reiknað með að sá síðast- nefndi verði útnefndur stór- meistari á þingi Alþjóðaskák- sambandsins í Armeníu á með- an á Ólympíuskákmótinu stendur. Guðmundur segir að takist að senda sveitina utan, verði það í annað skiptið frá upphafi sem íslendingar senda sveit skipaða stórmeisturum í skák á öllum borðum. Pollaslagur HVAÐ er skemmtilegra en ær- legur pollaslagur með vatnsbyss- una að vopni þegar virkilega gefur góða rigningu eins og vestanlands í gær? Það var að vísu ansi hvasst en í stígvélum og pollagöllum eru allir vegir færir. Hlýindi fylgdu rigning- unni og er þeim spáð áfram í dag en verulega mun draga úr vindi og rigningin breytast í úða. Ráðherra hlynntur sameiningu fjárfestingarlánasjóða í einn banka en segir pólitíska ákvörðun ekki liggja fyrir Ríkið geti losað sig út úr rekstrinum FINNUR Ingólfsson viðskiptaráð- herra segir að ekki hafi enn verið tekin pólitísk ákvörðun um að sam- eina fjárfestingarlánasjóðina þrjá, Iðnlánasjóð, Iðnþróunarsjóð og Fiskveiðasjóð, í einn fjárfestingar- banka. Unnið sé að undirbúningi þessa máls og von sé á ákvörðun fljótlega um hvort af þessu verði. Hins vegar hafi hann lengi verið þeirrar skoðunar að skynsamlegt væri að sameina sjóðina í einn banka. Ef af þessu verði sé gert ráð fyrir að ríkið geti losað sig úr þessum rekstri og fái þá endurgjald fyrir eign sína. „Það hefur lengi verið rætt um breytingar á Qárfestingarlánasjóða- kerfinu og fyrri ríkisstjórn vann einnig að þessu máli,“ sagði við- skiptaráðherra í samtali við Morg- unblaðið. „Ráðuneytisstjórar for- sætisráðuneytis, iðnaðar- og við- skiptaráðuneytis og sjávarútvegs- ráðuneytis hafa verið að vinna að undirbúningi þess að sameina þessa þrjá sjóði og stofna nýsköpunarsjóð fyrir atvinnulífið með aðilum í sjáv- arútvegi og iðnaði. Endanleg póli- tísk ákvörðun hefur þó ekki verið tekin. Ég hef hins vegar fyrir löngu lýst þeirri skoðun minni að það væri skynsamlegt að sameina fjár- festingarlánasjóðina þrjá f einn öflugan og sterkan fjárfestingar- banka. Markmiðið með þessum breytingum er að skapa fjárhags- lega traustar heildir og afnema hina óheillavænlegu skiptingu þessara sjóða eftir atvinnugreinum því at- vinnulífið tvinnast æ meira saman og hlutföll milli atvinnugreina eru ýmsum breytingum háð. Nýjar at- vinnugreinar skjóta rótum og falla inn í þetta gamla mynstur. Núver- andi skipulag má ekki verða til þess að tefja fyrir nauðsynlegum breytingum í efnahagslífínu. Það er eðlilegt að þetta hafi ákveðinn aðdraganda og taki ákveðinn tíma. Ef af þessari sam- einingu verður værum við að fækka lánastofnunum um tvær, efla og treysta samkeppnishæfni þeirra á alþjóðlegum peningamarkaði og veita íslensku atvinnulífí almenna fyrirgreiðslu varðandi langtímalán. En það er auðvitað líka eðlilegt að lánardrottnar þessa fjárfestingar- banka, ef hann verður til, hafi ákveðinn tíma til að aðlagast þess- um breyttu aðstæðum. Fyrir utan þetta er gert ráð fyrir að til verði svokallaður Nýsköpun- arsjóður atvinnulífsins. Það er mjög brýnt fyrir atvinnulífið að tiltæk sé áhættufjármögnun til raunveru- legrar nýsköpunar i atvinnulífinu sem stuðlar að ákveðinni framfara- sókn og fjölgar arðbærum störfum. Með tímanum væri verið að fækka lánastofnunum, hagræða, treysta og efla þessar heildir og síðan þegar fram líða stundir draga úr þátttöku ríkisins á fjármagns- markaðnum." Verulegur hluti eignarinnar til atvinnulífsins Varðandi þá spurningu hvort hinn nýi banki verði í eigu ríkisins fyrstu árin, benti viðskiptaráðherra á að fjárfestingarlánasjóðirnir þrír væru nú í eigu ríkisins. „Við erum að fækka lánastofnunum í eigu rík- isins og styrkja samkeppnisstöðu þeirra. Ef af þessu yrði er gert ráð fyrir að ríkið geti losað sig út úr þessum rekstri en fái þá endurgjald fyrir eign sína. En jafnframt vil ég leggja áherslu á að ríkið mun leggja verulegan hluta þessarar eignar sinnar til Nýsköpunarsjóðsins og þar með til atvinnulífsins." Aðspurður um þá leið að fella fjárfestingarlánasjóðina inn í bankakerfið, sagði viðskiptaráð- herra að sér væri kunnugt um að skiptar skoðanir væru í atvinnulíf- inu um hvernig ætti að standa að þessu máli. „Eg hef vitað það að iðnaðurinn styður sameiningarleið- ina mjög eindregið í stað þess að setja sjóðina inn í bankakerfið. Við erum að undirbúa formbreytingu á ríkisviðskiptabönkunum og það er ljóst að við þá formbreytingu, sem vonandi nær fljótlega fram að ganga, munu þeir hlutafélagabank- ar hafa möguleika á því að kaupa einhvem hlut í fjárfestingarbankan- um þegar fram líða stundir. Sama tækifæri byðist einkabankanum, Islandsbanka. Við verðum einnig að gera okkur grein fyrir því að í Ijárfestingarbankanuni yrðu veru- legar eignir,“ sagði viðskiptaráð- herra. 1 I «

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.