Morgunblaðið - 11.09.1996, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. SEPTEMBER 1996 41
BRÉF TIL BLAÐSINS
Frá Sigurði Helgasyni:
SIGURBJÖRN Sveinsson heilsu-
læknir ritar bréf til Morgunblaðsins
þann 6. september 1996, þar sem
hann gerir athugasemd við grein
mína í Morgunblaðinu þann 30.
ágúst sl. er bar heitið „Læknadeilan
og velferð sjúkra". Ég vil í upphafi
þakka bréfritara fyrir að vilja ræða
læknadeiluna málefnalega og verð-
ur reynt að svara framlögðum at-
hugasemdum í sömu röð og hann
setti þær fram.
1. S.Sv. finnur að því, að ég
skrifa greinina sem form. Lands-
samtaka hjartasjúklinga og með því
sé ég að draga þau inn í umræð-
una. Ég held að þessi athugasemd
byggist á því að hann þekki ekki
nægilega til félagsmála. Meir en
helming dauðsfalla í dag má rekja
til hjartasjúkdóma og hlýtur því
þessi deila að snerta mína umbjóð-
endur mjög mikið. Hér eru að sjálf-
sögðu settar fram mínar skoðanir.
Það hef ég gert í fjölmörgum svip-
uðum tilvikum, ef ég tel málið
snerta hagsmuni hjartasjúklinga.
2. S.Sv. ræðir um plagg heil-
brigðisráðherra og telur það aðeins
á umræðustigi. Hér fer hann ekki
með rétt mál, því að ég segi orð-
rétt að fyrir liggi uppkast að sér-
stöku samkomulagi, sem ég hafði
reyndar undir höndum. Þar fer ekki
milli mála að uppkastið byggir á
Sigiirbirni
Sveinssyni
svarað
tillögum komnum frá fulltrúum
heilsugæslulækna. Það voru fleiri
en ég sem hafa gert sér grein fyrir
alvarlegum afleiðingum þessara til-
lagna, því að haldinn var fyrir
skömmu aukaaðalfundur Læknafé-
lags íslands þar sem kom fram yfir-
lýsing að læknar væru mótfallnir
að hverfa frá hinu frjálsa vali sjúkl-
inga og höfnuðu tillögunum. Ekki
komu fram nein mótmæli heilsu-
gæslulækna sem eru þar fullgildir
félagar.
3. S.Sv. finnur að því að ég telji
ummæli ýmissa heilsugæslulækna
ekki samrýmast siðareglum lækna
og jaðri sum þeirra við bein laga-
brot. Skömmu eftir að grein mín
var skrifuð lýsti Gunnar I. Gunnars-
son, form. samninganefndar heilsu-
gæslulækna, yfir að hætta ætti
neyðarvakt heilsugæslulækna, þar
sem hún aðeins gæfi falskar vonir.
Þá lýsti landlæknir yfir að neita að
gegna neyðarvakt væri brot á siða-
reglum lækna og á áðurnefndum
aukaaðalfundi L.í. var lýst yfir að
læknar myndu halda áfram neyðar-
vakt. Engin mótmæli komu fram.
4. Þá telur S.Sv. að ég hafi rang-
lega farið með tölur um launakröfur
heilsugæslulækna. Tölur nefndar í
grein minni byggjast á upplýsingum
fréttastofa, en þá er jafnan tekið
fram, að nákvæmar upplýsingar
liggi ekki fyrir, en samkvæmt heim-
ildum fréttastofu standi mál þannig,
eins og sagt var í grein minni. Þann
30. ágúst 1996 slitnaði upp úr deilu
aðila og lýsti Þórir Einarsson sátta-
semjari í viðtali sama dag í Morgun-
blaðinu, að L.í. krefjist kr. 145-148
þúsund á mánuði, en þau eru í dag
kr. 86 þúsund. Talsmaður ríkisins
Gunnar Björnsson segir að við lausn
deilunnar hafi verið lagt til veruleg
hækkun launa og gerð var jafn-
framt tillaga um að fella niður
aukagreiðslur fyrir akstur o.fl. og
er þetta viðtal í samræmi við frá-
sögn mína.
Að gefnu tilefni skal tekið fram,
að stæðu læknasérfræðingar í svip-
uðum kjaradeilum myndi ég örugg-
lega mótmæla og það kannski af
enn meiri hörku. Læknadeiluna
þarf að leysa því að mannslíf eru
í húfi og er það von mín, að báðir
aðilar beri gæfu til þess sem fyrst.
SIGURÐUR HELGASON,
formaður Landssamtaka
hjartasjúkiinga.
Á leið vestur...
Frá Steingrími St. Th. Sigurðssyni:
LEIÐIN til Vestfjarða er eins og
segull. Helgin að baki í litlu höfuð-
borginni. Eldrauði Fíatinn frá þýzku
bílaleigunni í Hafnarfirði er með sál
eins og fjörhestur - eiginlega allt
of viljugur - með númerið VE 875
þversumman 20 er tala sigurkórón-
unnar. Hjátrúin er guðs fordæmd,
en spennandi eins og yfirskilvitleg
trú á ákveðnum númerum og tölum
eins og 4 og 5 í fjárhættuspili. Það
minnir á fjarstýringu. Eins og fyrr
segir er 875 tala sigurkórónunnar
eða svo sagði völvan forðum, en
hún er kynjuð úr Arnarfirði vestur.
Og nú var keyrt léttan um
Strandirnar, sem hafa því miður
einn galla - alvarlegan galla: Þar
réðu framsóknarmenn allt of lengi!
Þú hittir sjaldan skemmtilegan
framsóknarmann úti i landsbyggð-
inni. Það liggur við að sé búið að
vana landslagið á ströndum vegna
framsóknarflokksins. Þegar rauði
litli Fíatinn geystist um veginn á
leið til Hólmavíkur, liðu höggmynd-
ir guðs framhjá, klettar hamrar,
minnandi á ófreskisögur úr þjóðsög-
um Jóns Árnasonar, sem eru okkar
klassík. Þvílíkur kraftur, hvílík
hressing að renna saman við þetta,
sem er ókeypis eins og allt það
besta sem lífíð hefur upp á að bjóða.
Klukkan var langt gengin í níu
um kvöldið. Myrkrið var skollið á.
Og nú var heiðin framundan, þar
sem skiptist á þoka og hvassviðri
- dæmigert niflungaveður.
ísafjarðardjúp hefur alið af sér
meira af dugandi fólki en önnur
svæði á íslandi. Allt í einu umvafði
Djúpið mann. Á Vestfjörðum er
ekkert að óttast þrátt fyrir öll þessi
dularfullu öfl sem eru alls staðar á
kreiki þar. Það var orðið æði rokk-
ið. Annað veifið glitti í ljós, stijált
og stopult. Sakir syfju var Mafíatin-
um lagt út við vegkant. Steinsofnað
í faðmi hins ókunna. Dreymt að
Djúpmannabúðin birtist uppljómuð
eins og Dísarhöll. Vaknað eins og
miðað væri á mann. Draumurinn
var orðinn að veruleika.
Frá Sigurði Sigurmundssyni:
í MORGUNBLAÐINU birtist fyrir
nokkru smágrein eftir Björn S.
Stefánsson „Er orðið maður orðið
feimnismál í ræðu og riti.“
Þar virðist höfundur ekki gera
sér grein fyrir því, að orðið maður
hefur í íslensku tvennskonar merk-
ingu: Annarsvegar sem nafnorð t.d.
„maður er kominn út“. Hinsvegar
sem ópersónulegt óákveðið fomafn
t.d. „maður sér þetta, manni
finnst“. I fyrra dæminu er sjálfsagt
og skylt að nota það, en í því síð-
ara óþarft, það var ekki notað í
íslensku fyrr en á síðustu öld, enda
Djúpmannabábúðin við Mjóafjörð
í N-Isafjarðarsýslu hefur farið gegn-
um prósess. Nú er þar hæstráðandi
til sjós og lands afspyrnuglæsileg
ung kona af Stapadals- og Álftamýr-
arætt, sem breytt hefur búðinni í
slíka orkustöð, að fólk á ekki orð
til að lýsa yfir hrifni sinni.
Eldsnemma næsta dag var bað-
að sig í fornmannalaug, sem ork-
aði eins og yngingarlyf.
„Svona er ísafjarðardjúp í dag“
eins og Jón Ársæll hefði sagt...
STEINGRÍMUR ST.TH.
SIGURÐSSON,
listamaður.
komið úr dönsku (man kan se).
Undirritaður hefur áður sent frá sér
grein um það í Morgunblaðið og
bent á að það færi illa i íslensku
og ofnotkun þess spilli íslenskri
tungu, t.d. „þegar maður kemst upp
á fjallið blasir við manni fögur sjón,
maður gleymir því ekki“. Því ekki
að segja: Þegar komið er upp blas-
ir við - það er ógleymanlegt. Undir-
ritaður hefur ýmislegt skrifað og
aldrei látið orðið maður frá sér fara
í þessari merkingu. Ekki er vitað
til þess að neinn hafi saknað þess.
SIGURÐUR SIGURMUNDSSON
frá Hvítárkoti.
Um notkun orðsins maður
Varstu undir 6 á vorprófunum?
NÁMSAÐSTOÐ
er pá eittfivaðfyrir piy
Nýjar kannanir á gengi íslenskra nemenda
í framhaldsskóla sýna að þeir, sem eru
undir 6 á lokaprófi úr grunnskóla, lenda í
erfiðleikum í námi. Þetta staðfestir það
sem við höfum vakið athygli á í auglýs-
ingum okkar undanfarin ár.
Síðastliðinn áratug höfum við hjálpað þús-
undum nemenda við að komast á réttan kjöl í
skólanámi. Ekki með neinum töfralausnum,
þvi þær eru ekki til, heldur markvissri kennslu,
námstækni og uppörvun. Við vitum að nám
er vinna og það vita nemendur okkar líka.
Grunnskólanemar! Látið ekki slaka
undirstöðu stoppa ykkur í framhaldsskóla.
Reynslan sýnir að einkunn undir 6 er ekki
gott veganesti i framhaldsskóla hvort sem
um er að ræða verknám eða bóknám.
Framhaldsskólanemar! Það er ennþá
tími til að breyta erfiðri stöðu í unna.
En munið að nám tekur tíma, svo þið þurfið
að hefjast handa strax. Allir vita að menntun
eykur öryggi í framtíðinni. Njótið hennar.
Gangi ykkur vel.
Upplýsingar og innritun Kl. 17-19 virKa daga I
slma 557 9233 og I símsvara allan sólarhringlnn.
Fax. 557 9458.
ypetnentíapjónustan sf.
Þangbakka 10, Mjódd. ’
Námskeiö fyrir þá sem vilja lengra:
NbtímaFoimtun
VisualBasic er kjaminn í nútima forritun í
gluggaumhverfi. Enginn sem á annað borð
vill nýta tölvuna og forritin betur getur verið
án þekkingar á VisualBasic!
36 klst námskeið, kr. 44.900,- stgr.
Námskeið á fimmtudögum og laugardögum
■ Tðlvuráögjof • námskeið Mjtgáfa
Grensásvegi 16 • sími 568 8090
hk 960219_______Raðgrciöslur EuroA'ISA
rekkar
BjfiBum allskonar
lager og (lillukerff lyrlr
siærri sem mlnni legera.
Endalausir möguleikar.
Aðeins vönduð vara úr spænsku
gæðastáli. Mjög gott verð.
Bjóðum einnig sérhæfð lyftitæki.
Leitið ráða við skipulagningu
og byggingu lagerrýma.
SMIÐJUVEGI 70, KÓP. • SÍMI564 4711 • FAX 564 4725
KÆLIB0RÐ 0G DJUP-
FRYSTAR
KÆLITÆKNI
Skógarhlíð 6, sími 561 4580
■ Halda vel að þreyttum fótum
■ Góðir fyrir fólk sem stendur
við vinnu sína allan daginn
■ Viðurkenndir af fólki
í heilsugæslu
Öðlastu hvíld í OFA!
Þú aetur
valið um fjóra liti
Pessir sokkar
eru frábærir
fyrir barnshafandi
konur!
AKFIANES APÓTEK • APÓTEK BLÖNDUÓS
APÓTEK KEFLAVÍKUR
ÁfffiÆJARAPÓTEK*BOFIGARAPÓrrEK
BREBHOOSAPÓTEK.GARÐSAPÓTCK
GRAFAFtVOGS APÓTEK • HOIJS APÓTEK
IÐUNNAR APÓTEK DOMUS MEDICA
INGÓLFS APÓTEK • LAUGAVEGS APÓTEK
MOSFELLS APÓTEK • REYKJAVIKUR APÓTEK
STYKWLSHÓLMS APÓTEK • ÖLFUS APÓTEK
HÚSGAGNAHÖLLIN
Amerísku dýnurnar
frá Serta eru mesti
lúxus sem hægt er
að láta eftir sér.
Þegar þú færð þér
Serta dýnu færðu
helmingi meira fyrir
peningana þína.
Hjá okkur fæst allt fyrir hið fullkomna
svefnherbergi. Svefnherbergishúsgögn
I miklu úrvali, sængur, koddar, lök,
rúmasvuntur, rúmteppi, púðar ofl. ofl.
Komdu I stærstu dýnuverslun landsins.
Scna - alll að 20 ára áhyrgð og 14 daga skiptiréttur.