Morgunblaðið - 18.09.1996, Blaðsíða 24
24 E MIÐVIKUDAGUR 18. SEPTEMBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Síaukið vöruval
og fagleg ráðgjöf
PLASTPRENT hefur
Vandaðar umbúðir gefa
forskot í samkeppninni ^;óun- sem átt hefur
ser stað 1 vinnslu
sjávarafurða í neytendapakkningar með fjárfestingum í nýjum tækja-
búnaði, auknu vöruvali og faglegri ráðgjöf. Fyrirtækið hyggst fylgja
þessari þróun enn frekar eftir í framtíðinni enda markmiðið að veita
heildarþjónustu í plastumbúðum, hvort sem er fyrir frumvinnslu eða
fullvinnslu.
Á sjávarútvegssýningunni kynnir
Plastprent nú nýjar vörur og þjón-
ustu fyrir ferskar og frosnar afurð-
ir, sem nýtast munu framleiðendum
til að fylgja vörunni eftir alla leið
inn á borð til neytenda, en sífellt
styttri líftími vöru krefst stöðugrar
vöruþróunar og framsýni fyrir-
tækja, að sögn Jóhanns Jóns ísleifs-
sonar, sölu- og markaðsstjóra.
„Fullvinnsla sjávarafurða er skilyrði
fyrir aukinni almennri velmegun og
tækifærum fiskvinnslufyrirtækja til
frekari verðmætasköpunar og vel-
gengni. Krafa neytenda um meiri
þægindi á jafnt við um matreiðslu
og meðhöndlun vöru sem og
geymslu matvæla. Umbúðir eru
ekki einungis til verndunar vöru á
leið frá framleið-
anda til neytanda
heldur geta um-
búðir orðið að
afgerandi sam-
keppnisforskoti
ef þær bjóða upp
á aukin neyt-
endanot og fram-
setningin er aðl-
aðandi.“
Ráðgjöf og
umbúðir
Plastprent hf.
tekur m.a. að sér
að sjá um hönn-
un á umbúðum,
hvort sem það er
gert hjá fyrir-
tækinu sjálfu eða
í samstarfi við
auglýsingastof-
ur. Auk þess er
viðskiptavinum
þess boðið að
taka þátt í vöruþróunarverkefnum
með faglegri ráðgjöf.
Bakkar, herpipokar og rennilása-
pokar eru þær nýjungar, sem Plast-
prent hf. kynnir á sýningunni að
þessu sinni. Bakkar af ýmsum
stærðum og gerðum eru fyrir fersk-
an og frosinn fisk og draga þeir
m.a. í sig umframvökva sem kann
að koma úr fiskinum. Hann helst
því þurr sem aftur kemur í veg
fyrir gerlamyndun. Fyrir framleið-
endur með tilbúna rétti er boðið upp
á hitaþolna bakka fyrir örbylgju-
ofna.
Plastprent hefur nýlega fengið
umboð fyrir svokallaða herpipoka
frá Cryovac/Grace sem eru þeim
kostum gæddir að vernda vöruna
fyrir loftskipt-
um. Þeir eru
sagðir góður
kostur fyrir
ferskan og fros-
inn fisk, sem á
að vera veislu-
matur. Þá býður
Plastprent upp á
rennilásapoka,
sem gera það
mögulegt að
endurloka um-
búðum og
tryggja þar með
góða geymslu-
meðferð á vöru
eftir að umbúð-
irnar hafa verið
opnaðar. Renni-
lásapokar henta
hvort sem er fyr-
ir fiskflök,
rækju, skelfisk
eða tilbúna vöru.
BAKKAR fyrir ferskan og
frosinn fisk, hitaþolnir bakk-
ar í örbylgjuofninn, herpi-
pokar og rennilásapokar eru
meðal nýjunga frá Plast-
prenti hf.
FRAMTAK, Hafnarfirði
Kraftmikíl
og lipur viðgerðarþjónusta
nú einnig dísilstillingar
framtak - alhliða viðgerðarþjónusta:
________* VÉLAVIÐGERÐIR
________* RENNISMÍÐI
• PLÖTUSMÍÐI
BOGI • DÍSILSTILLINGAR
GÓÐ ÞIÓNUSTA
VEGIIR ÞUNGT
Framtak
VÉLA- OG SKIPAÞJÓNUSTA
Drangahrauni Ib Hafnarfirði
Sími 565 2556 • Fax 565 2956
FRÉTTIR
ÞAÐ GETUR verið þéttleginn kanturinn í Hafnarfjarðarhöfn eins og sjá má á þessari mynd sem
tekin er að kvöldi síðasta sjómannadags.
Fjölbreytt þjónusta við
höfnina í Hafnarfirði
„VIÐ ERUM í raun að kynna alla
þá þjónustu sem hægt er að fá í
einni höfn fyrir útgerðir, skip og
áhafnir,“ segir Már Sveinbjörnsson,
framkvæmdastjóri Hafnarfjarðar-
hafnar, en á Sjávarútvegssýningunni mun höfnin kynna þjónustu sína en
vöruflutningar og önnur starfsemi við höfnina hefur farið ört vaxandi síð-
ustu ár.
„Höfnin hefur í
sér góða ímynd
Hafnarfjörður hefur um aldaraðir
verið helsti viðkomustaður íslenskra
og erlendra skipa enda er höfninni
haganlega fyrirkomið, bæði af nátt-
úrunnar hendi og ekki síst af manna-
völdum en þjónusta við höfnina hefur
verið byggð markvisst upp, þar er
m.a. að finna bestu aðstöðu fyrir
smábáta á landinu, enda er Hafnar-
fjörður einn af stærstu útgerðar- og
sjávarútvegsstöðum landsins.
Már segir að áhersla sé lögð á að
kynna alla sjávarútvegstengda starf-
semi í Hafnarfirði en auk hennar sé
mikið um almenna þjónustu í Hafnar-
firði, sem sjófarendur geti nýtt sér.
Flotkvíin bylting
Þjónustuþáttum við Hafnarfjarð-
arhöfn hefur fjölgað jafnt og þétt
síðustu ár. Þar er nú umfangsmikil
löndunar- og flutningsþjónusta og
boðið upp á geymslu á flestum teg-
undum vara, hvort sem er um frosn-
ar, þurrar eða biautar vörur að ræða.
Þá er viðhaldsþjónusta við höfnina
viðamikil og nú síðast bættist þar
við 3.000 tonna flotkví sem Már seg-
ir að sé tvímælalaust bylting í allri
þjónustu við skip þegar vinna þurfi
við þau á þurru og mengunarhætta
hverfandi. Þá er einnig rekinn nýupp-
gerður slippur í Hafnarfírði.
„Líður vel í Hafnarfirði"
í Hafnarfirði eru tveir fískmark-
aðir, Fiskmarkaðurinn hf. og Faxa-
markaður hf., auk þess sem þar eru
starfrækt bæði saltsölufyrirtæki
landsins. Þá er í Hafnarfirði Fisk-
vinnsluskólinn, auk fjöldamargra ann-
arra fyrirtækja sem bjóða fjölbreytta
þjónustu fyrir allt tengt sjávarútvegi.
„Við teljum að viðskiptavinum okkar
líði vel hér í Hafnarfirði á meðan þjón-
ustan er veitt, skammt er til flug-
valla, bæði til innan- og utanlands-
flugs þegar þörf er á. Hafnarfjarðar-
höfn hefur á sér góða ímynd og með
þessari kynningu okkar er ætlunin
að viðhalda henni,“ segir Már.
Taka þátt í uppbyggingu
fiskimjölsverksmiðjanna
VÉLBONAÐUR fyrir skip og
tæknibúnaður til framleiðslu
fiskimjöls er áberandi á sýn-
ingarbás Héðins Smiðju hf.,
sem hefur lengi verið í farar-
broddi íslenskra fyrirtækja í
smíði og sölu á vélbúnaði fyrir
sjávarútveg. Guðmundur Sveinsson, framkvæmdastjóri Héðins Smiðju hf.,
segir að fyrirtækið muni þó einkum kynna sig sem þjónustufyrirtæki á
sýningunni.
Héðinn Smiðja hf.
þjónustar flest
svið sjávarútvegsins
Héðinn Smiðja hf. leggur einkum
áherslu á tvö svið á sýningunni þetta
árið. Veruleg áhersia er lögð á að
kynna búnað sem Héðinn Smiðja
hf. hefur að undanförnu sett upp
fyrir fiskimjölsverksmiðjur víðsveg-
ar um landið og segir Guðmundur
að sérstaklega verði kynnt tvö verk-
efni sem fyrirtækið stendur í þessa
dagana. „Við erum aðalverktakar í
uppsetningu búnaðar til framleiðslu
á fiskimjöii í fiskimjölsverksmiðju
Haralds Böðvarssonar hf. á Akra-
nesi og leggjum þar til allan búnað
og tæknivinnu. Þá verður einnig
kynnt nýbygging fiskimjölsverk-
smiðju Faxamjöls hf. í Reykjavík en
þar munum við sjá um alla uppbygg-
ingu frá a-ö, og njótum þar stuðn-
ings frá erlendu fyrirtæki, STORD
International," segir Guðmundur.
Vélbúnaður fyrir skip
Ennfremur verður sýndur og
kynntur vélbúnaður sem Héðinn
Smiðja framleiðir og selur og segir
Guðmundur að í því sambandi verði
einkum byggt á búnaði frá eigin
versktæði en Héðinn Smiðja hf. er
einnig umboðsaðili fyrir norska fyr-
irtækið Ulstein, sem hefur skapað
sér mjög sterka stöðu í skipaflota
margra landa enda sérhæfir það sig
í ýmsum búnaði fyrir flestar gerðir
skipa.
Fjölmörg undirfyrlrtæki
Á meðal undirfyritækja Ulstein,
sem kynnt verða á sýningunni, er
Bergen Diesel, sem að sögn Guð-
mundar hefur verið framarlega í
framleiðslu á vélum og vélbúnaði
fyrir skip. Þá verða sömuleiðis sýnd
togspil og búnaður þeim tengdur frá
Ulstein Brattvaag sem er í mörgum
íslenskum skipum, gírar og skrúfur
frá Ulstein Propeller og ennfremur
framleiðir UME, Ulstein Marine
Eletronics, ýmiss konar viðvörunar-
og stjórnbúnað fyrir skip.
E-94
E-94
Við, erum í bás E-94 á sjávarútvegssýningunni.
GSM sími 892 8730
Ver ehf.
Sími: 431 1111
Fax: 431 1010
Ymuiden Stores Holiand b.v.
Tel: -31 2555 19122
Fax: -31 2555 31716