Morgunblaðið - 05.09.1996, Síða 24
I
24 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Reuter
KONA grætur á meðan hún bíður þess að skrifa nafn sitt á lista
yfir þá sem sýna vildu samúð sína vegna láts unglingsstúlknanna
tveggja, sem fundust í garði barnaníðings í Belgíu.
Sorg og uppgjöf í Belgíu eftir líkfund
Engin von um að
finna fleiri á lífi
Brussel. Reuter.
VONIR um að fleiri börn myndu
finnast á lífi I barnamorð- og klám-
hneykslinu, sem hefur skekið Belgíu,
urðu að engu á þriðjudag, er tvö lík
voru grafin upp í garði húss í eigu
höfuðpaursins Marc Dutroux. Sál-
fræðingar segja hann vera geðsjúkl-
ing sem kunni að reyna að svipta
sig Iífi og taka með sér leyndarmál-
in í gröfína. Er ströng öryggisgæsla
í fangelsinu til að koma í veg fyrir
að þetta gerist.
Allt fram á þriðjudag lifðu menn
í voninni um að fleiri börn fyndust
á lífi en þá fundust lík An Marchal,
17 ára, og Eefje Lambrecks, 19 ára.
„Vonin er úti“ sagði í fyrirsögn La
Dernier Heure og viðbrögð annarra
fjölmiðla voru á svipaða lund.
Leit lögreglu að sjö öðrum börnum
heldur áfram en talið er að hvarf
þeirra tengist æ umfangsmeira máli
barnaklámhrings, þar sem Dutroux
var höfuðpaurinn. Er leitað í tveimur
húsum sem voru áður í eigu foreldra
Dutroux, auk þess sem fjölmiðlar
sögðu að fleiri handtökur væru á
næsta leiti en alls hafa níu manns
verið handteknir vegna málsins,
þeirra á meðal yfirmaður í rannsókn-
arlögreglunni í Belgíu.
Greiðslukort hjá líkunum
Lík Eefje og An fundust í kistu,
sem grafin var 2‘A metra undir garð-
skýli við hús sem er í eigu Dutroux.
Hjá líkunum fannst greiðslukort í
eigu Dutroux. Líkin voru mjög sködd-
uð og sagði faðir An að ljóst væri
að langt væri síðan stúlkumar hefðu
látist. Borin voru kennsl á líkin með
því að bera saman tannlæknaskýrsl-
ur, svo og af úri annarrar stúlkunnar.
Sorg og uppgjöf ríkti í Belgíu í
gær eftir að lík stúlknanna fundust,
fánar voru dregnir í hálfa stöng og
báru skólafélagar þeirra sorgararm-
bönd.
Óhugnanlegur leikur
Sálfræðingar segja Dutroux van-
heilan á geði, mann sem neyði þá
sem vinni að rannsókn málsins til
að taka þátt í óhugnanlegum leik;
valdatafli, þar sem hann hafi töglin
og hagldirnar. Hann kunni hins veg-
ar að enda með því að Dutroux fremji
sjálfsmorð, rétt eins og Fred West,
sem myrti á annan tug ungra kvenna
í Bretlandi. Er ströng öryggisgæsla
í fangelsinu og litið eftir Dutroux
sjöundu hveija mínútu.
Sálfræðingarnir segja viðbúið að
Dutroux muni reyna að draga rann-
sóknina á langinn eins og honum
sé mögulegt, með blöndu lyga og
sannleika, hann muni reyna að halda
því taki sem hann hafi á lögreglunni
eins lengi og mögulegt sé. Svo virt-
ist raunar sem hann nyti þess að
vera yfirheyrður og fara á staðina
þar sem glæpirnir hefðu átt sér stað,
því þá fyndist honum hann enn vera
fijáls maður.
Afengisneysla stjórnmálamanna í Svíþjóð til umræðu
Schyman hrósað
fyrir hugrekki
TÖLUVERÐ umræða um áfengis-
sýki og óhóflegt vinnuálag á þing-
menn, hefur verið í sænskum fjöl-
miðlum eftir að Gudrun Schyman,
formaður Vinstriflokksins, kom, öll-
um að óvörum, fram í sjónvarps-
þætti á mánudag og kvaðst eiga við
áfengisvandamál að stríða. Schyman
er litríkur stjórnmálamaður og hefur
ekki síður vakið athygli fyrir fram-
göngu sína á skemmtistöðum en á
þinginu. Engu að síður kusu flestir
að horfa fram hjá því sem öilum
átti þó að vera sýnilegt.
Schyman kom fram á mánudags-
morgun og sagði að álagið síðustu
vikurnar hefði verið mikið og að hún
hefði að endingu ákveðið að verða
fyrri til að gera áfengisvanda sinn
opinberan. Fjölmiðlar hafa gagnrýnt
hana töluvert vegna flutninga í nýja
íbúð en Schyman vildi ekki gera
nánari grein fyrir því hvað hefði
orðið til þess að hún tók af skarið nú.
Samstarfsmenn hennar í Vinstri-
flokknum voru álíka orðvarir, Johan
Lönnroth, varaformaður flokksins,
sagði að innri og ytri þrýstingur
hefði komið til, en svaraði ekki
spumingum um hvort að stjórn
flokksins hefði þrýst á Schyman.
Lönnroth tekur við stjórn flokks-
ins á meðan Schyman er í áfengis-
meðferð en hún gerði ráð fyrir að
henni lyki áður en þing kemur sam-
an á ný, 17. september. Schyman
kvaðst vonast til þess að hún gæti
haldið áfram sem formaður flokks-
ins. Almenningur styður Schyman,
samkvæmt skoðanakönnun Gallup
finnst 57% kjósenda ekki að Schy-
man eigi að segja af sér og sam-
kvæmt IMU-könnun eru 64% þessar-
ar skoðunar. Hins vegar telja
TVEIR Svíar hafa verið reknir úr
landi af stjórnvöldum í Rússlandi,
sem saka þá um njósnir. Annar
hinna brottreknu er háttsettur emb-
ættismaður í utanríkisþjónustunni.
/nterfax-fréttastofan fékk það
staðfest af talsmanni rússnesku
leyniþjónustunnar að hinn 32 ára
gamli Hans Peter Nordström hefði
16-22% að hún eigi að
gera það, samkvæmt
sömu könnunum. Schy-
man nýtur mests stuðn-
ings á meðal flokks-
manna sinna, yfir 80%.
Drukkin
opinberlega
Schyman hefur átt
við áfengisvanda að
stríða um nokkurt
skeið. Allnokkur dæmi
eru um að hún hafi
verið drukkin I opinber-
um veislum, m.a. nó-
belskvöldverðinn, við
opnanir og hún mætti
eitt sinn ofurölvi í umræðuþátt í
sjónvarpi og tókst naumlega að
koma í veg fyrir að hún kæmi fram.
I annað sinn segir þáttastjórnandi
hana greinilega hafa verið undir
áhrifum en hann hafi ákveðið að
leyfa henni að koma fram og að það
hafí gengið áfallalaust.
Schyman leggur áherslu á að hún
hafi aldrei verið drukkin í vinnu og
að drykkjan hafi ekki haft áhrif á
störf hennar. Vandinn hafi ekki ver-
ið stöðugur, heldur hafi komið tíma-
bil þar sem hún hafi misst stjórn á
drykkjunni.
Schyman tók við flokksfor-
mennsku af Lars Werner árið 1993
en haft var á orði að hann væri vín-
hneigður. Werner hefur vísað þessu
á bug en Schyman ýjaði að þessu
er valdabarátta þeirra í flokknum
stóð sem hæst. Að því er segir í
Aftonbladet var nokkrum félögum í
Vinstriflokknum kunnugt um áfeng-
isvanda Schyman er hún tók við
formennsku og töldu sumir það óráð-
verið staðinn að verki í febrúar sl.,
við njósnastarfsemi í Pétursborg í
þágu leyniþjónustu sænska hersins.
Ásamt honum hefði starfsmanni
sænska sendiráðsins verið vísað úr
landi. Hafa Rússar hann að sögn
grunaðan um að sjá um samræm-
ingu njósnastarfsemi á vegum Svía
í fyrrverandi sovétlýðveldum.
legt að næsti formaður
flokksins ætti við sama
vanda að stríða og sá
síðasti. Stjórn flokksins
hvatti hana til að leita
sér hjálpar og gerði hún
það á síðasta ári, án
árangurs.
Stjórnmálamenn
hafa flestir lýst yfir
stuðningi við Schyman
og segja hana hafa sýnt
mikið hugrekki að
koma fram. Eva Zetter-
berg, flokkssystir henn-
ar, segist þeirrar
skoðunar að viðbrögðin
við drykkju kvenna séu
harðari en þegar karlar eigi í hlut.
Þá hafi það gert Schyman enn erfið-
ara fyrir að vera einhieyp en ekki
megi horfa fram hjá því að hún
hafi sjálf valið að láta á sér bera.
Óhóflegt vinnuálag
Mikið hefur verið rætt um það
hvort að vinnuálag á stjórnmála-
menn sé óhóflegt og leiði jafnvel til
drykkju. Sverker Höglund, læknir
sænska þingsins, segir það hafa
komið sér á óvart eftir síðustu kosn-
ingar, hversu erfitt það hafi reynst
ungum og óreyndum stjórnmála-
mönnum að setjast á þing. Margir
þeirra eigi við mikla erfiðleika að
etja sökum álagsins og það eigi sér-
staklega við um þingmenn minnstu
flokkanna, þar sem vinnuálagið sé
ómanneskjulegt.
Göran Persson forsætisráðherra
segist ekki telja að skella eigi allri
skuldinni á vinnuálagið. Starf þing-
manna hafi alltaf verið erfitt og
áfengisneysla hafí lengi verið þekkt
í stjórnmálum.
Bert Karlsson, fyrrverandi þing-
maður Nýs lýðræðis, hefur gagnrýnt
drykkju þingmanna og m.a. spurt
hvaða önnur stétt manna geti verið
drukkin í vinnunni? Sakaði hann
fjölda þingmanna um að hafa verið
drukkna í þinginu síðasta dag þings-
ins, sumir hafi sofið, og þeir hafi
þrýst á ranga hnappa í atkvæða-
greiðslu. Karlsson spurði forseta
þingsins hvað gera ætti. Segir hann
forsetann hafa gefið sér orð í eyra
fyrir afskiptasemina og sagt að leysa
ætti málið innan þings.
Gudrun Schyman
Reknir fyrir njósnir
Stokkhólmi. Reuter.
n
ijóttu In/ölÁi 'mó.
JIUIMÖ (ÍTflHUIUUi í UÖÍWHCUi 3JTI ÖÍTTA TIVÖLDVíWUi Ö CÖDU VttW.
m CflfiMJIHOH
ef /\eótaurateur
Borðapantanir • Sími 5511247 • fax 551 1420
i
Valdabaráttan í Kreml
Jeltsm lofar and-
stæðing Lebeds
Moskvu. Rcuter.
BORÍS Jeltsín, forseti Rússlands,
sem hefur verið undarlega hljóður
um samninga Alexanders Lebeds um
frið í Tsjetsjníju, tók í gær óbeina
afstöðu til hans þegar hann heiðraði
Anatolí Kúlíkov innanríkisráðherra
og jós hann lofi með öllu því orð-
skrúði, sem tíðkaðist á tímum
kommúnista. Lebed hefur áður lýst
yfir, að með Kúlíkov geti hann ekki
starfað.
Lofið um Kúlíkov eru skilaboð,
sem ekki verða misskilin, og þykja
sýna vel valdabaráttuna í Rússlandi
í kringum friðarsamningana í
Tsjetsjníju. Það er ekki aðeins, að
þeir hafi í för með sér niðurlægjandi
brottflutning rússneska hersins frá
landinu, heldur óttast andstæðingar
Lebeds, að hann geti farið að
skyggja á aðra stjórnmálamenn í
landinu.
Víktor Tsjernomyrdín forsætis-
ráðherra hefur verið nokkurs konar
milligöngumaður milli Jeltsíns og
Lebeds og á þriðjudag lýsti hann sig
loks samþykkan friðarsamningunum
þótt hann teldi þá líka gallaða. Telja
fréttaskýrendur, að Tsjernomyrdín,
sem hefur augljóslega augun á for-
setaembættinu, sé að reyna að
styrkja stöðu sína í fjarveru Jeltsíns
og í gær kom nýr maður inn á svid-
ið, Anatolí Tsjúbaís, skrifstofustjóri
Jeltsíns.
„Það er ekki rétt að segja, að
Lebed hafi, eyðilagt Rússland og
undirritað uppgjafarskilmála og það
er heldur ekki rétt, að hann eigi
skilið að fá friðarverðlaun Nóbels,“
hafði Interfax eftir honum.
Lebed, sem er ekki kunnur fyrir
mikið langlundargeð, hefur ekki
leynt óánægju sinni með áhugaleysi
Jeltsíns á friðarstarfmu í Tsjetsjníju.
Þegar hann var spurður hvort unnt
væri að standa við samningana án
beins stuðnings forsetans svaraði
hann: „Ég get séð um þetta en stuðn-
ingur forsetans kæmi ekki að sök.“