Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.09.1996, Blaðsíða 10
10 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Umferðar- slys við Bú- staðaveg UMFERÐARSLYS varð á gatna- mótum Kringlumýrarbrautar og Bústaðavegar í hádeginu í gær. Ökumaður annarrar bifreiðarinnar var fluttur á slysadeild en fékk fljótlega að fara heim þar sem meiðsli hans reyndust vera minni- háttar. Að sögn lögreglunnar í Reykja- vík eru tildrög slyssins óljós en talið líklegt að annarri bifreiðinni hafí verið ekið í veg fyrir hina. Sími 555-1500 Garðabær Stórás Gott ca 200 fm einbhús auk 30 fm bíl- sk. Mögul. á tveimur íb. Ekkert áhv. Skipti möguleg á 3ja herb. íb. Lyngmóar Góð 2ja herb. ib. á 2. hæð. Áhv. 3,1 millj.Verð 5,5 millj. Reykjavík Baughús Glæsileg ca 90 fm 3ja herb. íb. I tvíb. með góðu útsýni. Áhv. ca 2,8 millj. húsbréf. Verð 8,5 millj. Konum fjölgar í Vélskólanum Morgunblaðið/Ásdís Japanskur prins í heimsókn PRINS og prinsessa Takamado frá Japan eiga í dag stutta við- dvöl á íslandi á leið sinni frá Kaupmannahöfn til Grænlands. Prinsinn er frændi Akihitos Jap- anskeisara. Prinsinn og prinsessan ásamt föruneyti koma með flugi Flug- leiða frá Kaupmannahöfn til Keflavíkurflugvallar kl. 12 á há- degi. Þaðan verður ekið til Bessa- staða þar sem Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, og frú Guðrún Katrín Þorbergsdóttir bjóða til hádegisverðar. Að loknum hádegisverði verður ekið að Stofnun Árna Magnússon- ar þar sem prinsinn og prinsessan skoða handrit undir leiðsögn Stef- áns Karlssonar, forstöðumanns stofnunarinnar. Frá Árnastofnun verður ekið til Reykjavíkurflugvallar en þaðan verður farið með flugvél Green- landair kl. 14.30 áleiðis til Græn- lands. Vagnstjórar ánægðir með ákvörðun stjórnar SVR Nýja kerfið gengnr ekki upp í vetur Skipholt Góö ósamþ. einstaklíb. ca 48 fm í fjölb. Verð 2,7 millj. Hafnarfjörður Sævangur Glæsilegt einbhús á einni hæð ca 180 fm auk tvöf. bílsk. Skipti mögul. á minni eign. Verð 16,0 millj. Breiðvangur Mjög góð 5 herb. ca 112 fm íb. á 2. hæð. Laus fljótl. Verð 8,4 millj. Álfaskeið Einbýlishús á tveimur hæðum með hálfum kj„ samtals 204 fm. Mikið end- urn. Ath. skipti á iitilli ib. Reykjavíkurvegur Glæsileg 2ja herb. íb. á 3. hæð. Lftið áhv. Verð 4,6 millj. Vantar eignir á skrá Fasteignasala, Strandgötu 25, Hfj. Árni Grétar Finnsson, hrl. Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl. Viðskiptum hjá okkur fylgir ráðgjöf og traustar upplýsingar. I fótspor feðranna FJÓRAR stúlkur hófu nám í Vél- skólanum í Reykjavík í haust og er það meira en nokkurn tíma áður. Ein stúlka var við nám í skólanum í fyrra. Björgvin Þór Jóhannsson skóla- stjóri telur ekki útilokað að frami Rannveigar Rist hjá íslenska álfé- laginu eigi hlut að máli. Rannveig var fyrir skömmu ráðin fram- kvæmdastjóri fyrirtækisins en hún er m.a. útskrifuð úr Vélskó- lanum. Þær Berglind Sigurðardóttir og Rebekka Ólafsdóttir sögðu að fyr- irmyndir þeirra beggja væru feð- umir. Faðir Berglindar er vélstjóri og faðir Rebekku mikill áhugamað- ur um vélar og viðgerðir. ALMENNA FASTEIGNASALAN LAUGAVEG118 S. 5521150 - 552 1370 VAGNSTJÓRAR SVR telja ljóst að akstur samkvæmt nýja leiða- kerfínu muni ekki ganga upp í vetur. Þeir sendu stjórn fyrirtækis- ins ályktun fyrr á árinu þar sem þeir óskuðu eftir því að gildistöku nýja leiðakerfisins yrði frestað fram á vor 1997. Maríus Sveinsson, áheyrnarfull- trúi starfsmanna í stjórn SVR, segir vagnstjóra fagna ákvörðun stjómar SVR að fela starfshópi, sem unnið hefur í eitt og hálft ár að undirbúningi á leiðakerfí SVR, að vinna greinargerð um þá þætti breytinganna sem gagnrýndir hafa verið að undanfömu og segir vagnstjóra bíða átekta eftir niður- stöðu vinnuhópsins en vagnstjórar hafi óskað eftir því í apríl að gildi- stöku nýja kerfísins yrði frestað fram á næsta ár. „Það er ljóst að það gengur ekiri að hafa sömu tímatöflu á morgnana, þegar umferðin gengur greiðlega, og síðdegis, þegar um- ferðin er miklu meiri. Það var orð- ið tæpt að tímatafla gamla kerfis- ins gengi upp, enda ekki sambæri- leg umferð á götum borgarinnar árið 1970 þegar það var hannað auk þess sem umferðarljósum hef- ur fjölgað verulega frá þeim tíma,“ segir Maríus. Vantaði samráð við vagnstjóra Hann segir að við hönnun nýja kerfísins hafi ekki verið haft sam- ráð við vagnstjórana sem þekkja akstursleiðirnar best. „Við bentum á að það væri áætlaður allt of knappur tími á sumum leiðum enda orðnir þreyttir á erfiðleikun- um við að haida áætlun í gamla kerfínu, en nú er þetta miklu verra. Það er gjörsamlega útilokað að bjóða farþegum upp á þetta og alveg ljóst að akstur samkvæmt nýja leiðakerfinu gengur ekki upp í vetur,“ segir Maríus. Á fundi borgarráðs í gær var tillögu borgarráðsfulltrúa Sjálf- stæðisflokksins, um endurskoðun leiðakerfís SVR, frá 3. september vísað frá. í frávísunartillögunni segir að tillaga sjálfstæðismanna frá 3. september sé óþörf og ótímabær í ljósi þess að starfandi sé starfs- hópur um endurskoðun leiðakerf- isins á vegum stjómar SVR. Eftir að frávísunartillaga Reykjavíkurlistans hafði verið samþykkt með þremur atkvæðum gegn tveimur létu borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins bóka það að frávísunartillaga Reykjavíkurlist- ans væri út í hött í ljósi samþykkt- ar meirihluta stjórnar SVR frá því á mánudag, um úttekt á leiðakerf- inu og tímamælingu ailra leiða að nýju. Stuttur afgreiðslu- tími skipti- stöðvar SVR NÝ SKIPTISTÖÐ SVR við Ár- túnshöfða er einungis opin frá kl. 9-18 virka daga. Á öðrum tímum verða farþegar að bíða fyrir utan stöðina sem er eini staðurinn sem vagninn úr Mosfellsbæ stansar á í Reykjavík. Ekki er hægt að kaupa farmiða í strætisvagna í stöðinni á öðrum tímum þar sem farmiðasalan er einnig opin frá 9-18. Þórhallur Örn Guðlaugsson, markaðsstjóri SVR, segir að sá tími sem skiptistöðvin er opin sé í athugun en það eigi eftir að koma í ljós hvort þörf sé á að hafa opið lengur. „Það er helst fólk á leið í Mos- fellsbæ sem þarf að bíða í stöðinni og það er verið að ræða við Al- menningsvagna um eitthvert sam- starf í þessu,“ segir Þórhallur. SERHÆÐ OSKAST Höfum kaupanda að 4ra-5 herb. sérhæð ásamt bílskúr í Hlíðunum eða nágrenni. Staðgreiðsla í boði. Upplýsingar gefur Agnar Gústafsson hrl., Eiríksgötu 4, símum 5512600 og 5521750. Glæsileg prentsmiðja Stærsta og eina alvöru prentsmiðjan í sínum landshluta, einstaklega góðum og fullkomnum tækjum búin, bæði prentar og gefur út, t.d. sjónvarpsdagskrána sem getur góðar auglýsingatekjur. Stórglæsilegt sérbyggt húsnæði með góðri vinnuaðstöðu og 2 góðum íbúðum. Fyrirtæki í jákvæðum rekstri. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni þar sem allar upplýsingar liggja fyrir. mTTT7n^TTT?Ffmrg7 SUÐURVE R I SlMAR 581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. Hársnyrtifólk Óvenjulegt tækifæri. Til sölu er ein þekktasta og vinsælasta hársnyrtistofa landsins. Jafnt sótt af körlum sem konum. Einstaklega vel staðsett. Útskrifuð pöntunarbók. Gríöarlega stór hópur af föstum viðskiptavinum. Upplýsingar aðeins á skrifstofunni. F.YRIRTÆK1ASALAN SUÐURVERI SÍMAR581 2040 OG 581 4755, REYNIR ÞORGRÍMSSON. 5521150-5521370 LÁRIIS U. VALDIMARSSON, FRAMKVÆMDASTJÓRI JÓHANN ÞÓRÐARSON, HRL. LÖGGILTUR FASTEIGNASALI. TIL SýNIS OG SÖLU - Á NÆSTU DÖGUM Fyrir smið eða laghentan Á vinsætum stað v/Gnoðarvog. 3ja herb. Ib. um 70 fm á 2. hæð. Þarfnast nokkurra endurbóta. Gott verö. Nánar aðeins á skrifstofunni. Innan Hringbrautar Fjársterkur kaupandi, nú erlendis, óskar eftir 60-70 fm húsnæði m. útsýni. Má þarfnast endurbóta. Ennfremur óskar hann eftir rúmgóðri rishæð. Má vera óinnréttuð. Þessar eignir yrðu staðgreiddar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.