Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 19
FERÐALÖG
Nýr bátur til skemmtiferða
Hvalaskoðun á Evjafirði
SJÓFERÐIR ehf. á Dalvík hafa
tekið í notkun nýjan bát sem notað-
ur er til hvalaskoðunar á Eyjafirði.
Auk daglegra hvalaskoðunarferða
í sumar hefur báturinn verið notað-
ur í grillferðir til Hríseyjar og einn-
ig hefur verið mikill áhugi á að
nota hann í ýmiskonar skemmti-
ferðir fyrir hópa, m.a. til Grímseyj-
ar, Ólafsíjarðar, Héðinsfjarðar og
Siglufjarðar.
Þessi nýi bátur sem fengið hefur
nafnið Hrólfur er tæpir 13 metrar
að lengd, 4,4 metrar að breidd og
búinn tveimur 570 hestafla vélum
sem skila 30 mílna ganghraða. Sjó-
ferðir hafa mikla reynslu af hvala-
skoðunar- og sjóstangaveiðiferðum
í utanverðum Eyjafirði. Mikið er
af hrefnu í Eyjafirði og einnig af
höfrungum og hnísum og þá hafa
sést hnúfubakar allt inn fyrir Hrís-
ey.
Ýmislegt í boði fyrir
ferðalanga
Ólafsfirðingar segja það sam-
dóma álit þeirra sem til þekkja, að
yfir hásumarið sé hvergi eins magn-
að að horfa á miðnætursólina og
úr Ólafsfjarðarmúlanum. Og enginn
staður er eins vinsæll hjá ljósmynd-
urum sem vilja fanga einstakt og
dulúðugt samspil sólarinnar og
Norðuríshafsins um miðja nótt. Yfir
vetrarmánuðina er einnig ýmislegt
í boði fyrir ferðalanga og má þar
nefna fjölbreytta skíðaaðstöðu,
dorg í gegnum ís og vélsleðaferðir.
Hitaveita Ólafsfjarðar er elsta
hitaveita landsins en hún var tekin
i notkun árið 1944. Eftir að gestir
höfðu snætt á Hótel Ólafsfirði var
hitaveitan heimsótt þar sem form-
legri dagskrá lauk. Við holu 13
bauð Einar Þórarinsson, hitaveitu-
stjóri upp á sérstakan drykk, romm
í 66 heitu hitaveituvatni sem bragð-
aðist einstaklega vel og þar var
punkturinn settur yfír i-ið.
Morgunblaðið/Kristján
BÁTURINN Hrólfur sem Sjóferðir hafa nýlega fest kaup á
hentar einstaklega vel til hvalaskoðunar.
Allt að 64.000 kr.
Ýmislegt í boði í Ólafsfirði
Fyrirtækið bauð starfsfólki í
ferðaþjónustu og blaðamönnum í
hvalaskoðun nýlega og eins og jafn-
an áður sást mikið af hval í þeirri
ferð í námunda við Hrísey. Ferðin
hófst á Dalvík og eftir hvalaskoðun
í kringum Hrísey og siglingu um
Eyjafjörðinn var haldið inn til Ólafs-
fjarðar. Þar tóku forsvarsmenn í
ferðaþjónustu, þeir Gunnlaugur Jón
Magnússon, formaður ferðamála-
ráðs og Siguijón Magnússon,
rekstraraðili Hótels Ólafsfjarðar á
móti gestum og gengu með þeim
um bæinn og buðu til hádegisverðar
á hótelinu.
Á leiðinni var komið við á Nátt-
úrugripasafni Ólafsfjarðar, þar sem
gefur að líta glæsilegt safn upp-
stoppaðra fugla og villtra dýra.
Andapollurinn í miðjum bænum
hefur mikið aðdráttarafl en þar eru
óvenju margar tegundir anda og
gæsa. Gönguferðir frá Ólafsfirði
eru vinsælar enda gönguleiðirnar
ótrúlega fjölbreyttar og skemmti-
legar, hvort sem gengið er til Dal-
víkur, Héðinsfjarðar eða Siglufjarð-
ar.
A.
FLÍSASKERAR
OGFLÍSASAGIR
- - 'ii j' ii i
-1 l'c n uUt
V IIÍ
Stórhöfða 17, við GuIIinbrú,
sími 567 4844
Gönguskór
fyrir minni og mein-
háttar gönguferðir.
Mikið úrval.
Verð frá
6.900
UTIVISTARBUÐIIU
viö Umferöarmiöstoöina
verðlækkun á
Skoda Felicia
Seljum síðustu bílana afSkoda Felicia árgerð 1996 á einstöku sértilboði.
mtmm
' FHJCU fCfliN: "v t—-' /T\ Æ
■»* / T i jm. _ ; J0\
' / » \ \ smHHi V 1,1
Fyrirtæki og stofnanir
Bjóðum einnig vsk-útgáfu á einstöku verði, eða frá 659.000 kr.
Komdu núna í Jöfur og tryggðu þér glænýjan
Skoda Felicia á sértilboði.
Söluaðilar Jöfurs á landsbyggðinni
Akranes: Bllver, isafjörður: Bllaþjónusta Daða, Sauðárkrókur: Kaupfélag Skagfirölnga,
Akureyri: Skálafell, Húsavík: Skipaafgreiðsla Húsavíkur, Egilsstaðir: Bílasalan Fell,
Höfn: Egill H. Benediktsson, Vestmannaeyjar: Bílaverkstæðið Bragginn, Selfoss: Bllasala Suðurlands
Nýbýlavegur 2
Sími: 554 2600
Sími: 551 9800 og 551 3072