Morgunblaðið - 28.09.1996, Síða 2
2 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Forstjóri Columbia Ventures er bjartsýnn á fjármögnun álvers
Islenskar fjármálastofn-
anir sýna verkinu áhuga
ÍSLENSKAR fjármálastofnanir hafa sýnt nýju
álveri áhuga að sögn Kenneths Petersons, for-
stjóra og eiganda Columbia Ventures Corporation.
Peterson segir að náist samningar um alla
þætti varðandi byggingu álvers fyrirtækisins og
sýnt verði fram á að það sé arðvænlegt á íslandi
verði það byggt hér á landi. Hann segist einbeita
sér að íslandi og viðræður við Venezuela liggi
niðri á meðan. Hann segist bjartsýnn á að hag-
stæðir samningar náist við flármálastofnanir um
fjármögnun framkvæmda.
Peterson er hér á landi til að ræða nánar um
ýmis atriði tengd raforkusamningnum, skatta-
mál, hafnaraðstöðu og fleiri atriði varðandi að-
stöðuna á Grundartanga. Hann fer til London á
sunnudag til áframhaldandi viðræðna við þá sem
sýnt hafa áhuga á að fjármagna byggingu ál-
vers. Hann sagði við Morgunblaðið að hann
kæmi til með að búa í London fram til áramóta
eða þangað til sæi fyrir endann á samningagerð
um öll atriði málsins. Hann sæi því fram á að
koma til íslands nokkrum sinnum á næstu mán-
uðum.
Peterson sagðist ekki telja að fjármögnun verk-
efnisins kæmi til með að verða vandamál þegar
búið væri að ná samningum um alla aðra þætti
málsins. „Þetta er stórt verkefni og það verður
að ná saman um alla þætti þess. Bankar hafa
sýnt byggingu álversins áhuga, einnig ijármála-
stofnanir á Islandi, sem þó hafa ekki komið nærri
svona verkefni áður. Það fer gott orð af Islandi
á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði svo ég er bjart-
sýnn.“
Hefur það áhrif á fjármögnunina að Columbia
Ventures er ekki mjög stórt fyrirtæki og á ekki
önnur starfandi álver í dag?
„Þetta gerir fjármögnunina hugsanlega eitt-
hvað erfiðari fyrir okkur. Þeir sem eru smærri á
markaðinum verða alltaf að leggja harðar að sér.
Smærri fyrirtæki eru hins vegar oft sveigjanlegri
og fijórri en þau stóru. Þetta hefur því einnig
sína kosti.“
Álverð hefur lækkað umtalsvert síðustu miss-
eri og er núna um 1.400 dollarar tonnið sem er
lægsta verð sem sést hefur í tvö ár. Hefur þetta
áhrif á framgang málsins?
„Ég tel að þróun álverðs síðustu mánuðina
skipti ekki máli varðandi framgangs verkefnis-
ins. Verði hins vegar hrun á álmörkuðum myndi
það að sjálfsögðu skapa vandamál, en þá yrðu
álfyrirtæki um allan heim einnig í vanda. Áliðn-
aður er sveiflukenndur atvinnuvegur. Allir sem
hafa lágmarksþekkingu á áliðnaði vita að álverð
fer upp og niður. Það eina sem er öruggt er að
verðið er ekki stöðugt. Við einbeitum okkur ekki
að því sem gerist á næstu þremur mánuðum
heldur því sem gerist á næstu 40 árum. Hvað
gerist tiltekinn dag eða í tilteknum mánuði skipt-
ir ekki máli.“
Einbeitum okkur að íslandi
Átt þú í viðræðum við Venezuela eða önnur
lönd um byggingu álvers samhliða viðræðum við
íslendinga?
„Við einbeitum okkur að íslandi núna. Það
þýðir ekki að við höfum sagt við fulltrúa Venez-
uela: „Við höfum slitið viðræðum og munum aldr-
ei ræða við ykkur framar." Við beinum öllum
kröftum okkar að íslandi þessa stundina. Ef við
getum búið til á íslandi lífvænlegt og arðbært
fyrirtæki sem hægt er að fjármagna gerum við
ráð fyrir að reisa það hér á landi.“
Aukið sam-
starf við
Alþjóða-
bankann
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra átti í fyrradag fundi með
forsvarsmönnum Alþjóðabankans í
Washington í Bandaríkjunum. Hann
segir að ríkisstjórn' íslands hafí
ákveðið að auka samstarf sitt við
bankann.
„Við getum meðal annars aukið
samstarf við bankann að því er varð-
ar njálparstarf í Bosníu og við rædd-
um þau mál. Það má búast við að
það samstarf muni einkum snúast um
heilbrigðismál. Bankinn mun leggja
fram fé á móti okkur inn í það sam-
starf,“ segir utanríkisráðherra.
Hann segir að einnig standi til að
auka samstarf við Alþjóðabankann
varðandi ýmis þróunarverkefni fs-
lands í Afríku, þ.e. í Namibíu, Mós-
ambík og Úganda.
Utanríkisráðuneytið tók nýlega við
fyrirsvari í málefnum Alþjóðabankans
af iðnaðar- og viðskiptaráðuneytinu.
Norðurtanginn
Tilboð frá
sumum
stærstu fyr-
irtækjunum
TILBOÐ frá sumum stærstu sjávar-
útvegsfyrirtækjum landsins bárust í
80% hlutafjár í Norðurtanganum, en
frestur til að skila inn tilboðum rann
út í gær. Að sögn Jóns Atla Krist-
jánssonar, framkvæmdastjóra Ráð-
gjafarþjónustu JAK, sem hefur um-
boð fjögurra af fimm hluthafahópum
í fyrirtækinu til að sjá um sölu á
hlut þeirra, eru tilboðin nú til skoðun-
ar hjá hluthöfum.
Jón Atli segir að hlutabréfin hafi
verið boðin fyrirtækjum, sem menn
hafí talið fyrirfram að hefðu burði til
kaupanna. „Það var beðið um tilboð
frá þessum fyrirtækjum einum og sér
og það látið þeim eftir hvort þau
fengju einhveija með sér eða ekki,“
segir hann. „Við höfum móttekið all-
nokkur tilboð og þurfum að vinna
okkar heimavinnu í framhaldi af því.“
Djassút-
varpum
Evrópu
TÓNLEIKAR Sextetts Sigurð-
ar Flosasonar á RúRek djass-
hátíðinni á Hótel Sögu í gær-
kvöldi voru sendir út beint af
um 20 útvarpsstöðvum víðs
vegar um Evrópu allt austur
til Slóveníu og Tékklands.
Fleiri útvarpsstöðvar tóku
tónleikana upp og munu senda
þá út síðar. Þetta er fyrsta
útvarpssending djasstónleika
frá Islandi og eru þetta jafn-
framt fyrstu tónleikarnir sem
sendir eru út á vegum Evrópu-
sambands útvarpsstöðva í vet-
ur. Sextettinn flutti eingöngu
frumsamið efni en hann skipa
Sigurður Flosason, sem leikur
á altsaxófón, Óskar Guðjóns-
son, tenórsaxófón, Veigar
Margeirsson, trompet, Einar
Valur Scheving, trommur,
Gunnlaugur Guðmundsson,
bassi, og Agnar Már Magnús-
son, píanó.
Morgunblaðið/Ásdís
Halldór Ásgríms-
son á þingi SÞ
Þekkingu
á auðlinda-
nýtingu
miðlað
HALLDÓR Ásgrímsson utan-
ríkisráðherra flutti í gær ræðu
á Allsheijarþingi Sameinuðu
þjóðanna í New York. Ráðherra
gerði meðal annars að umtals-
efni mikilvægi hafanna sem
uppsprettu fæðu. „íslenzkur
sjávarútvegur hefur þróað
reynslu og tækni, sem gæti
komið öðrum að notum. Ríkis-
stjóm Islands er reiðubúin að
stuðla að alþjóðlegu samstarfí
á þessu sviði," sagði Halldór.
Undanfama daga hefur ut-
anríkisráðherra átt fundi með
starfssystkinum sínum frá ýms-
um löndum. Hann átti fundi
með utanríkisráðherrum
Namibíu og Mózambík, einkum
um þróunaraðstoð íslands við
þessi ríki.
Þá ræddi Halldór við utanrík-
isráðherra Slóveníu, Króatíu og
Bosníu-Herzegóvínu um
ástandið á Balkanskaga og
framtíðarstöðu þessara ríkja í
hinum vestræna heimi. Við
þann síðastnefnda ræddi hann
einnig um aðstoð íslands við
uppbyggingu í Bosníu.
Fegurðar-
drottning*
keppir í Alb-
aníu
SÓLVEIG Lilja Guðmundsdóttir
fegurðardrottning íslands kepp-
ir í kvöld um tililinn Ungfrú
Evrópa í höfuðborg Albaníu,
Tirana. Sól-
veig sagði í
samtali við
Morgunblað-
ið í gær-
kvöldi að hún
væri bjartsýn
og á lokaæf-
ingu í gær
hefðu við-
brögð dóm-
nefndar verið mjög góð.
Keppnin fer fram í svo-
nefndri Þinghöll og eru kepp-
endur 35 talsins.
Hörð gagnrýni Ríkisendurskoðunar á Byggðastofnun
Fórnarkostnaður-
inn 8,4 milljarðar
HÖRÐ gagnrýni á starfsemi, fyrir-
greiðslu og fjárfestingar Byggða-
stofnunar á tímabilinu 1985 til 1995
er sett fram í nýrri stjórnsýsluendur-
skoðun sem Ríkisendurskoðun gerði
hjá Byggðastofnun. Er m.a. talið að
verulega skorti á að stofnunin hafí
markað skýra stefnu um hvar eigi
að styrkja byggð í landinu, af hvaða
ástæðu og með hvaða hætti. Þá eru
fjárfestingar stofnunarinnar sagðar
hafa farið langt fram úr áætlunum.
Ríkisendurskoðun lagði mat á þá
fjármuni sem veitt hefur verið til að
reka byggðastefnu þá sem Byggða-
stofnun fylgdi árin 1985 til 1995 í
formi eigin fjár og framlaga úr ríkis-
sjóði. „Sé tekið mið af meðalávöxtun
spariskírteina ríkissjóðs á nefndu
tímabili svarar fórnarkostnaður
byggðastefnunnar til tæplega 8,4
milljarða króna," segir í skýrslu Rík-
isendurskoðunar.
Egill Jónsson alþingismaður tók
við stjómarformennsku Byggða-
stofnunar á sl. ári og óskaði þá eftir
úttektinni. Hann telur margt í
skýrslu Ríkisendurskoðunar gagn-
legt fyrir Byggðastofnun. „Með þess-
ari endurskoðun er þeim tilgangi náð
sem að var stefnt, þegar ég fór fram
á þessa endurskoðun. Við fyrstu at-
hugun er margt í þessari úttekt sem
gagnlegt er að fá fram og getur
þannig orðið góð leiðsögn þegar fjall-
að er um málefni Byggðastofnunar,“
segir Egill. „Auðvitað byggist svona
skýrsla að hluta til á mati og ályktun-
um og mönnum getur sýnst sitt hvað
í þeim efnum en hins vegar eru þarna
settar fram klárar talnalegar niður-
stöður og ég tel mjög gagnlegt að
slík skýr niðurstaða sé dregin fram
í dagsljósið," segir hann.
■ Fyrirgreiðslan/6
Rætt um kaup Trygginga-
miðstöðvar á Skandia
VIÐRÆÐUR hafa farið fram um
hugsanleg kaup Tryggingamið-
stöðvarinnar hf. á Vátryggingafé-
laginu Skandia hf.
Gunnar Felixson, forstjóri TM,
staðfesti að viðræðurnar hefðu far-
ið fram en vildi að öðru leyti ekki
tjá sig um málið í gær.
Ekki náðist í Friðrik Jóhannsson,
forstjóra Skandia, í gærkvöldi.