Morgunblaðið - 11.09.1996, Síða 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ
Rússarnir komnir til Svíþjóðar
Með fulla vasa
af dollurum
Stokkhólmi. Reuter.
Húsleit vegna
máls Dutroux
Reuter
Hart deilt
um smá-
eyjar
STJÓRN Kína varaði í gær
Japani við því að það gæti
skaðað samskipti ríkjanna ef
japanskir hægrimenn færu
aftur á óbyggðar smáeyjar í
Kínahafi sem ríkin deila um.
Stjórnin í Peking krafðist þess
að Japanir rifu niður vita sem
hægrimennirnir endurbyggðu
á mánudag á einni eyjanna,
sem nefnast Senkakus í Japan
og Diaoyus í Kína.
Tævanir gera einnig tilkall
til eyjanna og tævanskir þing-
menn kröfðust þess að stjórn-
in sendi þangað herskip til að
veija hagsmuni Tævana eftir
að Japanir sendu varðskip til
hindra siglingu tævanskra
báta þangað.
Ollu mistök
slysinu?
ÞEIR sem rannsaka flugslysið
á Svalbarða, sem varð 141
manni að bana 29. ágúst,
sögðust í gær ekki hafa fund-
ið neitt sem benti til þess að
vélarbilun hefði valdið slysinu.
Jon Pran, sem stjórnar rann-
sókninni, sagði líklegast að
mannleg mistök eða stjórn-
tækjavilla hefðu valdið slys-
inu.
Kvartað yfir
sjóránum
SAMBAND spænskra útgerð-
armanna hefur beðið yfirvöld
í Sierra Leone um að grípa
til aðgerða gegn sjóræningj-
um sem heija á togara í land-
helgi Vestur-Afríkuríkisins.
Sjóræningjarnir éru sagðir
vopnaðir og ráðast á togarana
með reglulegu millibili.
Samkyn-
hneigð varði
fangelsi
ÞING Rúmeníu samþykkti í
gær lög sem kveða á um að
dæma beri homma og lesbíur
í allt að fimm ára fangelsi.
Lögin voru samþykkt með
174 atkvæðum gegn 39 eftir
miklar deilur þótt Evrópuráð-
ið hafi sett það sem skilyrði
fyrir aðild Rúmeníu að ráðinu
að lög, sem banna sambönd
samkynhneigðra, yrðu felld
úr gildi. Stjórn landsins og
margir stjórnarandstæðingar
vildu hins vegar ekki afnema
bannið, sem var sett á valda-
tíma kommúnistastjórnar
Nicolae Ceausescu.
Serra hvattur
til afsagnar
BASKNESKI þjóðernisflokk-
urinn, sem styður stjórn Þjóð-
arflokksins á Spáni, hvatti í
gær Eduardo Serra varnar-
málaráðherra til að segja af
sér vegna spillingarmála eftir
að hann viðurkenndi að hafa
beitt áhrifum sínum til að
tryggja vinum sínum við-
skiptasamninga við ríkið.
Serra er óflokksbundinn og
sagði það undir forsætisráð-
herranum komið hvort hann
héldi embættinu.
RÚSSARNIR eru að koma og að
þessu sinni með fullar hendur fjár.
Nú í sumar hafa það verið Rússar
en ekki Ameríkanar, sem hafa
keypt mest af tollfijálsum varn-
ingi í Svíþjóð eða fyrir um 470
milljónir íslenskra króna í júní-
mánuði einum.
Verslun Rússa í Svíþjóð hefur
verið að aukast stöðugt sl. þijú
ár en það, sem af er þessu ári,
hafa þeir keypt tollfijálsan varn-
ing þar fyrir tæpa 2,4 milljarða
ísl. kr. Þeir eru þó lítið í minjagrip-
unum eins og Bandaríkjamenn,
Japanir og raunar flestir ferða-
menn, heldur fara þeir beint í
lúxusvarninginn, úr, gull, loðfeldi,
íþróttavörur og fatnað. I því síð-
astnefnda eru merki eins og
Escada, Hugo Boss og Armani
mjög vinsæl og loðfeldirnir eru
mjög eftirsóttir utan sum-
artímans.
„ÞAÐ hefur engin áhrif á Ijölmiðla
að segja að málefnið sé gott og því
þurfi að skrifa um það. Við skulum
bara horfast í augu við það að þeir
elska „vondar" sögur, skelfilegar
sögur, sem skekja fólk. Þegar bras-
ilískir fjölmiðlar áttuðu sig á að
greinar um bamavændi voru vondar
sögur, vaknaði áhuginn." Þetta var
meðal annars boðskapur Gilbertos
Dimensteins, blaðamanns II folho
de Sao Paulo, á ráðstefnu Bama-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna í
Stokkhólmi um kynferðislega mis-
notkun barna í gróðaskyni. Hann
bendir á að nauðsynlegt sé að
þekkja eðli fjölmiðla til að geta
haft áhrif í gegnum þá. Það er öðr-
um fremur Dimenstein að þakka
að dapurlegar aðstæður barna í
Brasilíu urðu fjölmiðlaefni í heima-
landi hans og víða um heiminn.
Dimenstein undirstrikar hve börn
séu illa sett hvað almenn mannrétt-
indi varðar í landi eins og Brasilíu.
Meðan einræði ríkti í Brasilíu hefðu
hópar mennta- og blaðamanna lagt
líf sitt í hættu til að beijast fyrir
mannréttindum og lýðræði, en
mannréttindaumræðan hefði síðan
lagst af eftir að lýðræði hefði kom-
ist þar á. „Það eru ekki börn mín
og starfsbræðra minna sem eiga á
hættu að lenda í barnavændi. Fá-
tæklingar skrifa ekki í blöðin. Líf
barnanna lá utan við sjóndeildar-
hring okkar. En bilið milli ríkra og
fátækra vex í Brasilíu og æ fleira
miðstéttarfólk verður fyrir barðinu
á fátækt. Um leið stækkar hópurinn
sem leiðist út í barnavændi.“
Barnavændi er ekki einangrað
við stórborgir og ferðamannastaði,
Allt reiknað í dollurum
Starfsfólk í sænskum verslunum
segir, að Rússamir séu með vasana
úttroðna af peningum í orðsins
fyllstu merkingu enda eru krítar-
kort ekki orðin algeng í Rússlandi.
„Þeir treysta ekki neinum gjald-
miðli nema dollaranum og reikna
allt út í dollurum," segir Bertil
Larsson, talsmaður fyrirtækis, sem
sér um að endurgreiða tollinn af
varningnum.
Athygli vekur, að lítið er af ungu
fólki meðal rússnesku ferðamann-
anna en þegar þeir sáust fyrst komu
þeir yfirleitt um helgar með feijun-
um frá Eistlandi eða Finnlandi. Nú
er algengara, að þeir komi með flugi
frá Moskvu eða Pétursborg. Lars-
son segir, að raunar hafi dregið úr
kaupæði Rússanna, sem séu nú
farnir að líkjast æ meir ferðafólki
frá öðrum löndum.
heldur tíðkast víðs vegar um land-
ið. Ein aðferðin til að næla í ungl-
ingsstúlkur er að bjóða þeim heiðar-
lega vinnu í fjarlægum og afskekkt-
um landshluta, til dæmis í námuhér-
uðum landsins, þangað sem enginn
kemst nema fuglinn fljúgandi og
flugvélar. „Vinnuveitandinn" borg-
ar flugmiðann. Þegar á staðinn
kemur er enga vinnu að hafa, stúlk-
an skuldar vinnuveitandanum
flugmiðann, húsaleigu og mat. Eina
leiðin er að vinna fyrir hann við
vændi.
Fjögur börn drepin
á dag í Brasilíu
En barnavændi er aðeins hluti
af ömurlegum aðstæðum fjölda
barna í Brasilíu. Fjöldi þeirra lætur
lífið fyrir hendi lögreglu og dauða-
sveita. „Fjögur börn láta að jafnaði
lífið á dag í Brasilíu sökum ofbeld-
is“, segir Dimenstein, „og fæst
málin komast nokkurn tímann upp.
Af 200 málum, sem voru athuguð
var aðeins eitt þeirra sem var upp-
lýst og morðinginn dæmdur. Börnin
deyja af mörgum ástæðum. Þau
falla fyrir hendi lögreglumanna,
sem eru að hreinsa til, eða þau eru
flækt í eiturlyfjasölu. Dauðasveitir
eiturlyfjasala eða lífverðir geta
skotið þau eða þau fallið fyrir hendi
annarra barna og unglinga í átök-
um unglingagengja. Lítið er vitað
um aðstæður ungmennanna sem
látast en flest eru í einhverri vinnu."
Dimenstein segir að erfitt sé að
gera sér grein fyrir fjölda götubarn-
anna meðal hinna 154 milljóna íbúa
þessa víðfeðma lands, einnig sé
spurning hvernig eigi að skilgreina
BELGÍSKA lögreglan gerði hús-
leit á 15 stöðum í gær vegna rann-
sóknar á máli barnaniðingsins
Marc Dutroux. Þar á meðal var
skrifstofa rannsóknarlögreglunn-
ar í Charleroi. Voru 23 menn yfir-
heyrðir vegna málsins en þar á
meðal voru átta rannsóknarlög-
reglumenn, þrír lögreglumenn
þau. „Það hafa heyrst ógnarlega
háar tölur eins og 5-7 milljónir.
Börn og unglingar, sem í raun búa
á götunni og hafa ekkert annað
athvarf, eru kannski um hundrað
þúsund en ef við teljum börn og
unglinga, sem vinna en hafa stop-
ult samband við fjölskylduna, getur
verið að sú tala sé um fimm milljón-
ir.“
Um ástæður þessa segir Dimen-
stein að þær séu af ýmsum toga.
„Þetta er ekki aðeins spurning um
fátækt heldur félagslega upplausn
og atvinnuleysi. Og krakkarnir eru
myrt af því að löggæslan er ekki
sérlega virk. Það er auðvelt að
koma sér undan sekt og lögreglan
er spillt." Hann er sannfærður um
að ástandið hafi batnað, „en það
þýðir ekki að loka augunum fyrir
því að margir hafi takmarkaðan
áhuga á að bæta úr. Hagsmunir
margra eru í veði, hvort sem það
eru eiturlyfjasalar, þeir sem reka
vændishús, eða stjórnmála- og lög-
reglumenn er á einhvern hátt
tengjast þessari neðanjarðarstarf-
semi“.
Þegar hagsmuni ber á góma er
auðvelt að sjá í hendi sér að ekki
hafi allir verið jafn hrifnir af skrif-
um Dimensteins framan af. Sjálfur
gerir hann lítið úr að hann hafi
verið beittur hótunum. „Það var
kannski eitthvað í upphafi," segir
hann til að eyða þeim umræðum,
en bætir ákveðinn við: „Það eru
krakkarnir sem þjást, ekki ég. Ég
get alltaf hætt og farið að gera
eitthvað annað. Nú eru umræður
aðrir og 12 manns sem unnu náið
með rannsóknarlögreglustjóran-
um Georges Zicot. Hann var
handtekinn vegna tengsla sinna
við starfsemi Dutroux fyrir tveim-
ur vikum. Myndin var tekin er
lögreglumenn fara til húsleitar í
húsi rannsóknarlögreglunnar í
Charleroi árla í gærmorgun.
Paulo í Brasilíu.
um götubörnin og aðstæður þeirra
hins vegar viðfangsefni allra fjöl-
rniðla."
„Skyldi ég fá að
borða hjá Guði?“
I einni af mörgum greinum sínum
lýsir Dimenstein' heimsókn sinni
árið 1990 á neyðarathvarf í Recife
fyrir börn sem lent höfðu í vændi.
„Heimilisstýran sagði mér frá
„Stóra fæti“, fóstureyðingaraðferð,
sem hún hafði heyrt stelpunar segja
frá: ófrísk stelpa fær vin sinn til
að sparka í magann á sér. Ég komst
að því hvernig þær höfðu lært þessa
villimannlegu aðferð. Stelpurnar
sögðu mér að skömmu eftir að lög-
reglumaður hefði sparkað í magann
á ófrískri vændiskonu hefði hún
misst fóstrið.“
Við þessar ástæður hugleiða
stúlkurnar oft sjálfsmorð án þess
að vita af því, skrifar Dimenstein
og segir frá fundi sínum við ellefu
ára stúlku í Recife er sagði honum
ævisögu sína. „Hún var merkt af
áfalli yfir að hafa verið nauðgað
af stjúpföður sínum og lögreglu-
manni og af vændislífinu. Að lok-
inni sögu sinni spurði hún: „Er
hægt að fæðast aftur?“
Þegar þessi klausa er borin und-
ir Dimenstein segir hann að þessi
spurning barnsins líði sér aldrei úr
minni, frekar en þegar hann var
við dánarbeð stúlku, götubarns,
sem var að deyja úr hungri. Rétt
áður en hún gaf upp öndina leit hún
í kringum sig og sagði: „Skyldi ég
fá að borða hjá Guði?“
„Er hægt að fæðast aftur?“
Eftir að hafa heyrt orðróm um að bama-
vændi væri útbreitt í Brasilíu ferðaðist brasil-
íski blaðamaðurinn Gilberto Dimenstein um
heimaland sitt í hálft ár árið 1989 og kann-
aði málið. Afraksturinn varð fyrsta bókin
um efnið og umræða sem varð upphafið að
því að eitthvað væri gert. Sigrún Davíðs-
dóttir hitti Dimenstein á ráðstefnu Barna-
hjálpar Sameinuðu þjóðanna í Stokkhólmi.
GOTUBORN í Sao