Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Nýtt skólahús, Hólar, tekið í notkun við setningu Menntaskólans á Akureyri Kennslurými tvöfaldast við stækkunina SR. BOLLI Gústavsson vígslubiskup á Hólum blessaði hið nýja skólahús MA, Hóla. NÝTT skólahús, Hólar, var tekið i notkun við setningu Menntaskól- ans á Akureyri á sunnudag, en með tilkomu þess tvöfaldast kennslurými skólans. „Nafnið Hólar er gefið til þess að minna á upphaf skólans, en Menntaskólinn á Akureyri rekur sögu sína til hins forna dómskóla á hinu forna biskupssetri á Hólum í Hjaltadal sem stofnaður var í upphafi biskupstíðar Jóns biskups helga Ögmundssonar árið 1106,“ sagði Tryggvi Gíslason skóla- meistari við setningu skólans. Kennslurými tvöfaldast Nýbyggingin er um 3.000 fer- metrar að stærð með geymslum. Í húsinu eru 9 vel búnar kennslu- stofur, bókasafn með lestrarað- stöðu fyrir um 80 nemendur, sal- ur sem rúmar alla nemendur skól- ans en hann verður einnig notað- ur til kennslu, skemmtana- og fyrirlestrahalds. Þá eru í húsinu skrifstofur og vinnuherbergi kennara. Fyrsta skóflustungan að nýbyggingunni Hólum var tek- in 17. júní 1994 þannig að húsið hefur aðeins verið tvö ár í bygg- ingu. Upphaflega átti að ljúka framkvæmdum á þremur árum en Héraðsnefnd Eyjafjarðar heimilaði að verkinu yrði lokið á skemmri tíma. Arkitektar hússins eru þeir Gísli Kristinsson og Páll Tómasson en SS-Byggir sá um byggingu þess. Byggingarkostn- aður er um 300 milljónir króna að meðtöldum búnaði og frágeng- inni lóð. Hérðaðsnefnd Eyjafjarð- ar greiðir 40% kostnaðar og ríkis- sjóður 60%. í vetur eru skráðir um 600 nem- endur í skólann, þar af tæplega 200 nýnemar á fyrsta ári. „Er í þeim hópi mikið af áhugasömum og hæfum nemendum og er mér til efs að nokkru sinni áður hafí jafn stór hópur af góðum nemend- um innritast í skólann. Bind ég miklar vonir við þennan nýja hóp nemenda," sagði Tryggvi. Fram kom í máli skólameistara að Menntaskólinn á Akureyri hefði viljað muna sögu sína og skólinn lagt rækt við sögu og menningu þjóðarinnar. Jafnframt því að leggja rækt við gamalt hafí skólinn Morgunblaðið/Golli KENNSLURÝMI Menntaskólans á Akureyri tvöfaldaðist þegar nýtt skólahús, Hólar, var tekið í notkun. Á myndinni eru skólabyggingar MA, Gamli skóli, þá „fjósið“ eins og leikfimihúsið er nefnt og Möðruvellir, raunvísindahús skólans. Efst er heimavistin, en nýja skólahúsið, sem stendur að hluta í Stefánslundi, er þar fyrir neðan. ## Morgunblaðið/Orri Gautur AÐALBJÖRG Halldórsdóttir og Sigurður Guðmundsson gáfu bókasafni MA Ijóðabókasafn sitt, á þriðja þúsund bindi og tók dóttir þeirra, Ragnheiður bókavörður á safninu, við gjöfinni. horft fram á veginn og rutt nýjar brautir og barist fyrir framförum í skóla- og menntamálum sem fjöl- mennasti heimavistarskóli lands- ins. „En skólinn hefur fylgst með í straumi lífsins. Þótt hann virði fornar dyggðir er hann ekki gamaldags og afturhaldssamur fornaldarskóli heldur framsækin menntastofnun sem hefur það meginmarkmið að búa nemendur sína undir framtíðarnám í há- skóla.“ Tímabært að bæta húsakostinn Við setningu Menntaskólans á Akureyri flutti Knútur Otterstedt, formaður bygginganefndar, ávarp og rakti m.a. byggingarsögu Hóla. Bjöm Bjarnason menntamálaráð- herra flutti einnig ávarp og sagði m.a. að sannarlega hefði verið tímabært að bæta húsakost skól- ans, „sem útskrifar framúrskar- andi stúdenta eins og meðal ann- ars má sjá í skýrslum Háskóla íslands um árangur í einstökum deildum hans.“ Nefndi ráðherra að á Norður- landi væru fímm framhaldsskólar, bændaskóli á Hólum og háskóli á Akureyri. „Hefur ríkisstjórnin þann ásetning að treysta undir- stöður þessa skólastarfs eftir því sem efni leyfa,“ sagði hann. „Menntaskólinn á Akureyri er í hópi þeirra sem hafa áunnið sér traustan sess. Innan hans hefur tekist að sameina hæfílega íhalds- semi og skynsamleg viðbröð við samtímakröfum." Gat Björn þess að byggingar- sögu skólans væri ekki lokið þó tekið hefði verið í notkun nýtt og glæsilegt hús því áform væru upp um að bæta við heimavist skólans. Víða um land vildu skólastjórnend; ur ráðast í slíkar framkvæmdir. I nýjum framhaldsskólalögum væri mælt fyrir um skiptingu bygging- arkostnaðar heimavista milli ríkis og sveitarfélaga. „Ég tel að skoða verði þetta mál í heild í samvinnu við þá sem sinna ferðaþjónustu og samtök framhaldsskólanema." Við blasti að ekki ríkti jafnræði meðal þessara nemenda að því er heimavistir varðar og ljármögnun þeirra úr opinberum byggingar- sjóðum. „Ég vil beita mér fyrir því að menn nálgist þetta við- fangsefni úr nýrri átt til að skapa því sjálfbæran grundvöll, ef ég má orða það svo,“ sagði mennta- málaráðherra og benti m.a. á Fé- lagsstofnun stúdenta sem æski- lega fyrirmynd, kanna bæri hvort unnt væri að koma á fót svipaðri stofnun á landsvísu fyrir alla fram- haldsskólanema. Sr. Bolli Gústavsson, vígslubisk- up á Hólum, blessaði húsið. Höfðingleg gjöf Við lok athafnarinnar tilkynntu hjónin sr. Sigurður Guðmundsson, fyrrverandi vígslubiskup, og eigin- kona hans, frú Aðalbjörg Halldórs- dóttir, að þau hefðu ákveðið að gefa bókasafni Menntaskólans á Akureyri ljóðasafn sitt sem nú er nokkuð á þriðja þúsund bóka. Sagði Sigurður að hann hefði allt frá æsku litið upp til Menntaskól- ans á Akureyri, hann væri þakk- látur fyrir að hafa stunda þar nám og hefði alltaf haldið nokkrum tengslum við skólann. Hann hefði í áratugi safnað bókum, ljóðabók- um sérstaklega, og væru þær flestar í góðu bandi. í safni þeirra hjóna er að fínna nær allar frumút- gáfur góðskáldanna, elstu bæk- urnar eru frá 18. öld og þær nýj- ustu eru frá þessu ári. „Safnið er okkur kært. Þegar við ræddum hvað yrði um það þegar við værum öll kom okkur saman um að best væri það komið á bókasafni MA. Þar vonum við að það komi að notum komandi kynslóðum nem- enda til gagns og gleði.“ Náttúrufræðistofnun, veiðistjóri og skrifstofa CAFF Undir sama þak í Krónunni ÞRJÁR stofnanir hafa tekið til starfa undir sama þaki í nýju húsi í Hafnar- stræti, svokallaðri Krónu í miðbæ Akureyrar, en húsnæðið var form- lega tekið í notkun á sunnudag. Um er að ræða Akureyrarsetur Náttúru- fræðistofnunar íslands, embætti veiðistjóra og skrifstofu CAFF, Con- versation of Flora and Fauna. Mikils vænst af starfseminni Á efstu hæð hússins, þeirri 6. er embætti veiðistjóra til húsa og einnig skrifstofur Akureyrarseturs Náttúrufræðistofnunar en alls er hæðin um 440 fermetrar að stærð. Á næstu hæð fyrir neðan er skrif- stofa CAFF, bókasafn og fundarsal- ur auk þess sem þar er innangengt í Heilsugæslustöðina á Akureyri sem er í næsta húsi norðan við og þá gefst bæjarbúum kostur á að fara með lyftu af neðstu hæðinni, upp á svonefnt Skessunef við Gils- bakkaveg og Oddagötu en á 5. hæðinni er nokkurs konar göngu- gata gegnum húsið og út. Á 4. hæð Krónunnar hefur verið komið upp vinnuaðstöðu náttúrufræðinga en þar er nú unnið af kappi við að innrétta nýjan sýningarsal fyrir Náttúrugripasafnið á Akureyri. Guðmundur Bjarnason umhverf- isráðherra tók húsnæðið í notkun, en auk hans fluttu ávörp þeir Jón Gunnar Ottósson, forstöðumaður Náttúrfræðistofnunar íslands, Hörður Kristinsson, forstöðumaður Akureyrarsetursins, sem rakti sögu stofnunarinnar, Helgi Hallgríms- son, fyrrverandi forstöðumaður þess, Ásbjörn Dagbjartsson veiði- stjóri, Snorri Baldursson, forstöðu- maður skrifstofu CAFF, og Hjör- leifur Guttormsson alþingismaður. Luku menn lofsorði á rúmgóð og glæsileg húsakynni og væntu mik- ils af starfsemi þeirra stofnana sem nú hafa flutt sig undir sama þak í Krónunni. FORSTÖÐUMENN stofnananna þriggja, Hörður Kristinsson á harmoníkunni, Ásbjörn Dagbjartsson og Snorri Baldursson tóku lagið í gleði sinni yfir hinu nýja húsnæði sem stofnanirnar eru fluttar í. I i I i » ; ( E 1 < , , {

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.