Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 6
6 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þingflokkar Alþýðuflokks og Þjóðvaka verða sameinaðir í haust
Heilsdagsskólinn
sprunginn
„Fyrsta skref til frekara
samstarfs jafnaðarmanna“
Morgunblaðið/Golli
JÓN Baldvin Hannibalsson, formaður Alþýðuflokksins, kynnir samkomulag sem náðst hefur um
sameiningu þingflokka Alþýðuflokks og Þjóðvaka. Við hlið hans sitja Rannveig Guðmundsdóttir,
þingflokksformaður Alþýðuflokksins, og Jóhanna Sigurðardóttir, formaður Þjóðvaka.
Þingflokkar Alþýðu-
flokksins (7 þingmenn)
og Þjóðvaka (4 þing-
menn) verða sameinaðir
fyrir upphaf Alþingis í
haust undir nafninu
„þingflokkur j afnaðar-
manna“. Flokkarnir
starfa áfram utan þings
hvor í sínu lagi sam-
kvæmt sínu skipulagi.
FORMENN og flestir þingmenn
beggja flokka, kynntu samkomu-
lagið um sameiningu þingflokkanna
á sameiginlegum fréttamannafundi
í gær og lögðu áherslu á að um
væri að ræða fyrsta skrefið í átt
til frekara samstarfs jafnaðar-
manna í íslenskum stjórnmálum en
hinn nýi þingflokkur yrði einnig
stærsti þingflokkur stjórnarand-
stöðunnar á Alþingi.
„Hér eru vissulega mikil pólitísk
tíðindi á ferðinni og gætu hugsan-
lega, ef vel tekst til, leitt til nýsköp-
unar í íslenskri pólitík og breytinga
á íslenska flokkakerfinu," sagði
Jóhanna Sigurðardóttir, formaður
Þjóðvaka.
Því sem næst alger
málefnaleg samstaða
Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins, sagði að
nú væru verkin látin tala. Því sem
næst alger málefnaleg samstaða
hefði verið á milli flokkanna á þingi.
Reynslan yrði að skera úr um ár-
angurinn og hugsanlega kæmi hann
ekki í ljós fyrr en undir lok kjörtíma-
bilsins. Áformað væri að í fram-
haldi af sameiningunni yrðu þeir
sem aðhylltust jafnaðarstefnu lað-
aðir til samstarfs, sem gæti m.a.
falist í uppstokkun flokkakerfísins
eða víðtæku kosningasamstarfi.
Jóhanna sagði að um væri að
ræða trúverðuga nálgun að samein-
ingu jafnaðarmanna á íslandi. Hún
hafi skírskotun í þau regnhlífar-
samtök sem mynduðu R-listann
fyrir borgarstjórnarkosningamar
1994.
Jón Baldvin og Jóhanna vonast
til að eiga gott samstarf
Jóhanna sagði skilið við Alþýðu-
flokkinn árið 1994 og gagnrýndi
þá m.a. formann flokksins harð-
lega. Jóhanna sagðist í gær vona
að samstarfið við Jón Baldvin yrði
gott, persónur skiptu ekki máli í
þessu sambandi heldur það verkefni
að efla áhrif jafnaðarmanna. Jón
Baldvin sagði að aldrei hefði verið
um persónulega óvild af hans hálfu
að ræða í garð Jóhönnu og sagði
að sér væri ekkert að vanbúnaði
að starfa innan raða jafnaðarmanna
með henni.
Forystumenn flokkanna kynntu
formanni Alþýðubandalagsins og
þingflokksformanni Kvennalistans
samkomulagið í gær en þessir
flokkar tóku engan þátt í samein-
ingarumræðunum.
Formlegar viðræður
hófust fyrir helgi
Rannveig Guðmundsdóttir, þing-
flokksformaður Alþýðuflokksins,
sagði að ákvörðun um að hefja
formlega viðræður um sameiningu
þingflokkanna hefðu hafist fyrir
seinustu helgi. Skipuð var viðræðu-
nefnd sem í sátu Jón Baldvin, Rann-
veig og Guðmundur Árni Stefáns-
son varaformaður af hálfu Alþýðu-
flokks og Jóhanna, Svanfríður Jón-
asdóttir, þingflokksformaður Þjóð-
vaka, og Ágúst Einarsson varafor-
maður af hálfu Þjóðvaka. Sagði
Rannveig að einhugur hefði verið
meðal allra þingmanna flokkanna
tveggja um samkomulagið.
I sameiginlegri yfirlýsingu segir
að þingflokkurinn eigi að starfa á
grundvelli jafnaðarstefnunnar og
byggja á stefnuskrám Alþýðuflokks
og Þjóðvaka og muni hann kynna
sérstaka málaskrá sína fyrir kom-
andi þingi með útfærslu einstakra
stefnumála.
„Okkur finnst þetta skref býsna
stórt þótt það sé mat okkar að
stærra hefði það ekki getað orðið
í bili og við vitum að hér eru mikil
pólitísk tíðindi á ferðinni," sagði
Svanfríður.
Einar Karl ráðinn til starfa
fyrir þingflokk jafnaðarmanna
Á fréttamannafundinum var
einnig tilkynnt að Einar Karl Har-
aldsson, fráfarandi framkvæmda-
stjóri Alþýðubandalagsins, hefði
verið ráðinn til starfa, í samvinnu
við hinn nýja þingflokk og fleiri, til
„að laða til samstarfs þá sem að-
hylltust jafnaðarstefnuna og vilja
vinna að nýsköpun í íslenskri póli-
tík sem m.a. gæti falist í uppstokk-
un flokkakerfisins eða víðtæku
kosningasamstarfi," eins og segir í
sérstakri samkomulagsyfirlýsingu
flokkanna.
Einar segist verða áfram flokks-
bundinn í Alþýðubandalaginu en
hann taki þetta verkefni að sér sem
sjálfstætt starfandi ráðgjafi. í því
felst einnig, skv. samkomulaginu,
að efna til umræðu og funda um
einstök álitaefni í íslenskri pólitík
og kynna pólitískar hugmyndir og
lausnir jafnaðarmanna. Skapa á
vettvang fyrir pólitíska umræðu og
skipuleggja fundarhöld um landið
með einstaka hópum eða félögum,
m.a. í samvinnu við þingflokk jafn-
aðarmanna.
Þegar þingflokkur jafnaðar-
manna kemur saman á að taka
fyrir hvort gerðar verða breytingar
á setu þingmanna Þjóðvaka og Al-
þýðuflokks í nefndum Alþingis.
Samkomulag þingflokkanna
verður rætt á flokksstjórnarfundi
Alþýðuflokksins á laugardag.
Nýjar um-
sóknir ekki
afgreiddar
HEILSDAGSSKÓLAR víða um
borgina eru fullskipaðir og hafa
færri komist að en vildu. Ástandið
er sérlega slæmt í vesturbænum við
Mela- og Vesturbæjarskóla en við
síðastnefndan skóla hefur ekki verið
unnt að taka við 15 börnum.
Að sögn Gerðar G. Óskarsdóttur
fræðslustjóra hafa allir sem sóttu
um vist í Heilsdagsskólanum í vor
fengið inni en vandræðin væru hjá
þeim sem sóttu um í haust. Hún
sagði að deildarstjóri eignadeildar
hjá Fræðslumiðstöð Reykjavíkur-
borgar væri að kanna hvaða mögu-
leikar væru fyrir hendi, þar sem
fyrst og fremst væri um húsnæðis-
vanda að ræða.
„Það er víða mjög þröngt í Heils-
dagsskólanum og eftirspurn hefur
farið vaxandi eftir þessari þjónustu,"
sagði hún. „En það átti að sækja
um þessa þjónustu í vor og þeir sem
það gerðu hafa fengið inni.“
Áætlanir fyrirfram
„Það þarf að gera áætlanir um
alla hluti fyrirfram, að ekki sé talað
um húsnæðismál og allt sem kostar
peninga og við getum ekki lofað
úrlausn,“ sagði hún. „Fólk hefur
ekki áttað sig á því að það þarf að
sækja um á vorin til að hægt sé að
nota sumarið til undirbúnings. Það
liggur ekkert húsnæði á lausu í
grunnskólum Reykjavíkur, því helm-
ingur þeirra er ennþá tvísetinn."
Heilsdagsskólinn hefur starfað í
þijú ár og sagði Gerður að fólk
væri að átta sig á þessari þjónustu,
sem væri til bráðabirgða eða þar til
skóladagurinn hefur verið lengdur
hjá nemendum. Stefnt væri að ein-
setningu í skólunum fyrir árið 2003
en skóladagurinn mun lengjast tals-
vert samkvæmt lögum um grunn-
skóla fram til ársins 2001.
------» ♦ ♦-----
Tveir í haldi
vegna ráns
TVEIR menn eru í haldi grunaðir
um að hafa stolið veski með hátt í
100 þúsund krónum af 68 ára gam-
alli konu á Barónsstíg um hádegis-
bil í fyrradag.
Talið er að mennirnir hafi séð er
konan var afgreidd í Landsbanka
íslands á Laugavegi 77 og veitt
henni eftirför. Veskið fannst síðar
um daginn í húsagarði við Gunnars-
braut og voru peningarnir horfnir
en konan hafði tekið út hátt í 100
þúsund krónur í bankanum.
Piltur var handtekinn í austur-
borginni síðar sama dag. Hann þótti
passa við lýsingu sjónarvotta en mun
hafa verið saklaus.
Metnaður í þágu framtíðar
Morgunblaðið/Árni Sæberg
VIGDÍS Finnbogadóttir ávarpar kynningarfund Framtíðarstofn-
unarinnar í Norræna húsinu í gær. Við háborðið situr fimm
manna stjórn stofnunarinnar; Hulda Valtýsdóttir fundarsljóri,
Páll Skúlason, Steingrímur Hermannsson, Vilhjálmur Lúðvíks-
son og Jón Jóel Einarsson.
OPINN fundur var haldinn í Nor-
ræna húsinu síðdegis í gær til að
kynna starfsemi Framtíðarstofnun-
arinnar sem hóf starfsemi fyrr á
þessu ári. Nokkrir af aðstandendum
hennar skýrðu tildrög þess að stofn-
uninni var komið á fót en henni er
ætlað, að þeirra sögn, að vera vett-
vangur umræðna um málefni fram-
tíðar, vistvæna þróun og stöðu ís-
lands í samfélagi þjóðanna.
Stjórn stofnunarinnar skipa
Hulda Valtýsdóttir blaðamaður, Jón
Jóel Einarsson, verkefnisstjóri hjá
Iðntæknistofnun, Steingrímur Her-
mannsson bankastjóri, Vilhjálmur
Lúðvíksson framkvæmdastjóri, og
Páll Skúlason prófessor sem er for-
maður stjórnarinnar.
Á fundinum í Norræna húsinu
kynnti Kristín Einarsdóttir, fyrrver-
andi alþingiskona, lög stofnunarinn-
ar, trúnaðarráð hennar, sem 40
manns víða að úr þjóðfélaginu munu
skipa, og fyrirhugaða starfsemi.
Starfsemi Framtíðarstofnunarinnar
mun öðru fremur felast í skipulagn-
ingu málþinga og ráðstefna, en dag-
ana 13.-14. september nk. fer fram
umfangsmikil ráðstefna sem stofn-
unin stendur að í félagi við tvær
erlendar stofnanir og umhverfis-
ráðuneytið íslenzka.
Meðal viðfangsefna, sem að-
standendur stofnunarinnar telja
brýnt að bijóta til mergjar á mál-
þingum, eru vistvæn þróun og sjálf-
bær, hagvöxtur og hugarfar, fram-
tíð velferðarþjóðfélagsins, siðferði
og réttlæti gagnvart komandi kyn-
slóðum, þjóðernisstefna og alþjóða-
hyggja, svo eitthvað sé nefnt.
Hlutverk íslands í sjálfbærri
þróun á 21. öld
Ráðstefnuna, sem nú er í bígerð,
kynnti Steingrímur Hermannsson.
Hún ber heitið „Ráðstefna um sjálf-
bæra þróun á 21. öld; hlutverk fs-
lands,“ og er skipulögð sem undir-
búningsráðstefna fyrir aldamóta-
fund þjóðar- og trúarleiðtoga, leið-
andi aðila í atvinnulífi og fulltrúa
fijálsra félagasamtaka, sem áform-
að er að boða til á Þingvöllum árið
2000. Undirbúningráðstefnuna
sækir fjöldi eftirsóttra fyrirlesara,
erlendra og innlendra.
Vigdís Finnbogadóttir benti á í
erindi að hingað til hefur ekki verið
til á íslandi slík stofnun eða aðili sem
væri fær um að standa að verkefni
sem þessu. Erlendis hafa um árabil
verið til hliðstæðar stofnanir, svoköll-
uð framtíðarrannsóknarfélög, sem
mynda með sér alþjóðasamtök.