Morgunblaðið - 11.09.1996, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 37
ATVINNUAUarS/NGA/?
Unglingar óskast
til að dreifa fréttablaði á öllu höfuðborgar-
svæðinu á laugardagsmorgun frá kl. 8.00.
Upplýsingar í síma 588 6716.
Píanókennsla
Tek nemendur í einkatíma á píanó. Kenni á
nýjan flygil börnum og fullorðnum. Vönduð
og skemmtileg kennsla. Hafið samband í
síma 566 8143 milli kl. 22 og 22.30.
Arnhildur Valgarðsdóttir, B.A., CPGS.
Frá Grunnskóla
Fáskrúðsfjarðar
íþróttakennara vantar til afleysinga í fulla
stöðu frá 15. september til 15. nóvember.
Upplýsingar gefur skólastjóri, Guðmundur
Þorsteinsson, í hs. 475 1159 eða vs.
475 1224.
Kwai fljótið
Tælenskur veitingastaður Laugavegi 11
Vegna mikilla anna óskum við eftir þjóni. Við
leitum að áhugasömum og heiðarlegum
starfsmanni sem mun hafa umsjón með sal
og taka þátt í skipulagningu vegna stækkun-
ar á veitingasai. Tekið á móti umsóknum á
staðnum föstudaginn 13.9 milli 14 - 16.
Framkvæmdastjóri
íþróttafélag óskar eftir að ráða framkvæmda-
stjóra til starfa. Meginverkefni framkvæmda-
stjóra er dagleg stjórnun félagsins, kynning-
armál og fjáraflanir.
Áhugasamir leggi inn umsókn, með upplýs-
ingum um aldur, menntun og fyrri störf, til
afgreiðslu Mbl. fyrir 16. september nk.
merkta: „íþróttir - 555“.
= þjöinuislotn elnlr. =
Allt á sama stað...
Við leitum að grafískum
hönnuði eða einstaklingi
vönum tölvuskurði.
Starfið felur í sér vinnu í
Macintosh umhverfi við
tölvuskurð, hönnun o.fl.
Umsækjendur vinsamlega
hafið samband við Guðmund
í síma 588 7020.
Auglýsing um lausar stöður við
Mýrarhúsaskóla
Spennandi starf
með börnum
Okkur vantar áhugasama stuðningsfulltrúa
til starfa. Starfið felst í að aðstoða kennara
í almennri bekkjarkennslu við kennslu og nám
nemenda sem af ýmsum ástæðum þurfa
sérstakan stuðning vegna náms og/eða
hegðunar.
Einnig óskast starfsfólk í blönduð störf við
skólann. Um er að ræða störf við ræstingu
og gæslu nemenda í lengdri viðveru/Skóla-
skjóli. Störfin eru laus nú þegar.
Upplýsingar gefa skólastjórar í síma 561 1980.
Grunnskólafulltrúi.
Afgreiðslustarf
Óskum eftir starfskrafti til afgreiðslu og sölu-
starfa í verslun okkar. Um er að ræða fram-
tíðarstarf. Reynsla af afgreiðslu í sérverslun
æskileg. Skriflegar umsóknir sendist í póst-
hólf 8835, 128 Reykjavík, merktar:
„Afgreiðslu- og sölustörf“ fyrir 20. sept.
Bóka- og ritfangaverslun,
Munt þú blómstra...
Nýherji getur á sig
blómu
bætt
UNIX
Viö erum að eíla okkar þjónustu við IBM RS/6000 tölvurnar.
Hér þarf kláran starfskraft með reynslu og áhuga á UNIX
umhverfinu.
Internet
Nýherji býður margvíslega þjónustu tengda Internetinu. Stefnt
er að því að efla þessa deild með aukinni þjónustu og ráðgjöf til
fyrirtækja. Spennandi verkefni þar sem hlutirnir gerast hratt.
Staðarnet
Við viljum efla þjónustu okkar enn frekar á sviði staðarneta. Ef
þú ert með Novell eða NT þekkingu, svo ekki sé nú minnst á ef
þú hefur próf í þeim efnum, þá viljum heyra fljótt frá þér.
Lotus Notes
Nýherji er með öfluga Lotus Notes deild og nú viljum viá stækka
hana enn frekar. Við leitum að góðum Notes forriturum eða
fólki með forritunarreynslu með löngun til að kynnast þessu
frábæra hópvinnukerfi og þróa í því lausnir.
Nýherji er framsækið íyrirtæki
Hjá Nýherja starfar hresst fólk sem leggur metnað
sinn í að bjóða íslensku atvinnulífi upp á góða
þjónustu og ráðgjöf á sviði upplýsingatækni. Við
leitum að fólki sem hefur góða undirstöðuþekkingu
og vill halda áfram að bæta við sérþekkingu sína.
Nánari upplýsingar eru veittar hjá Sigurði Olafssyni,
starfsmannastjóra Nýherja. Farið verður með allar
fyrirspurnir og umsóknir sem trúnaðarmál.
Vinsamlega sækið um á umsóknarblöðum sem liggja
frammi í móttöku okkar í Skaftahlíð og á slóð
http://vww.nyherji.is/umsokn/. Umsóknir og nánari
upplýsingar má einnig fá með tölvupósti:
sigol@nyherji.is
Umsóknarfrestur er til þriðjudags 17. september.
Q^)nýherji
okkar akri?
Kraftmiklir
sölumenn
Alþjóðlegt ráðgjafarfyrirtæki vantar reynda
sölumenn til að selja þjónustu þess m.a. við-
horfs- og markaðskannanir og ýmis námskeið.
Góð laun. Hliðstæð sölureynsla æskileg.
Umsóknir sendist afgreiðslu Mbl. merktar:
„Framtíð - 18141“.
auglýsingar
Hörgshlíð 12
Boðun fagnaðarerindislns.
Bænastund í kvöld kl. 20.00.
Hvítasunnukirkjan
Fíladelfía
Lofgjörð, bæn og biblíulestur í
kvöld kl. 20.00. Ræöumaður
Hafliði Kristinsson.
Allir hjartanlega velkomnir.
éSAMBAND ÍSLENZKRA
____r KRISTNIBOÐSFÉLAGA
Háaleitisbraut 58-60
Samkoma i kvöld kl. 20.30 í
Kristniboðssalnum. Ræðumað-
ur: Kjartan Jónsson.
Allir velkomnir.
FERÐAFÉLAG
® ÍSLANDS
MÖPKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir 14-15/9
Kl. 08.00:
Laufafell-Hrafntinnusker-Laugar.
Kl. 08.00 Þórsmörk.
Feröafélag Islands.
Ungt fólk
með hlutverk
gíal YWAM - ísland
Eivind Fröen
kennir um „hjóna-
bandið og fjöl-
skylduna" á nám-
skeiðum I Digra-
neskirkju, 12.-13.
sept. og 16.-17. sept. nk. Nám-
skeiðin standa yfir frá kl. 20 til
23 bæði kvöldin. Skráning og
nánari upplýsingar í síma
552-7460 kl. 13-17 og
554-1620.
FERÐAFÉLAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 - SlMI 568-2533
Helgarferðir 14-15/9
1. Laufafell - Hrafntinnusker -
Landmannalaugar. Spennandi
ferð um stórkostlegt líparít- og
hverasvæði. Gönguferðir. Gist í
Hrafntinnuskeri.
2. Þórsmörk, Langidalur. Gist
i Skagfjörðsskála. Tilvalin fjöl-
skylduferð. Haustlitirnir eru að
byrja. Brottför kl. 8.00 í báðar
ferðirnar. Miðar á skrifst.
Árbókarferð laugardaginn 4.
sept. ki. 9.00. Gullfoss að aust-
an - Tungufellsdalur. Eignist
árbókina 1996 er nefnist „Ofan
Hreppafjalla" og fjallar m.a. um
þetta svæði. Tungufellsdalur er
kjarrivaxinn og haustlitirnir eru
að byrja.
Ferðafélag (slands.