Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 35 læknum og hjúkrunarfólki sem gerði allt til að vinna bug á sjúk- dómnum og létta legurnar. Hann ræddi oft um hreinskilni læknanna og taldi sig í betra jafnvægi eftir samtöl við þá. Hann mat mikils umhyggju barna sinna og eigin- konu, Ellýjar Vilhjálms, en hún varð svo að berjast við sama sjúk- dóm. Hún andaðist í nóvember 1995. Eftir fráfall hennar stóðu börn Svavars þétt saman, studdu föður sinn í erfiðum veikindum og viku vart frá sjúkrabeði hans síð- ustu vikurnar. Góður drengur er genginn. Ís- lenska þjóðin hefur misst aufúsu- gest sem kom inn á heimilin á öld- um ljósvakans alla sunnudags- morgna. Vinir og félagar lifa í minningum um ánægjulega starfs- daga en fjölskyldan missir þó mest og biðja þeir góðan Guð að styrkja hana. Blessuð sé minning Svavars Gests. Tómas Grétar Olason. „Eitt sinn verða allir menn að deyja.“ Þetta' er texti sem flestir kannast við og tengist þeim sem þessum orðum er beint að. Og eitt eigum við víst þegar við fæðingu og það er að við munum eitt sinn deyja. Svavar Gests lést á Landspít- alanum þann 1. september s.l. eftir stutta sjúkralegu. Svavar var ein- stakur maður, hreinskiptinn og fast- ur fyrir en sanngjarn og vildi ætíð í hvetju máli hafa það sem sannast var og best, bæði fyrir málstaðinn og þá sem honum tengdust. Þessir eðliskostir komu ríkulega fram í starfi hans fyrir Lionsklúbbinn Ægi og Lionshreyfmguna á Islandi. Eg kynntist Svavari í starfi mínu í Ægi og mat hann ætíð mikils og því meira sem ég kynntist honum bet- ur. Enda leitaði ég til hans og naut hollráða hans þegar ég tók við for- mennsku þar. Svavar Gests gegndi í starfí sínu fyrir Lionsklúbbinn Ægi öllum þeim trúnaðarstöðum sem þar tíðkast m.a. formannstöðu, og það gerði hann með einstökum sóma að allra dómi. Best naut Svavar sín í starfi fyrir klúbbinn á þjónustudegi Lions þegar félagar heimsóttu Sjálfsbjörg og ekki síst þegar félagar slógu á létta strengi með heimilismönnum á litlu jólunum að Sólheimum í Grímsnesi. Þess má einnig minnast að Svavar ritaði bók um Lionshreyf- inguna á íslandi, sem sýndi að hann, ásamt öðrum hæfileikum sem hann var gæddur, var ágætlega ritfær. Svavar var félagi í Lionshreyfing- unni í rúm 30 ár. Hann var formað- ur L.kl. Ægis 1977-78, umdæmis- stjóri Lionsumdæmis 109A 1983- 84, fjölumdæmisstjóri 1984- 85. Svavar var kosinn fulltrúi Norðurlanda á alþjóðlegu þingi Li- ons í Taipei sem fulltrúi í alþjóða- stjórn Lions 1987-88. Hann sótti af skyldurækni margar ráðstefnur og þing Lionshreyfingarinnar gegn- um árin. í ágúst 1996 var Svavari Gests veitt æðsta viðurkenning hinnar alþjóðlegu Lionshreyfingar fyrir störf sín í þágu hennar. Svavar var þjóðþekktur maður fyrir margvísleg störf önnur en fyr- ir Lionshreyfinguna á ísland; fyrir samtök hljómlistarmanna, þegar hann starfaði sem hljómlistarmaður og hljómsveitarstjóri einnar vinsæl- ustu danshljómsveitar á sínum tíma. Fyrir útvarpsþætti sem nutu fádæma vinsælda og nú síðast fyrir útvarpsþætti sína „Sunnudags- morgunn með Svavari Gests“. Af þessu má sjá að Svavar hafði frá- bæra hæfileika til margskonar starfa og ekki síst þeirra er lutu að félagslegum málum. Það er því mikill missir að slíkum manni sem Svavari og víst hefðum við viljað njóta starfskrafta hans lengi enn, en „Eitt sinn verða allir menn að deyja“ og þeim örlögum verða allir að sæta. Fyrir hönd Lionsklúbbsins Ægis sendi ég börnum Svavars og öllum aðstandendum einlægar sam- úðarkveðjur og votta þeim djúpa hluttekningu okkar. Guðmundur A. Gunnarsson for- maður Lionsklúbbsins Ægis. Einn öflugasti forystumaður Li- onshreyfingarinnar er fallinn í val- inn fyrir illvígum sjúkdómi sem erf- itt hefur reynst að lækna. Svavar Gests var einn af fram- varðarmönnum Lionshreyfingar- innar hér á landi og gegndi æðstu störfum í þágu hreyfingarinnar. Fyrir hönd íslenskra Lionsmanna sat hanr. í Alþjóðastjórn Lionshreyf- ingarinnar og gegndi þar margvís- legum trúnaðarstörfum. Svavar var ritstjóri Lionsblaðsins í mörg ár og starfaði að auki á skrifstofu hreyfingarinnar hér á landi. Hann var manna fróðastur um störf og starfshætti hreyfingarinn- ar og þekkti innviði starfsins hér á landi og ekki síst var hann vel að sér í lögum og reglum hreyfíngar- innar, enda var það svo að æði oft var leitað í smiðju til Svavars um úrlausn á hinum ýmsu verkefnum sem og um aðra grundvallarþætti sem lúta að starfi fjölmennustu líknarsamtaka í heimi. Á þeim árum sem Svavar starf- aði í alþjóðastjórn fór hann víða í þágu Lions og má með sanni segja að hann og hans elskulega_ eigin- kona Elly hafi borið hróður íslands vítt og breitt. Eitt er víst að þeir eru margir Lionsfélagarnir sem ég hef hitt á Lionsþingum erlendis sem þekktu Svavar og einatt sendu sér- staka vinarkveðju til Svavars og Ellyjar. Eg átti þess kost að ferðast með Svavari og Elly bæði hér á landi sem og erlendis og áttum við hjónin eink- ar ljúfar samverustundir með þeim hjónum. Ekki síst færi ég þakkir fyrir samverustundir sem við hjónin áttum á heimili Svavars og Ellyjar. Ég varð þeirrar ánægju aðnjót- andi að njóta leiðsagnar Svavars er ég fór í kynnisferð um útvarps- húsið með útvarpsráði. Það var sér- staklega skemmtilegt að ferðast með honum um segulbandasafn útvarpsins en eins og kunnugt er vann hann síðustu árin við segul- bandasafnið og kom mörgum minn- ingarbrotum á framfæri í þáttum sínum á sunnudagsmorgnum, sem nutu mikilla vinsælda. Fyrir hönd Lionshreyfingarinnar á íslandi sendi ég innilegustu sam- úðarkveðjur til fjölskyldu Svavars og færi fram hugheilar þakkir fyrir vel unnin störf í þágu Lionshreyf- ingarinnar. Alþjóðastjórn Lions sendir einnig samúðarkveðjur og þakkir fyrir vel unnin störf. Minning um góðan Lionsfélaga varir að eilífu. Góður Guð geymi Svavar Gests. Laufey Jóhannsdóttir, fjölumdæmisstjóri Lions- hreyfingarinnar á Islandi. Fallinn er einn af máttarstólpum í húsi þeirra, sem sinnt hafa hljóm- listarstörfum á liðnum allmörgum áratugum. Húsið eins og riðar við, það hriktir í því og það skekkist svolítið áður en það sest í farveg aftur. Það verður aldrei sama húsið. Svavar Gests er fallinn frá. Litrík- ur frumkvöðull hefur sagt sitt síð- asta orð héma megin. Hann var auðvitað með glens á vörum þegar við hittumst síðast í hófi sem Félag hljómlistarmanna hélt honum í júní sl., þar sem hann var gerður að heiðursfélaga, en hann var hug- myndaríkur formaður þess félags í mörg ár. Nýstiginn fram úr rúminu og upp úr erfiðum veikindum, með harm í hjarta eftir fráfall Ellyjar fyrir tæpu ári, bar hann sig vel og sté í pontu til að þakka fyrir sig. Auðvitað kom hann öllum til að skellihlæja. Það var hans stíll. Grín- ið var alltaf skammt undan og hann var fljótur að finna hvað myndi „gera sig“, eins og sagt er í „sjóbisn- isnum“. Áður hafði hann sagt mér yfir kaffibolla að hann væri hugsan- lega eitthvað að skána af veikindun- um, að minnsta kosti í bili, og sposk- ur á svipinn laumaði hann því að mér að nýja hárið sem væri að vaxa aftur væri miklu dekkra og flottara en það gamla, sem hann hafði misst. Svavar gerðist liðsmaður í músík- inni ungur að árum. Hann fór gjam- an þær slóðir, sem hér á landi voru lítt troðnar, og byijaði með því, þá dansmúsíkant og trommari á gömlu dönsunum, að fara til tónlistamáms við Juilliard tónlistarskólann í New York. Þangað fór hann ásamt Krist- jáni Kristjánssyni, stjórnanda KK- sextettsins, og þaðan komu þeir félagar báðir með fangið fullt af nýjum hugmyndum og innleiddu ýmsa nýja hætti meðal íslenskra hljómlistarmanna, svo ekki sé dýpra tekið í árinni. Enn þann dag í dag stendur það ljóslifandi fyrir hug- skotssjónum mínum þegar ég kom á æfingu heim til Svavars, skömmu eftir að hann kom að utan. Hann hafði víst beðið mig að skrifa eitt- hvað fyrir litla hljómsveit og spila með, en ég man einkum hve mér þótti rosalega flottur splunkunýi víbrafónninn og trommusettið, sem þarna stóð nýkomið frá Ameríku. Þetta hefur líklega verið útvarps- prógramm, sem við æfðum þarna, en ég man bara víbrafóninn glæsi- lega - og Svavar sjálfan brennandi af áhuga og uppfullan af hugmynd- um og hugsjónum. Svo kom Jazzblaðið. Svavar gaf það út einn og tiltölulega óstuddur af hreinni hugsjón í nokkur ár, því tæplega hefur það gefið af sér fé og miklu fremur þurft að borga með því. Þar áttum við nokkra sam- leið og ég skrifaði fáeinar greinar ásamt fleirum, en Svavar var þá þegar prýðilega ritfær, enda liggja eftir hann bækur. Næst lá leið okk- ar saman vegna hljómplötuútgáfu ef ég man rétta röð, enda starfaði ég fyrir fyrirtæki hans, SG-hljóm- plötur, í mörg ár og við margar hljómplötur af ýmsu tagi. „Ég var allt of mikill hugsjónamaður í plötu- útgáfunni," sagði Svavar glettinn á svip í hófinu hjá FÍH í júní, „ég gaf út þrjár plötur sem ekkert gáfu af sér á móti hverri einni, sem seld- ist vel.“ Vissulega var hann hug- sjónamaður. Á þriðja hundrað hljómplötur frá SG-hljómplötum, auðvitað misjafnar, en sumar með ómetanlegu efni, sem annars hefði trúlega glatast, sýna fram á það. Kannski seldust þær einmitt ekkert vel, sem geyma merkasta efnið, eins og gengur. Leiðirnar lágu víðar saman. I litlu húsi, líklega skólastofu eða leikfimi- sal, á Sólheimum í Grímsnesi, lék ég undir á hverju ári í mörg ár skömmu fyrir jól þegar Svavar var potturinn og pannan í að halda jóla- skemmtun fyrir vistmenn á staðn- um ásamt félögum í Lionsklúbbnum Ægi. Þar fór hann hreinum hamför- um og skemmti vistmönnum eins og honum var best lagið, enda dáðu þeir hann hver einasti og gengu sumir langan veg á móti rútunni, þegar hans og hinna Lions-mann- anna var von á sunnudegi í desem- ber. Ég veit ekki hvort þetta var hans hugmynd að halda lítil jól fyr- ir vistmennina á Sólheimum á hveiju ári, en það hefði vel getað verið. Þannig var hjartalagið, þótt stundum væri brynjað með spaugi. Svavar stjórnaði sem kunnugt er eigin hljómsveit um árabil. Aldr- ei atvikaðist svo, að ég léki fastráð- inn með honum í hljómsveit hans, en nokkra dansleiki áttum við þó saman á palli. Hins vegar lék ég oft inn á upptökur með hljómsveit hans og alltaf var það vitað mál, HÁALEITIS APÓTEK Háaleitisbraut 68 VESTURBÆJAR APÓTEK Melhaga 20-22 eru opin til kl. 22 Næturafgreiðslu eftir kl. 22 annast Háaloitis Apétok ef farið var í stúdíó til Svavars, að þar var allt þaulskipulagt fyrir fram og fór enginn í grafgötur um það sem gera skyldi. Svavar sat þar gjarnan sjálfur í stjórnklefanum þegar grunntökum var lokið og gætti þess vandlega að söngvarar bæru rétt fram íslenskuna og auð- vitað að hljómlistarmennirnir hittu á réttar nótur. Ekki gleymast heldur útvarps- þættir Svavars Gests. Þeir höfðu mikil áhrif og varanleg í íslensku útvarpi, ekki síst skemmtiþættimir með áhorfendum í sal, sem margir muna eftir. Þar lágu reyndar leiðir okkar Svavars líka saman, því ég man eftir að hafa setið í slíkum þætti með gítarinn í fanginu. En mál er að linni. Aðrir munu rifja upp á skipulegri hátt og í réttri röð allt það, sem Svavar Gests tók sér fyrir á lífsleiðinni. Ég hef aðeins svona í kveðjuskyni tiplað á nokkr- um skyndimyndum, sem koma mér í hug þegar við sjáum á bak Svav- ari. Hér vil ég einnig minnast góðr- ar vinkonu okkar um árabil, Ellyjar Vilhjálms söngkonu, eiginkonu Svavars, sem lést síðla árs 1995. Fráfall þeirra beggja á innan við einu ári er mikil harmsaga. Við Svanhildur og fjölskyldan söknum traustra vina og þökkum fyrir árin öll. Börnum þeirra Ellyjar og Svav- ars vottum við innilega samúð. Ólafur Gaukur. Fyrir réttri hálfri öld fór tvítugur íslendingur til tónlistarnáms í Bandaríkjunum. Þegar hann kom heim tók hann til óspilltra málanna við að færa þjóð sinni ávextina af dvöl sinni. Þess sér stað á mörgum sviðum, og aðrir mun væntanlega flalla um framlag hans til tónlistar- lífs, Lionshreyfingar og íjölmargra góðra mála þar sem mannkostir hans nutu sín vel. Ég vil hins vegar fara nokkrum orð um þá hlið Svav- ars þar sem hann var afburðamað- ur. Þessu sviði listar, skemmtiþátt- um hvers konar, kynntist hann í dvöl sinni í Vesturheimi og má lýsa hæfileikum Svavar á þessu sviði upp á amerísku með því að segja að þegar hann fór á kostum í skemmti- þáttum sínum og á samkomum um allt land hafði hann „the quickest draw, the fastest gun“, sem um getur; snilli hans í hnyttnum tilsvör- um og eldsnöggum og fyndnum athugasemdum var slík að ég hygg að þar hafí enginn okkar, sem við svipað höfum fengist, komist með tærnar þar sem hann hafði hælana. Svavar var langt á undan samtíð sinni í þessu efni. Þvi miður var tæknin á fyrstu árum sjónvarpsins ekki komin á það stig að hún væri honum samboðin. Hann afskrifaði því sjónvarp sem vettvang og hall- aði sér að útvarpinu þar sem hann vann afbragðs starf. Ég hygg þó að ef hann hefði notið seinni tíma tækni við að stjórna skemmtiþátt- um í sjónvarpi hefði enginn staðið honum á sporði á þeim vettvangi. Þessa skoðun byggi ég á þeirri dásamlegu reynslu að hafa fengið að sjá hann í essinu sínu við upp- töku hinna fádæma vinsælu skemmtiþátta sinna í útvarpi, svip- brigðin, taktana, hárfín viðbrögð, fullkomnar tímasetningar í hita augnabliksins. Vonandi kemur til skjala einhver sú tækni á komandi öld sem gerir kleift að endurflytja það besta úr þessum þáttum Svav- ars í formi teiknimynda, og vonandi verða þessar segulbandsperlur varð- veittar, þó ekki væri nema til að endurgjalda að litlum hluta ómetan- legt varðveislustarf Svavars í út- varpi og menningarframlag hans í útgáfu íslenskrar listar á hljómplöt- um. Svavar Gests var einstæður persónuleiki sem örlögin hafa nú hrifíð frá okkur fyrir aldur fram. Það er umhugsunarefni að á síðustu þremur árum hafa fimm hljómlistar- menn, góðir vinir mínir, fallið fyrir aldur fram af völdum sjúkdóms sem sannað þykir að reykingar, beinar eða óbeinar, valdi í 80 prósentum tilfella. Enginn þessar hljómlistar- manna reykti en þeir unnu áratugum saman í þykkri reykjarsvælu skemmtistaðanna. Það er verk að vinna í minningu þessa fólks, svo að fórnir þess og þjáningar hafi ekki verið til einskis. Ég kveð Svav- ar Gests með djúpri þökk og virð- ingu og votta aðstandendum hans samúð. Blessuð sé minning hans. Ómar Ragnarsson. • Fleiri minningargreinar um Svavar Gests bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Handrit afmælis- og minningargreina skulu vera vel frá gengin, vélrituð eða tölvusett. Sé handrit tölvusett er æskilegt, að disklingur fylgi útprentuninni. Auðveldust er móttaka svokallaðra ASCIl-skráa, öðru nafni DOS-textaskrár. Ritvinnslukerfin Word og Wordperfect eru einnig auðveld í úrvinnslu. Senda má greinar til blaðsins á netfang þess Mbl@centrum.is en nánari upplýsingar þar um má lesa á heimasíðum. Það eru vinsamleg tilmæli að lengd greina fari ekki yfir eina örk A-4 miðað við meðallínubil og hæfilega línulengd — eða 2.200 slög. Höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. t Þökkum öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug vegna fráfalls BIRGIS HALLDÓRSSONAR verslunarmanns, Dalalandi 10. Sérstaklega viljum við þakka séra Pálma Matthíassyni, starfsfólki gjörgæsludeildar og deildar 6b á Borgarspítala og heimahlynningu Krabbameinsfélags íslands. Sigríður Auðunsdóttir, Rut Guðmundsdóttir, Soffía Auður Birgisdóttir, Þorvarður Árnason, Halldór Þ. Birgisson, Steinunn Ragnarsdóttir, Birgir E. Birgisson, Eyrún Ingadóttir, Ægir Birgisson, Auður Björk Guðmundsdóttir og barnabörn. t Hjartans þökk sé öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við fráfall og útför föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, GUÐBJARTAR GÍSLA GUÐMUNDSSONAR frá Króki, Krummahólum 6, Reykjavík. Guð blessi ykkur öll. Magnús Guðbjartsson, Sigurborg Róbertsdóttir, Ólöf Kristjana Guðbjartsdóttir, Pétur Orn Pétursson, Guðrún Guðbjartsdóttir, Albert Hinriksson, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.