Morgunblaðið - 05.09.1996, Blaðsíða 52
52 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
pi«>viswitiWaíííí»
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Dýraglens
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 5691329
• Netfang: lauga@mbl.is
« ',þ£TTA BR FAf&HL BGT/'X-- . .
{?/*/ > .. - - ' '•
JU5T LEVELIN6 TME j $
PLAVIN6 FIELP, 51 R.J t
>V'-----. )-------V\
GÆTIÐ YKKAR; FISKAR!
HÉR KEMUR HUN!
Já, auðvitað, Magga...
fældu þá alla í burtu!
Bara að jafna leikinn, herra.
MÁLVERK Steingríms af Laugarvatni.
Fegurð kyrrðar
Frá Steingrími St. Th. Sigurðssyni:
FJALLIÐ fyrir ofan Laugarvatn er
farið að skipta litum, sem fer því
vel. Hótel Edda í Menntaskólanum
er að enda sitt sumarskeið eftir
góða tíð. Veðrið er eins og í Suður-
löndum dag eftir dag, og þetta
umrædda hótel hefur tekið stakka-
skiptum eins og kona á blómaskeiði
sem hefur safnað í sig hreysti og
er enn fegurri en nokkru sinni fyrr.
Þetta gerðist fyrir tveimur árum
að hótelið var endurskapað og fært
í listrænt horf sem fullnægir hörð-
ustu kröfum í hótelhaldi. Fyrir var
viðmót eins og á frönsku eða ítölsku
hóteli. Gestgjafinn hún Lillý, sem
borin og barnfædd er á Laugar-
vatni og hennar austfirski eigin-
maður og völundurinn og þúsund
þjala smiðurinn hann Daníel hafa
setið þennan garð og stýrt Eddunni
við Vatnið helga, síðan rétt upp úr
sextíu. Þau eru ung og hress, enda
gamlir sjampíónar í sundi. Þau hafa
gefið sérstakan kraft inn á þetta
hótel, sem á engan sinn líkan.
Fólk frá framandlegum löndum
og þjóðum kemur aftur og aftur
og gistir hvergi annars staðar en
hjá Madame Lillý, sem heldur sér
betur en flestar aðrar konur —
geislar af lífsorku.
Böðvar sálugi á Laugarvatni
skrifaði lífsbók sína Undir tindum.
Böðvar var af klani og minnti á
höld, og þá hann deyði var hann
grafinn inn í fjallið — undir björkun-
um í sunnlenzkri úrhellisrigningu.
Klerkurinn sem jarðsöng var enginn
annar en sá umdeildi síra Emil
Björnsson, enginn kom til greina
annar en síra Emil til að jarðsetja
lénsherrann, sem minnti á gamla
höfðingjaveldið, sem er að hverfa í
tímans rás, því miður segja margir.
Síra Emil var kaupamaður hjá
Böðvari á námsárunum. Ýmislegt
stórfenglegt hefur gerzt á svæðinu.
Til að mynda voru lík Herra Jóns
Arasonar og sona hans flutt úr
Skálholti og að Lauginni niðri við
vatnið og lauguð þar. Trúlega er
þetta helgasti staður á íslandi.
Kaþólikkar fóru frá Skálholti fyrir
örfáum árum pílagrímsför að Laug-
inni. Þar gerðust kraftaverk. Svona
má lengi telja.
Skólarnir á Laugarvatni hafa
staðið fyrir sínu, Menntaskóinn sem
hefur í seinni tíð staðið sig ámóta
vel og MR og MA, íþróttakennara-
skólinn; grunnskólinn og þar fram
eftir götunum.
En bezt af öllum hafa staðið sig
þau hjónin ættuð af Austfjörðum
(„Sjórekin frönsk og hann Daníel
af Vefarættinni").
Undir merki hótelsins og merki
fegurðar Laugarvatns heldur stað-
urinn áfram að vera til.
P.S. Haukur Vald. er hofmeistari
á Hótel Eddu, hann lærði víða og
m.a. Danmörku, maturinn er hann
eldar er undurgóður.
STEINGRÍMUR ST. TH.
SIGURÐSSON,
listmálari og rithöfundur.
Hvað skal segja? 4
Væri rétt að segja: Þeir fóru á eftir hvor öðrum?
Rétt væri: Þeir fóru hvor á eftir öðrum.
Tveir menn fóru hvor á eftir öðrum.
Þrír menn fóru hver á eftir öðrum.
Tvær konur fóru hvor á eftir annarri.
Þijár konur fóru hver á eftir annarri.
Tvö börn fóru hvort á eftir öðru.
Þtjú börn fóru hvert á eftir öðru.
Margt fólk fór hvað á eftir öðru.
Næst verða fleiri dæmi um notkun þessara sömu fornafna.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.