Morgunblaðið - 05.09.1996, Side 53
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996 53
____BRÉF TIL BLAÐSIWS_
Hver er ábyrgð
heilsugæslulækna?
Frá Margréti Maríu
Sigurðardóttur:
| LÍKT og alþjóð veit hefur staðið
I yfir deila heilsugæslulækna við ís-
| lenska ríkið. Þrátt fyrir að deilan
hafi staðið yfir í heilan mánuð virð-
ast aðilar ekki hafa nálgast hvor
annan. Ég er búsett á landsbyggð-
inni, þar sem að heilsugæslan hefur
virkað mjög vel, enda oft vitnað tii
þess þegar rætt er um hvernig
heilsugæslan ætti að vera. Ég hef
í alla staði verið mjög ánægð með
I þá þjónustu og notað hana óspart.
Mér hefur fundist gott traust milli
heilsugæslulækna og sjúklinga
þeirra.
Nú við þessa deilu er landsbyggð-
in þolandi í þessu máli. Lands-
byggðin sem hefur verið öflugasti
stuðningsaðili við heilsugæsluna.
Lífið virðist ganga sinn vana gang
á höfuðborgarsvæðinu á meðan
landsbyggðin þjáist. Nú síðast lýsti
Gunnar Ingi Gunnarsson því yfir
að neyðarþjónustu yrði hætt enda
lengdi þjónustan deiluna. Hver er
ábyrgð heilsugæslulækna? Vilja
þeir fórna því trausti og góða sam-
starfi sem hefur átt sér stað úti á
landi. Ætla læknar að bregðast
læknaeið sínum, þar sem þeir hétu
því að sinna sjúkum? Ég fullyrði
að ef heilsugæslulæknar endur-
skoða ekki baráttuaðferðir sínar
verður seint hægt að laga þann
trúnaðarbrest sem orðið hefur á
milli lækna og sjúklinga þeirra úti
á landi. Ég spyr því heilsugæslu-
lækna: Eruð þið tilbúnir að grafa
undan heilsugæslunni þar sem hún
virkar og fórna trausti dyggustu
skjólstæðinga ykkar?
MARGRÉT M. SIGURÐARDÓTTIR,
Urðarbraut 22, Blönduósi.
Skrautlýst atvinnu
leysi kvenna í
Reykjavík
Stuðlaðu
að eigin
heilbrigði
með
Propolis!
Frá Ragnari Þjóðólfssyni:
AÐ undanförnu hafa ijölmiðlar flutt
fréttir af niðurstöðum rannsókna
er sýna aukna útbreiðslu pneumo-
kokka sem eru ónæmir fyrir sýkla-
lyfjum. Útbreiðsla þeirra er talin
tengjast of mikilli notkun sýkjalyfja
hér á landi og þá sérstaklega súlfa-
lyfja. Vegna þessara frétta langar
mig að benda á öflugt bólgueyðandi
og bakteríudrepandi efni unnið
beint úr náttúrunni sem ekki veldur
ónæmi né heldur drepur það eðli-
lega bakteríuflóru líkamans. Þetta
efni er Propolis.
Það hefur verið kallað sýklalyf
náttúrunnar og lækningamáttur
þess verið þekktur í ríflega 2000
ár. Propolis er ttjákvoða sem bý-
flugurnar safna og nota til að klæða
innan veggi búsins til að sótthreinsa
það.
Vítamín
Ungverski vísindamaðurinn
Szent-Gyorgi uppgötvaði C-vítam-
ínið seint á þriðja áratug þessarar
aldar og síðar P-vítamínið sem
tijákvoðan er ákaflega rík af. Svo
virðist að það sé að stórum hluta
þetta vítamín sem gefur Propolis
hin bólgueyðandi, bakteríudrepandi
og blóðstemmandi áhrif. Propolis
er auk þess ríkt af A-, B-, C- og
H-vítamíni, amínósýrum, lífrænum
sýrum og steinefnum. Býflugurnar
blanda það einnig ensímum úr kirtl-
um sínum og víst er að það hefur
reynst vinna vel á mörgum sjúk-
dómum.
Bólgur
Margar mæður kaupa Propolis
og gefa með góðum árangri börnum
sem þjást af síendurteknum eyrna-
bólgum. Ekki vinnur það síður á
blöðrubólgu, þrálátu kvefi, háls-
bólgu, bronkítis og berkjubólgu.
Margir taka Propolis stöðugt við
blöðruhálskirtilsmeinum og nýrna-
veilum. Talið er að árangurs sé að
vænta innan þriggja vikna frá því
að notkun er hafin. Ef um krónískt
ástand er að ræða verður þó að
gera ráð fyrir lengri tíma.
Æ fleiri eru nú farnir að gera
sér Ijóst að verksmiðjuframleidd lyf
eru ef til vill fljótvirkari en náttúru-
efnin en aukaverkanir fylgja oft í
kjölfar notkunar þeirra og gegn
sumum myndar líkaminn óþol eða
ónæmi.
Efnið er fáanlegt í töfluformi en
einnig er á markaðnum áburður
sem er einstaklega sótthreinsandi
og virkar líkt og galdur á unglinga-
bólur.
RAGNAR ÞJÓÐÓLFSSON,
Arnartanga 17, Mosfellsbæ.
Frá Önnu Gunnarsdóttur:
RÁÐAMENN Reykjavíkurborgar
hafa stundað ýmis tiltæki að undan-
förnu, sem hafa mælst vel fyrir og
fengið vinsamlega umfjöllun hollvina
þeirra á fjölmiðlunum. Það er góðra
gjalda vert að efna til flugeldasýn-
inga og bjóða leikskólabörnum niður
í miðbæ að næturlagi með mömmu
og pabba til að hlusta á músik og
sjá svo mannhafið áður en allt keyr-
ir um þverbak í drykkjulátum, lík-
amsmeiðingum og almennu svínaríi
venju samkvæmt.
Það var líka vel til fundið að bjóða
upp á bátsferðir úr Nauthólsvík yfir
í Kópavog og með skipi úr Hafnar-
firði til Reykjavíkur, þegar menn
áttu að skilja bílinn eftir heima en
gerðu það ekki; Og hvaða tilgangi
þjónar þetta? Á að venja fólk við
ferjusiglingar yfir Fossvoginn? Við
nánari athugun kemur í ljós að ekk-
ert af þessu mun skipta máli eða
hafa minnstu varanlegu áhrif á vel-
ferð okkar í höfuðborginni, hvorki
flugeldarnir né feijusigiingarnar.
Hið eina sem virðist varanlegt í
Reykjavík um þessar mundir er at-
vinnuleysi. Og það vaxandi atvinnu-
leysi. Gegn því verður ekki ráðist
með flugeldasýningum og barna-
samkomum að næturlagi. Á 210 ára
afmæli Reykjavíkurborgar var at-
vinnuleysið í borginni mest á landinu
og meira en nokkurn tíma fyrr. Lof-
orð núverandi ráðamanna borgar-
innar um að uppræta atvinnuleysið
voru greinilega innantómt kosn-
ingaglamur. Sérstaklega er hlutur
reykvískra kvenna bágborinn. Hjá
þeim var 6,5% atvinnuleysi í júlí og
mun meira en hjá körlum. Gleymum
ekki atvinnuleysi unglinga 17—19
ára. Félagsmálastofnun hefur það
sem af er þessu ári greitt til fram-
færslu þeirra hátt í þrjú hundruð
milljónir! Væri ekki nær að nota
þessa fjármuni til að útvega ungling-
unum atvinnu á svipaðan hátt og
sjálfstæðismenn gerðu á síðasta
kjörtímabili. Þetta eru nöturlegar
staðreyndir um framferði kvennafor-
ystunnar í Ráðhúsinu sem sjálf er í
fullri vinnu við að undirbúa tilgangs-
lausar skrautlýsingar, nætursam-
komur og ferjusiglingar.
ANNA GUNNARSDOTTIR,
Suðurhúsum 1, Reykjavík.
Huqsaðti stórt
Full potential mascara
Kynnstu maskaranum sem byggir upp og þéttir hvert einasta
augnhár. Aðskilur þau fullkomlega með einni stroku. Mild
samsetning sem hvorki klessist né smitar út. Litirnir,
Black sem er enn svartara og Black/Brown ennþá dýpri.
Augun í brennidepli þessa viku.
Full Potential Mascara. Kr. 1.480.
Prófaðu einnig frá Clinique, Quick eyes, augnblýant og augnskugga
á sama skafti. 3 nýir litir.
Quick eyes. Kr. 1.298.
Ráðgjafi frá Clinique verður í
versluninni dagana 5. og 6.
septemberfrá kl. 13 -18.
Sara
Bankastræti 8
Simi 551 3140
I/,. x , , Þykkir
iM 'Æ
mwy
I' : • ' *. f
Eldhúsbekkur
Skemmtilegt og
fallegt húsgagn úr
gegnheilli og
lakkaðri eða lútaðri
furu.Vandaður og
glæsilegur útskurður.
Geymsla undir setu.
Breidd 145 sm:
14.900, -
Breidd 110 sm:
12.900, -
Breidd 85 sm:
9.900/
• •
Skeifunni 13 Norðurtanga3 Reykjavíkun/egi 72 Holtagörðum
108Reykjavík 600Akureyri 220 Hafnarfjörður v/Holtaveg
568 7499 462 6662 565 5560 104Reykjavík
588 7499
Sjöundi hlmlnn