Morgunblaðið - 28.09.1996, Page 31
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 31
Valdboðin
byggðastefna
BY GGÐASTEFNA stjórnvalda:
Þarf hún að bitna á starfsmönnum
Landmælinga öðrum landsmönnum
fremur?
Það hefur margsinnis sýnt sig að
valdboðin byggðastefna stjórnvalda
hefur alltaf farið villur vegar. Landa-
fræðin og sagan hefur kennt okkur
að byggðaþróun hefur
sterkari aflgjafa en að
á hana dugi valdboð,
veik verkfæri - hvað
þá vopn. Afkastamestu
vígvélar hafa ekki einu
sinni dugað til þegar
örvinglunin hefur tekið
völd en valdboðin
byggðastéfna hefur
alltaf leitt til hörmunga
fyrir hinn óbreytta
borgara. Hin raunveru-
lega byggðastefna lifir
eigin lífi; er ódauðleg
og þrífst með sköpunar-
og lífskrafti sem býr
með fólkinu. Hingað til
hafa landsmenn borið
nokkuð jafnan þunga
af byggðastefnu sem oft hefur litlu
áorkað um byggðaþróunina. Svo
virðist sem viðvaningsháttur hafi
verið hafður að leiðarljósi þegar tek-
ið er á byggðamálum og LMÍ í því
samhengi fórnað fyrir lítið.
Hver ber „kostnaðinn“?
Nú þegar reikningurinn hefur ver-
ið sendur til fjölskyldna þeirra sem
vinna á LMÍ hefur verið sparað fyrir
byggðastefnu sem í raun skilar litlu
þegar upp er staðið. Lífí u. þ. b. 100
borgara Islands er umturnað. Meiri
reisn væri að bjóða 100 manns af
landsbyggðinni flutning í staðinn eða
bæta stöðu þeirra í þráteflinu við
náttúruöflin. Auk þess eru til margir
þéttbýlisbúar sem óskuðu þess að
geta komið á fót starfsemi sem get-
ur staðið undir sér i dreifbýlinu.
Farsæl byggðastefna byggist á því
að frumkvæðið komi frá fólkinu, alls
staðar að. Hvað varð um innihaldið
í hugtakinu ný- og tækifærasköpun
fyrir fólkið? Hefur almanakinu verið
flett í vitlausa átt?
Hver er bættari?
Er ekki of auðkeypt að bjóða litlu
bæjarfélagi [Akranesi] flutning á
bita úr borginni þegar vonleysið og
vantrúin á eigin getu tekur völd -
nota má Hvalfjarðargöngin í eitthvað
framsæknara og betra. Skammsýn
pólitísk stefna í andstöðu við raun-
hæfa samfélagsþróun hvetur ekki til
framtakssemi. Eg er þess fullviss að
Akurnesingar sem og aðrir lands-
menn hafa betri hugmyndir, getu og
fólk sem nyti sín betur en þeir með
nokkru móti geta með þessum hætti.
Landsmenn hafa sýnt að þeir geta
búið alls staðar á íslandi, en þeir
ákveða það sjálfir; - starfmenn LMÍ
sem og Akurnesingar. Ekki er það
nein einvíð ákvörðun fyrir fjölskyldu-
fólk að velja sér samastað og störf.
Við getum þakkað mörgum sérfræð-
ingum á LMÍ fyrir að hafa valið
Reykjavík og landið til búsetu. í
Reykjavík hefur þróast borgarsamfé-
lag fyrir atbeina þeirra sem þar búa
og margháttuð starfsemi þar samof-
in í innra skipulagi borgarinnar.
Þetta samfélag býður landsmönnum
öllum upp á flest það sem þarf í litlu
landi. Þessu samfélagi er sýnd lítils-
virðing með fyrirhuguðum flutningi
LMÍ.
Hvatning til starfsmanna
og aðstandenda LMÍ
Óskandi væri að starfsmenn LMÍ
gætu hnekkt þessari aðgerð með
samstöðu sinni. Það er í raun það
eina sem dugir gagnvart gerræðis-
legum aðgerðum sem þessum. Allt í
kringum okkur eru stjórnvöld, með
góðu eða illu, að fórna lífi og menn-
ingu fólks fyrir þjóðfélagsleg mark-
mið sem ganga ekki upp og upp-
skera bara hörmungar. Sem betur
fer brotna slíkar aðgerðir nær alltaf
á menningu og siðferði fólksins áður
en upp er staðið. Það er of þunnt
að yppta öxlum og segja: „Því mið-
ur, þetta er pólitísk ákvörðun." Því
miður og sem betur fer: Pólitískar
ákvarðanir verður að hugsa ef þær
eiga að ganga upp. Hvers vegna má
ekki byggðaþróunin lifa sínu lífi í
sátt við fólkið í landinu í stað þess
að hlaupa eftir sveita-
rembunni hvert á land
sem er?
Betri lausn
og raunhæf
byggðastefna
Breytingar og um-
bætur í ríkisrekstri er
eift mikilvægasta hlut-
verk stjómvalda. Ef
markmiðið er aukin um-
svif á landsbyggðinni
má ýmislegt gera sem
snýr að umbótum á
innra skipulagi á LMÍ
sem og öðrum ríkis-
stofnunum. Það má t.d.
sameina LMÍ, Hagstof-
una, Skipulag ríkisins
annars vegar og hins vegar jarð-
fræði-, gróður- og dýralífskortagerðir
Orkustofnunar, Náttúrufræðistofnun-
ar, og RALA í eina landafræðastofn-
un. Rannsóknastofnanimar, sem lo-
snuðu með þessu undan landfræðileg-
um þætti í sínu starfí, geta þvi ein-
Stjómvöld hafa ákveðið
að flytja Landmælingar
íslands (LMÍ) til Akra7
ness, skrifar Björn Er-
lingsson, ogtelur að
-----?----------------------
LMI sé fórnað á altari
viðvaningsháttar,
gmnnhyggni og
skammsýni.
beitt sér betur að fræðastörfum og
rannsóknum á sínum sérsviðum.
Auka mætti skilvirkni og bæta að-
stöðu til þverfaglegra náttúruvísinda-
verkefna með nútímalegri gagna-
umsýslu. Upplýsingamiðlun til lands-
manna mætti bæta til mikilla muna
með því að beita þessu sérsviði LMÍ
á framsækinn hátt.
Sparnaður og aukin umsvif
á landsbyggðinni
Spamaðurinn af aukinni skilvirkni
má nota til þess að auka umsvif við
vettvangsvinnu úti um byggðir
landsins. Starfrækja mætti lands-
byggðarútibú í öllum landshlutum
sem þjónuðu öllum málaflokkum
meðan væri verið að vinna að tíma-
bundnum átaksverkefnum á mis-
munandi sviðum landafræðinnar í
tengslum við önnur sérfræðisvið.
Eitt styddi við annað og svo gætu
vöktunarverkefni vatnamælinga
(OS), snjóflóða og staðbundin veður-
þjónusta (VÍ) og almenn landupplýs-
ingamiðlun til íbúa og ferðamanna
tekið við með fastarekstur allt árið
um kring. Þetta styrkti þá jákvæðu
þróun sem á sér stað á landsbyggð-
inni og bætti tengsl landsmanna við
náttúrufar. Reikningurinn af skipu-
lagsbreytingunni væri jafnaður á alla
og ávinningurinn kæmi öllum til
góða. Næg eru verkefnin við bætt
sambýli manns og náttúru á íslandi
og er það raunhæf byggðastefna.
íslendingar búa við þrátefli náttúru-
aflanna. Þeir hafa aldrei haft ráð á
því að kasta neinu þar á glæ og
varðar það lífshamingju margra að
gera betur í þessum efnum. Ekki
skaðar að doka við og taka tíma í
að hugsa stöðu og starfsemi LMÍ upp
á nýtt og taka mið af búsetu í land-
inu öllu.
Höfundur er hafeðlisfræðingur.
Björn
Erlingsson
Yrði líka félag kvenna
að standa að baki...
ORÐIN sem eru yf-
irskrift þessarar grein-
ar lét Bríet Bjarnhéð-
insdóttir falla upp úr
aldamótum þegar hún
fjallaði um nauðsyn
þess að íslenskar konur
þess tíma krefðust
réttinda sinna og jafn-
ræðis á við karla.
Nokkru áður hafði Brí-
et lýst þeirri bjargföstu
skoðun sinni að ís-
lenskum konum sinnar
samtíðar „væru allar
bjargir bannaðar í
menntalegu tilliti, ef
við værum ekki sjálfar
svo efnum búnar, að
Ólafía B.
Rafnsdóttir.
geta af eigin rammleik fengið okk-
ur og kostað þá menntun prívat,
sem gæti jafnast á við góða skóla-
menntun. Og þótt einhver gæti það
og gerði, þá gæti hún engar stöður
eða embætti fengið, sem hún gæti
notað þessa menntun við.“
Sumum kunna að þykja þessi orð
eiga lítið erindi við nútímann, en
því miður eru orð Bríetar, eins og
svo margt annað í brautryðjenda-
starfi hennar, enn í fullu gildi núna,
heilli öld síðar.
Hér á landi er konum raunar ekki
lengur mismunað varðandi mögu-
leika til menntunar, formleg pólitísk
réttindi eða fulla atvinnuþátttöku.
Ástæðulaust er þó að fjölyrða um
hversu mikið vantar upp á jafnan
rétt karla og kvenna þegar til á að
taka, og nægir að nefna grundvallar-
atriði á borð við jöfn laun fyrir sömu
vinnu, óháð kynferði. Þar kann að
vera nokkur löggjöf til staðar, en
hin umtalaða „hugarfarsbreyting",
sem stjómmálamönnum er svo töm
á tungu, lætur bíða afar lengi eftir
sér. Hið sama gildir um mörg önnur
sjálfsögð réttindi.
Frumkvöðullinn Bríet Bjamhéð-
insdóttir lét sér ekki nægja að vekja
athygli á réttindaleysi kvenna og
mismunun gegn þeim. Hún var
helsti hvatamaður að stofnun Kven-
réttindafélags íslands (KRFÍ) árið
1907_og formaður þess fyrstu árin.
KRFÍ var og er þverpólitísk samtök
kvenna og karla sem
láta sig miklu skipta
baráttu fyrir þjóðfélagi
þar sem allir em ftjáls-
ir og jafnir að virðingu
og réttindum, konur
sem karlar. í bráðum
níutíu ár hefur félagið
gegnt mikilvægu hlut-
verki í baráttu fyrir
fullu jafnrétti á íslandi.
Því hlutverki er ekki
lokið.
Um þessa helgi er
haldinn 19. landsfund-
ur KRFÍ. Þar verður
tekinn til sérstakrar
umfjöllunar samningur
Sameinuðu þjóðanna
um afnám allrar mismununar gegn
konum (sem í alþjóðastarfi hefur
fengið skammstöfunina CEDAW).
Samningurinn tók gildi á íslandi
árið 1985, en hann hefur enn sem
komið er hlotið litla kynningu og
umfjöllun hér á landi.
Sáttmáli þessi er annað og meira
en almenn viljayfirlýsing sem al-
menningi virðist ef til vili stundum
helsta afsprengi alþjóðlegra stofn-
ana. CEDAW er einhver athyglis-
verðasti og róttækasti mannrétt-
indasáttmáli sem gerður hefur verið
og hefur umtalsvert gildi á íslandi
sem annars staðar. Hér á landi
hefur hann fullt lagagildi og hefúr
raunar forgang umfram íslensk lög
sem skemmra ganga í jafnréttis-
málum. Hann hefur því ótvírætt
gildi í baráttunni fyrir jöfnum rétti
kynjanna á íslandi.
A landsfundi KRFÍ verður fjaliað
um þennan samning frá ýmsum
hliðum. Þar verður m.a. rætt hvem-
ig samningurinn nýtist konum í
atvinnulífínu og í atvinnurekstri,
hvaða lagalegu þýðingu hann hefur
gagnvart íslenska dómskerfínu og
hvernig hann getur nýst almennt
sem baráttutæki í jafnréttisbarátt-
unni.
Á næstu mánuðum mun KRFÍ
gangast fyrir enn frekari kynningu
á þessum mikilvæga samningi. Með
þeirri kynningu viljum við heiðra
minningu Bríetar Bjamhéðinsdótt-
Frumkvöðullinn Bríet
Bjamhéðinsdóttir var,
segir Ólafía B. Rafns-
dóttir, helsti hvatamað-
ur að stofnun KRFÍ.
ur, sem sótti sér styrk í samskipti
við kvenréttindahreyfingar víða um
heim, og árétta að ætlunarverki
hennar er síst lokið.
Það er ekki tilviljun að Kvenrétt-
indafélag íslands tileinkar kynn-
ingu sína á CEDAW-samningnum
minningu Bríetar Bjamhéðinsdótt-
ur. Ekki einasta fögnum við nú
140. fæðingarafmæli Bríetar, sem
fæddist 27. september 1856. Með
kynningu á samningnum vill KRFÍ
einnig minna á að það er ekki nema
fyrir hugrekki og framsýni kvenna
eins og Bríetar sem hann er orðinn
að vemleika.
Hugsunin að baki sáttmálanum
er hin sama og bjó að baki baráttu
Bríetar: Að gera að raunveruleika
þjóðfélag þar sem allir eiga jafna
möguleika til þroska, frelsis, mennt-
unar og hamingju, þjóðfélag sem
virðir á borði sem í orði jafnan rétt
karla og kvenna. íjóðfélag þar sem
friður, jafnrétti og velferð komandi
kynslóða eru leiðarvísar til betri
framtíðar.
Höfundur situr í sijórn
Kvenréttindafélags íslands.
ftrfur horfinna kynslóða
Jurtasmyrsl Erlings grasa-
læknis fást nú í apótekum
og heilsubúðum um land
allt.
• Græðismyrsl
• Handáburður
• Gylliniæðaráburður
Framleidandi: Islensk lyfjagrös ehf.
Dreifing: Lyfjaverslun lslands hf. Á
PEUGEOT 406
'ÆSS
m I
Tímamótabíll á einstöku verði
Staðalbúnaður er m.a:
Fjarstýrðar samlæsingar • Loftpúði í stýri • Rafmagn í rúðum í framhurðum
Vökva- og veltistýri • Útvarp/segulband
frá 1-480.000 kr
PEUGEOT
- þekktur fyrír þœgindi
1 9 4 6 - 1 9 9 6
Nýbýlavegi 2 • Sfmi 554 2600