Morgunblaðið - 11.09.1996, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Tveir akureyrskir strákar æfðu íshokkí með Tuto Rangers í Turku
FÉLAGARNIR Eiríkur Bekk og Jón Benedikt hittu finnska skauta-
manninn Teemu Selanne sem lék með Winnipeg í NHL-deildinni
í fyrra- vetur. Þarna eru þeir í aðalskautahöllinni í Turku í Finn-
landi eftir leik Finna og Svía sem þeir fyrrnefndu unnu 3:1.
Innanlandsflug Flugleiða í sumar
Mikíl fjölgun far-
þega til Húsavík-
ur og Akureyrar
Verðum
betri
næsta
vetur
T VEIR þrettán ára strákar á
Akureyri, þeir Eiríkur Bekk Ei-
ríksson og Jón Benedikt Gíslason
dvöldu í sumar í einn mánuð í
Turku í Finnlandi þar sem þeir
stunduðu íshokkíæfingar af miklu
kappi. Þeir fengu að æfa með
Tuto Rangers, sem er annað af
tveimur skautafélögum í borginni
og fóru nánast á svellið á hverjurn
degi.
Þeir Eiríkur og Jón unnu sér
inn fyrir ferðinni til Finnlands
með því að bera út blöð vítt og
breitt í bænum. Gistinguna fengu
þeir án endurgjalds, en á síðasta
ári þjálfaði finnsk stúlka, Terhi
Forsblom hjá listhlaupadeild
Skautafélags Akureyrar og bjó
hún hjá foreldrum Jóns, en móðir
hans er finnsk. Terhi endurgalt
með því að bjóða þeim gistingu
heima hjá fjölskyldu sinni í
Turku.
Æft frá 8 ára aldri
Strákarnir byijuðu báðir að
æfa íshokkí hjá Skautafélagi
Akureyrar 8 ára gamlir og er nú
í 2. flokki, 13 til 15 ára. Þeir fá
Kanadamanninn Alan Johnsson
sem þjálfara næsta vetur, en
hann er V estur-íslendingur og
hyggst í leiðinni leita upprunans.
„Við fórum á íshokkíæfingar
með Tuto Rangers á næstum
hverjum degi og lærðum margt
nýtt, ég veit að við verðum mikið
betri næsta vetur,“ saðgi Eiríkur
en á þessum mildu haustdögum
hittast piltarnir í 2. flokki annað
hvert kvöld við íþróttahöllina og
eru þá á línuskautunum sínum.
„Það verður að duga þangað til
við fáum ís inn á skautasvell."
Félagarnir hittu nokkra af
fremstu skautamönnum Finn-
lands í ferð sinni, að Ioknum leik
Finna og Svía í aðalskautahöll-
inni í Turku, ræddu þeir við
Teemu Selánne sem lék með
Winnipeg í NHL-deildinni. Þá
hittu þeir að máli þá Saku Ko-
ivu, Jari Kurri og Aki Pettri
Berg sem einnig leika í NHL-
deildinni og voru þeir margs vis-
ari eftir þau samtöl. „Við spurð-
um þá hvernig væri að spila í
Bandaríkjunum, nei ég býst ekki
við að við komumst þangað, en
það væri ótrúlega gaman.“
Nú eru þeir félagar nýkomnir
heim og byrjaðir að stinga dag-
blöðum inn um lúgur bæjarbúa.
„Við ætlum aftur næsta sumar,
annað hvort til Finnlands eða
Noregs."
FARÞEGUM í innanlandsflugi Flug-
leiða á flugleiðinni Húsavík-Reykja-
vík fjölgaði um 26% frá 1. júní sl.
til 1. september, miðað við sama
tímabil í fyrra. Á flugleiðinni Akur-
eyri-Reykjavík fjölgaði farþegum um
9% á sama tímabili en þeim fækkaði
aðeins á flugleiðinni Sauðárkrókur-
Reykjavíkur.
Farþegar á Húsavíkurleiðinni voru
3.348 í sumar, á móti 2.657 í fyrra-
sumar. Farþegar á Akureyrarleiðinni
voru 34.012 í sumar en 31.190 á
sama tímabili í fyrra. Á Sauðárkróks-
leiðinni var fjöldi farþega 1.956 í
sumar en 2.192 í fyrra.
Bergþór Erlingsson, umdæmis-
stjóri Flugleiða, segir að gert hafi
verið ráð fyrir farþegafjölgun milli
ára en hins vegar sé Qölgunin heldur
meiri en áætlanir gerðu ráð fyrir.
„Þessi aukning er nær eingöngu í
erlendum ferðamönnum, sem segir
okkur að markaðssetning erlendis sé
á réttri leið, alla vega hvað varðar
Akureyri og Húsavík.“
KOMUM á slysa- og bráðadeild
Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri
hefur fjölgað umtalsvert eða á milli
60 og 70% í nýliðnum ágústmánuði
í samanburði við sama mánuð á und-
anförum þremur árum.
Alls voru skráðar 1.534 komur á
slysa- og bráðadeildina í ágústmán-
uði síðastliðnum en meðaltal áranna
1992-1995 er 884 komur. Uppsagnir
heilsugæslulækna skýra þessa aukn-
ingu.
Halldór Jónsson framkvæmda-
stjóri Fjórðungssjúkrahússins á Ak-
Hann segir að markaðssetning á
hvalaskoðunarferðum frá Húsavík
hafi haft töluverð áhrif á fjölgun
farþega þangað. Hins vegar sé yfir-
leitt minna um ferðamenn í flugi til
Sauðárkróks.
Vetraráætlunin bætt
Flugleiðir hafa stórbætt vetrar-
áætlun sína til Akureyrar. Félagið
hefur bætt við einni vél á dag alla
daga vikunnar, sem þýðir 700 sæta
aukningu og alls eru farnar 34 ferð-
ir á viku. Bergþór segir að nú fari
vél frá Reykjavík kl. 17.15 og hann
telur víst að margir verði ánægðir
með þá viðbót. Á Sauðárkróksleiðinni
er áætlunin einnig bætt verulega.
Flugleiðir hafa gert samkomulag við
íslandsflug um flug til Sauðárkróks
fjóra morgna í viku. „Við bindum
vonir við að markaðurinn þar taki
kipp með bættri þjónustu." Ferðum
til Húsavíkur fækkar um tvær á viku
en á móti bætir Flugfélag Norður-
lands við ferðum á þeirri leið.
ureyri sagði að fjölga hefði þurft
starfsfólki á deildinni til að mæta
auknu álagi. „Okkar starfsfólk hefur
sýnt mikinn vilja, er tilbúið til að
bæta á sig vinnu og vinna undir
miklu álagi,“ sagði Halldór. „Okkur
ber að bregðast við á þennan hátt
þegar upp kemur staða sem þessi,
sjúkrahúsið verður að standa undir
nafni og sýna að það geti mætt
auknu álagi. Vissulega er um mikla
aukningu að ræða, en ég tel að við
höfum alla burði til að mæta henni.“
Komum hefur fjölgað
um 60-70% í ágúst
Loðnuverksmiðjan í Krossanesi og malbikunarstöð Akureyrarbæjar
Óánægja með mengun
frá fyrirtælq'unum
Hugmyndir uppi um kaup á nýrri malbikunarstöð
Morgunblaðið/Kristján
REYKURINN frá malbikunarstöð Akureyrarbæjar, sem staðsett
er ofan bæjarins, hefur farið fyrir bijóstið á mörgum í sumar og
hefur verið mikið um kvartanir til Heilbrigðiseftirlits Eyjafjarðar.
MIKILLAR óánægju hefur gætt á
Akureyri í sumar með mengun frá
Krossanesverksmiðjunni og malbik-
unarstöð Akureyrarbæjar, sem stað-
sett er ofan bæjarins. Álfreð Schiöth
hjá Heilbrigðiseftirliti Eyjafjarðar
staðfestir að mikið hafi verið um
kvartanir frá bæjarbúum vegna
mengunar frá þessum fyrirtækjum.
Annars vegar er um að ræða ólykt
frá Krossanesi og hins vegar mikla
sjónmengun frá malbikunarstöðinni.
Guðmundur Guðlaugsson, yfirverk-
fræðingur Akureyrarbæjar, segir að
uppi séu hugmyndir um kaup á nýrri
eða notaðri malbikunarstöð jafnvel
á næsta ári. Jóhann Pétur Anders-
en, framkvæmdastjóri Krossaness,
sagðist hins vegar ekkert hafa um
málið að segja á þessari stundu.
„Hollustuvernd ríkisins hefur eft-
irlit með fiskimjölsverksmiðjum og
það kom sérfræðingur á þeirra veg-
um í sumar og gerði úttekt á verk-
smiðjunni. í skýrslu sem hann hefur
skilað af sér kemur fram að meng-
unarvarnabúnaðurinn er ekki nógu
afkastamikill miðað við afkastagetu
verksmiðjunnar. Þannig að það
sleppur út lykt þess vegna og að úr
því þurfi að bæta. Hann bendir jafn-
framt á helstu tæknilegu möguleik-
ana til að bæta úr þessu ástandi,"
segir Alfreð.
Starfsleyfið að renna út
Starfsleyfi Krossanesverksmiðj-
unnar rennur út um áramót og seg-
ist Alfreð gera ráð fyrir því að þar
á bæ sé verið að skoða hvernig
hægt sé að mæta kröfum um úrbæt-
ur á mengunarvarnabúnaði, sam-
hliða því að sækja um endurnýjun á
starfsleyfi. „Ég geri ráð fyrir því að
þegar nýtt starfsleyfi lítur dagsins
ljós verði kröfur um mengunarvarnir
strangari. Þeir þurfa væntanlega
einhvern tíma til að vinna við þetta
mál. Ég átta mig hins vegar ekki á
því hversu mikinn kostnað hér er
um að ræða,“ segir Alfreð.
Alfreð segir að ekki sé bara horft
til loftmengunar þegar um er að
ræða endurnýjun á starfsleyfi fiski-
mjölsverksmiðja. „Þetta snýr líka að
aðbúnaði við löndun og möguleikum
á að taka í land blóðvatn og þess
háttar til að fyrirbyggja sjávarmeng-
un. Það hefur verið alveg gífurleg
óánægja í bænum í sumar vegna
lyktarmengunar enda hefur hún ver-
ið alveg sláandi. Það kemur líka
skýrt fram hjá sérfræðingi Hoilustu-
verndar að þetta á ekki að þurfa að
vera svona slæmt.“
Sögulegur vandi
Alfreð segir vissulega erfitt að
eiga við þetta ástand hjá verksmiðj-
um vítt og breitt um landið, Þetta
sé kannski líka sögulegur vandi, þar
sem verksmiðjurnar hafa verið stað-
settar við hafnirnar og í tímans rás
hafi byggðin stækkað og mjög víða
sé mjög mikið nábýli við verksmiðj-
urnar. „Ef horft er til langs tíma
væri skynsamlegt að huga að betri
staðsetningu þessara fyrirtækja. Þar
sem íbúðabyggð og verksmiðjur eru
hvort ofan í öðru, leiðir það af sér
að mengunarvarnir þurfa að vera
mun fullkomnari en ella.“
Heilbrigðisnefnd Eyjafjarðar hef-
ur ítrekað bókað tilmæli til bæjarins
um að koma á mengunarvarnabún-
aði á malbikunarstöðina. „Það kem-
ur ekki í veg fyrir að það sjáist reyk-
ur en sá reykur er þá fyrst og fremst
gufa og er alls ekki eins slæmur
fyrir ímynd bæjarins. Það má líka
segja að þessi staðsetning stöðvar-
innar kalli á vandaðar mengunar-
varnir. Þrátt fyrir ítrekaðar bókanir
nefndarinnar til bæjarins hafa ekki
fengist skýr svör um það hvenær
menn hyggjast bæta úr.“
Malbikunarstöðin hefur verið
keyrð af miklum krafti í sumar og
ekki síst í kringum framkvæmdir
við flugbrautina á Akureyrarflug-
velli. Alfreð segir að heilbrigðis-
nefndin hafi mótmælt því að ekki
var leitað til heilbrigðisnefndar og
Hollustuverndar áður en starfsemin
var aukin jafn mikið og raun bar
vitni.
Guðmundur Guðlaugsson, yfir-
verkfræðingur Akureyrarbæjar,
segir það ekki rétt að heilbrigðis-
nefnd hafi ekki fengið nein svör
varðandi úrbætur á malbikunarstöð-
inni. „Nefndinni hefur verið sent
bréf þess efnis að stefnt sé að end-
urnýjun á stöðinni með einum eða
öðrum hætti. Það er þó ekki víst að
bærinn verði aðili að þeirri endurnýj-
un. Það eru allir sammála um að
það er mikii sjónmengun af stöðinni
og mjög æskilegt að reykurinn
hverfi. Hins vegar hefur ekki þótt
nokkurt vit í því að kaupa hreinsun-
arbúnað á þessa stöð, sem er slitin
og komin á viðhaidstíma."
Malbikunarstöðin hefur ekki
starfsleyfi Hollustuverndar enda
komin til ára sinna og gangsett fyr-
ir tíma starfsleyfa. Hoilustuvernd
hefur mælt reykmengunina og segir
Guðmundur að hún sé langt yfir
leyfilegum mörkum. Hann segir að
uppi séu hugmyndir um aðra lausn
og þá jafnvel strax á næsta ári eða
þar næsta ári. Þar er rætt um kaup
á nýrri stöð sem kostar 30-40 millj-
ónir króna, eða kaup á notaðri stöð
með hreinsibúanaði og fengist fyrir
minna en 30 milljónir króna, að sögn
Guðmundar.