Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjomsson
MAÐURINN er smár í samanburði við 30 tonna grjótið og hefði
ekki þurft að spyija að leikslokum, ef vegfarendur hefðu orðið
fyrir hruninu.
Gijóthrun á Óshlíðarvégi rauf
varnarnet á 40 metra kafla
Stærsta grjótið
var30tonn
ísafírði. Morgunblaðið.
GRJÓT féll á Óshlíðarveginn rétt hjá
Skjólhamarsvík um kl. 21 á sunnu-
dagskvöld og rauf gijótvamamet á
um 40 metra kafla. Tjónið er talið
vera um 5 milljónir króna.
Stærsta gijótið sem féll úr hlíð-
inni var um 30 tonn að þyngd, én
talsvert af minni steinum kom með.
Vegagerðin opnaði veginn fljótlega
og gerði við grjótvarnarnetið til
bráðabirgða. Að sögn Guðmundar
Kristjánssonar rekstrarstjóra hjá
Vegagerðinni er ekkert óalgengt að
svona stórir steinar falli niður á
þessum stað á haustin, en mikið lán
var að engir bílar urðu fyrir gtjótinu.
Djúpvegurinn sæmilegur
Að sögn Guðmundar hafa rigning-
amar undanfarið ekki valdið miklum
skemmdum á vegum. „Það hefur
ekki flætt mikið yfír vegi eins og oft
á tíðum gerist í svona rigningum,
en það þarf víða að hefla. Djúpvegur-
inn er annars alveg sæmilegur, nema
í Skötufírði, þar sem hann er farinn
að versna aftur. Við erum að klára
að hefla Amarfjörðinn og síðan verð-
ur ráðist í Djúpveginn,“ sagði Guð-
mundur.
FRÉTTIR
> *
Oánægja með drátt á afgreiðslu sjóprófa vegna Æsu IS
Skýrt með réttarhléi
og mannaskiptum
EKKI er ljóst hvenær gengið verður
frá sjóprófum vegna Æsu ÍS sem
sökk í Arnarfírði í júlí síðastliðnum,
en þeirra ef þó að vænta innan
skamms að sögn Sonju Hreiðars-
dóttur fulltrúa héraðsdómara við
Héraðsdóm Vestfjarða. Samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins hefur
talsvérðrar . óánægju gætt meðal
aðstandenda mannanna tveggja
sem fórust þegar Æsa sökk, vegna
þess hve langan tíma frágangur sjó-
prófa hefur tekið.
Jónas Jónasson héraðsdómari
segir að eftir sé að ljúka frágangi
8-9 sjóprófa hjá embættinu, og
hafí óvenju mörg sjópróf verið hald-
in á vegurh Héraðsdóms Vestíjarða
á þessu ári, eða á annan tug.
Mikill fjöldi mála hjá
embættinu
„Þetta er gríðarlegur fjöldi miðað
við það sem við eigum að^ venjast,
og flest komu þau á sama tíma.
Öll málin eru í vinnslu, en yfírleitt
eru málin afgreidd frá okkur um
viku til tíu dögum eftir að jsjóprófi
lýkur,“ segir hann.
Jónas Jónasson segir þessar tafir
mjög óvenjulegar en dráttur sá sem
um ræðir stafi bæði af réttarhléi
og mannabreytingum hjá embætt-
inu.
Sonja segir beðið eftir að fá vitn-
isburði úr vinnslu, en þeir eru hljóð-
ritaðir í sjóprófum og síðan vélrit-
aðir. Enn sé eftir að kalla til eitt
vitni vegna Æsu, sem búsett er í
Reykjavík, en að því loknu verði
málið sent til ríkissaksóknara,
rannsóknanefndar sjóslysa og Sigl-
ingamálastofnunar. Nákvæm tíma-
setning á því liggi hins vegar ekki
fyrir.
„Við erúm að reyna að hraða
þessari afgreiðslu eins og hægt er,
en þessa tafir hafa því miður orðið.
Frágangur sjóprófa er tímafrekur
og mörg mál hafa komið til okkar
kasta í ár. Almennt séð er líka mik-
ið álag í september, eftir að réttar-
hléi lýkur,“ segir hún.
Þórólfur Halldórsson sýslumaður
í Barðastrandarsýslu segir að eftir
slysið hafi verið kannað hvaða tök
væru á að bjarga skipinu af hafs-
botni, en ósannað sé hvort hinir
látnu sé enn í flakinu þótt getgátur
hafi heyrst um slíkt.
Þórólfur segist hafa skrifað Land-
helgisgæslunni af þeim sökum, þar
sem embætti sýslumanns eigi ekki
möguleika á að sinna björgun á sjó.
Hann hafi féngið þau svör hjá Land-
helgisgæslunni að hún réði ekki yfir
þeim búnaði og mannskap sem
þyrfti til að bjarga skipinu.
„Það er alþekkt á íslandi að skip
farist og lendi á svo miklu dýpi að
björgun er óframkvæmanleg, þann-
ig að þetta er ekki einsdæmi,“ seg-
ir Þórólfur Halldórsson, sýslumaður
í Barðastrandarsýslu.
Frumranrisókn slyssins fór fram
hjá embætti sýslumanns í Barða-
strandarsýslu og lauk með sjópróf-
um, en rannsóknanefnd sjóslysa
hefur eftirlit með rannsókninni.
Jafnaðarmenn
Veiðileyfa-
gjald efst á
dagskrá
ÞINGFLOKKUR jafnaðarmanna
kynnti í gær málaskrá sína á haust-
þinginu sem hefst í dag.
Meðal helztu ' stefnumarkandi
mála á málaskránni ber hæst þings-
ályktun um veiðileyfagjald og laga-
frumvörp um þjóðareign auðlinda í
jörðu, endurskipulagningu skatta-
kerfísins þannig að dregið verði úr
jaðarsköttum, atvinnulýðræði og
fleira. Einnig mun þingflokkurinn
leggja til að landið verði gert að einu '
kjördæmi.
900 íbúar Seltjarnarness mótmæla deiliskipulagi við Nesstofu
Andlát
Fullt tillit verður
tekið til athugasemda
Morgunblaðið/Kristinn
KRISTÍN Ólafsdóttir, fulltrúi íbúa á Seltjarnarnesi, afhenti í
gær Jóni Hákoni Magnússyni, forseta bæjarstjórnar og fulltrúa
í skipulagsnefnd, undirskriftalista með nöfnum 918 Seltirninga
sem mótfallnir eru byggingu ibúða við Nesstofu. A milli þeirra
stendur Högni Oskarsson, fulltrúi í skipulagsnefnd.
Slys en ekki árás
NÆR 30% Seltirninga á kosninga-
aldri mótmæla tillögu að deiliskipu-
lagi við Nesstofu, þar sem gert er
ráð fyrir að byggja allt að 24 íbúðar-
hús. Undirskriftalistar þess efnis
voru í gær afhentir Jóni Hákoni
Magnússyni, forseta bæjarstjórnar
og fulltrúa í skipulagsnefnd.
íbúamir skora á bæjarstjóm að
fresta ákvörðun um íbúðarbyggð,
endurmeta forsendur skipulagsins
og kanna betur gildi svæðisins sem
hluta af safna- og útivistarsvæði
við Nesstofu.
Undir áskomnina rituðu 918
Seltirningar og auk þeirra sendu
um 100 einstaklingar, stofnanir og
samtök byggingafulltrúa skriflegar
athugasemdir. Á kjörskrá á Sel-
tjarnarnesi eru 3.341.
Þverpólitískur þrýstingur
Jón Hákon Magnússon segir að
fullt tiilit verði tekið til athuga-
semdanna og að deiliskipulagið sé
ekki ákvörðun um að byggja 24
hús, heldur hafí það verið auglýst
til þess að kanna viðbrögð og leita
álits íbúa. „Málið fer aftur fyrir
skipulagsnefnd fljótlega og hennar
niðurstaða til bæjarstjórnar," segir
Jón Hákon.
Siv Friðleifsdóttir, bæjarfulltrúi
og oddviti minnihlutans í bæjar-
stjórn, kveðst telja það afar já-
kvæða og skynsamlega afstöðu hjá
Jóni Hákoni að ætla að taka tillit
til athugasemda íbúanna og segist
eiga von á því að meirihluti bæjar-
stjómar muni falla frá áformum
um íbúðarbyggð á umræddum stað.
„Það hefur aldrei fyrr myndast jafn-
mikill þverpólitískur þrýstingur á
bæjarstjórn Seltjarnarness út af
einstöku máli,“ segir Siv og kveðst
bjartsýn á að málið fái farsæla
iausn.
ATHUGUN Rannsóknarlögreglu
ríkisins hefur leitt í ljós að ekkert
bendi til þess að hollenskur ferða-
maður, sem taldi að ráðist hefði
verið á sig aðfaranótt laugardags,
hafi í raun orðið fyrir líkamsárás
eða ránstilraun. Hið gagnstæða sé
nær sanni.
Á laugardagsmorgun var til-
kynnt um mann í felum í porti við
Faxaskála. Um var að ræða ferða-
lang, sem mundi óljóst eftir at-
burðum gærkvöldsins en taldi að
á sig hefði verið ráðist af 3-4
mönnum um nóttina, eftir að hann
hafði kynnt sér íslenskt næturlíf.
Hann sagðist hafa komist undan
á flótta.
Féll um 4 metra
Talsverðir áverkar voru á mann-
inum, s.s. brotnar tennur, auk þess
sem hann kenndi til eymsla í fótum
og kynfærum. Maðurinn var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild.
Samkvæmt upplýsingum frá
RLR bendir flest til þess að maður-
inn, sem var talsvert undir áhrifum
áfengis, hafí fallið allt að 4 metra
niður í portið þar sem hann fannst
og við það hlotið þá áverka sem á
honum voru.
ALFREÐ
GUÐMUNDSSON
ALFREÐ Guðmunds-
son, fyrrverandi for-
stöðumaður Kjarvais-
staða, lést í Borgar-
spítalanum hinn 24.
september síðastlið-
inn.
Alfreð fæddist 7.
júlí 1918 og var sonur
hjónanna Guðríðar
Káradóttur húsmóður
og Guðmundar S.
Guðmundssonar bif-
reiðastjóra. Eftirlif-
andi kona Alfreðs er
Guðrún Árnadóttir og
áttu þau einn son,
Guðmund, sem er þjóðréttarfræð-
ingur.
Alfreð lauk prófi frá Verslunar-
skóla íslands árið 1936. Hann
starfaði meðal annars hjá loft-
varnanefnd Reykjavíkur 1940-42
og sem eftirlitsmaður við byggingu
Hitaveitu Reykjavíkur
1942-45. Þá var hann
skrifstofustjóri Inn-
kaupastofnunar
Reykjavíkurbæjar
1951-59 og forstöðu-
maður Kjarvalsstaða
1972-1989.
Alfreð sat ennfrem-
ur í stjórn Byggingar-
félags verkamanna
1945-75 og Húseig-
endafélags Reykjavík-
ur 1955 til 1959 og
1965 til 1987. Hann
var jafnframt end-
urskoðandi Félags frí-
merkjasafnara 1957-1962 og einn
af stofnendum Félags Sameinuðu
þjóðanna á íslandi 1948, Félags
frímerkjasafnara 1957 og Lista-
safns ASÍ árið 1961. Alfreð var
sæmdur finnsku Ljónsorðunni árið
1977.
Andlát
AÐALBJÖRG
TRY GGV ADÓTTIR
AÐALBJÖRG
Tryggvadóttir lést á
heimili sínu, LÖnguhlíð
3 í Reykjavík 20. sept-
ember síðastliðinn.
Hún var elst íslend-
inga, fædd 4. desember
1891 og var því á 105.
aldursári er hún lést.
Foreldrar Aðal-
bjargar fvoru hjónin
Tryggvi Hallgrímsson
og Sigurbjörg Guð-
mundsdóttir. Aðal-
björg óist upp á Eskifirði og stund-
aði þar ýmis verslunar-
störf en árið 1945
flutti hún til Reykja-
víkur og starfaði sem
verkakona.
Aðalbjörg var gift
Ólafi Bjarna Bjarna-
syni útvegsbónda, en
hann drukknaði árið
1923. Þau eignuðust
einn son, Hjört Berg-
mann, sem lést árið
1989. Sonardóttir
hennar er Aðalbjörg
Ragna Hjartar, flugfreyja. , .