Morgunblaðið - 28.09.1996, Side 30

Morgunblaðið - 28.09.1996, Side 30
30 LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 MORGUNBLAÐIÐ AÐSENDAR GREINAR Menntaþing 1996 - Til móts við nýja tíma MIKLAR breytingar hafa orðið á skipulagi íslenskra skólamála að undanförnu. Grunn- skólar eru nú alfarið í höndum sveitarfélaga. Ný lög hafa verið sam- þykkt um framhalds- skóla. Unnið er að því að semja rammalög- gjöf um háskólastigið. Lokahönd er verið að leggja á frumvarp til laga, sem sameinar Kennaraháskólann, Fósturskólann, Þroskaþjálfaskólann og Iþróttakennara- Björn Bjarnason skólann í uppeldisháskóla. Tillögur liggja fyrir um nýja löggjöf fyrir Tækniskóla íslands. Ytri rammi skólastarfsins hefur þannig þegar verið endurskoðaður eða er í endurskoðun. Að því er innra starf í skólum varðar er að hefjast markviss vinna við endur- skoðun á námskrám grunn- og framhaldsskóla. Er stefnt að því, að henni ljúki sumarið 1998. Hefur þegar verið gengið frá ráðningu umsjónarmanna með verkinu og hin faglega vinna er að sigla af stað. Oskað hefur verið eftir því við þingflokka, að þeir tilnefni menn í nefnd, sem verði til ráðu- neytis um ýmis menntapólitísk málefni. Um fagleg mál verður ráðgast við þá, sem í skólunum starfa, sérfræðinga og foreldra. Hutverk ráðuneytisins Samhliða breyting- um á skipulagi og framkvæmd skóla- starfs breytist óhjá- kvæmilega hlutverk menntamálaráðuneyt- isins. Ráðuneytið er ekki lengur leiðandi í faglegri þróunarvinnu heldur er undir- stofnunum þess ætlað að taka við hlutverki fagstjóra, sem eitt sinn voru áberandi í starfsemi ráðu- neytisins. Ráðuneytinu er hins veg- ar ætlað ákveðnara hlutverk á sviði eftirlits, söfnunar og miðlunar upp- lýsinga og útfærslu laga í nám- skrá. Á þessum sviðum hafa sveit- arfélög, skólar og foreldrar einnig veigamiklu hlutverki að gegna. I námskrár- og upplýsingamálum mun skólanámskrá t.d. gegna mik- ilvægu hlutverki og á sviði mats og eftirlits er lögð mikil áhersla á sjálfsmat skóla. Skólar geta inn- leitt ólíkar sjálfsmatsaðferðir en hlutverk ráðuneytisins verður fyrst og fremst að votta að skólar nýti Glæsilegt framtak bæjarstjórnar Kópavogs FAGNANDI las ég grein í Morg- unblaðinu 20. september síðastiið- inn um byggingu tónlistarhúss í Kópavogi. Undirrituð hefur tví- vegis undanfarin ár verið gestur Kópavogs og haldið tónleika þar, annars vegar í hinni ágætu Digraneskirkju og hins vegar í hinu glæsilega Gerðarsafni. Ekki duidist mér stór- hugur og rausnarskap- ur fulltrúa bæjar- stjórnar, sem ég hafði tengsl við í tilefni áður- nefndra tónleika. Nú stígur bæjar- stjórn Kópavogs skref, sem markar tímamót í tónlistarlífi á Stór- ReykjavíkUrsvæðinu. Glæsilegur tónlistarsalur mun rísa í hjarta Kópavogs og mun nú loks- ins komin sú aðstaða, sem tónlist- armenn, flytjendur söngtónlistar og kammertónleika hefur svo til- finnanlega skort til þessa. Skortur sem stöðugt veldur heilabrotum og leiðir til hvimleiðrar tilraunastarf- semi í tónleikahaldi. Ómetanleg er sú staðreynd að hlustandinn mun nú loksins fá tækifæri til að njóta tónlistarflutnings við bestu skilyrði. Ilinn sanni fjársjóður hverrar þjóðar liggur í menntun og menn- ingu hennar. Hlutverk listar og listamanna er að mínu mati mikil- vægara í dag en nokkru sinni fyrr. Fjöldi fólks leitar að leiðum til að fylla upp tómarúm í lífí sínu. Lækn- ingamáttur tónlistar og mikilvægi hennar í árangursríkri leit að lífs- hamingju er óumdeilanleg. Tónlist- armenntun og möguleikar til list- rænnar tjáningar eru mjög þrosk- andi fyrir börn og unglinga og eru talin hafa jákvæð áhrif á árangur á öðrum sviðum. Rannveig Fríða Bragadóttir Á tímum mikilla breyt- inga í skólastarfi og við upphaf námskrárvinnu telur Björn Bjarnason miklu skipta, að á menntaþingi komi fram staðfesting á gildi menntunar fyrir framtíð þjóðarinnar og sam- keppnisstöðu. sér í raun viðurkenndar aðferðir til að meta skólastarfið og miðla upplýsingum um skólakerfið. Með þetta í huga hefur skipu- lagi menntamálaráðuneytisins nú verið breytt. Um miðjan október tekur þar til starfa ný deild, mats- og eftirlitsdeild. Til hennar flytjast starfsmenn úr grunnskóladeild, framhaldsskóladeild og háskóla- deild ráðuneytisins til að sinna verkefnum undir nýjum formerkj- um. Jafnframt hefur verið ákveðið að fækka starfsmönnum í ráðu- neytinu, því að breytt skipulag á stjórnarháttum í ríkiskerfinu gerir ráð fyrir, að stofnanir fái aukið sjálfstæði og meiri ábyrgð. Af- skipti ráðuneyta verða önnur en áður. Boðað til menntaþings Við þessar aðstæður hefur menntamálaráðuneytið boðað til menntaþings í Háskólabíói og Þjóðarbókhlöðunni laugardaginn 5. október næstkomandi. Auk funda og fræðsluerinda munu skól- ar og þeir, sem vinna að mennta- málum, kynna starfsemi sína með því að sýna að hverju þeir vinna. Menntaþing er haldið undir kjör- orðinu: Til móts við nýja tíma. Fellur það kjörorð í senn vel að því, að skólarnir þurfa að takast á við ný verkefni með nýjum aðferð- um og við nýjar aðstæður, og einn- ig hinu, að ný öld er að hefjast. Við aldamót fyrir 200 árum var ekki bjart yfir íslensku skólastarfi. Skólinn í Skálholti hafði lagst nið- ur og á Hólum var skólanum lokað árið 1802. Sameinaðir fengu skól- arnir aðsetur að Hólavöllum í Reykjavík og bjuggu þar við þröng- an kost. Um miðja öldina fer að rofa til, en þess er einmitt minnst í ár, að 150 ár eru liðin frá því, að Reykjavíkurskóli hóf starf sitt í nýju húsi við Lækjargötuna í Reykjavík. Auk rúmlega 200 grunnskóla starfa nú um 50 skólar á fram- haldsskólastigi í landinu. Er þá ekki litið til þeirrar starfsemi, sem fer sívaxandi, og lýtur að endur- menntun eða fræðslustarfsemi á vegum einkaaðila og fyrirtækja. Fleira er nú þar í boði en nokkru sinni fyrr. Er það von okkar, sem að menntaþingi stöndum, að það verði til að staðfesta þá skoðun, að vax- andi skilningur sé í landinu á gildi menntunar. Öllum ætti að vera ljóst, að það ræðst frekar af mennt- unarstigi íslensku þjóðarinnar en náttúrulegum auðlindum, hvernig henni vegnar í framtíðinni. Fjár- festing í menntun er því besta og skynsamlegasta leiðin til að hér þróist þjóðfélag, sem staðið geti í fremstu röð og tryggt borgurum sínum góð lífskjör. I þeim anda eigum við að ganga til móts við nýja tíma. Höfundur er menntamála- ráðherra. Ég veit að Kópavogsbær hefur gegnt forystuhlutverki hvað tón- listarkynningu í skólum varðar og nefni af því tilefni hið lofsverða framtak: „Tónlist fyrir alla“. Notkun hljómflutn- ingstækja og sam- bærilegir tæknimögu- leikar getur aldrei komið í stað þess að fá að taka þátt í og njóta lifandi tónlistar- flutnings, þar sem staður og stund, já, eitt augnablik getur orðið að ógleyman- legri, dýrmætri minn- ingu. Þótt heimur tónlist- arinnar sé heimur sameiningar og skeyti lítt um borgartakmörk og landamæri má samt að sönnu segja að Kópavogsbær grípi hér stórkostlegt tækifæri sem mun Tímamót munu markast í tónlistarlífi Stór- Reykj avíkursvæðisins, segir Rannveig Fríða Bragadóttir, með því skrefi sem bæjarstjórn Kópavogs stígur nú. gera Kópavogsbæ leiðandi í ís- Iensku listalífi í framtíðinni. Ég þakka bæjarstjórn Kópavogs þetta glæsilega framtak og óska öllum tónlistarunnendum landsins til hamingju. Höfundur er óperusöngkona. ISLENSKT MAL Rögnvaldur Gíslason á Akur- eyri spurði um uppruna sagnar- innar að pípóla (við einhvern). Hún var í mæltu máli út- eyfirskra manna á æskudögum okkar og merkti að dekra við eða_ snúast kringum. Ásgeir Bl. Magnússon telur sögnina meðal tökuorða frá 19. öld og muni hún eiga rætur að rekja til lágþýsku piepeln= sama sem pípa, blístra. Hann telur pipóla merkja að dekra við, en einnig dansa og syngja við eða fyrir. Samsvarandi nafn- orð er pípól. Frá því að merkja að dansa við einhvern (eftir pípublæstri) eða spila fyrir hann tekur sögn- in svo að merkja að snúast í kringum hann, stjana við hann. Lítum til gamans á gamla vísu: Gígjan syngr, þars ganga grípa menn til pípu. Færa fólsku stóra framm leikarar bleikir. Undr es, hvé augum vendir umb, sás þýtr í trumbu. Kníðan lítk á kauða kjaft ok blásna hváfta. Vísa þessi er eignuð einhveij- um Mána og er annar kveðskap- ur leifður eftir hann. Hún felur í sér afbrýðisemi vegna þess, að við einhverjar konungshirðir voru þá „trúðar og leikarar" meira metnir en skáld bundins máls. Fyrstu tvær línur vísunnar er líklega rétt að taka saman: Gígj- an syngr, þars menn grípa til pípu ganga. Er þá svo ráð fyrir gert að ganga sé eignarf. flt. af nafnorðinu gangur og væru pípugangar leggir blásturshljóð- færis. Fólska í vísunni merkir heimska, fíflalæti, sbr. ensku fool. Að venda augum er að ranghvolfa í sér augunum. Þjóta í trumbu er að „spila á tromp- et“. Sögnin að þjóta gat hæg- lega merkt að gefa frá sér hljóð, enda þaut tófan í holtinu, þegar Siggi var úti með ærnar. í Skandinavíu þaut úlfurinn í skóginum í gamla daga og varð þá úlfaþytur. Og fuglar gátu flogið „með fjaðraþyt og söng“. Umsjónarmaður Gísli Jónsson 868. þáttur Danir geta sagt: Ulven tuder og mun af þessu komin í mál okkar sögnin að tuða=nudda og nauða um eitthvað. Ekki er Ás- geir Blöndal þó viss um það og má segja að hann samþykki það með semingi. Þeir, sem sömdu Slangurorðabókina, hafa talið sögnina að tuða of „góða“ til þess að taka þar upp, en hún er í Árnapostillu Böðvarssonar. Trumba í vísunni var sem sagt ekki tromma, heldur tromp- et, en þau orð eru innbyrðis skyld og munu vera hljóð- gervingar. Kníðan er sama sem „knú- inn“, útblásinn, þaninn, og er auðvelt að sjá fyrir sér lúður- þeytarann, þegar hann reynir sem mest á sig. Vísu Mána mætti endursegja á þessa leið: Leikið er á gígju og spilað á lúðra. Fölir hljóð- færaleikarar hafa mikinn fífla- gang í frammi. Ósköp er að sjá hvernig lúðrablásarinn rang- hvolfir augunum og þenur út kjaftinn og gúlana. Vísan er rétt kveðin eftir ströngustu reglum dróttkvæðs háttar. ★ Margir kannast við danslaga- texta sem Póló og Bjarki fluttu á sinni tíð og hefst á orðunum: Lýsa geislar um grundir. Einn harðsnúnasti latínumaður okkar daga, Þórður Örn Sigurðsson, sneri þessum texta á latínu fyrir 27 árum og þykir rétt, til að sýna hvemig nýmóðins íslenska er þýtt á klassíska latínu, að birta lokaerindið á tungumálun- um báðum: Nú er hugarinn heima; hjartað örara slær. Stríðar minmngar streyma; stöðugt færist ég nær. Skip mitt líður að landi; létt ég heimleiðis sný: Ljúfu leiðina, litlu heiðina, glaður geng ég á ný. Iam pervenit animus; citius palpitat cor. Memoria revocat; semper approinquor. Navis terram.attingit; hilaris profíciscor; Via iucunda, valle profunda, laetus regredior. Vilfríður vestan hefur gert svofellda bragarbót, sjá næstsíð- asta þátt: A bítilöld legíó lúfna var langtimum saman án húfna og með þeim í gríð mörg ein fylkingin fríð ungra lærberra lausaflugsdúfna. Smávegis 1) Fyrir viku var sagt frá því í frétt hér í blaðinu, að íslensku- kennsla „verður áfram starf- rækt“ í Jónshúsi í Kaupmanna- höfn. Umsjónarmaður vonar að kennslan og árangur hennar verði betri en það málfar að „starfrækja íslenskukennslu". Athöfnin heitir að kenna ís- lensku. 2) Aftur á móti var sérlega ánægjulegt að heyra kornungan mann í sjónvarpi lýsa hiklaust og skilmerkilega og á lýtalausu máli svo framandi kvikindum sem risaeðlum. Ég hef verið beðinn um að vekja á þessu at- hygli, þar sem svo oft sé hneykslast á máli unglinga. 3) Auk þess fær Ríkisútvarpið plús (18. sept.) fyrir a) „þegar söluskrifstofa félagsins var opn- uð“ [ekki „opnaði"] b) sýnend- ur í sjónvarpsfréttum [ekki ,,sýningaraðilar“]. Málfarsráðu- nautar varpstöðvanna vinna svo sannarlega ekki til einskis. 4) Þá er mælt með því að Eystrasaltsríkin heiti svo, en ekki „baltnesku ríkin (löndin)“, á ensku Baltic States. 5) í einhveijum fréttum heyrði ég „á milli íslands og Evrópu". Hvaða heimsálfa skyldi vera þarna á milli? 6) Raunalegt má það kalla, þegar eigendur breytast í „eignaraðila". 7) Nykrað þykir oss það lík- ingamál „að bijóta hurðir í spað“.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.