Morgunblaðið - 15.09.1996, Síða 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1996 B 9
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Á FJÓRÐUNGSMÓTINU 1979 hlaut Hrafn 1. verðlaun fyrir afkvæmi. Eigandinn Sigurður Ellertsson
situr klárinn sem er lengst til vinstri, næst eru Stefán Friðgeirsson á Skugga frá Gauksstöðum, bróð-
ir hans Jóhann á Fáfni frá Fagranesi, þá Ármann Gunnarsson á Þresti frá Laugasteini, Jón Baldvins-
son á Freyju frá Ögmundarstöðum, Ingimar Baldvinsson á Glóblesa frá Glæsibæ
og Friðrik á Svölu frá Glæsibæ.
allir jafn hrifnir af Hrafni sem rækt-
unarhesti, þótt allir viðurkenni yfir-
burði hans í ræktunarstarfinu. Al-
gengur fyrirvari er sá að Hrafn sé
ekki fullkominn frekar en aðrir hest-
ar. Einnig er nefnt að engir hestar
hafi fengið önnur eins tækifæri og
Hrafn og þá átt við þann merarkost
sem honum hefur boðist. Eins og
að ofan getur spilar sterkt inn í
hrossaræktina bæði smekkur manna
og tilfinningar. Þótt Hrafn sé góður
að mörgu leyti er rétt að hann er
alls ekki galialaus.
Sumir ræktenda hafa komist að
þeirri raun að hann falli ekki vel inn
í þeirra ræktun og hafa af þeim
sökum notað hann lítið eða alls ekk-
ert. Er slíkt vel skiljanlegt og eðli-
legt sjónarmið. Eigi að síður hefur
Hrafn teygt anga sína víða og
kannski komið örlítið bakdyramegin
í ræktun þar sem hann á ekki mikl-
um vinsældum að fagna. Gott dæmi
um slíkt er þegar Sveinn Guðmunds-
son á Sauðárkróki hélt Síðu sinni
undir Hrafn og fékk Hervöru sem
síðar gat af sér Hervar sem er orð-
inn einn af kynsælustu stóðhestum
landsins, ekki hvað síst í gegnum
syni sína Kjarval og Otur.
Kynfestan aðalsmerkið
Hrossaræktarráðunautamir Krist-
inn Hugason og Þorkell Bjarnason
hafa vafalaust öðrum fremur haft
góða yfirsýn yfir afkvæmi Hrafns,
kosti þeirra og galla. Það fyrsta sem
þeir nefna af kostum hans er sú
mikla kynfesta sem hann býr yfir.
Kynfestan telst aðeins til kosta þeg-
ar hún færir jákvæða eiginleika frá
foreldri til afkvæma í ríkum mæli
og það gerir Hrafn. Sæmilega glögg-
ir hestamenn geta í mjög mörgum
tilfellum þekkt Hrafnsafkvæmi úr
hópi hrossa.
Ráðunautarnir nefna mikinn
myndarskap, þau séu mörg bolfal-
leg, þótt ekki séu þau tiltakanlega
bollétt. Hafa góðan vilja, ekki
kannski léttan, en traustur sé hann
og auðsveipur. Hross undan honum
séu yfirleitt frekar auðtamin. Hrafn
hefur skilað mjög góðu tölti að mati
ráðunautanna og sömuleiðis fá þau
hátt fyrir fegurð í reið.
Benda þeir á að þetta séu tveir
eiginleikar sem hafa hátt vægi í
dómskala og hugum hestamanna.
Fjölhæfni er yfirleitt fyrir hendi, en
einnig hafí Hrafn skilað góðum klár-
hrossum með tölti. Gallar Hrafns
felist fyrst og fremst í byggingunni.
Framan af ævi hans var oft talað
um veigalitla eða granna afturbygg-
ingu afkvæmanna en minna virðist
fundið að þessu seinni árin. Einnig
þykja fætur afkvæmanna í lakari
kantinum og er þá fyrst og fremst
verið að tala um fótagerðina. Ekki
hefur þó sá orðrómur komist á kreik
að fætur Hrafnsbarna séu eitthvað
lakari en almennt gerist.
Höfuðskörungur
Þótt ráðunautarnir ieyni ekki
hrifningu sinni á Hrafni mæla þeir
eindregið gegn því að menn fari að
skyldleikarækta út af klárnum.
Hrafn þótti ekki sérlega frjósamur
og átti hann sín slæmu ár í þeim
efnum eins og margir aðrir hestar
hafa fengið að reyna. Kristinn benti
á að eitt það fyrsta sem hnignar við
skyldleikarækt sé fijósemin.
Þorkell og Kristinn eru sammála
um að Hrafn 802 frá Holtsmúla
beri höfuð og herðar yfir önnur kyn-
bótahross. Þar hafi farið höfuðskör-
ungur hrossaræktarinnar.
Morgunblaðið/Matthías Gestsson
SÁ MAÐUR sem best kynntist Hrafni sem reiðhesti er Friðrik
Stefánsson bóndi og tamningamaður í Glæsibæ. Hann tamdi Hrafn
og sýndi í öll þau skipti sem hann kom fyrir dóm. Myndin er tekin
á fjórðungsmótinu 1972 þegar Hrafn var fjögura
vetra og kom fyrst fram.
Morgunblaðið/Matthías Gestsson
HRAFN var í miklu uppáhaldi hjá eiganda sínum Sigurði Ellerts-
syni sem hér stendur hjá þeim Hrafni og Friðriki
að lokinni verðlaunaafhendingu.
fyrstur hesta hlotið heiðursverðlaun
samkvæmt þessu fyrirkomulagi
1978. Þarna skildi endanlega með
Hrafni og Ófeigi, sem ekki náði þessu
marki fyrr en fjórum árum síðar.
Sýning Hrafns þótti glæsileg og
einkunn tólf afkvæma, 8,19, var vel
yfir lágmarki. í dómsorði segir m.a.
um afkvæmi Hrafns: „Þau eru háls-
löng og reist, en hálsinn er djúpur.
Herðar eru háar, bak all stíft, lendin
stutt, lærvöðvar grunnir og aftur-
fótastaða fremur þröng. Fætur eru
þurrir og réttir, kjúkur í lengra lagi,
hófarnir sterkir. Reiðhestskostir eru
ótvíræðir, viljinn ákveðinn og mikill,
en lundin heldur þung, en traust og
hrekklaus. Aliur gangur er fyrir
hendi, vel rúmur og hreinn með
góðum fótaburði. Heillandi og glæsi-
leg framganga með reisn og lyftingu
í öllu fasi einkenna afkvæmi Hrafns
802, fram yfir flest annað sem hér
þekkist. Hrafn 802 er gæðingafaðir
og hlýtur 1. heiðursverðlaun, meðal-
einkunn 8,19 stig.“
Þegar hér var komið sögu var
Hrafn farinn að undirstrika yfirburði
sína fram yfir aðra hesta sem fram
höfðu komið og það merkilega gerð-
ist í framhaldinu að vinsældir hans
héldust stöðugar eftir þetta. Af-
kvæmin héldu áfram að slá í gegn
ár eftir ár og viðhéldu með því ásókn
hrossaræktenda í að halda undir
Hrafn.
Keyptur á kaupleigu
Um haustið eftir þennan glæsta
árangur gera eigendur Hrafns kaup-
leigusamning við Hrossaræktarsam-
band Skagfirðinga og Suðurlands.
Hér var um að ræða tímamótasamn-
ing. Við undirritun samningsins voru
greiddar eitt hundrað þúsund krónur
og tólf hundruð krónur af hverri
hryssu sem leidd yrði undir hestinn
næstu fjögur árin. Á núvirði má
segja að þetta hafi verið reyfarakaup
hrossaræktarsambandanna, í dag
myndi útborgunin telja um átta-
hundruð þúsund krónur og nærri
lætur að greiðsla af hverri hryssu
væri um tíu þúsund krónur. Ef greitt
væri af sextíu hryssum árlega í fjög-
ur ár væri kaupverðið á núvirði þijár
til þijár og hálf milljón króna. Til
samanburðar má geta þess að Orri
frá Þúfu sem þykir líklegastur arf-
taki Hrafns er í dag metinn á 20
til 30 milljónir króna. Gæta verður
að því að nokkrum árum síðar varð
sprenging í verðlagningu stóðhesta
en þegar samningurinn var gerður
þótti Hrafn dýr.
Þrátt fyrir glæstan feril eru ekki
SÓLARFERÐIR-
BORGARFERÐIR
KANARIEYJAR
Fyrsta brottför 6. nóv., 31 dagur
2 í íbúð, verð frá 60.500
Staðfesta skal ferðina fyrir 20/9 og staðgreiða 4 vikum fyrir brottför.
Jólaferð 20. des., 12 dagar.
2 í íbúð verð á mann frá kr. 75.986.
2 fullorðnir og 2 börn innan 12 ára
í íbúð, verð á mann frá kr. 56.256.
Innifalið: Flug, gisting, flugvallarskatta, íslensk fararstjórn og
ferðir til og frá flugvelli. Staðgreiðsluverð 4 vikum fyrir brottför.
11 daga jólaferð 21. des.
Brottför vikulega frá 1. jan - 26. mars '97
FLORIDA i allan vetur
Flug og bíll í eina viku. Verð með sköttum frá kr.
45.500 á mann, 2 í bíl.
2 fullorðnir og 2 börn innan 12 ára.
Verð á mann með sköttum frá kr. 35.900.
Innifalið: Flug, bíll, söluskattur, ótakmarkaður akstur og trygging.
FJafið samband og fáið nánari upplýsingar um flug og gistingu í
Orlando, Ft. Lauderdale, St. Petersburg og Bradenton.
BENIDORM
23. sept. - 2 vikur. Verð með sköttum frá kr. 41.070.
á mann 2 fullorðnir og 2 börn innan 12 ára í íbúð.
Aðeins 4 sæti laus.
7. okt. - 3 vikur. Verð með sköttum frá kr. 57.570
á mann, 2 í íbúð.
Aðeins 10 sæti laus.
Innifalið er: Flug, gisting, íslensk fararstjórn og ferðir til og
frá flugvelli.
BARCELONA
3, 4, eða 7 nætur til 21/10.
Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 31.140 - 3 nætur.
Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 34.140 - 4 nætur.
Innifalið er: Flug, gisting, morgunverður, ferðir til og frá
flugvelli og íslensk fararstjórn.
Sitges
Verð í tvíbýli á Gran Hotel Sitges
með sköttum 7 nætur kr. 49.040.
Innifalið er flug, gisting og morgunverður.
GLASGOW
1, 2, 3, 4 eða 7 nætur.
Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 24.270 - 2 nætur.
Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 26.970 - 3 nætur.
Innifalið: Flug, gisting, morgunverður, íslensk fararstjórn og
ferðir til og frá flugvelli frá 30/9.
LONDON
2, 3, 4 eða 7 nætur
Verð í tvíbýli með sköttum frá 25.970 - 2 nætur.
Verð í tvíbýli með sköttum frá 28.970 - 3 nætur.
Innifalið: Flug, gisting og morgunverður.
AMSTERDAM
2, 3, 4, 5 eða 7 nætur
Verð í tvíbýli með sköttum frá 24.460 - 2 nætur.
Verð í tvfbýli með sköttum frá 27.360 - 3 nætur.
Innifalið: Flug, gisting og morgunverður.
KAUPMANNAHÖFN
2, 3 eða 7 nætur
Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 33.690 - 2 nætur.
Verð í tvíbýli með sköttum frá kr. 36.590 - 3 nætur.
Innifalið: Flug, gisting og morgunverður.
Hafðu samband við okkur og fáðu upplýsingar um helgarferðir til
IVeiv York, Halifax, Lúxemborgar, Tríer, Baltimorc og Boston.
Handhafar Euro- og Atlaskorta geta notað Atlasávísanir sínar til
lækkunar feröakostnaðar. Hafðu samband við okkur -
við skipuleggjum ferðina fyrír einstaklinga og hópa.
°S2t&
Pantaðu í síma
552-3200
FERÐASKRIFSTOFA
REYKJAVÍKUR
AÐALSTRÆTI 1b 101 REYKJAVIK