Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ l ÚR VERIINIU „Besta sýningin til þessa“ FJÖLDI _ DANSKRA fyrirtækja tók átt í íslensku sjávarútvegssýn- ingunni að þessu sinni og var Jan Fiirst Andersen, framkvæmda- stjóri útflutningsráðs Danmerkur, ánægður með sýninguna fyrir hönd landa sinna. Danir hafa tekið þátt í íslensku sjávarútvegssýningunni frá upp- hafi og alls sýndu 30 dönsk fyrir- tæki á sýningunni nú, allt sem viðkemur sjávarútvegi, bæði til veiða og vinnslu. „Þessi sýning er tvímælalaust sú stærsta og besta hér á landi til þessa. Fjöldi er- lendra gesta hefur einnig aukist til muna og það segir okkur að sýningin hefur skipað sér í hóp mikilvægustu sjávarútvegssýn- inga í heiminum," segir Jan Fúrst. Forsetinn talar góða dönsku Jan Fúrst segir skipulag sýning- arinnar hafa verið til fyrirmyndar og sérstaklega ánægjulegt að sjá hve margir gestir komi og skoði sem í boði sé. Hann segir dönsk fyrirtæki hafa vakið talsverða at- hygli sýningargesta. „Það hafa alltaf verið ákveðin tengsl á milli íslands og Danmerk- ur, bæði í sögulegu og viðskipta- legu samhengi. Það var sérstak- lega gaman fyrir okkur að hitta nýkjörinn forseta ykkar, Ólaf Ragnar Grímsson, sem talar sér- lega góða dönsku, líkt og forver- inn, frú Vigdís Finnbogadóttir, sem hefur verið við opnun síðustu sýninga.“ segir Jan Fúrst. AÐSÓKN að íslenzku sjávarút- vegssýningunni varð meiri en nokkru sinni áður. Alls komu nú 14.656 gestir á sýninguna, þar af rúmlega 5.000 á síðasta sýningar- deginum á laugardag. Erlendir gestir voru 630, en voru 428 á síð- ustu sýniningu og innlendum gest- um fjölgaði um 20%, þrátt fyrir að sýningardagar væru aðeins fjór- ir nú en fimm fyrir þremur árum. MIKIL örtröð var við sýningarsvæðið síðasta dag sýningarinnar. Aðsóknin aldrei meiri John Legate, stjórnandi sýn- ingarinnar, segir að sýningin hafi tekizt enn betur en stjórn- endur hennar og sýnendur hefðu þorað að vona. „Við erum mjög ánægð með ganga mála og sýn- endur eru það einnig, því þeir eru þegar farnir að tala um að taka frá pláss á næstu sýningu eftir þrjú ár. Það var ennfremur athyglis- vert frá hve mörgum löndum og hve fjarlægum hinir erlendu gest- ir voru. Alls komu þeir frá 32 Morgunblaðið/RAX löndum, meðal annars Litháen, Eistlandi, Tékklandi, Suður-Afr- íku og Sádí-Arabíu. Vöxtur þessarar sýningar hef- ur verið nær stöðugur frá upp- hafi hennar. Haldi svo fram sem horfir, verðum við að auka pláss- ið enn meira fyrir næstu sýningu, líklega með enn einum sýningar- skála eða sérstöku veitingatjaldi," segir John Legate. i í I I t Sjómenn á Flæmska hattinum Oheyrileg verðlagn- ing Pósts og síma ISLENZKIR sjómenn á skipum á Flæmska hattinum eru mjög óánægðir með verðlagningu Pósts og síma á símtölum milli rækjumið- anna og íslands. Þeir hafa sent for- ystumönnum hagsmunasamtaka sinna skeyti og fara þeir fram á aðstoð þeirra við að fá verðlækkum á símtölum um stuttbylgju. Fer skeyti þeirra hér á eftir: „Á þessu ári hafa íslenzkir sjó- menn stundað úthafsveiðar í miklum mæli. Fjöldi þeirra er fjölskyldumenn og er eina leiðin fyrir þá að hafa samband heim í gegn um stuttbylgju- samband við strandstöðvar Pósts og síma. Verðlagning Póst og síma á þessari þjónustu er óheyrilega há og má spyija hvers vegna það er álíka dýrt að tala um talstöð við strand- stöðvar Pósts og síma - oft er sam- bandið mjög slæmt - sem aðeins af- greiðir innanlandssímtal eins og kostar að tala frá íslandi til Banda- ríkjanna. Einnig má benda á mis- ræmi milli taxta eftir því hvernig radíósamband er notað. Það er ein- dregin ósk okkar sjómanna að þú beitir þínum áhrifum svo þetta verði lagað mjög fljótlega." Skeytið er sent formönnum Sjó- mannasambands íslands, Vélstjóra- félags íslands og Farmanna og fiski- mannasambands íslands. fJP&' ^ H |' i 1 A | !»[!■ ® | f* : «íJp! Kanadísku einingahúsin frá Fermco Upplýsingar í síma 562 6580 SÝNINGARBÁS Netagerðarinnar Ingólfs og samstarfsfyrirtækja á íslenzku sjávarútvegssýning- unni. Poul Törring frá Utzon í Danmörku, Birkir Agnarsson, framkvæmdastjóri Ingólfs, Per Niels- en frá Randes í Danmörku og Alexander Matthíasson frá Netagerðinni Ingólfi. Selt fyrir 7 0 milljónir króna NETAGERÐIN Ingólfur gekk frá samningi við Samheija á Akureyri og þýzka fyrirtæki DFFU, sem Samheiji á meirihluta í, um sölu á sjö trollum og tveimur tog- hlerapörum. Andvirði samningsins er um 70 milljónir króna. Trollin eru frá írsku netagerðinni Swan Net, en hönnuð í samráði við Þor- stein Vilhelmsson, einn eigenda Samheija og Birki Agnarsson, framkvæmdastjóra Ingólfs. Trollin eru að hluta til sett upp hjá Ing- ólfi í Vestmannaeyjum. Toghler- arnir eru frá danska fyrirtækinu Perfect. Birkir Agnarsson, fram- kvæmdastjóri Netagerðarinnar Ingólfs er að vonum ánægður með árangurinn. „Við erum mjög ánægðir með að hafa náð að selja sjö troll í einu til öflugasta útgerð- arfélags landsins. Við fundum einnig fyrir miklum meðbyr á sýn- ingunni og fengum fjölda fyrir- spuma frá öðrum útgerðum. Þá má reyndar ekki gleyma því að þessi troll hafa að miklu leyti ver- ið þróuð í samvinnu við Samheija og skipstjórana á Akureyrinni, Sturlu Einarsson og Árna Bjarna- son, sem báðir hafa náð glæsileg- um árangri með trollin frá Swan Net. Við sjáum því fram á enn meiri sölu trolla frá Swan Net til íslands á næstu misserum. Þarna er um að ræða flottroll fyrir karfa, en við höfum einnig verið að selja flottroll til veið á síld og loðnu og þau hafa reynzt mjög vel,“ segir Birkir Agnarsson. Þorsteinn Vilhelmsson segist einnig mjög ánægður með trollin frá Swan Net og viðskiptin við Netagerðina Ingólf. „Skipin hafa verið að fiska mjög vel í þessi troll, sérstaklega Akureyrin og þess vegna erum við að kaupa þau. Við höfum trú á þessum veiðarfærum, sem eru vönduð og hafa reynzt vel,“ segir Þorsteinn Vilhelmsson. i L i I I i í I I I I-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.