Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Júlíus FOLD Bifreið lenti á strætisvagni STRÆTISVAGN og fólksbifreið lentu í árekstri á horni Stórholts og Rauðarárstígs um miðjan dag í gær. Slysið bar að með þeim hætti, samkvæmt upplýsingum lögreglu, að bifreiðunum var ekið í gagnstæð- ar áttir þegar þriðju bifreið var ekið í veg fyrir fólksbifreiðina, og skipti það þá engum togum að hún lenti framan á strætisvagninum. Fimm voru fluttir á slysadeild, öku- maður fólksbifreiðarinnar, sem er grunaður um ölvun, og fjórir far- þegar strætisvagnsins, en meiðsl eru talin minniháttar, samkvæmt upplýsingum lögreglu. Sjúkrahúsið á Patreksfirði Tilsj ónarmaður skipaður HEILBRIGÐISRÁÐHERRA hefur skipað Halldór Jónsson, fram- kvæmdastjóra Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri, tilsjónarmann með rekstri Sjúkrahúss Patreksfjarðar. Að sögn Davíðs Á. Gunnarssonar, ráðuneytisstjóra í heilbrigðisráðu- neytinu, var þessi ákvörðun m.a. tek- in vegna þess að verulegur halli hef- ur verið á rekstri stofnunarinnar og stjórn spítalans verið ófær um að bregðast við vandanum. Sjúkrahúsið á Patreksfírði hefur verið rekið með halla sl. tvö ár. Hall- inn á síðasta ári var um 13 milljónir og áætlað hefur verið að halli á þessu ári verði ekki undir 10 milljónum. Deilur hafa verið meðal stjórnenda spítalans um það hvernig bregðast eigi við vandanum og leiddu þær til þess að stjórnin sagði framkvæmda- stjóra spítalans upp störfum. Stjórnin hefur auglýst starfíð laust til um- sóknar. Davíð sagði að hlutverk Halldórs væri að skoða rekstur Sjúkrahúss Patreksfjarðar og gera tillögu til heilbrigðisráðuneytisins um hvemig ætti að taka á vanda stofnunarinn- ar. Davíð sagði að Halldór myndi hefja störf fljótlega. Hann hefði feng- ið tímabundna lausn frá starfí sínu við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri til að sinna þessu tiltekna verkefni á Patreksfírði. Völd stjórnar skert Samkvæmt lögum hefur tilsjón- armaður víðtækt vald til að ráða málefnum þeirrar stofnunar sem hann er settur yfír. Hann er ábyrgur fyrir fjármálum og sér um öll launa- og starfsmannamál. í skipunarbréfí Halldórs er þó gert ráð fyrir að hann hafi samráð við stjóm sjúkrahússins. Aðspurður sagði Davíð að tilsjón- armaður kæmi til með að taka ákvörður, um hvort ráðinn yrði nýr framkvæmdastjóri Sjúkrahúss Pat- reksíjarðar eða hvort Helga María Bragadóttir, starfandi framkvæmda- stjóri, yrði endurráðin. Safnað fyrir íbúðum fyrir fjölskyldur langveikra barna Stefnt að fyrstu íbúða- kaupunum fyrir áramót BARNAHEILL hafa hleypt af stokk- unum landssöfnun til kaupa á íbúð- um við stóru sjúkrahúsin á Akureyri og í Reykjavík til afnota fyrir fjöl- skyldur langveikra barna utan af landi. Kristín Jónasdóttir, fram- kvæmdastjóri Barnaheilla, segir að viðtökur hafí farið fram úr björtustu vonum úti á landsbyggðinni. Nú verði leitað eftir stuðningi í höfuðborginni. Á blaðamannafundi á Bamaspít- ala Hringsins kom fram að fólki yrði símleiðis boðið að gerast „Barna- heillavinir." Með því fylgdi skuld- binding um 3.000 kr. greiðslu til verkefnisins næstu þrjú árin. Vonir standa til að hægt verði að festa kaup á fyrstu íbúðinni fyrir næstu árarnót. Ásgeir Haraldsson, yfirlæknir á Barnaspítala Hringsins, og Árni V. Þórsson, yfírlæknir á barnadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur, fögnuðu framlagi Barnaheilla. Herta W. Jóns- dóttir, hjúkrunardeildarstjóri Hrings- ins, lagði áherslu á að þörfin væri mikil vegna sjúkrahúslegu og áfram- haldandi dvalar barna fjarri heima- byggð, t.d. vegna eftirlits. Hún tal- aði um þríþætt gildi íbúðanna. Að hafa möguleika á því að færa heimil- ið og reka ekki heimili á tveimur stöðum hefði fjárhagslegt gildi fyrir fjölskyldur. Um leið fælist félagslegt gildi í að hafa möguleika á að halda fjölskyldunni saman. Að eiga sér samastað hefði svo síðast en ekki síst tilfínningalegt gildi. Fram kom að alls hefðu um 5.000 börn, 15 ára og yngri, lagst inn á Landspítalann og Sjúkrahús Reykja- víkur á síðasta ári. Af þeim hefðu um 2.000 börn verið búsett í minnst klukkustundar akstursfjarlægð frá Reykjavík. „Bjuggum í ferðatösku" Hrafnhildur Jónsdóttir frá Grund- arfirði þurfti að dvelja 9 mánuði sam- fleytt í Reykjavík vegna veikinda nýfæddrar dóttur sinnar veturinn 1994 og 1995. „Ragnhildur Rún fæddist með gat í höfuðkúpubotnin- um 28. september árið 1994. Heila- stofninn gekk ofan í kok og því þurfti hún aðstoð við að anda. Næringu fékk hún í gegnum magann," segir Hrafnhildur og tekur fram að ein- kennunum hafi fylgt mikil sýking- arhætta og Ragnhildur Rún hafí fengið heilahimnubólgu alls 5 sinnum á 9 mánuðum. Hrafnhildur bjó á 8 stöðum á meðan Ragnhildur var á sjúkrahús- inu. „Fyrst bjuggum við hjá föður mínum í tvo mánuði. Eftir þann tíma voru við svo heppin að fá lánaða íbúð í 3 mánuði. En þar á eftir bjuggum við í ferðatöskum og vorum á sífelldu flakki," segir Hrafhildur og bætir við að ekki hafí mikið öryggi falist í því. „Að hafa íbúð fyrir okkur hefði brejdt miklu. Maður hefði í fyrsta lagi ekki þurft að hafa áhyggjur af því að hafa húsaskjól. Að sjá um heimili hefði dreift huganum og tæki- færi hefði myndast til að eiga svolít- ið einkalíf." Morgunblaðið/Kristinn MÆÐGURNAR Hrafnhildur Jónsdóttir og Ragnhildur Rún, 2 ára, hafa þurft að dveljast langdvöl- um fjarri heimabyggð sinni. Fyrirhuguð samræming tryggingagjalds Andlát OLAFUR UNN STEINSSON INDRIÐI H. Þorláksson, skrifstofu- stjóri tekju- og eignasviðs í fjármála- ráðuneytinu, segir að það sé á mis- skilningi byggt hjá Kristjáni Ragn- arssyni, formanni Landssambands ísienskra útvegsmanna, að hug- myndir um samræmingu trygginga- gjalds á sjávarútveg og annan at- vinnurekstur séu til komnar vegna kröfu frá Eftirlitsstofnun EFTA. Það hafi hins vegar verið ákvörðun ríkis- stjórnarinnar að samræma trygg- ingagjaldið þar sem óeðlilegt væri talið að mismuna atvinnurekstri með þessum hætti. í Morgunblaðinu í gær var haft eftir Kristjáni Ragnarssyni að hann teldi ranga þá fullyrðingu fjármála- ráðuneytisins sem fram komi í frétta- tilkynningu dagsettri 25. júní síðast- liðinn þar sem m.a. segi: „Að undan- fömu hafa átt sér stað viðræður milli Eftirlitsstofnunar EFfA (ESA) og íslenskra stjómvalda um sam- ræmingu tryggingagjalds. Hefur stofnunin látið í ljósi það álit sitt að mismunandi álagning trygginga- gjalds geti talist rikisstyrkir til þeirra atvinnugreina sem greiða lægra tryggingagjald." Sagði Kristján að enginn sem til þekkti léti sér til hugar koma að ESA gæti gert þessa kröfu, og hann hefði farið þess á leit við fjármálaráðherra að hann upplýsti hvar hafi komið fram að ESA geri kröfu um að sam- ræma tryggingagjald á sjávarútveg og annan atvinnurekstur. Niðurstaða ríkisstjórnar að samræma tryggingagjaldið Um þetta segir Indriði að fjár- málaráðuneytinu hafi borist bréf frá Eftirlitsstofnuninni í febrúar síðast- liðnum þar sem gerðar væru ákveðn- ar athugasemdir. Hins vegár hefði öllum verið það ljóst að athugasemd- irnar ættu eingöngu við um þann atvinnurekstur sem EES-samningur- inn tekur til og Eftirlitsstofnunin hefur með að gera, en samningurinn nær ekki til sjávarútvegsmála. „Það hefur greiniiega verið sagt af hálfu ríkisins og f þeirri greinar- gerð sem lögð var fyrir ríkisstjórnina að ákvörðunarvald ESA nær ekki til annars. Engu að síður var það niður- staða ríkisstjórnar og ákvörðun hennar að samræma tryggingagjald- ið, óháð því hvort það væri verið að verða við kröfum ESA eða ekki, af þeim ástæðum að það er talið óeðli- legt að mismuna rekstri með þessum hætti,“ sagði Indriði. Upphaflega gert ráð fyrir samræmingu í tveim áföngum Hann bendir jafnframt á að þegar lögin um tryggingagjald voru sam- þykkt hafi upphaflega verið í frum- varpinu gert ráð fyrir að samræming tryggingagjaldsins færi fram í tveim- ur áföngum, en Alþingi hafí hins vegar ákveðið að taka ekki nema fyrra skrefið að öllu leyti. Þannig hafí það verið stefna stjórnvalda að ná þessu marki, og það væri því misskilningur hjá Kristjáni Ragnars- syni að af hálfu ríkisins væri verið að gera þetta eingöngu af hlýðni við ESA. „Hvað sem kann að hafa staðið í fréttatilkynningunni, eða ekki staðið í henni, þá hefur þessi þáttur komið mjög skýrt fram, meðal annars í þeim gögnum sem hafa verið lögð hér fyrir ríkisstjórn, að athugasemd- irnar lúta einungis að hluta af mark- aðnum ef svo má segja,“ sagði Ind- riði. ÓLAFUR Unnsteins- son íþróttakennari í Reykjavík er Iátinn, 57 ára að aldri. Hann lést af völdum veik- inda á heimili sínu í Reykjavík. Olafur fæddist að Reykjum í Ölfusi 7. apríl 1939, sonur Unn- steins Ólafsonar skólastjóra Garðyrkju- skóla ríkisins og Elnu Ólafsson. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum að Laugarvatni 1959, kennaraprófí 1960 og íþróttakenn- araprófí 1961. Hann sótti fjölda námskeiða um íþróttaþjálfun inn- anlands og utan. Ólafur kenndi við m.a. við Laugalækjaskóla, Menntaskólann í Hamrahlíð, Bir- kerod Statsskole á Sjálandi, Fjöl- brautaskólann í Breiðholti en frá 1977 var hann kennari við Fjöl- brautaskólann við Ármúla, þar af deildarstjóri á íþróttabraut frá Í982. Formaður var Ólafur í íþrótta- kennarafélagi íslands 1962-64, í stjórn frjálsíþrótta- deildar ÍR um skeið, í útbreiðslunefnd FRI 1963-64, laganefnd FRÍ 1971:73 og for- maður Öldungaráðs Fijálsíþróttasam- bandsins frá 1986. Ólafur var fijáls- íþróttaþjálfari frá 1962 og starfaði þá m.a. hjá UMSK, HSK, KRt FH, UÍA, UBK og ÍR en síðastnefnda félagið gerði hann að bikarmeisturum FRÍ 1986. Auk þess sem hann var þjálfari hjá einu öflug- asta ftj álsíþróttafélagi Danmerk- ur, AK73, 1973-75. Hann var landsliðsþjálfari og fararstjóri í mörgum landskeppnum og var þjálfari fijálsíþróttamanna á Ölympíuleikunum í Barcelona 1992. Þá safnaði Ólafur saman íþróttaafrekum og metum og gaf út skrár um þau. Ólafur lætur eftir sig tvo upp- komna syni sína. Akvörðun rikisstjórnar en ekki krafa frá ESA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.