Morgunblaðið - 11.09.1996, Qupperneq 26
26 MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
STOFNAÐ 1913
ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson.
RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
SAMEINING
SVEITARFÉLAGA
STÆRRI sveitarfélög hafa meiri burði en þau fá-
mennari til að standa undir framkvæmdum og þjón-
ustu, sem fólk horfir einkum til þegar það velur sér
framtíðarbúsetu. Þessvegna standa líkur til þess að
flutningur á rekstri grunnskólans frá ríki til sveitarfé-
laga ýti undir fækkun og stækkun sveitarfélaganna í
landinu.
í fréttum Morgunblaðsins síðastliðinn sunnudag seg-
ir að endurskipulagningu skólahalds í Hornafirði megi
rekja til sameiningar Hafnar, Nesjahrepps og Mýrar-
hrepps í eitt sveitarfélag. í sama blaði er einnig greint
frá því að hreppsnefndir Eyrarbakka og Stokkseyrar
hafa kjörið sameiginlega nefnd til að kanna hag-
kvæmni aukinnar samvinnu eða sameiningar hrepp-
anna. Hrepparnir hafi falið Rannsóknarstofnun Kenn-
araháskóla íslands úttekt á skólamálum, meðal annars
á hagkvæmni sameiginlegs skólahalds. Grétar Zophon-
íasson, sveitarstjóri á Stokkseyri, bendir á það í við-
tali við blaðið þennan dag, að takist að spara 5 til 6
milljónir króna í yfirstjórn „dugi það til reksturs eins
leikskóla".
Árangur í samkeppni sveitarfélaga um fólk og fyrir-
tæki ræðst máski fyrst og fremst af því, hvaða bú-
setu- og rekstrarskilyrði standa til boða í einstökum
sveitarfélögum. í því ljósi ei-u fjölmargir þeirrar skoð-
unar að bezta vörnin gegn áframahaldandi fólksflótta
af landsbyggðinni sé stærri og sterkari sveitarfélög. Á
hinn bóginn stendur mönnum ekki á sama um hina
fornu hreppaskipan, sem rekja má aftur á þjóveldisöld.
Mergurinn málsins er þó sá, að íbúar ráði samein-
ingarferlinu; að sameining sé háð meirihlutasamþykki
kjósenda í viðkomandi sveitarfélögum. Það er heldur
ekki út í hött að kanna, hvort varðveita megi hina
fornu hreppaskipan með einum eða öðrum hætti innan
stærri og sterkari sveitarfélaga.
LÍFEYRISÞEGAR OG
TRY GGIN G ASTOFNUN
TALSVERT hefur borið á gagnrýni á, að lífeyrisþeg-
ar hafi orðið fyrir skerðingu bóta frá Trygginga-
stofnun ríkisins, þar sem þeir hafi ekki getað skilað
inn vottorðum frá heilsugæzlulæknum vegna mikils
sjúkrakostnaðar, sem taka á tillit til. Heilsugæzlulækn-
ar hafa að sjálfsögðu ekki gefið út slík vottorð eftir
að þeir sögðu upp störfum.
Tryggingastofnun benti á í frétt í sunnudagsblaði
Morgunblaðsins, að þeir, sem orðið hafi fyrir skerð-
ingu, gætu haft samband við stofnunina til þess að
fá leiðréttingu sinna mála. Sú skýring er gefin, að
vegna tæknilegra annmarka hafi ekki verið unnt að
taka tillit til áhrifanna af kjaradeilu læknanna við
útreikningi tryggingabótanna. í bréfi sem Geðhjálp
sendi Tryggingastofnun fyrir skömmu segir, að heil-
brigðisyfirvöld hafi skapað öryggisleysi og uppnám hjá
þúsundum lífeyrisþega vegna harkalegra aðgerða
Tryggingastofnunar.
Eitthvað hlýtur að vera athugaverí við tölvukerfi,
sem ekki er hægt að breyta vegna nýrra aðstæðna.
Spyrja má, hvers vegna þessum skerðingaráformum,
sem taka áttu gildi 1. september, var ekki hreinlega
frestað á meðan heilsugæzlan er lömuð. Það er í raun
illþolandi að slíkar aðstæður sem þessar komi upp og
bætur sjúkra lífeyrisþega skertar án þess að yfirvöld
geti á nokkurn hátt gripið í taumana.
Undanfarin misseri hafa sparnaðaráform stjórnvalda
skert lífeyrisgreiðslur aldraðra og sjúkra frá Trygg-
ingastofnun. Frítekjumörkum var breytt nú 1. septem-
ber, sem spara áttu ríkissjóði 95 milljónir króna og
hinn 1. marz síðastliðinn voru gerðar breytingar á
endurgreiðslu læknis- og lyfjakostnaðar, sem spara
áttu um 20 milljónir króna. Það var því óþarfi að höggva
í sama knérunn nú vegna þess að tölvukerfi Trygginga-
stofnunar lætur ekki að stjórn.
Samkomulag um meginatriði en tekist á um útfærsiu
Morgunblaðið/Kristinn
FULLTRÚAR í samninganefnd LÍ við upphaf samningafundar í gærdag. F.v. Gunnar Ingi Gunnars-
son, formaður samninganefndar, Þórir B. Kolbeinsson, formaður kjararáðs og Magnús R. Jónasson.
Tillaga um kjara-
nefnd leysti hnútinn
Samkomulag um að færa starfskjör heilsugæslu-
lækna undir úrskurð kjaranefndar, varð til þess að
leysa þann hnút sem læknadeilan var komin í og
setja viðræður í fullan gang um gerð kjarasamn-
ings til áramóta, skv. upplýsingum Omars Friðriks-
sonar. Samninganefnd LÍ féllst, eftir samtöl við
ráðherra, á að reyna gerð skammtímasamnings
með sambærilegum hækkunum við þær sem aðrir
hafa fengið. Útfærsla launabreytinganna vafðist
hins vegar fyrir samninganefndunum í gær.
^'0^X1 hafði gengið né
rekið í samningaviðræð-
um samninganefndar
ríkisins og samninga-
nefndar LÍ þegar upp úr slitnaði
29. ágúst og munaði mjög miklu á
tilboðum SNR og kröfum lækna.
Heilsugæslulæknar lögðu höfuð-
áherslu á hækkun fastra launa þar
sem þeir töldu sig hafa dregist
verulega aftur úr viðmiðunarhóp-
um á undanförnum árum. Að mati
SNR hefðu kröfur lækna haft í för
með sér um 22% hækkun á launa-
kostnaði ríkisins til heilsugæslu-
lækna.
Viðtöl við ráðherra
undanfarna daga
Unnið var á bak við tjöldin að
lausn læknadeilunnar og áttu for-
ystumenn lækna óformlegar við-
ræður við Friðrik Sophusson fjár-
málaráðherra og Halldór Ásgríms-
son, starfandi heilbrigðisráðherra,
um helgina og á mánudag. Sam-
hliða hófust svo samningaviðræður
á nýjan leik á milli samninganefnd-
anna í húsnæði ríkissáttasemjara.
Það var svo tillaga um að færa
launakjör lækna undir kjaranefnd
á næsta ári sem leysti þann fasta
hnút sem deilan var komin í.
Samningsaðilar höfðu á mánu-
dag lýst sig reiðubúna til að reyna
gerð kjarasamnings sem yrði
byggður á tillögum ríkisins, eins
og þær lágu fyrir þegar upp úr
slitnaði 29. ágúst, og jafnframt
yrði út frá því gengið að launakjör
lækna yrðu færð undir kjaranefnd
um áramót. Sjá læknar ýmsan
ávinning við þá breytingu, skv.
upplýsingum blaðsins. Heilsu-
gæslulæknar í þjónustu ríkisins
yrðu þá skilgreindir sem læknar í
öryggisneti heilbrigðisþjónustunn-
ar. Gert hefur verið ráð fyrir að
þegar skammtímasamningur er til-
búinn til undirritunar gefi
ríkisstjórnin út yfírlýsingu
um að hún muni beita sér
fyrir því að gera þær laga-
breytingar, sem nauðsyn-
legar eru til þess að heilsu-
gæslulæknar fari undir úrskurð
kjaranefndar sem ákvarði laun
þeirra til frambúðar.
Kjaranefnd ákveður starfskjör
fjölmargra forstöðumanna ríkis-
stofnana, fyrirtækja í eigu ríkisins
og ráðuneytisstjóra, svo og launa-
kjör presta þjóðkirkjunnar og fleiri
hópa sem læknar hafa m.a. borið
sig saman við. Við ákvörðun launa-
kjara skal kjaranefnd gæta inn-
byrðis samræmis í starfskjörum hjá
þeim sem hún fjallar um og að
kjör séu á hveijum tíma í samræmi
við laun í þjóðfélaginu hjá þeim sem
sambærilegir geta talist með tilliti
til starfa og ábyrgðar og að sam-
ræmi sé milli þeirra og þeirra launa
hjá ríkinu sem greidd eru á grund-
velli kjarasamninga eða Kjara-
dóms.
Tilboð ríkisins sá grunnur sem
nýr samningur yrði byggður á
í tilboði ríkisins fólst að heilsu-
gæslulæknar fengju sambærilegar
hækkanir við þær sem samið hefur
verið um við aðra hópa á undanförn-
um misserum, þ.e. hækkun launa-
töflu um vegið meðaltal af 2.700
kr. á dagvinnulaun, auk 3% hækk-
unar. Þá verði hluti af aksturskostn-
aði lækna felldur inn í launatöflu,
þ.e.a.s. 6000 km. greiðsla af 8.000
km. sem læknar fá greitt fyrir á
ári. Við það breytast greiðslur fyrir
yfirvinnu og gæsluvaktarálag auk
þess sem hækkun grunnlauna eykur
réttindi lækna í Lífeyrissjóði starfs-
manna ríkisins. Þessi útfærsla kem-
ur mismunandi út fyrir Iækna, þeir
sem hafa mestu yfirvinnuna eða
standa flestar bakvaktir fengju
hlutfallslega meira í sinn hlut en
aðrir. Einnig yrðu sérstakar greiðsl-
ur fyrir ungbarnaeftirlit og mæðra-
vemd felldar niður og þær metnar
til launaflokkahækkana.
Að mati SNR hefðu
þessar launabreytingar í
för með sér rúmlega 7%
hækkun á kostnaði ríkis-
ins við laun til heilsu-
gæslulækna. Hópur
lækna kom saman í gærmorgun til
að ræða þessa stöðu og var bjart-
sýni ríkjandi í herbúðum beggja
samningsaðila á að takast myndi
að ná samningum i gær eða nótt.
Þegar samninganefndirnar ætluðu
svo að hefjast handa við útfærslu
skammtímasamnings á þessum
grunni á fundi hjá sáttasemjara,
sem hófst kl. 13 í gær, kom hins
vegar í ljós að það var flóknara
verkefni en áður var talið. Kom upp
ágreiningur um útfærslu ýmissa
atriða sem ekki hafði tekist að leysa
í nótt þegar blaðið fór í prentun.
„7% hækkun
á launa-
kostnaði"
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 27
BLÁKLÆDDIR Sahrawi-menn í eyðimerkurrykinu. Morgunbiaðið/An Jóhannesson
BÖRNIN leika sér með það sem tiltækt er.
IBÚAR Vestur-Sahara hafa
verið kallaðir „Bláa fólkið“ og
er þar vísað til húðlitarins,
sem hefur oft á sér blágráa
slikju. Þá klæðast íbúar Vestur-
Sahara, eða Sahrawi-menn, gjarnan
bláum viðhafnarklæðum, að sögn
Ara Jóhannessonar, sem bjó og
starfaði á svæðinu í hálft annað ár
á vegum Sameinuðu þjóðanna. Ari,
sem er tölvunarfræðingur, vann við
að skrá fólk á kjörskrá, sem var
flókið verkefni og afar viðkvæmt.
Svo viðkvæmt raunar að ósættan-
legur ágreiningur um það hveijir
hefðu kjörrétt, varð til þess að kosn-
ingunum var frestað og starfsmenn
SÞ flestir sendir heim. Friðargæslu-
lið og svokölluð pólitísk skrifstofa
SÞ eru þó enn á svæðinu.
Polisario eru þjóðarsamtök
ýmissa hópa og flokka í Vestur-
Sahara. Hóf hreyfingin baráttu
gegn spænsku nýlenduherrunum
1973 og lýsti yfir sjálfstæði Vestur-
Sahara árið 1975. Leiðtogar Mar-
okkó, sem gerði þegar innrás í land-
ið og náði stórum hluta þess á sitt
vald, og Máretaníu, töldu svæðið
tilheyra sér.
íbúar Vestur-Sahara
ákveði framtíð sína
Polisario fékk Alþjóðadómstól-
inn í Haag til að fjalla um málið
og var niðurstaðan sú árið 1975
að hvorugt landið ætti sögulegan
rétt á Vestur-Sahara, ibúarnir ættu
sjálfir að ákveða framtíð sína.
Marokkó hefur lagt vesturhéruðin,
þar sem helstu náttúruauðlindir og
bæir eru, undir sig en Polisario
heldur austurhéruðum þar sem
landgæði eru lítil.
TT* * Tll *
Hja „Blaa
fólkinu“
Tölvunarfræðingurínn Ari Jóhannesson
starfaði á vegum Sameinuðu þjóðanna við
undirbúning þjóðaratkvæðagreiðslu í Vestur-
Sahara. Stór hluti þjóðarinnar hefur búið í
tvo áratugi í flóttamannabúðum í Alsír, þar
sem Arí fékk leyfi til að ljósmynda.
Ekkert Evrópuríki viðurkennir
yfirráð Marokkó í Vestur-Sahara
en þau hafa heldur ekki viljað viður-
kenna sjálfstæði landsins. Það hafa
hins vegar 76 aðrar þjóðir gert.
Blóðugt stríð stóð í rúman áratug
á milli Polisario og Marokkómanna
en samið var um vopnahlé árið 1991
og ákveðið að SÞ önnuðust friðar-
gæslu og eftirlit með þjóðaratkvæði.
Viðkvæmt ástand
Samkvæmt tölum Polisario búa
um 65.000 manns af Sahrawi-ætt-
bálkinum í Vestur-Sahara, um
100.000 manns í flóttamannabúð-
um í Alsír og um 130.000 innflytj-
endur frá Marokkó hafa sest þar
að. Hlutverk starfsmanna SÞ var
að úrskurða hveijir ættu kosninga-
rétt en byggt var á manntali frá
nýlendutíma Spánveija. Gerðu þeir
það í samvinnu við fulltrúa Vestur-
Sahara og austurhéraðanna, að
sögn Ara. Voru tveir höfðingjar,
hvor frá sínu svæði, fengnir til votta
hveijir menn voru, en allir sem ósk-
uðu eftir því að komast á kjörskrá
voru teknir í viðtal.
Segir Ari að þetta hafí verið taf-
samt verk og viðkvæmt, og hvað
eftir annað hafi komið upp deiluatr-
iði um hveijir ættu að vera á kjör-
skrá. Þegar allt gekk samkvæmt
óskum voru um 1.000 manns skráð
á einni viku, en árangurinn var þó
sjaldnast svo góður.
Ari segir að áður en Sameinuðu
þjóðirnar tókust þetta verkefni á
hendur, hafi margir orðið til þess
að segja verkefnið ómögulegt en
þrátt fyrir að ekki hafi tekist að
halda kosningar, hafi skráning
kjósendanna gengið mun betur en
menn hafi þorað að vona.
Það sem varð til þess að koma í
veg fyrir Sameinuðu þjóðunum tæk-
ist að gera kjörskrá, var krafa yfir-
valda í Marokkó um að innflytjend-
ur þaðan hefðu rétt til að kjósa.
SÞ vildu ekki útiloka að einhveijir
þeirra hefðu kosningarétt og vildu
ræða við fólkið. Það féllust fulltrúar
Polisario ekki á.
Ari og samstarfsmenn hans störf-
uðu í báðum hlutum landsins og
segir hann að sem hlutlaus aðili
hafi starfsmenn SÞ lítið getað tjáð
sig, því vel hafi verið fylgst með
þeim. Sem dæmi um það hafi mátt
nefna að ræstingafólkið á skrifstofu
SÞ í þeim hluta sem Marokkómenn
hertóku, hafi verið ungir menn, sem
töluðu ensku og frönsku og kunnu
á tölvur.
Búðaþjóðfélag
Áður en Ari hélt til Vestur-
Sahara, starfaði hann m.a. sem Ijós-
myndari á dagblöðum hérlendis og
hugsaði sér því gott til glóðarinnar
til myndatöku á svæðinu. Erfitt
reyndist þó að fá leyfi til myndatöku
í flóttamannabúðum í Alsír og
fékkst leyfið í einn dag. Þar fór
hann um í fylgd leiðsögumanns
Polisario-hreyfingarinnar.
íbúar flóttamannabúðanna líða
ekki skort en lítið er þó um þau lífs-
gæði sem æ fleiri telja sjálfsögð.
Búðirnar eru í miðri eyðimörkinni,
búið er í tjöldum og húsum úr leir,
börn sækja skóla og íbúarnir, sem
flestir voru hirðingjar, eru með bú-
fénað. Búðirnar heita eftir borgum
í hinum hersetna austurhluta og eru
myndirnar teknar í Auserd-flótta-
mannabúðunum.
HÍBÝLI manna í Auserd-búðunum eru hús byggð úr
leir og tjöld. Þar hefur vaxið úr grasi kynslóð sem þekk-
ir ekki annað en líf í flóttamannabúðum.
ARA (þriðja f.v.) var boðið að drekka arabískt te hjá
einni fjölskyldunni í Auserd-búðunum. Eins og sjá má
er blái liturinn allsráðandi.
TILFINNINGAÞRUNGNIR endurfundir gamals höfð-
ingja og systur hans, sem hafa ekki sést frá því Ma-
rokkómenn hertóku hluta Vestur-Sahara árið 1975. ^
i