Morgunblaðið - 05.09.1996, Side 51
morgunblaðið
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 51
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
(
(
(
(
í
<
<
(
<
<
(
(
(
(
<
ERU ÞEIR AÐ FÁ’ANN?
Þeir stóru
farnir að
gefa sig
TVEIR 24 punda legnir hængar
veiddust fyrir austan fjall um helg-
ina, annar á Iðunni og hinn á
fjórða svæði Stóru Laxár. Þá hafa
stórir laxar verið að veiðast á
Nesveiðum i Laxá í Aðaldal að
undanförnu.
Iðulaxinn veiddist á maðk og
var einn 24 laxa sem veiddust á
svæðinu um helgina. Birgir Sum-
arliðason, sem var í hópi veiði-
manna, sagði að allur iaxinn hafi
verið leginn, menn hefðu vænst
þess og vonað að nýir laxar kæmu
með höfuðdagsstraumnum, en sú
von hafi brugðist. „Samt er nóg
af fiski þarna til þess að við vorum
alltaf að reyta upp fisk,“ sagði
Birgir. Hann sagði og að borið
hafi á öðru sem hann hefur ekki
átt að venjast á Iðunni, stórum
sjóbirtingum. „Við fengum fimm
3-5 punda gullfallega fiska,“ sagði
Birgir.
Hinn stórlaxinn veiddist í
Klapparnefi á efsta svæði Stóru
Laxár í Hreppum á laugardaginn.
Veiðimaður var Aad Groeneweg,
hollenskur íslendingur. Laxinn tók
Bill Young túbuflugu, tveggja
tommu, og var landað á um 40
mínútum. Laxinn var 106 senti-
metrar. Að minnsta kosti þrír lax-
ar til viðbótar veiddust á svæðinu
er rof kom í vatnsveðrið undir
myrkur, þar af einn 15 punda og
annar 13 punda.
Glæðist aðeins á Nesveiðum
Eftir mikil rólegheit í sumar
glaðnaði aðeins yfir veiðiskap á
Nesveiðum í Laxá í Aðaldal. Til
marks um það var holl skammt
frá mánaðamótum ágúst og sept-
ember með 23 laxa, allt að 22
punda og næsti hópur sem veiddi
fram að mánaðamótum veiddi 13
físka. Þar með voru komnir um
190 laxar á land á svæðinu. Þrátt
fyrir dálítil fjörbrot á árbakkanum
verður þetta að teljast léleg heild-
arveiði, því í fyrsta skipti er svæð-
ið mun stærra með fleiri stöngum
þar sem veiðisvæði Núpa og Kjal-
ar hafa bæst við, en voru áður
leigð sér.
En eins og fyrri daginn hafa
stórir fiskar verið aðall Nesveið-
anna. All margir fiskar vel yfir
20 pund hafa veiðst. Ekki er gott
að henda reiður á þyngd einstakra
laxa í íslenskum pundum, því
margir útlendingar skrá laxa sína
eftir libs-kerfi. I bókinni í Nesi eru
laxar skráðir 28-30 pund. Séu það
hbs þá er um að ræða laxa í 25-26
AAD Groeneweg með 24
punda hænginn úr Klappar-
horni í Stóru Laxá.
punda skalanum. Margir veiði-
manna í Nesi eru erlendir og sum-
ir þeirra sleppa löxum sínum.
Lifnar yfir
Tungufljóti
Veiði hefur loks glaðnað í
Tungufljóti eftir eindæma róleg-
heit fram eftir öllu sumri. Ekki
var Skaftárhlaupið til að greiða
fyrir göngum og var vitað að það
myndi tefja för göngufiska eitt-
hvað. Allt um það, þá er það ekki
einhlít skýring. Það er laxinn sem
er að sýna sig, en lítið bólar enn
á sjóbirtingi sem er aðalfiskur
Tungufljóts. Þó er vitað að bænd-
ur voru byrjaðir að fá’ann í netin
í Kúðafljóti áður en hlaupið kom.
Það ætti því aðeins að vera tíma-
spursmál hvenær sjóbirtingurinn
mætir.
Á sunnudagskvöld voru komnir
11 laxar á land. Laxinn byijaði
að veiðast á miðvikudaginn fyrir
rúmri viku og um helgina veiddust
sex fiskar og fregnir herma að
ónafngreindur veiðimaður hafi
misst þann stóra. „Ég hef það
eftir þessum mönnum að það hafi
virst vera talsvert af fiski á ferð-
inni,“ sagði Bergur Steingrímsson,
framkvæmdastjóri SVFR í sam-
tali, en félagið leigir ána.
Breskur grínisti í
Loftkastalanum
BRESKI grínistinn Eddie Lizzard
heldur sýningar í Loftkastalanum
dagana 5. og 6. september.
Eddie er núna í fjögurra mánaða
heimsreisu með sýningu sína, kem-
ur hingað frá París og heldur svo
til Hollands. Þarnæst heldur hann
sýningar í New York, Köln, Stokk-
hólmi og Kaupmannahöfn.
Með Izzard koma fimm manns
frá BBC sjónvarpinu en verið er að
gera þátt um heimsreisu hans.
Samhliða því að vera skemmti-
kraftur lék Izzard í myndinni „The
Secret Agent“ með Bob Hoskins
°g Gerard Depardieu.
Sýningarnar í Loftkastalanum
verða tvær: fimmtudaginn 5.
september kl. 20 og föstudaginn
6. september kl. 23.30.
LEIÐRÉTT
Myndavíxl
Ekki tókst betur til en svo við frá-
gang á listasíðu í Morgunblaðinu í
gær, en að þrjár myndir víxluðust.
Þarna var um að ræða myndir af
Georg Brandes, Vagn Holmboe og
H.C. Andersen. Myndin af Brandes
lenti í texta um H.C.Andersen, en
mynd af honum lenti í texta um
Vagn Holmboe. Myndin af Holmboe
birtist svo í textanum um Brandes.
Beðist er afsökunar á þessum mis-
tökum.
Rangt föðurnafn brúðguma
Rangt var farið með föðurnafn
brúðgumans Sveins Ola í brúð-
kaupstilkynningu sl. laugardag.
Hann var sagður Pálmason en er
Pálmarsson.
FRÉTTIR
Gordon setter bestur á sýn-
ingn Hundaræktarfélagsins
HUNDASÝNING Hundaræktarfé-
lags íslands var haldin í Reiðhöll
Gusts í Kópavogi sunnudaginn 1.
september sl. í dóm mættu 113
hundar af 25 tegundum. Á þessari
sýningu fór einnig fram keppni
ungra sýnenda. Dómarar voru
Marianne Furst-Danielson frá Sví-
þjóð og Sigríður Pétursdóttir frá
Islandi.
Urslit sýningarinnar urðu sem
hér segir:
Besti hundur sýningar: 1. sæti
IS.M. Cullerlie of Fingray, Gordon
setter. Eigendur Ragnar Sigutjóns-
son og Oddný St. 2. sæti: Snæ-
lands-Ari, enskur springer spaniel.
Eigandi: Heiðdís Sigursteinsdóttir.
3. sæti: Tíbráar-Baltasar, Tíbet
spaniel. Eigandi: Margrét Ágústa
Kristjánsdóttir. 4. sæti: Zandra
Vom Laacher Haus, þýskur fjár-
hundur. Eigendur: Hjördís Ágústs-
dóttir og Eiríkur Guðmundsson. 5.
sæti: Toybox Heavenly Gold, po-
meranian. Eigendur: Gylfi Sigurðs-
son og Hrafnhildur.
Besti hvolpur sýningar:
1. sæti: Silfurskugga-Kleópatra,
cairn terrier. Eigandi: Guðrún Stef-
ánsdóttir. 2. sæti: Bonus Pater,
enskur bulldog. Eigandi: Sigurður
Helgi Guðjónsson. 3. sæti: Kersins-
Tappi, íslenskur fjárhundur. Eig-
andi Helga Gústavsdóttir. 4. sæti:
Ránar-Sólon íslandus Ýrar, Dalma-
tíuhundur. Eigandi: Agnes Ýr Þor-
láksdóttir. 5. sæti: Alexandra, po-
meranian. Eigandi: Sesselía
Salóme Tómasdóttir.
Besti ungi sýnandinn var valinn
Auður Sif Sigurgeirsdóttir sem
keppti með Tíbet spaniel ÍS.M.
Nalinas Morchella D’Adonis. í öðru
sæti var Viktoría Jensdóttir með
standard poodle hundinn ÍS.M.
Roffe og í þriðja sæti var Lena Rut
Kristjánsdóttir með labrador re-
triever Markar-Hríslu.
Næsta sýning Hundaræktarfé-
lags íslands verður alþjóðleg og
verður haldin dagana 5. og 6. októ-
ber nk. Dómarar verða Rainer
Vuorinen frá Finnlandi og Piero
Renai della Rena frá Ítalíu. Skrán-
ingu lýkur 6. september nk.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
BESTI hundur sýningarinnar: Tíkin Andrea Gylfadóttir Gordon
setter. íslenskur meistari Cullerlie of Fingray, 93-2864, fædd
25. júlí 1992. Eigandi: Ragnar Sigurjónsson og Sigríður Oddný.
Ræktendur herra og frú Jor Sutton. Með hundinum á myndinni
er Sigurður H. Sigurðarson sem sýndi hundinn.
ÞÝSKI fjárhundurinn tíkin Zandra Vom Laacher-Haus og po-
meranian hundurinn Toybox Heavenly Gold.
Haustmark-
aður fyrir
kristniboðið
ÁRLEGUR haustmarkaður Kristni-
boðssambandsins verður haldinn
laugardaginn 7. september í húsi
KFUM og KFUK, Holtavegi 28
(gegnt Langholtsskóla) í Reykjavík.
Markaðurinn hefst kl. 14 og rennur
ágóðinn til starfs Kristniboðssam-
bandsins í Kína, Eþíópíu og Kenýu.
Nokkrar konur úr hópi kristni-
boðsvina standa fyrir markaðnum
og þar verður selt ýmiskonar græn-
meti, ávextir og ber, allt eftir því
hvað kristniboðsvinir og aðrir vel-
unnarar leggja markaðnum til af
uppskeru sumarsins. Allt er vel
þegið, kál, kartöflur, gulrætur, ber,
sultur, ávextir, blóm og kökur og
hvað sem er matarkyns. Þessu verð-
ur veitt móttaka í KFUM og K
húsinu föstudaginn 6. september
kl. 17—19, segir í fréttatilkynningu.
Á þessu ári hóf Kristniboðssam-
bandið þátttöku í samstarfsverkefni
um kristilegra útvarpsútsendinga
til Kína. Um 4-5 milljónir manna
hlusta daglega á kristilegan barna-
þátt en einnig tekur Kristniboðs-
sambandið þátt í að greiða fyrir
hálftíma útvarpsþátt fyrir full-
orðna. í Afríku eru nú átta íslensk-
ir kristniboðar á vegum Kristni-
boðssambandsins auk barna. í ár
þarf að safna um 20 milljónum
króna til að standa straum af kostn-
aði við starfið innanlands sem utan.
Þann 14. septcmber býður Ferðaskrifstofa Guðmundar Jónassonar bcint leiguflug til
hinnar fomfrægu og fallegu borgar Prag. Heimflug til Íslands er síðan þann 21.
september. Fjöldi hagstæðra ferðamöguleika er í boði, meðal annars getum við boðið
flug og hótel í eina viku í Prag frá 48.420,- krónum á mann og er þá innifalinn
flugvallarakstur, morgunverður, flugvallarskattur og íslensk fararstjórn.
Örfá sæti laus vegna forfalla
Leitið nánari upplýsinga hjá utanlandsdcild okkar.
<2
Feráaskrífstofa
CUÐMUNDAR JÓNASSONAR HF.
Borgartúni 34, sími X^c^