Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 52
'HYUHDAI HÁTÆKNI TIL FRAMFARA Tæknival SKEIFUNNI 17 SÍMI 550-4000 • FAX 550-4001 MORGUNBLABID, KRINGLAN 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMl 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, NETFANG MBL@CENTRUM.1S / AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTl 1 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Samningar voru á lokastigi í kjaradeilu LÍ og ríkisins í nótt Kjaranefnd ákveði launa- kjör heilsugæslulækna ÓFORMLEGT samkomulag um að færa launakjör heilsugæslulækna undir úrskurð kjaranefndar frá 1. janúar varð tii þess að leysa þann hnút sem deila heilsugæslulækna og ríkisins var komin í og setja viðræð- ur í fullan gang um gerð kjarasamn- ings til áramóta, skv. upplýsingum Morgunblaðsins. Deiluaðilar voru sammála um það um miðnætti í gærkvöldi að samningafundi sem þá stóð yfir í húsnæði ríkissáttasemjara myndi að öllum líkindum ljúka með undirritun skammtímasamnings. Skv. heimildum blaðsins náðist óformlegt samkomulag um það í viðræðum forsvarsmanna lækna og ráðherra fyrir nokkrum dögum að samhliða gerð kjarasamnings, sem gilti til áramóta, mundi ríkisstjórnin gefa út yfirlýsingu um að hún mundi beita sér fyrir lagabreytingum til að færa heilsugæslulækna undir úr- skurð kjaranefndar frá 1. janúar n.k. og að hann ákvarðaði laun þeirra til frambúðar. Læknar féllust á að reyna gerð kjarasamnings sem fæli í sér sam- bærilegar hækkanir við þær sem ríkið hefur samið um við önnur átéttarfélög. Slíkur samningur fæli í sér um 7% hækkun á launakostn- aði ríkisins vegna heilsugæslulækna eins og gert hafði verið ráð fyrir í tilboði samninganefndar ríkisins til lækna þegar upp úr viðræðunum slitnaði 29. ágúst. Útfærsla slíks samnings fyrir ólíka hópa lækna er hins vegar flók- in og var tekist á um einstök smærri atriði á samningafundi sem hófst kl. 13 í gær og stóð hann enn yfir þegar Morgunblaðið fór í prentun í nótt. „Eg trúi ekki öðru en að það verði gerður samningur í nótt eða á morg- un. Ég ætla ekki að slíta fundi fyrr en þeir ganga út með samning," sagði Þórir Einarsson ríkissátta- semjari í gærkvöldi. ■ Tillaga um/Miðopna Síldarútvegsnefnd Helmingur keyptur í rússnesku fyrirtæki SÍLDARÚTVEGSNEFND (SÚN) h'efur keypt helming hlutabréfa í fisksölufyrirtækinu Viking Group í Pétursborg í Rússlandi. Fyrirtækið hefur verið stærsti kaupandi ís- lenskrar saltsíldar í Rússlandi að undanförnu og hefur samvinna fyr- irtækjanna verið náin frá því hún hófst fyrir tveimur árum. Viking Group er í eigu íslend- ingsins Magnúsar Þorsteinssonar og Rússans Victors Anitsev. Fyrir- tækið hefur sérhæft sig í innflutn- ingi og sölu á síld frá íslandi í Rússlandi, en hefur einnig verið í viðskiptum með frysta loðnu og gaffalbita. Gunnar Jóakimsson, fram- kvæmdastjóri Síldarútvegsnefndar, segir að SÚN vænti þess að með því að kaupa sig inn í Viking Gr- oup, megi ná enn meiri árangri í sölu saltsíldar til Rússlands. Þá sé Síldarútvegsnefnd að færa sig enn lengra inn á markaðinn en áður. Mikilvægt sé að fá þá beinu og góðu svörun frá markaðnum, sem fáist með því að vera þar sjálfur. ■ Síldarútvegsnefnd/Cl Franskur banki selur skuldabréf í krónum VERÐBRÉFAFYRIRTÆKINU Handsali hf. hefur verið falið að annast útboð hérlendis á skulda- bréfum að Qárhæð 250 milljónir króna fyrir franska bankann Société Générale. Bréfín eru í íslenskum krónum og bera 20% ávöxtun á fjórum árum. Þau eru vísitölutryggð miðað við sérstaka hlutabréfavísitölu, sem spannar yfir hlutabréfaverð í öllum heiminum, en höfuðstóllinn breytist þó aðeins til hækkunar. Viðtökur íslenskra flárfesta hafa verið góðar og hafa þegar borist pantanir í um helming bréfanna, að sögn Pálma Sigmarssonar, fram- kvæmdastjóra hjá Handsali. Franski bankinn er nú 19. stærsti banki heims með 45 þúsund starfs- menn og skrifstofur í 19 löndum. Hann hefur sömu áhættuflokkun og íslenska ríkið á alþjóðlegum fjár- magnsmarkaði. ■ Franskur/15 Þrotabú Arnarflugs KLMog Aviation Sales stór- ir kröfu- hafar ALMENNAR kröfur í þrotabú Arnarflugs nema tæpum 1,2 milljörðum króna og sam- þykktar forgangskröfur 115 milljónum króna. Af þeim greiðast 15,5% eða 17,8 millj- ónir króna. Stærstu almennu kröfuhaf- arnir eru Ríkisábyrgðarsjóður með kröfu upp á 237 milljónir kr., hollenska flugfélagið KLM með kröfu upp á 202 milljónir kr. og Aviation Sales með 143 milljónir kr. Ekkert fæst greitt upp í almennar kröfur. Fjöldi forgangskröfuhafa er 153, en þar er aðallega um að ræða launakröfur og kröfur frá lífeyrissjóðum. Almennar kröfur eru samtals 200. Brynjólfur Kjartansson, skiptastjóri í þrotabúi Arnar- flugs, segir að oft séu almenn- ar kröfur tví- og jafnvel þrí- teknar. „Þegar ekki er tekin afstaða til almennra krafna þá eru allar kröfur inni. Sumar kröfur kunna oft og tíðum að vera með tryggingum einhvers annars staðar. Það er því oft slæmt að fjalla um kröfuskrár án þess að þetta sé haft í huga,“ sagði Brynjólfur. Flugi beint til Akureyrar MIKIL þoka var yfir Suðvestur- landi í gær og truflaði hún flug- samgöngur við Keflavík. Beina varð þotu Flugleiða, sem var að koma frá Kaupmannahöfn, til Akureyrarflugvallar og eins fór fyrir tveimur minni flugvélum. Utlit var fyrir að þotur sem vænt- anlegar voru frá Hamborg, Kaupmannahöfn og London seinna um kvöldið þyrftu einnig að lenda á Akureyri. Á mynd- inni, sem tekin er á hafnarbakka í Reykjavík, sést grilla í Hall- grímskirkjuturn í þokumistri. Verðið á var- anlegnm þorskkvóta aldrei hærra KÍLÓIÐ af varanlegum þorskkvóta selst á um 680 krónur um þessar mundir og hefur aldrei verið hærra. Kvótaviðskipti það sem af er nýju kvótaári hafa ekki verið mikil. Aftur á móti hafa miklar þreifmgar átt sér stað, að sögn Bjöms Jónssonar, kvótamiðlara hjá Landssambandi ís- lenskra útvegsmanna. Þorskur er nú í boði á verðinu frá 80 til 90 krónur kílóið á leigukvótamarkaði, en hefur verið að seljast á 76 kr. kílóið síð- ustu daga. ■ Kaupverð/C2 * Lloyd’s býr sig undir að taka við bifreiðatryggingum félagsmanna í FIB Hefur hlotið öll tílskilin leyfi BRESKI vátryggjandinn Ibex Motor Syndicate at Lloyd’s hefur nú hlotið öll tilskilin leyfi til sölu bifreiðatrygginga hér á landi, bæði frá við- skiptaráðuneytum íslands og Bretlands og dóms- málaráðuneytinu. Hefur breska félagið samið við Alþjóðlega miðlun hf. um að annast sölu trygg- inga til félagsmanna Félags íslenskra bifreiðaeig- enda og ráðgert er að salan hefjist innan fárra vikna undir heitinu FÍB-trygging. Þá hefur FÍB hafist handa við að senda út bréf til annarra vátryggingafélaga með uppsögn- um á bifreiðatryggingum þeirra félagsmanna sem veitt hafa félaginu sérstakt umboð þar að lút- andi. Alls munu á fjórða þúsund félagsmenn hafa veitt slíkt umboð. Nokkrar athugasemdir hafa verið gerðar við þessar uppsagnir af hálfu þeirra tryggingafélaga sem í hlut eiga. Rúnar Guðmundsson skrifstofu- stjóri Vátryggingaeftirlitsins sagði í samtali við Morgunblaðið að borist hefði athugasemd frá Sambandi íslenskra tryggingafélaga á síðasta ári varðandi þetta mál og verið afgreidd athuga- semdalaust. Nú hefði borist nýtt erindi frá Sam- bandinu, um gildi tiltekinna uppsagna á bifreiða- tryggingum, frá 30. ágúst, sem væru á gjald- daga þann 1. október. „Málið snýst um það hvort FÍB hafi haft umboð til að segja tilteknum bíla- tryggingum upp og við erum að skoða það at- riði. FÍB er með erindið til umsagnar." Að sögn Halldórs Sigurðssonar vátrygginga- miðlara hjá Alþjóðlegri miðlun hf. hafa verið ráðnir 7 starfsmenn til starfa á skrifstofunni. „Það eru öll leyfismál komin á hreint, en við munum ekki opna fyrr en hægt verður að taka á móti viðskiptavinum á sómasamlegan hátt. Lloyd’s skipar tjónauppgjörsfulltrúa Lloyd’s hefur skipað sérstakan tjónauppgjörs- fulltrúa sem hefur hlotið samþykki Vátrygginga- eftirlitsins. Þá eru samningar á lokastigi við Bif- reiðaskoðun íslands hf. um að annast skoðun á bílum sem lenda í tjóni, en fyrirtækið rekur 14 skoðunarstöðvar um allt land. Tjónauppgjörsfull- trúi Lloyd’s fær lýsingar á tjónum frá fyrirtæk- inu og annast uppgjör á þeim.“ Varðandi iðgjöld FÍB sagði Halldór að félags- menn fengju a.m.k. 25% lækkun á iðgjöldum sínum og héldu sínum bónus.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.