Morgunblaðið - 05.09.1996, Side 28
28 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LISTIR
Eru Norðurlönd uppspuni?
TRÖLL danska málarans Richards Mortensens (1910-1993) gæti
hugsanlega verið íslenskt.
NORRÆNAR bókmenntir 1996
sem gefið er út á skandinavískum
málum og ensku er ársrit í þeim
farvegi að fjalla um bókmenntir lið-
ins árs, en að auki er efnt til um-
ræðu um bókmenntir og menning-
arstefnu yfirleitt. Umræðufundur
um Norðurlönd með tveimur kunn-
um norrænum rithöfudum, Danan-
um Suzanne Brogger og Svíanum
Per Olov Enquist, hlýtur að vekja
sérstaka athygli, en fleira er í ritinu
sem hvetur til umhugsunar eða að
minnsta kosti kallar á smáþanka.
Ást á íslendingasögum
Það gleður líklega íslendinga að
Brogger og Enquist játa bæði ást
sína á Islendingasögum og mikil-
vægi þeirra fyrir eigin bókmennta-
sköpun. Brogger hefur nýlokið við
að þýða Völuspá á dönsku og Enqu-
ist teiur rætur sínar sem rithöfund-
ar beinlínis liggja í Islendingasög-
um.
í samtalinu kemur fram að nor-
rænu þjóðirnar eiga ekki margt
sameiginlegt iengur, að minnsta
kosti eru bókmenntatengslin lítil að
mati rithöfundannna.
Evrópusambandið hef-
ur þó þjappað þjóðun-
um saman frekar en
sundrað þeim. Eitt enn:
Brogger rifjar upp að
eftir að hún hafði talað
um Völuspá á fundi í
Brussel kom til hennar
suðurevrópsk kona og
kvaðst loks skilja hvað
sameinaði Norðurlönd,
norrænu þjóðimar
hefðu aldrei verið að
fullu kristnaðar.
Ingrid Elam sem
stýrir samræðum á
fyrrnefndum fundi
varpar fram spurningu
sem eflaust má svara
játandi: „Eru Norðurlönd í raun og
veru uppspuni, brothætt samsetn-
ing sem byggist á hugmyndum um
skyldleika fremur en að við eigum
í raun eitthvað sameiginlegt?" Það
sem sameinar þó Norðurlandabúa
að mati rithöfundanna eru höft og
skinhelgi sem lýsir sér í ýmsum
bönnum. Þetta er áreiðanlega rétt
og vekur vissulega furðu Evr-
ópubúa, ekki síst frá Suður-Evrópu.
Lifandi útópía
í ritgerðinni Eru Norðurlönd
skáldskapur? kemst Erik Skyum-
Nielsen að þeirri niðurstöðu að sé
TONLIST
L i s a s a f n i S i g u r j ó n s
Óiafssonar
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran-
söngkona og Valgerður Andrésdóttir
pianóleikari, fluttu söngverk eftir
Peter Heise, Lange-Miiller, Alban
Berg og Serge Raehmaninov. Þriðju-
dagurinn 3. september, 1996.
INGIBJÖRG Guðjónsdóttir valdi
sér sérstæð viðfangsefni, fyrst
söngverk eftir tvo dönsk tónskáld,
Heise og Lange-Múller, síðan Sjö
æskusöngva eftir Berg og fim'm lög
eftir Rachmaninov. Dönsku lögin
eru frekar litlausar tónsmíðar, fal-
lega hljómandi en það vantar í þau
háskann og átökin, þótt þau séu
annars þokkalega unnin, eins og
Ævisögur skálda og
endurmat á framlagi
þeirra setur nokkurt
mark á bókaútgáfu að
mati Jóhanns Hjálm-
arssonar sem hefur
gluggað í norrænt rit
sem að mestu er helgað
útgáfu liðins árs.
átt við hvort Norðurlönd eigi sér
varanlega sameiginlega menning-
arlega sjálfsmynd sé svarið játandi.
Aftur á móti, skilji ég hann rétt,
megi líta á norræna menningarsam-
einingu sem lifandi útópíu, skáld-
skap á borði en ekki einugis í orði
sé það haft í huga. Skyum-Nielsen
er þó að mestu svartsýnn og vantrú-
aður á að Norðurlönd eigi eitthvað
sameiginlegt á bókmenntasviði fyrir
utan óljósar hugmynd-
ir og almenn stefnumál
sem hann rekur.
Greinar um bækur
mótast að stórum
hluta af umfjöllun um
verðlaunabók Norður-
landaráðs 1996, smá-
sagnasafn Norð-
mannsins Oysteins
Lonns, og aðrar til-
nefndar bækur. Meðal
bóka sem íjallað er um
þótt þær uppfylli ekki
fyrrnefnd skilyrði eru
verk eftir Finnann
Gunnar Björling,
Svíann Sigrid Combuc-
hen (um D.H. Lawr-
ence, D’Aannunzio,
Joyce Carol Oates, Woodehouse og
Karen Blixen), Danann Poul Be-
hrendt (um Thorkild Hansen) og
Finnann Hannu Mákelá (um Eino
Leino).
Óskiljanlegt skáld
Það er Anders Olsson sem skrifar
um Gunnar Björling (1887-1960)
í tilefni þess að í fyrra komu út rit
hans í fimm bindum. Sama ár sendi
Olsson frá sér stóra ævisögu Björl-
ings. í greininni í Nordisk Litterat-
ur 1996 tekur Olsson upp umræð-
una um heimsmá! og minni mál-
svæði og takmarkanir þess að skáld
t.d. tvö lög, sem Lange-Muller
samdi yfir ástarsöng H. C. Anders-
en, Min tankes tanke. Þessi lög eru
forvitnileg til samanburðar, t. d. við
lag Griegs og þá kemur fram stærð-
armunurinn. Það getur verið
skemmtilegt að flytja söngva, sem
eru lítt þekktir, eins og umrædd lög
en spurningin er, hvers vegna erfði
gleymskan þessi lög? Ingibjörg söng
dönsku lögin mjög vel og píanistinn
átti þar nokkrar vel leiknar strófur.
Sieben frúhe Lieder eftir Berg
eru stórkostlegar tónsmíðar en
á borð við Edith Södergran, Gunnar
Ekelöf og Gunnar Björling ortu á
sænsku. Sjálf mynd módernismans
væri önnur hefðu þessi skáld og
vitanlega skáld fleiri lítilla mál-
svæða ort á heimsmáli.
Sagt var um Björling að hann
orti í reynd ekki á sænsku og væri
líka óskiljanlegur. Poul Borum telur
að aðeins sé hægt að jafna Mall-
armé við Björling þegar setningaleg
nýsköpun í Ijóðlist sé metin. Björl-
ing hirti ekki um strangar setninga-
fræðilegar reglur en bjó til sína eig-
in setningafræði.
Ævisögur frægra skálda og
skáldsögur um þau eru í tísku og
tilhneiging til endurmats er fyrir
hendi. Þannig sýnir Sigrid
Combuchen D’Annunzio í nýju ljósi
í bók sinni Om en dag man vaknar
(útg. Nordstedts). Poul Behrendt
kafar djúpt í persónuleika og sögu
Thorkilds Hansens í Djævlepagten
(útg. Gyldendal) og Hannu Mákelá
lýsir í skáldsögunni Mestari (útg.
Otava) síðustu dögum skáldsins
Einos Leinos (1878-1926) sem á
frægasta smíðin í þessum laga-
flokki er án efa söngurinn um næt-
urgalann, sem var mjög fallega
fluttur. Það er svo með lagaflokka,
að oft nær tónsskáldið aðeins að
gullbrydda eitt lag og af fimm lög-
um eftir Rachmaninov, skar sig úr
lagið Syngdu ekki, fagra, fyrir mig
söngvana dapurlegu frá Grúsíu,
hvað snertir skýrar tóhendingar og
var þetta sérlega fallega lag mjög
vel sungið.
Ingibjörg er góð söngkona, gefin
falleg rödd, sem er vel þjálfuð og
sinni tíð var kallaður mesti bóhem
Finnlands og kom því í verk að
senda frá sér um hundrað bækur á
stuttri ævi. Fyrir Mestari (Meistar-
inn) hlaut Makelá Finlandia-bók-
menntaverðlaunin 1995, en eftir
hann er ti] ein ljóðabók í íslenskri
þýðingu: Árin sýna enga miskunn
(útg. Urta 1993.)
Meðal annarra ævisagna sem
skrifað er um í ritinu eru verk um
Roald Amundsen og Trygve Bratt-
eli, en á ævisögum er enginn skortur.
Engar ævisögur komast á blað í
íslenska hlutanum. Skrifað er um
tilnefndar skáldsögur Vigdísar
Grímsdóttur og Einars Kárasonar
og barnabókina Sossu sólskinsbarn
eftir Magneu Magnúsdóttur frá
Kleifum. Ástráður Eysteinsson er
höfundur jiortretts af Gyrði Elías-
syni, en Ástráður er íslenskur rit-
stjóri Nordisk Litteratur 1996. Að-
alritstjóri er Norðmaðurinn Hákon
Harket, útgefandi Norræna bók-
mennta- og bókasafnanefndin
(Nordbok) styrkt af ráðherranefnd-
inni.
mótar hún tónhendingar laganna
af öryggi og af næmri tilfinningu
fyrir líðandi tónferli söngvanna.Það
eina sem á vantar, að söngur henn-
ar sé glæsilegur, er meiri skýrleiki
í framburði og einnig, að henni
hættir til að vera einum um of yfir-
veguð. Hún hefði mátt sleppa fram
af sér beislinu í túlkun, bæði í Rach-
maninov og Berg og leika sér fijáls-
ar með tónhendingarnar í þessum
yfirmáta rómantísku söngverkum,
en rödd hennar fellur einmitt ein-
staklega vel að rómantískri og
„heitri“ tónlist.
Píanóleikarinn Valgerður Andr-
ésdóttir lék margt vel en lögin eftir
Berg og Raehmaninov og sérstak-
lega það síðasta, Vorleysingar, eftir
Rachmaninov, eru erfið viðfangs-
efni, bæði tæknilega og í mótun
blæbrigða, sem Valgerði fórst vel
úr hendi.
Jón Ásgeirsson
Ljóð á Kaffi
Austurstræti
ALLRA síðustu 66 mínútur úr
Fundnum ljóðum Páls Ólafssonar
kallast ljóðadagskrá sem leikar-
arnir Hjalti Rögnvaldsson og Hall-
dóra Björnsdóttir flytja á Kaffi
Austurstræti (nr. 6 við götuna) í
kvöld kl. 22.30.
-----»-♦—♦-----
Strengjatón-
leikar í Ytri
Njarð-
víkurkirkju
STRENGJASVEIT Tónlistarskól-
ans í Keflavík er nýkomin heim frá
Hjörring í Danmörku þar sem hún
tók þátt í hljómsveitarmóti sem
nefndist Europa Træf 1996. Á
mótið komu 12 hljómsveitir frá
ýmsum löndum Evrópu allt austur
til Úkraínu.
„Strengjasveitin fékk frábærar
móttökur og hefur nú fengið með-
al annars boð um að koma til Vil-
niusar í Litháen", segir í kynn-
ingu. Strengjasveitin mun af þessu
tilefni halda tónleika í Ytri-Njarð-
víkurkirkju nk. laugardag, 7. sept-
ember, kl. 17, þar sem leikin verða
verk eftir Bach, Pacelbel, Boyce
o.fl. ásamt íslenskum og dönskum
lögum.
Stjórnandi strengjasveitarinnar
er Óliver Kentish og er aðgangur
ókeypis og öllum heimill á meðan
húsrúm leyfir.
-----♦ ♦ ♦-----
Ofinn skúlpt-
úr á Kjarvals-
stöðum
í MIÐSAL Kjarvalsstaða verður
formlega opnuð sýning á nýjum
verkum eftir Guðrúnu Gunnars-
dóttur laugardaginn 7. september
kl. 16. í tengslum við sýninguna
hefur verið gefin út sýningarskrá
með grein eftir Auði Ólafsdóttur,
listfræðing og fjölda litmynda sem
ennfremur eru póstkort.
„Guðrún hefur um árabil verið leið-
andi listakona innan veflistarinnar
og lagt sig fram við að útvíkka
landamæri hennar", segir í kynn-
ingu.
Sýningin á Kjarvalsstöðum er
opin daglega frá kl. 10-18 fram
til 19. október. Safnaverslun og
kaffistofa eru opin á sama tíma.
-----»■■♦ ♦----
Sýning- verka úr
Kjarvalssafni
OPNUÐ verður sýning á verkum
Jóhannesar Sveinssonar Kjarval
laugardaginn 7. september í austur-
sal Kjarvalsstaða.
Sýndar verða perlur úr Kjarvals-
safni, landslagsmálverk, fígúratív
málverk, teikningar og vatnslita-
myndir. Sýningunni er ætlað að
gefa innsýn í þá fjölbreytni sem
einkenndi verkefnval Kjarvals og
samtímis að draga fram hæfileika
hans til að skilgreina og túlka á
persónulegan hátt viðfangsefni sín
og skírskota til íslenskrar þjóðtrúar
og menningarafleifðar.
Sýningin stendur til 22. desember.
Gunnar Björling
Falleg og vel
þjálfuð rödd
H& eAliil l#^l# útf®lunni »hummél^
lillf lylcur SPORTBÚÐIN
U L JUIIII 1 11 laugardag NÓATÚNI 17
c SÍMI 511 3555