Morgunblaðið - 05.09.1996, Page 54
54 FIMMTUDAGUR 5. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Vantar þig
VIN
að tala við?
VINALÍNAN
561 6464 • 800 6464
öll kvöld 20 - 23
Blab allra landsmanna!
- kjarni málsins!
FRÉTTIR
■ UNDANRÁSIR vegna íslands-
mótsins í atskák 1997 verða dag-
ana 7.-8. september. Teflt verður í
Reykjavík, á Akureyri og Vestfjörð-
um. I Reykjavík hefst mótið kl. 13
báða dagana, tefldar verða 5 um-
ferðir á laugardegi og 4 á sunnu-
degi. Teflt verður í Faxafeni 12,
Reykjavík. Þátttökugjald er 1.500
kr. fyrir fullorðna en 800 kr. fyrir
unglinga 15 ára og yngri. 1. verð-
laun í Reykjavík verða 18.000 kr.
og 2. verðlaun 11.000 kr.
■ NÝ HÁRSNYRTISTOFA,
Hársmiðjan, hefur verið opnuð við
Smiðjuveg 2, Kópavogi (við hlið-
ina á Bónus). í tilefni opnunarinnar
er boðið upp á 20% afslátt af vinnu
og 15% afslátt af vörum. Boðið er
upp á alla almenna hársnyrtiþjón-
ustu fyrir dömur og herra.
Úrvalsgolfmót Stöðvar 3
26.-30. sept. JJ
Golffélagar
við miðum á Newcastle
4ra manna liðakeppni
í 36 holu höggleik
Fyrirkomulag
Keppnin er öllum opin.
Hámarksforgjöf hjá körlum 24
en 28 hjá konum.
Við spilum 36 holu höggLeik m forgj.
Fjórir í liði og gildir árangur þriggja bestu. I
Fararstjóri:
Peter Salmon
Verð aðeins
36.700 kr.
á mann í tvíbýli í fjórar nætur.
Innifalið: Flug, gisting á Royal Station Hotel
með morgunmat, akstur til og frá flugvelli erlendis,
3 golfhringir, keppnisgjald og allir skattar.
Dagskrá
Fimmtud. 26. sept.
Föstud. 27. sept.
Laugard. 28. sept.
Sunnud.
Mánud.
29. sept.
30. sept.
Flogið til Newcastle kl. 19.00
Aðstæður kannaðar og farinn
æfingahringur á Ramside Golf Club.
Frjáls dagur. Vió eigum 16 mióa á
Newcastle-Aston Villa.
Fyrstir koma fyrstir fá.
Fyrri keppnisdagur.
Seinni keppnisdagur.
Verðlaunaafhending i kvöldverðarhófi.
Farið á flugvöll um miðnætti.
Glæsileg verðlaun
á
Aðalverðlaun: Sigurliðinu er boðið að
verja titilinn á næsta ári í Newcastle.
Fjölmörg aukaverðlaun - m.a. fyrir besta
Liösnafnió og best klædda liðið.
Frábærar verslanir-fjörugt næturlif-sannkölluð draumaborg.
Lágmarksþátttaka i keppninni er 8 lið.
Skráning fyrir 15. september.
Kylfingar! Ef ykkur vantar í liðið hafið samband við okkur
og við hjálpum ykkur að fylla í það.
Horfió á
golfþátt Stöðvar 3
sunnudaginn 8. september kl. 17.20
þar sem golfferóin verður kynnt.
Golfdeild Úrvals-Útsýnar
^IÍBVALÚTSÝN
Ugmúla 4: sími 569 9300
I DAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Hafið þakkir
fyrir!
HARALDUR Þór Jónsson,
Hábergi 7, Breiðholti
hringdi:
„Líknarfélagið Bergmál
bauð krabbameinssjúkling-
um til vikudvalar í Hlíðar-
dalsskóla vikuna 21. til 28.
ágúst sl. Ég vil fyrir hönd
okkar allra sem nutu þess-
arar fádæma kærleiksríku
vikudvalar þakka af ein-
lægum huga fyrir þær dá-
samlegu viðgjörðir sem
okkur voru veittar á þess-
um tíma.“
Hvar er Linda?
Helga hringdi:
„Fyrir u.þ.b. hálfum
mánuði auglýsti ég eftir
heimili fyrir tvo kettlinga
og lét ég annan frá mér.
Til mín kom kona sem
Linda heitir og vildi taka
hinn kettlinginn, en ég vildi
bíða með að láta hann í
nokkra daga en fékk síma-
númerið hennar. Þegar til
kom að kettlingurinn, sem
er svartur og loðinn, var
tilbúinn hafði ég týnt núm-
erinu og nú er hún ábyggi-
lega farin að undrast það
að ég skuli ekki vera búin
að hringja. Því bið ég Lindu
að hafa samband við mig
í síma 552-7949.
Tapað/fundið
Ullarhyrna tapaðist
SKÆRGRÆN ullarhyma
með kögri frá Benetton
tapaðist á göngustígnum í
Skeijafirði sl. þriðjudag.
Skilvís fínnandi vinsamlega
hringi í síma 569-1324.
Lyklakippa í
óskilum
KIPPA með sjö lyklum
fannst í nágrenni Granda-
skóla við Rekagranda sl.
þriðjudag. Eigandinn má
vitja hennar í síma
562-0936.
Gleraugu í óskilum
ÞYKK kvenmannsgleraugu
í plastumgjörð sem voru í
lúnu rauðu gervileðurs-
hulstri var skilið eftir á
Hlöllabátum á Ingólfstorgi
fyrir u.þ.b. hálfum mánuði.
Eigandinn er beðinn um að
vitja þeirra þar.
Gullhálsmen fannst
Gullhálsmen fannst í
Brekkuskógi 10. ágúst sl.
og fær eigandinn það af-
hent gegn lýsingu í síma
481-2112.
Hjól í óskilum
FJÓLUBLÁTT kvengíra-
hjól fannst í húsagarði við
Merkurgötu í Hafnarfírði
fyrir u.þ.b. hálfum mánuði.
Eigandinn má vitja þess í
síma 555-0125.
Gæludýr
Köttur í óskilum
ÞESSI köttur er í óskilum
og er eigandi hans beðinn
um að hringja í Kattholt í
s. 567-2909.
SKÁK
Umsjón Margelr
Pctursson
HVÍTUR leikur
og vinnur
Staðan kom upp á „Fox-
trot“ mótinu í London í ág-
úst, en þar kepptu reyndir
stórmeistarar við bestu
skákkonur heims. Vlastimil
Hort (2.545) hafði hvítt og
átti leik, en Nana Joseliani
(2.500) var með svart. 19.
Bxg6! - hxg6 20. Rh4 -
Ðc5 (20. — g5 er svarað
með 21. Rg6 - Db4 22.
Dh3 - Dxc4+ 23. Kbl -
De4+ 24. Kal - Kg7 25.
Hh7+ - Kxg6 26. Dh6+ -
Kf5 27. Hxf7 og vinnur)
21. Hxg6+ - Kf8 22.
Dg3! - Ke7 (22. - He8
23. Hg8+ - Ke7 24.
Hxd7+! - Kxd7 25.
Dd3+ leiðir einnig til
vinningsstöðu á hvítt)
23. Hg7! - Dxc4+?
(Betra var 23. — Hf8!
24. Rg6+ - Ke8 25.
Rxf8 — Dxc4+ 26. Kbl
- Rb4! En eftir 27.
Dg6! stendur hvítur enn-
þá til vinnings) 24. Kbl
- Hf8 25. Rg6+ -
Kd8? 26. Rxf8 - Rb4 27.
Db8+ — Dc8 28. Dxc8+
og svartur gafst upp.
Oldungarnir sigruðu í
keppninni með 27‘A vinn-
ingi gegn 22'A
Undanrásir í firmakeppni
TR i kvöld kl. 20. Tefldar
eru sjö umferðir eftir
Monrad- kerfi, tvær fímm
mínútna skákir í hverri
umferð.
HÖGNIHREKKVÍSI
// Bg fí y/andrxkí!"
Víkverji skrifar...
VÍKVERJA hefur borist eftir-
farandi bréf frá Hrefnu Ing-
ólfsdóttur blaða- og upplýsinga-
fulltrúa Pósts og síma:
„Nú virðist fokið í flest skjól,
þegar Víkverji sjálfur er hættur
að nenna að lesa eigin dálk. Blaða-
fulltrúi Pósts og síma neyðist þó
enn til þess að fylgjast með hnútu-
köstum Víkverja, því hann kvartar
jafn oft undan Pósti og síma og
veðrinu. Að þessu sinni var það
kunningi Víkverja sem var hissa
á því að kostnaður við símtals-
flutning, sem hann bað sjálfur um,
skyldi koma fram á hans eigin
reikningi. Eins og skýrt var út
fyrir Víkverja og lesendum hans,
23. júlí í fyrra, getur sá sem hring-
ir í heimasíma einhvers ekki
stjórnað því hvort hringingin flyst
áfram í bílasíma viðkomandi og
það væri ekki sanngjarnt að láta
þann sem hringir greiða skv. þeirri
gjaldskrá sem gildir fyrir bílasíma
þegar sá hinn sami telur sig vera
að hringja innanbæjarsímtal.
Þetta skildi Víkveiji í fyrra og
sagði þá sjálfur að honum sýndist
þetta vera „eðlilegt“. Eða hvað
hefði Víkveija fundist, hefði hann
hringt heim til kunningjans og
spjallað við hann í hálftíma, án
þess að gera sér grein fyrir að
vinurinn var uppi í sumarbústað?
Hefði Víkveiji þá viljað sitja uppi
með reikning upp á 500-750 kr?
Flestir hljóta að vera sammála um
að það fyrirkomulag sé sanngjarn-
ast að sá sem lætur flytja símtöl
úr eigin síma í einhvern annan,
beri kostnaðinn. Það má einnig
minna á að svipað fyrirkomulag
gildir þegar menn taka farsímana
sína með til útlanda. Þeir sem
hringja í þá, geta ekki vitað hvar
þeir eru staddir og því ber sá sem
kýs að taka á móti símtölum að
heiman, kostnaðinn við millilanda-
símtalið.“
XXX
MÁNUDAGURINN 2. septem-
ber, fyrsti skóladagur
grunn- og framhaldsskólanna í
landinu á þessu hausti, snerist upp
í hálfgerða martröð fyrir þúsundir
barna og foreldra þeirra, því á
þessum eina degi þurftu auðvitað
allir að þjóta í bóka- og ritfanga-
verslanir landsins og gera skóla-
innkaupin fyrir veturinn. Ekki er
við skipulag verslanaeigenda að
sakast, heldur við skipulag skól-
anna. Það væri hægðarleikur, fyr-
ir skólana, með öllum starfsdögum
kennara, að koma málum þannig
fyrir, að skólabörnin fengju á vor-
in, þegar þau kveðja skólann og
ná í einkunnirnar, innkaupalista
næsta vetrar. Þannig væri hægt
að dreifa álaginu og fólk gæti
hagað sínum innkaupum að vild.
Jafnvel gæfist þess kostur að fara
í fleiri en eina verslun og bera
saman verð og aðrir, sem eyddu
sumarleyfi sínu erlendis, gætu
gert innkaup sín þar og sparað
marga krónuna.
xxx
EINS og málum var háttað sl.
mánudag, má segja að nán-
ast óþolandi hafi verið að koma
inn í bóka- og ritfangaverslanir.
Víkveiji lenti í innkaupum með
sínum börnum og eftir að hafa
þvælst um búðina í algjörri örtröð,
þannig að erfitt var að finna það
sem á innkaupalistum stóð, tók
við staða í biðröð í rúma klukku-
stund, þar til röðin kom að Vík-
veija á afgreiðslukassa. Svo var
af biðraðarfólki dregið, að af-
greiðslumaður í versluninni gekk
eftir röðinni með plastmál og ískalt
vatn í könnu og bauð viðskiptavin-
um upp á hressingu. Svona lagað
nær auðvitað ekki nokkurri átt.