Morgunblaðið - 05.09.1996, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
h
AKUREYRI
Ferðakaupstefnan Vestnorden hefst á Akureyri í dag
Ferðaþjónusta í heiminum
tvöfalclast á næstu 15 árum
ELLEFTA ferðakaupstefna Vest-
norden; Vestnorden Travel Mart
’96, hefst í íþróttahöllinni á Akur-
eyri í dag, fimmtudaginn 5.
september. Ferðakaupstefnan er
ætluð starfsmönnum í ferðaþjón-
ustu en hún verður opin almenn-
ingi frá kl. 14.30 til 17.30 á föstu-
dag, 6. september og verða þá
margvíslegar kynningar á ferða-
möguleikum í Vestnorden-löndun-
um þremur kynntir, en þau eru
Island, Grænland og Færeyjar.
Þátttakendur
frá 22 löndum
Á ferðakaupstefnunni hitta lið-
lega 200 fulltrúar um 125 ferða-
skrifstofa og ferðaheildsala yfir
330 manns úr ferðaþjónustu í
löndunum þremur. Þetta fólk
starfar hjá 246 íslenskum fyrir-
tækjum, 33 færeyskum og 59
grænlenskum. Margir kaupend-
anna, ferðaskrifstofur og einstakl-
ingar í ferðaþjónustu taka nú þátt
í kaupstefnunni í fyrsta sinn og
leggja nú vaxandi áherslu á sölu
ferða til þessara landa. Þátttak-
endur í kaupstefnunni koma frá
22 löndum, m.a. Ástralíu, Austur-
ríki, Belgíu, Japan, Tékklandi,
Grikklandi, Kanada, Bandaríkjun-
um, Slóveníu, Spáni, Þýskalandi,
Bretlandi, Norðurlöndum sem og
fjölda Evrópulanda.
„Það er engin spurning að þetta
er geysimikið tækifæri sem m.a.
sést vel á því að sífellt fleiri selj-
endur taka þátt í kaupstefnunni,"
sagði Magnús Oddsson ferðamála-
stjóri. Hann sagði að þegar litið
Morgunblaðið/Kristján
HAFNFIRSKI víkingurinn hafði komið sér fyrir í sýningarbás
Hafnarfjarðarbæjar en þar réðu ríkjum þeir Rögnvaldur Guð-
mundsson ferðamálafulltrúi og Jóhannes Viðar Bjarnason, veit-
ingamaður í Fjörukránni. Á myndinni er Jóhannes Viðar í vík-
ingaskrúða en auk almennrar kynningar er bærinn að kynna
víkingahátíð sem haldin verður á næsta ári.
FERÐAMÁLAFRÖMUÐIR frá Færeyjum í óða önn að gera einn
sýningarbásinn kláran fyrir ferðakaupstefnuna sem hefst í dag.
væri til baka til þess tíma er kaup-
stefnan var haldin í fyrsta sinn
sæist að mikil þróun hefði átt sér
stað. í upphafi hafi ferðaskrifstof-
ur og þeir sem seldu gistingu og
sæju um flutninga verið áberandi
flestir, en á síðustu árum hefðu
þeir sem selja afþreyinu af ýmsu
tagi í vaxandi mæli tekið þátt.
Tvöföldun í ferðaþjónustu
næstu 15 árin
í tengslum við kaupstefnuna var
í gær haldin ráðstefna þar sem
sjónum var beint að horfum í
ferðamálum fram yfir næstu alda-
mót en í löndunum þremur er
ferðaþjónusta vaxandi atvinnu-
grein. „Ferðaþjónusta er vaxandi
atvinnugrein og menn eru sam-
mála um að hún eigi eftir að vaxa
ótrúlega hratt á næstu árum og
er talið að umfang hennar í heim-
inum muni tvöfaldast á næstu 15
árum,“ sagði Magnús, en benti
jafnframt á að ekkert kæmi að
sjálfu sér, menn gætu ekki hallað
sér og beðið eftir aukningunni.
íslendingar hefðu Ijárfest mikið í
ferðaþjónustu og væri mikilvægt
að auka arðsemina. „Við verðum
að vera samkeppnishæf á öllum
sviðum, þetta er eins og í íþróttun-
um þar sem menn setja sér mark-
mið, okkar markmið er ekki að
standa jafnfætis hinum heldur
framar. Ef við ætlum að ná okkar
hlut í aukningunni, verðum við að
setja okkur það markmið að vera
betri en samkeppnislönd okkar
hvað alla þætti málsins varðar,"
sagði Magnús.
Norræna upplýsinga-
skrifstofan
Fjórtán vilja
í starf for-
stöðumanns
FJÓRTÁN umsóknir bárust um
starf forstöðumanns norrænu upp-
lýsingaskrifstofunnar á Akureyri
sem tekur til starfa um miðjan sept-
ember. Fyrst um sinn er um hluta-
starf eins starfsmanns, um 67%
stöðu, að ræða. Þjónustusvæði skrif-
stofunnar er allt Norðurland, en hún
verður til húsa á Glerárgötu 26.
Einn umsækjenda um stöðu for-
stöðumanns óskaði nafnleyndar, en
aðrir umsækjendur eru: Alic E.
Zackrisson, Ákureyri, Anna Björk
Bjarnadóttir, Borgarnesi, Björg
Árnadóttir, Reykjahlíð, Guðmundut'
Ingólfsson, Akureyri, Helene Hou-
moller Pedersen, Hafnarfirði, Helga
Dögg Sverrisdóttir, Dalvík, _Hös-
kuldur Höskuldsson, Kristín Árna-
dóttir, Magnús Már Þorvaldsson,
María Jónsdóttir, Ragnheiður Ólafs-
dóttir, Sigríður Dalmannsdóttir og
Valgerður Hrólfsdóttir, öll frá Akur-
eyri.
Stjórn skrifstofunnar kemur sam-
an til fundar á morgun, föstudag,
og vonast Tryggvi Gíslason, formað-
ur stjórnar, að þá verði hægt að
ganga frá ráðningu í stöðuna. Með-
al verkefna skrifstofunnar verður
að kynna og efla norrænt samstarf
á svæðinu, styðja norrænt starf
skóla, menningarstofnana og félaga
og halda tengslum við aðrar norræn-
ar stofnanir og félög hér á landi og
á hinum Norðurlöndunum.
Skrifstofan verður rekin af sam-
bandi norrænu félaganna með styrk
frá Norrænu ráðherranefndinni,
Akureyrarbæ, ríki og ýmsum öðrum
stofnunum og sveitarfélögum.
Verkefni forstöðumanns er að hafa
umsjón með verkefnum sem Nor-
ræna ráðherranefndin og Norræna
félagið á íslandi fást við hvetju
sinni.
f
I
Listasafnið
Þrjár sýning-
ar opnaðar
ÞRJÁR sýningar verða opnaðar í
Listasafninu á Akureyri á laugar-
dag, 7. september.
í austursal safnsins sýnir Einar
Helgason vatnslita- og pastel-
myndir, bæði frá upphafi ferils
hans og nýrri verk, en sýningin
er þó ekki hugsuð sem yfirlitssýn-
ing.
Einar er fæddur á Eskifirði
1932, hann lauk teiknikennara-
námi 1952 og íþróttakennaraprófi
sama ár og var þá um haustið
ráðinn kennari við Barnaskólann
og Gagnfræðaskólann á Akureyri
þar sem hann kenndi íþróttir og
myndmennt í 40 ár. Hann hefur
haldið fjölda einkasýninga og tek-
ið þátt í samsýningum víða.
I miðsal sýnir Listasafnið nokk-
ur nýleg verk, sem það hefur eign-
ast, undir yfirskriftinni „Nýleg
aðföng" en það er fastur liður í
sýningarstarfinu að gestir fái að
fylgjast með nýrri listaverkaeign
þess. Meðal annars verða sýnd
verk eftir Rannveigu Jónsdóttur,
Sólveigu Baldursdóttur, Gunnar
Straumland, puðmund Ármann,
Guðmund P. Ólafsson og japansk-
ar tréristur frá 19. öld.
I vestursal setja þær Edda Jóns-
dóttir og Kolbrún Björgúlfsdóttir
upp sérstæða leirlistasýningu en
við opnun sýningarinnar flytur
Guðni Franzson tónverk sem hann
hefur samið sérstaklega fyrir leir-
verk þeirra.
Þær Edda og Kogga hafa báðar
haldið fjölda einkasýninga og tek-
ið þátt í samsýningum bæði á Is-
landi og í útlöndum.
Morgunblaðið/Kristján
Tjaldsvæðið
Mun fleiri
gistinætur í ár
GISTINÆTUR á tjaldsvæðinu á
Akureyri voru mun fleiri í júní,
júlí og ágúst í sumar en á sama
tímabili í fyrra. Frá 3. júní til og
með 3. september sl. voru skráðar
um 19.000 gistinætur á tjaldsvæð-
inu en sl. sumar voru gistinæturn-
ar um 17.400 talsins.
Stefán Gunnarsson, tjaldvörður
á Akureyri, segir að mesta aukn-
ingin nú sé um verslunarmanna-
helgina en einnig megi greina
fjölgun í júní og júlí í ár, miðað
við sama tíma í fyrra. „Við erum
sæmilega sáttir við sumarið og
reksturinn gekk nokkuð vel. Við
fengum að vísu ágæta lexíu um
verslunarmannahelgina í ár, en
menn koma til með að læra af
þeirri reynslu," segir Stefán.
Tjaldsvæðið á Akureyri tekur
um 7-800 manns, eða um 350 tjöld.
Tjaldsvæðið er enn opið en Stefán
segir að stefnt sé að lokun um
Morgunblaðið/Kristján
GISTINÆTUR á tjaldsvæðinu Húsabrekku voru um 3.800 talsins
í sumar, sem er svipaður fjöldi gistinátta og sl. sumar.
næstu helgi, sem er svipaður tími
og á síðasta ári.
Gistinætur á tjaldsvæðinu
Húsabrekku austan Akureyrar
urðu um 3.800 taisins í sumar, sem
er svipaður fjöldi gistinátta og á
síðasta ári. Sigurbjörg Þorsteins-
dóttir, rekstraraðili Ijaldsvæðis-
ins, segir að aukning hafi orðið í
júní og júlí í ár en ágúst sé held-
ur lakari en ágúst í fyrra. Heldur
færri útlendingar komu á tjald-
svæðið í hópum í ár að sögn Sigur-
bjargar, en svokölluð lausatraffík
var svipuð milli ára. Sigurbjörg
segist nokkuð sátt við sumarið í
heildina enda nýtingin svipuð og
í fyrrasumar. I Húsabrekku er
rúm fyrir um 150 tjöld í einu og
þar verður opið út þessa viku.
Nýtt malbik
á aðalgötur
bæjarins
SÍÐUSTU daga hafa starfs-
menn Akureyrarbæjar staðið
í ströngu við að leggja nýtt
malbik á helstu götur bæjarins
eins og Hörgárbraut, Glerár-
götu, Hlíðarbraut og Þing-
vallastræti. Gunnar Jóhannes-
son verkfræðingur hjá Akur-
eyrarbæ sagði óumflýjanlegt
að ráðast í þessi verkefni, að
fræsa upp göturnar og leggja
síðan nýtt yfirlag á þær. Göt-
urnar kæmu gjarnan með
djúpum hjólförum undan vetri
sem ekki væri ákjósanlegt.
Þessum framkvæmdum lauk í
gær, miðvikudag, en þá eiga
starfsmennirnir aðeins eftir
að endurbyggja Smáragötu
áður en malbikunarvélunum
verður lagt fyrir veturinn.
Smáragata liggur sunnan við
Akureyrarvöll og hefur lengi
verið í hópi örfárra malar-
gatna í bæjarfélaginu. Þó svo
að þeir sem sækja íþróttavöll-
inn kætist í kjölfar þess að
gatan verður malbikuð taldi
Gunnar óvíst að svo yrði um
fornleifafræðinga. „Við ótt-
uðumst það mest að ef við
réðumst ekki í þetta verkefni
í ár yrði gatan friðuð og sett
á náttúruminjaskrá,“ sagði
Gunnar en hann taldi að senn
færu að nálgast fimmtíu ár frá
því gatan var gerð og lítið
verið gert fyrir hana síðan.
r
r.
-L