Morgunblaðið - 05.09.1996, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
FRÁ hinni listrænu hönnunarsýningu í þjóðminjasafninu.
DIADORA
Plt
Laser
Litir: Svart, hvítt, rautt
St. 32-39
Verð kr. 2.999
Phantom
St. 37-46
Verð kr. 3.999
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 27
innanhússkór
®flSTuno ®
SPORTVÖRUVERSLUN
Háaleitisbraut 68, Austurveri
sími 568 4240
Doub/e action
Póstsendum
og var maður þannig jafn upptekinn
af útsýninu og gámunum og frábær
er sú hugmynd arkitektsins Jörns
Utzons að reisa þar menningarhús
hvað sem úr verður.
Heilar þrjár aðrar framkvæmdir
er sköruðu svipuð viðhorf í sam-
tímalist voru í gangi, „Interzones"
í Kunstforeningen, „Art meets
Science" á Carlottenborg og „Nine
dimensional Theory" í Nikolaj Kirke
og komu allar frá útlandinu eins
og nöfnin bera með sér og sýningar-
skrárnar voru líka á ensku. Fullstór
skammtur og sýningarnar skildu
lítið eftir sig þótt fróðlegar væru á
köflum.
Önnur hver mynd seld
Ég var hins vegar á heimavelli á
sýningunni „Unika“ í listiðnaðar-
safninu því bæði voru vinnubrögðin
á heimsmælikvarða og hlutirnir
últra móderne eins og það nefnist.
Um var að ræða sýningu 66
danskra listhönnuða á mörgum
sviðum, frá leirlist og húsgagna-
hönnun í vefnað og skart og væri
miklu meira en æskilegt að slík
sýning rækist hingað. Myndi hún
opna augu margra fyrir gildi hönn-
unar sem veitir hundruðum millj-
arða í danska þjóðarbúið. Sömuleið-
is kunni ég vel við mig á sýning-
unni Frakkland Danmörk á Sophi-
enholm er skaraði módernismann
þótt sýningin væri hvorki stór né
mikil og flest verkanna gamalkunn.
Fleiri framkvæmdir voru í borg-
inni og nágrenni hennar sem ég
náði ekki að skoða, er sköruðu
skúlptúr og ýmsar tímabundnar
uppákomur á förnum vegi. Að sjálf-
sögðu leit ég inn í nokkur listhús
og er mér mér sýningin „20 ár í
Frakklandi" sýnu eftirminnilegust.
Þar var félagi Svavars Guðnasonar,
Carl Henning Pedersen, á ferðinni
með stóra sýningu og alltaf er hann
jafn ferskur, jafnframt því sem hann
er farinn að skrifa bækur um líf
sitt og lifanir þótt kominn sé yfir
áttrætt! Önnur hver mynd á sýning-
unni var seld er mig bar að og voru
þó sumar stórar og á svimandi verði.
Aðalsýning Arkarinnar við Ishöj
fram til 8. september er svo á
grímumyndum félaga þeirra í Hel-
hesten Egils Jacobsens, en hann
mun hafa verið nánastur Svavari.
Myndirnar voru margar hveijar
framúrskarandi en féllu jafn illa að
rýminu og myndir Emils Nolde fyrr
á árinu. Hins vegar var þarna einn-
ig kistu- og skápagjörningur eftir
Ingvar Cronhammer er var sem
skapaður fyrir það. En það sem
vakti mestu athygli þessa dagstund
var tvímælalaust sýning á líkönum
af garðhúsum, en hún var framúr-
skarandi fyrir hugkvæmni og
skemmtilega uppsetningu. í langa
ganginum á neðri hæð var verið
að setja upp risastórar ljósmyndir
af gjörningi er markaði samfarir
konu við spastísk lamaðan mann.
Uppörvandi fjölbreytni og
hugkvæmni
Þetta nýja safn nútímalistar hef-
ur farið vel af stað hvað aðsókn
snertir og má þakka það frumlegri
byggingu og fallegri staðsetningu
og þannig höfðu 127.500 gestir
komið á það 1. ágúst. Mestu aðsókn
höfðu þó framkvæmdir Ríkislista-
safnsins uppskorið eða 153.689.
Þetta eru góðar tölur þótt langt sé
í að þær skagi uppi í aðsóknarmet-
ið á einstakar sýningar á Louisiana.
Eftirminnileg er sýning á frumlegri
og fagurfræðilegri hönnun kven-
fatnaðar, „Art to Wear“, á þjóð-
minjasafninu, sem haldin var í
tengslum við 15. þing „Internation-
al Association of Costume" í borg-
inni. Fjölbrejdnin og hugkvæmnin
var uppörvandi bæði í notkun efna
og formrænni meðhöndlan. Einnig
gjörningur í Jurtagarðinum, þar
sem garðurinn sjálfur var hluti
listaverkanna.
Rúsínan í pylsuendanum var þó
ótvírætt viðbygging Glyptoteksins,
sem er opinberun, ekki spillti frá-
bær sýning á byzantískri list í sýn-
ingarsölunum, en frá því og fleiru
segi ég seinna.
Bragi Ásgeirsson
SKÁLAR eftir Alev Siesbye á listiðnaðarsafninu.
OPI 10 ALLA [ ] AGA 1 FRÁ KL. 9-22
LYFJA
Lágmúla 5