Morgunblaðið - 28.09.1996, Side 11

Morgunblaðið - 28.09.1996, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 11 Framkvæmdaslj óri Fáfnis á Þingeyri Morgunblaðið/RAX „SUM andlitin minna á fólk, það er svo mikill sauðasvipur á mörgum," sagði Guðlaug Vagnsdóttir þegar hún leit upp frá vinnu sinni við að svíða hausa í sláturhúsinu á Þingeyri. Margt atvinnulaust fiskverkafólk hefur fengið vinnu i sláturhúsinu. Hvítur blús Aðrir réðu ferð- inni BIÐSTAÐA er hjá fiskvinnslunni Fáfni á Þingeyri eftir að ljóst varð að hún yrði ekki með í þessari umferð sameiningar sjávarútvegs- fyrirtækja vestra. Ekki er vitað hvenær vinnsia hefst á nýjan leik. Framkvæmdastjórinn segir hugs- anlegt að Fáfnir komi inn í nýja fyrirtækið á síðari stigum. Sigurður Kristjánsson, kaupfé- lagsstjóri á Þingeyri og fram- kvæmdastjóri Fáfnis, segir jákvætt að sameining þessara fjögurra fyr- irtækja sé að takast. Hann segir að það hafi ekki komið sér sérstak- lega á óvart að Fáfnir væri ekki með í sameiningunni. Alltaf hafi legið fyrir að aðrir réðu ferðinni og það væri mat stjórnenda fyrirtækj- anna að hafa þennan hátt á. Hins vegar bendir Sigurður á að Fáfnir gæti komið inn í þetta nýja fyrir- tæki á síðari stigum eða eftir að fyrirtækin fjögur sameinuðust. Stjórnendur Fáfnis hafa beðið eftir niðurstöðum sameiningarvið- ræðnanna með ákvarðanir um framtíðina. Sigurður segir að skil- yrði bolfiskvinnslu hafi verið að versna og menn átt von á almennum aðgerðum til að laga rekstrargrund- völlinn. Fáfnir myndi njóta góðs af slíkum aðgerðum eins og aðrir. Hann segir nauðsynlegt að finna vinnslumöguleika sem skila arði og að því hafi verið unnið. „Það er í lagi þó hlé verði á vinnslunni ef menn rísa upp aftur með betri verk- efni í höndunum," segir Sigurður Kristjánsson. Kambur á Flateyri bauð Þingeyr- ingum vinnu í haust. Átta þáðu vinnuna og óku daglega á milii. Þeim hefur nú farið fækkandi, með- al annars vegna vinnu í sláturhús- inu, og nú eru aðeins þrír eftir. Hinrik Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Kambs, segir að þó áhuginn virðist ekki mikill muni þessi vinna standa Þingeyringum áfram til boða. „Ég veit ekki hvort frystihúsið fer aftur í gang,“ segir Guðlaug Vagnsdóttir, fiskverkakona á Þing- eyri. Hún vinnur nú í sláturhúsinu, við að svíða hausa, eins og hún hefur gert síðastliðin þrettán haust en hefur unnið aðra hluta ársins hjá Fáfni. Guðlaug segir að fólki bregði við í þessu langa stoppi því alltaf hafi verið mikil vinna á Þing- eyri. „Við komumst ekkert burt og viljum ekki fara. Ég verð kyrr. En ég trúi því ekki að unga fólkið hafi peninga þegar það hefur enga vinnu,“ segir hún. Guðlaug segir að ráðamenn fyrirtækisins geti ekk- ert sagt fólkinu þótt því komi ástandið jafn mikið við og ráða- mönnum. JAZZ Ilótcl Saga RÚREK 96 Kvartett Skúla Sverrissonar. Skúli Sverrisson rafbassi, Greg Bendian tromniur og víbrafónn, Janiie Saft, píanó og harmonikka, Briggan Krauss altsaxófónn. Fimmtudagur- inn 26. september, 1996. Á NYRSTU eða næstnyrstu djasshá- tíð í heimi lék kvartett Skúla Sverris- sonar frá New York blús hvíta mannsins, óhlutbundinn en þó mjög persónulegan, sama blús og hann leikur fyrir New York búa. Áheyrendur voru kurteisir á tón- leikunum í Súlnasal síðastliðið fimmtudagskvöld á RúRek og enginn virtist kvefaður. Flestir hafa farið sálförum yfir í tónheim Skúla og félaga þar sem flest er með öðrum formerkjum en kennt er í skólum. Tónlistin er fijáls og oft eins og í mestu ringulreið. Tónleikanna hafði verið beðið með eftirvæntingu. Skúli hefur slegið í gegn meðal fijálshyggjumanna í tón- list í New York. Skyldi nokkurn undra? Allir sem heyrðu í Skúla í tölvupoppsveitinni Pax Vobis og seinna með Gömmunum vissu strax að þarna var tímamóta rafbassaleik- ari í uppsiglingu. Svo sigldi Skúli vestur um haf á vit allra langbestu rafbassaleikara heims. Hann heim- sótti svo föðurlandið með bræðings- sveitinni Full Circle sem hélt magn- aða tónleika í Púlsinum fyrir nokkr- um árum en síðan hefur lítið spurst til hans nema af afspurn. En, nei. Hugur Skúla var ekki bundinn fönki eða sykruðum melód- íum Full Circle. Það heyrðu menn í Súlnasal. Hljómsveit hans er eins og saumuð utan um hann. Skúli er með lágan prófíl á sviði og hélt sig í skjóli píanós og víbrafóns og kynningarnar voru skorinortar. Heyrði kannski best þarna. Skúli hlustar á hvern tón sem hann leikur. Fer á flug í ofsa- hröðum spuna. Leikur djúpa og þétta bassagrind, hljómagrind án þess að strengirnir heyrist. Tónlistin er mikið samin og æfð og er öll skrifuð af Skúla. Hann er sálin og holdið í þess- ari sveit. Djasstengingin er reyndar dálítið villandi þegar tónlist Skúla er annars vegar. Nær væri að tala um heims- tónlist. Að frátöldum einstaka bíbopplínum og sömdum spunaköfl- um á tónlistin lítið skylt við djass annað en blúsinn. En blúsinn í tón- list Skúla er vitrænn, svona eins og heijar á nútimamanninn í flókinni tilveru. Þráhyggjustef eða óvæntir hljómar sem gera heiminn víðari. Skúli hefur þessa óvæntu sýn og miðlar henni til fólks. Og hann er magnaður bassaleikari. Guðjón Guðmundsson. ,r Opið í dag, laugardag, kl. 11—14 Eyrarholt — stóri turninn. Erum með í einkasölu nýja og fullbúna “penthouse” íbúð á 10. hæð í lyftuhúsi ásamt stæði í bílskýli sem er innangengt. íbúðin telst vera 148,9 fm m. rúmg. stofu, 4 herb. o.fl. Innréttingar eru af vandaðri gerð, parket og steinflísar á gólfum o.s.frv. Útsýni er alveg frábært. Áhv. eru húsbréf 6,2 millj. Skipti gætu komið til greina. Verð 13,6 millj. Tinnuberg — nýjar 3ja herb. Vorum að fá í sölu 3ja herb. séríb. í 2ja hæða fjölbýli. Allt sér. íb. eru 80 til 95 fm og afhen- dast fullbúnar án gólfefna. Sérlóðir fylgja neðri hæðum. Verð 7,6 til 7,9 millj. Teikningar á skrifstofu. Klukkuberg — tvíbýli. 158,6 fm efri sérhæð ásamt 37,2 fm og 80 fm neðri sérhæð. Afh. fullb. að utan og tilb. u. trév. að innan. Til afh. nánast strax. Verð 9,9 millj. á efri hæð og 7,0 millj. á neðri hæð. Seljast saman eða hvor í sínu lagi. Teikningar á skrifstofunni. Nánari upplýsingar hjá: Fasteignasölunni Ás, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði, sími 565 2790. V. J Greip buddu þegar hann brunaði framhjá UNGUR piltur á línuskautum greip peningabuddu af konu um leið og hann brunaði framhjá henni í Ból- staðarhlíð síðdegis á fimmtudag. Konan reyndi að elta hann uppi, en tókst ekki. I buddu konunnar voru 300 krón- ur og lyklar, svo ekki hafði línu- skautapilturinn mikið upp úr krafs- inu. Konan lét lögregluna strax vita af atvikinu og var piltsins leitað í hverfinu, en án árangurs. Konan lýsir piltinum svo að hann hafi verið 16-17 ára, um 170 cm á hæð, með skollitaðan síðan topp en nauðrakaður á höfði að öðru leyti. Hann var klæddur grárri hettu- peysu og dökkum pokabuxum. ------» -------- Jazz 96 JAZZHÁTÍÐINNI RúRek 96 lýkur í dag, laugardag. Á dagskrá eru: Kl. 17. Útvarpshúsið: Stórsveit Reykjavíkur undir stjórn Sæbjörns Jónssonar. Söngvari Egill Olafsson. Frítt. Jómfrúin: Tríó Óskars Guðjónssonar. Frítt. Kl. 22.30. Hótel Borg: New Jungle Kvartett Pierre Derge. Kr. 1.000. Sýniílgar t)yrjaðar aftur! rakmarkaður sýuingafjöldi Sími551 1200 Þjóðleikhúsið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.