Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 40
40 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ Dýraglens Ljóska b •Hvt, þú hefur-e&ái- seairoú) scigtmemeiraf þai? ) kjexftasðgur í enargctr / Nu þuA hefar c. fjefio mkrtoxfft oqfcffkut ” o mctrqar viKur .__-y Ferdinand Smáfólk BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 5691100 • Símbréf 5691329 • Netfang: lauga@mbl.is Þröngsýni ráðamanna Frá Arnijóti Bjarka Bergssyni: ÞAÐ var vissulega veigamikill veg- tylla fyrir Finn Ingólfsson að ná því langþráða takmarki, þeirra sem setið hafa í ráðherrastóli iðnaðarráðu- neytisins síðustu árin, að skrifa undir samninga sem fólu í sér stækkun álvers- ins í Straumsvík. Því verður að minnsta kosti seint neitað. Ekki lítur út fyrir að það eitt nægi Finni fullkom- lega til að sitja sáttur með sitt það sem eftir lifir af kjörtímabilinu. Eins og allir vita eru viðræður íslenskra aðila við Columb- ia álfyrirtækið í fullum gangi. Fyrir skemmstu lak sú staðreynd út úr samningaherberginu að Reyðarfjörð- ur væri ekki lengur inni í myndinni sem umhverfí nýs álvers og í næstsíð- asta tölublaði Dags kom fram að hefðbundin stóriðja henti ekki Eyja- fírði að mati Finns. Eru því einungis Grundartangi og Straumsvík hentug fyrir álver. Það gengur ekki upp að troða öll- um eggjunum í sömu körfuna enda- laust. Dreifa verður áhættunni. ís- lenskt efnahagslíf er fábreytt og nánast alfarið háð stærð fiskistofn- anna. Trygging íslensks efnahagslífs út um land allt, ekki eingöngu á suðvesturhorninu, er fólgin í meiri fjölbreytni alls staðar. Fjölbreytni atvinnulífsins felst ekki í því að hólfa landið niður og koma með skipun úr skrifstofubyggingu að sunnan þess efnis að í þessu sveitarfélagi megi einungis framleiða lambakótil- ettur og í því næsta lambalæri. Vissulega er það virðingarvert að Finnur hafí skilning á því að málm- bræðsla sé hvorki heppilegur ná- granni kjötvinnslu né frystihúss- reksturs. Við lifum á 20. öldinni og getum því engan veginn sætt okkur við það að örlög og afdrif fólksins í landinu séu jafn nátengd stærð físki- stofnanna og raun ber vitni. Þó að þeir virðist vera í vexti þessa stund- ina þá getur aflinn brugðist líkt og hefur sýnt sig. íslendingar áttu erf- itt með að sætta sig við orðinn hlut og tóku til sinna ráða til að fást við vandann er við áttum í erfiðleikum og höfðu þeir skilning ráðamanna þjóðarinnar fyrir mikilvægi fjöl- breytts atvinnulífs. Nú virðast hins vegar, með vaxandi fiskistofnum, ráðamenn búnir að gleyma því að fjöl- breytni er það sem þarf alls staðar. Þegar viðræður við Atlantál-hóp- inn stóðu sem hæst þá var hafís fyr- ir Norðurlandi eyfírsku álveri fjötur um fót en nú er það matvælaiðnaður- inn. Þess ber að geta að Þorvaldur Guðmundsson „skattakóngur ís- lands“ rekur svínabú á Keilisnesi ein- mitt þar sem til stóð að reisa marg- nefnt Atlantálsálver. Það virðist lítið mál að fólk búi í kílónietra fjarlægð frá álverinu í Straumsvík, en ekki má framleiða matvæli til útflutnings í nágrenni hugsanlegs álvers í Eyja- fírði. Þröskuldur Reyðfírðinga var fámenni þá, en nú eru það loðnu- vinnslur í Neskaupstað og Fáskrúðs- fírði. Við getum ekki einblínt á álver sem eina iðnaðinn sem hægt er að reka í landinu, það eru margir aðrir kostir í stöðunni. Athuga ber hvort ekki sé grundvöllur fyrir iðnaði sem samræmist matvælavinnslu sem fyrir er í landinu. Ef svona vinnubrögð, líkt og að láta íbúa Faxaflóasvæðisins vera eina um stóriðjuhituna, verða viðhöfð fram á 21. öldina er fátt því til fyrir- stöðu, að landsbyggðarfólk hætti að bera lágmarksvirðingu fyrir stjóm- völdum og þau missi trúnað þess. Líkt og Rasmus Christian Rask bjargaði íslenskunni virðist þurfa útlendinga til að bjarga landsbyggð- inni, byggðaþróun í landinu og réttl- átri dreifmgu atvinnulífs ef marka má síðustu atburði. ARNLJÓTUR BJARKI BERGSSON stjómarmaður í Verði FUS, Akureyri. Arnljótur Bjarki Bergsson Hvað skal segja? 20 Væri rétt að segja: Breytingarnar ullu vandræðum? Rétt væri: Breytingarnar ollu vandræðum. Gætum þess, að ollu er af sögninni að valda, en ullu er af sögninni að vella. Upp með þig! Smell-skell! Tala þú við hann! Hann Voff! í gegnum körfuna! upp! hlustar aldrei á mig! upp! Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt f upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi. r Gœðavara Gjafavara - maldi oq kdííislcll. Allir vcröllokkar. verslunin Lnugavegi 52, s. 562 4244. HeimsriíPQii liönnuðir m.a. Gidirni Versacc.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.