Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 24.09.1996, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. SEPTEMBER 1996 21 ERLENT Sósíalistinn Simitis sigraði örugglega í Grikklandi Boðar aðhaldsstefnu og einkavæðingn Aþenu. Reuter. Reuter COSTAS Simitis, forsætisráðherra Grikklands og leiðtogi flokks sósíalista (PASOK), fagnar sigri og veifar til stuðningsmanna. COSTAS Simitis, forstisráðherra Grikklands og leiðtogi sósíalista, sigraði í þingkosningunum á sunnu- adg og fékk flokkurinn hreinan meirihluta þingsæta. Ráðherrann sagði sigurinn vera allra þeirra sem tryðu því að efnahagslíf landsmanna gæti orðið samkeppnishæft á næstu öld og myndi hann skýra frá ráð- herralista sínum á næstu dögum. I kosningabaráttunni boðaði Sim- itis m.a. einkavæðingu lítilla banka og aukið fijálsræði á fjármálamörk- uðum en aðaláhersla hans hefur ver- ið á aðhald, bætta efnahagsstjórn og skattheimtu, vinnusemi og að- gerðir gegn bruðli með opinbert fé sem stjórnmálamenn hafa notað til að múta kjósendum. Hafa Grikkir lengi verið taldir vandræðabarnið í Evrópusambandinu vegna óreiðu í efnahagsmálum og ekki síður vegna utanrikisstefnu sem þykir taka lítið mið af heildarhagsmunum ESB. Lokatölur verða birtar í dag en er búið var að telja 99,6% atkvæða var sósíalistaflokkur Simitis, PA- SOK, með 41,5% og 162 þingsæti, næstur var Nýtt lýðræði sem er hægriflokkur undir forystu Miltiades Everts, með 38,1% og 108 sæti, þrír aðrir flokkar hlutu einnig þingsæti. Evert sagði þegar af sér leiðtoga- embættinu eftir ósigurinn. Kannanir síðustu daga gáfu til kynna að stóru flokkarnir tveir stæðu jafnt að vígi og smáflokkar væru að sækja í sig veðrið. Getur því Simitis, sem er sextugur, vel við unað en hann tók við völdum er Andreas Papandreou heitinn varð að hætta sökum veikinda í janúar. Stjórnmálaskýrendur segja að með sigrinum hafi Simitis styrkt mjög stöðu sína og séu vart líkur á öflugri andspyrnu við hann í flokkn- um á næstunni. Hann sé líklegur til að fylgja enn fastar eftir aðhalds- stefnu sinni í efnahagsmálum og breytingum í anda markaðshyggju. Óðaverðbólga hefur minnkað hratt og mældist hraði hennar 8,5% í liðn- um mánuði en ljóst að Grikkir verða að grípa til harkalegra ráðstafana til að draga úr halla á fjárlögum og minnka ríkisskuldir. Búist er við að ráðherrar efna- hags- og fjármála haldi báðir stöðum sínum en líklegt að George Pap- andreou, sonur leiðtogans látna, verði utanríkisráðherra í stað The- odoros Pangalos. Pangalos hefur móðgað ýmsa af helstu bandamönn- um Grikkja með hvatskeytislegum ummæium en Simitis hefur sýnt mikia þolinmæði við að bæta sam- skiptin við önnur ríki Evrópusam- bandsins og Bandaríkin. Þessi samkipti voru oft siæm í valdatíð fyrirennara Simitis er var herskár og róttækur vinstrimaður. Gerassimos Arsenis varnarmála- ráðherra, önnur leif frá valdaskeiði Papandreous eldri, er einnig líklegur til að missa embætti sitt en hann vill fá um 660 milljarða króna til að efla herinn. Duglegur og laginn Papandreou þótti afar litríkur stjórnmálaleiðtogi og höfðaði hann óspart til tilfinninga kjósenda. Var hann að mörgu leyti fyrirmynd hægrimannsins Everts sem er einnig ákafur þjóðernissinni í utanríkismál- um en Simitis, sem er dagfarsprúður og mörgum finnst of hlédrægur og jafnvel þurrlegur, er hins vegar ein- dreginn Evrópusambandsmaður. Simitis stundaði á sínum tíma nám í lögfræði og hagfræði í Englandi og Þýskalandi. Samstarfsmenn hans segja hann einstaklega duglegan og laginn stjórnmálamann sem sé stað- ráðinn í að gera Grikkland að nú- tímaríki. Ljóst þykir að erfiðasti and- stæðingur hans geti orðið stéttarfé- lögin sem ekki séu líkleg til að sætta sig við róttækar aðhaldsaðgerðir í efnahagsmálum tii lengdar. Hafna skýringu N-Kóreu Stokkhólmi, Seoul. Reuter. WILLIAM Perry, varnarmála- ráðherra Bandaríkjanna, vís- aði í gær á bug veikburða til- raun stjórnvaida í Norður- Kóreu til þess að láta líta út fyrir að kafbáturinn er strand- aði við Kangnung í Suður- Kóreu í byijun síðustu viku, hafi verið við æfingar á alþjóða siglingaleið er hann bilaði og rak upp í fjöru. „Allar okkar upplýsingar benda tii þess að norður-kór- eski kafbáturinn hafi ekki ver- ið á venjulegri siglingu. Þess vegna vísa ég útskýringum Norður-Kóreumanna á bug,“ sagði Perry. Kafbáturinn strandaði sl. miðvikudag en það var ekki fyrr en í gær, að fyrst var fjall- að um atvikið í Norður-Kóreu og fyrstu viðbrögð heyrðust. Þar var þvi haldið fram, að kafbáturinn hefði verið á venju- legri æfingaferð er hann varð stjórnlaus vegna vélarbilunar og rak upp í fjöru við Kangn- ung. Um borð hefðu einungis verið nokkrar byssur. Þessu vísuðu yfírvöld í Seo- ul, höfuðborg Suður-Kóreu, á bug og sögðu um hreina hern- aðarlega ögrun hafa verið að ræða af hálfu Norðanmanna. Um borð hefði m.a. verið flug- skeytaskotpallur. 111 Eftirtaldir aðilar, sem allir hafa aðsetur í Hallgrímskirkju, fá á morgun miðvikudag ný síma- og faxnúmer. Vinsamlega athugið að númerin eru ekki í símaskrá. Geymið auglýsinguna |fi Hallgrímskirkj a i; L Nýtt símanúmer 510-1000 Jjí,|t nýtt faxnúmer 510-1010 Hið íslenska Biblíufélag nýtt símanúmer 510-1040 nýtt faxnúmer 510-1045 Reykjavíkurprófastsdæmi vestra nýtt símanúmer 510-1030 nýtt faxnúmer 510-1001 Æskulýðssamband kirkjunnar í Reykj avíkurprófastsdæmum (Æ. S.K. R.) nýtt símanúmer 510-1030 beint innval 510-1033 nýtt faxnúmer 510-1001

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.