Morgunblaðið - 28.09.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 28. SEPTEMBER 1996 35
BERNODUS
ÓLAFSSON
+ Bernódus Ólafs-
son var fæddur
á Gjögri i Árnes-
hreppi á Ströndum
17. mars 1919. Hann
lést á Skagaströnd
18. september síð-
astliðinn. Foreldrar
hans voru hjónin
Ólafur Magnússon
og Þórunn Samson-
ardóttir, búsett á
Gjögri. Systkini
hans eru Herbert,
f. 23.9. 1920, Björg,
f. 18.10. 1924 og
Karitas, f. 7.6. 1936.
Þau eru öll á lífi. Hinn 1. júlí
1944 kvæntist Bernódus Önnu
Halldórsdóttur Aspar, f. 7. jan-
úar 1923. Foreldrar hennar
voru Halldór Guðmundsson
Aspar og Kristbjörg Torfadótt-
ir. Þau voru búsett á Akureyri.
Börn Bernódusar og Önnu eru:
1) Halla Björg, f. 27. mars 1944,
gift Ara H. Einarssyni frá Mó-
bergi. Þau eiga þrjú börn, Ein-
ar Hauk, Helgu Ólínu og Önnu
Aspar. 2) Þórunn, f. 18. júlí
1945, gift Guðmundi J. Björns-
syni frá Skagaströnd. Þau eiga
þrjár dætur, Elísabetu Eik,
Auði Evu og Kristbjörgu Unu.
Áður átti Þórunn eina dóttur,
Önnu Sjöfn Jónasdóttur. 3) Ól-
Elsku pabbi minn, nú ert þú
farinn frá okkur. Við sitjum öll
héma sorgmædd og hnípin og eig-
um erfitt með að hugsa okkur lífið
áfram án þín. Litlu stelpurnar leita
þín og skilja ekki hvernig afijgetur
verið staflaus hjá Guði. A því
fannst sú lausn, að presturinn
gæti komið stafnum til þín.
Við fullorðna fólkið þitt verðum
hvert um sig að finna okkar eigin
lausnir á sorginni og eftirsjánni.
Fyrir mér rifjast upp hver minn-
ingin af annarri sem gott er að
eiga.
Minningin um hvað það var
gaman þegar þið Steingrímur
spunnuð upp heilu leikþættina þar
sem sviðið var eldhúsið í Stórholti
og mamma og við krakkarnir vor-
um áhorfendur og gátum varla
staðið fyrir hlátri.
Minningin um þegar við krakk-
arnir áttum að færa ykkur Tóta
kaffi niður í síldarverksmiðju og
gátum ekki farið inn í verksmiðj-
una vegna ólyktarinnar. Þá stóðuð
þið skellihlæjandi lengst inni í
horni til að við þyrftum að fara
afur Halldór, f. 23.
ágúst 1951, kvænt-
ur Guðrúnu Páls-
dóttur frá Sauðár-
króki og eiga þau
tvö börn, Halldór
Gunnar og Hólm-
fríði Önnu. Áður
átti Ólafur einn
son, Þorleif Pál. 4)
Lilja, f. 10. nóvem-
ber 1959. Barna-
barnabörnin eru
sjö. Bernódus ólst
upp í Kúvíkum í
Reykjarfirði. Hann
var einn vetur í
Reykjanesskóla við ísafjarðar-
djúp og síðar lauk hann prófi
sem vélstjóri frá Vélskólanum
á Isafirði. Bernódus vann sem
vélstjóri á báti frá Keflavík, en
réðst sem vélstjóri hjá Hólanesi
hf. á Skagaströnd 1943 og var
búsettur þar til æviloka.
Bernódus var oddviti Höfða-
hrepps 1974-78. Var í sýslu-
nefnd Austur-Húnavatnssýslu.
Hann var leikari og leikstjóri
hjá Leikklúbbi Skagastrandar
í mörg ár og tók virkan þátt í
félagslífi Skagastrandar.
Útför Bernódusar fer fram
frá Hólaneskirkju á Skaga-
strönd í dag og hefst athöfnin
klukkan 14.
með klút fyrir nefinu sem lengst
í gegnum verksmiðjuna.
Eða hvað þú varst snöggur að
bjarga málum, þegar kviknaði í
jólatrénu okkar ein jólin, og bjarga
þar með jólunum.
Allar minningarnar um stússið
okkar við kindurnar, pabbi minn.
Þá var nú oft gaman og svo þegar
hún Henríetta kom til sögunnar
og hvernig hún fékk nafnið. Þá
var nú hlegið.
Og þegar við stelpurnar bökuð-
um kökuna fyrir færeysku sjó-
mennina, að þinni uppástungu, og
höfðum svo ekki burði í okkur að
tala við þá þegar á bryggjuna var
komið. Þá komst þú og hjálpaðir
okkur úr ógöngunum.
Flestar minningarnar mínar um
þig tengjast hlátri og gleði, enda
varst þú oftast með gamanyrði á
vörum, og hressileiki fylgdi þér
hvar sem þú fórst.
Síðustu árin þín, pabbi minn,
varstu ekki mikið á ferli um bæ-
inn, en þá hafðir þú litlu langafa-
börnin þín við hliðina á þér og þau
styttu þér stundir og þú þeim.
t
Systir okkar og frænka,
SVAVA GÍSLADÓTTIR,
Engihlíð 16,
áður Reykholti við Laufásveg,
lést 25 september.
Hannes Gislason,
Ástdís Gisladóttir,
Þórdfs Kristmundsdóttir,
Auður Kristmundsdóttir,
Kristín Kristmundsdóttir.
t
Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengda-
faðir og afi okkar,
SVAVAR ÁRMANNSSON
aðstoðarforstjóri,
Álfheimum 48,
lést að heimili sínu fimmtudaginn 26.
september sl.
lngibjörg Egilsdóttir,
Ármann Jakobsson,
Hildur Svavarsdóttir, Halldór Svavarsson,
Ásta Svavarsdóttir,
Ingibjörg Svavarsdóttir,
Brynja og Ingibjörg Halldórsdætur.
MINNINGAR
Elsku pabbi minn, hvað það var
gott að þú varst þettá hress núna
í sumar og gast notið góða veðurs-
ins og farið í svolítil ferðalög og
niður á bryggju til að skoða bát-
ana. Og í gegnum strákana gastu
fylgst með aflabrögðum og gangi
mála í Smugunni og á Flæmska
hattinum.
Ég þakka þér, pabbi minn, fyrir
allt og bið Guð að geyma þig.
Halla.
Manstu afi.
Þegar ég var lítil gafst þú mér
oft ýsu til að sjóða. Þú kenndir
mér marga kapla og spilaðir við
mig kasínu á skammelinu á brúna
stólnum þínum. Þegar þú komst í
heimsókn fyrir hádegi á laugar-
dögum og ég var í baði vildi ég
strax fara upp úr til að hitta þig.
Svo vissi ég líka ailtaf hver var
að koma því þú dinglaðir alltaf
mörgum sinnum í einu. Þú tókst
mig með í réttir á haustin og út á
Sandlæk að vitja um netin. Svo
þegar ég varð aðeins stærri og
mamma og pabbi áttu ekkert
vídeó, hringdir þú stundum og
bauðst mér og Halldóri bróður í
„lifandi myndir". Þegar þú komst
heim og mamma lét mig bjóða þér
úr nammiskál var voðalegt basl
með þig því þú þóttist ætla að taka
allt úr skálinni. Þú fiktaðir líka
alltaf í jólakökunni hennar ömmu
og ætlaðir að taka þér risasneið
og stakkst svo kannski hnífnum
ofan í miðja kökuna.
í veiðitúrum úti á Skaga athug-
aði ég vel hvernig þú fórst að og
vildi gera alveg eins því þú kunnir
sko að veiða. Þegar ég fór að
stunda íþróttir fylgdist þú vel með
og gafst mér gaddaskó til að
hlaupa á. Einu sinni æfðir þú mig
í að taka af stað í spretthlaupum
í garðinum heima, kenndir mér
útsmogna aðferð til að verða fljót-
ari en hinir. Ég gat líka ekki beðið
með að segja þér frá þegar ég
vann til einhverra verðlauna.
Þegar ég varð 16 ára fór ég í
burtu í skóla. Þá sá ég þig sjaldn-
ar en það var alltaf svo gott að
spjalla við þig þegar ég kom í heim-
sókn og þú hrósaðir mér óspart
þegar ég sagði þér frá einkunnun-
um mínum. Þú varst líka svo
áhugasamur þegar ég var að reyna
að ákveða framhaldið og að reyna
að fá vinnu enda var svo gaman
að segja þér þegar hlutirnir sner-
ust mér í hag.
Þú komst mér svo oft til að brosa
og hlæja og kallaðir mig Díu þína
og sagðir að ég væri dugleg og
falleg. Núna ert þú farinn og núna
get ég ekki séð þig lengur. Eg hef
samt ennþá allt þetta og miklu,
miklu meira. Ég man hvernig þú
faðmaðir mig og straukst mér um
hárið og hvernig þú hlóst og hverm
ig þú brostir. Ég man líka hvað
þú varst orðinn veikur og þreyttur
og ég veit að allir deyja einhvern
tímann. Ég sakna þín bara svo
mikið og mér þykir svo vænt um
þig. Núna heimsæki ég þig inn í
hjartað mitt því þaðan hverfur þú
aldrei.
Líði þér vel, elsku afi minn.
Þín,
Hólmfríður Anna.
Hinn 18. september sl. barst
mér sú fregn að félagi minn og
vinur, Bernódus Ólafsson, hefði
orðið bráðkvaddur þá fyrr um dag-
inn. Hann hafði í nokkur ár verið
vanheill vegna hjartabilunar, svo
óvænt gat þetta ekki talist.
Ég kynntist Benna strax og ég
kom til Skagastrandar sumarið
1944. Hann var þá vélstjóri við
frystihús Kaupfélags Skagstrend-
inga. Hafði flutt ári áður til Skaga-
strandar frá æskustöðvum sínum
á Ströndum. Við áttum sameigin-
legt áhugamál jafnaðarstefnuna
sem var grundvöllur okkar kynna
og samstarfs í hálfa öld. Að vinna
að stefnumálum okkar hér á
Ströndinni var heillandi verkefni
fyrir unga menn með mörg áhuga-
mál á miklum breytingatímum.
Hér var þá flest á eftir tímanum
á mörgum sviðum mannlífsins.
Verkefni voru því bæði mörg og
fjölþætt.
Benni var frábær félagshyggju-
maður sem hafði áhuga og gaf sér
tíma til að leggja góðum málum
lið hvar sem þess var þörf. Áhuga-
mál hans voru ótrúlega fjölbreytt.
Við áttum samstarf á flestum svið-
um félagsmála: í Verkalýðsfélagi
Skasgastrandar átti hann sæti í
stjórn um árabil og gegndi fjöl-
mörgum öðrum trúnaðarstörfum
fyrir það félag.
Benni var einn af stofnendum
Alþýðuflokksfélags Skagastrandar
+
Ástkær faðir minn,
HREIÐAR GUÐJÓNSSON
málarameistari,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
áður Haðarstig 4,
Reykjavík,
lést í Landspítalanum 25. september.
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Róbert Árni Hreiðarsson.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
GUÐBJÖRG KRISTJÁNSDÓTTIR,
Furugerði 1,
Reykjavík,
lést í Sjúkrahúsi Reykjavíkur 26. september.
Guðmundur E. Erlendsson, Þuríður Skarphéðinsdóttir,
Kristfn G. Guðmundsdóttir, Edvard G. Guðnason,
Skarpéðinn K. Guðmundssonson
og barnabarnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð vegna fráfalls og jarðarfar-
ar föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
KARLS H. GUNNLAUGSSONAR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði.
Fyrir hönd aðstandenda,
Halldór Karlsson.
(5.11. ’50). Hann var kosinn í
fyrstu stjórn þess og átti þar sæti
samfellt í 28 ár. Störf hans þar
voru tengd öllu sem það félag vann
að, en mest þó að málefnum Höfða-
hrepps. Hann átti sæti í mörgum
starfsnefndum hreppsins og var
oddviti Höfðahrepps kjörtímabilið
1974 til 1978. Hann skipaði heið-
urssætið á lista félagsins við
nokkrar síðustu sveitarstjórnar- -
kosningar.
Benni var einn af stofnendum
Sparisjóðs Skagastrandar (1959-
1982). Hann átti sæti í stjórn hans
nokkur síðustu árin sem hann
starfaði. Hann var einn af stofn-
endum Rækjuvinnslunnar hf. og
stjórnarmaður um skeið. Eitt af
hans áhugamálum var leiklistin
sem hann gaf góðan tíma. Hann
beitti sér fyrir stofnun Leikfélags
Skagastrandar sem starfaði í all-
mörg ár. En hóf eftir nokkurt hlé
starfsemi að nýju með breyttu
nafni. Framlag hans til leikstarfs
var hér mikill gleðigjafi í fábreytni
fyrri ára. Honum tókst afar vel
að sameina alvöru og gleði svo
báðir þættir nytu sín vel. — Það
er list sem er fáum gefin.
Jákvæð viðhorf til manna og
málefna einkenndu öll hans störf.
Vinsældir hans voru öllum ljósar
sem til hans þekktu. Benni átti
traustan bakhjarl. Kona hans
studdi hann vel hvað sem hann tók
sér fyrir hendur. Þau áttu lík
áhugamál og voru samhent. Hún
var kjölfestan sem aldrei brást þó
eitthvað blési á móti.
Börnin þeirra fjögur eru öll
traust fólk og trúverðugt. Bera
með sér svipmót sæmdarhjóna og
menningarheimilis. Nú, þegar leið-
ir skilja í bili er mér efst í huga
þakklæti fyrir að hafa átt þess
kost að eiga hann að vini og félaga
öll þessi ár. — Heila starfsævi. í
huganum rifjast upp ýmsar
ógleymanlegar stundir frá heim-
sóknum mínum á heimili þeirra
hjóna í Stórholti. Þar var gott að
koma. Gleði og hlýja með útsýni
til allra átta í orðanna fyllstu merk-
ingu.
Við fjölskylduna vil ég segja
þetta: Minningar um góðan dreng
gleymast ekki. Þær verða aldrei
frá ykkur teknar.
Ég óska fólki hans farsældar til
framtíðar.
Björgvin Brynjólfsson.
Sérfræðingar
í lílóinasUreylingiim
við »11 tækifæri
Skólavörðustíg 12,
á horni Bergstaðastrætis,
sími 19090
APÓTEK
AUSTURBÆJAR
Háteigsvegi 1
BREIÐHOLTS
APÓTEK
Álfabakka 12
eru opin til kl. 22
—$>—
Næturafgreiðslu
eftir kl. 22 annast
Apótek Austurbæjar