Morgunblaðið - 01.10.1996, Page 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
{
FRÉTTIR
Guðmundur Malmquist forstjóri Byggðastofnunar um
skýrslu Ríkisendurskoðunar um stofnunina
Vinnubrögð að ýmsu
leyti gagnrýnisverð
ÞO SKYRSLA Ríkisendurskoðun-
ar um Byggðastofnun feli í sér
ýmsar gagnlegar ábendingar fyrir
starfsmenn, stjórn og stjómvöld,
eru vinnubrögðin við skýrslugerð-
ina að ýmsu leyti gagnrýnisverð
að mati Guðmundar Malmquist
forstjóra Byggðastofnunar.
Guðmundur segist útaf fyrir sig
geta tekið undir að þörf sé á skýr-
ari byggðastefnu í landinu. „Ég
minni á að af hálfu starfsmanna
var gengið frá skýrari stefnumót-
un í drögum að fjögurra ára
byggðaáætlun í upphafi enda
byggt á bréfí forsætisráðherra þar
sem línur voru lagðar. Skýrslan
var samþykkt og send forsætisráð-
herra eftir mikla vinnu við hana
í stjórn Byggðastofnunar. Hún var
svo samþykkt sem þingsályktun á
Alþingi árið 1994. Byggðastofnun
hefur verið að vinna eftir skýrsl-
unni og er m.a. að vinna að gerð
svæðisbundinna byggðaáætlana í
dag,“ sagði hann.
„En við skulum muna eftir því
að íslenska þjóðfélagið .er ekki
skýrslugerðarþjóðfélag. Við erum
að fikra okkur inn í að gera alþjóð-
lega samninga og rétt að kynnast
skrifræðinu. Þó sjálfsagt sé rétt
að fara þurfi nákvæmar eftir regl-
um stefnum við í rétta átt.“
Guðmundur sagði einfalt að
segja að skilgreiningar á byggða-
stefnu vantaði. „Eina raunveru-
lega skilgreiningin felst í því að
hjálpa öllum til að búa þar sem
þeir vilja. Byggðapólitíkin vill ekki
sjá neitt byggðarlag leggjast af.
Byggðastofnun hefur oft og tíðum
gert geysilegt gagn í því sam-
bandi og rangt að halda því fram
að nýjungum hafi ekki verið sinnt.
Tapið hefur til að mynda fyrst og
fremst verið í kringum tilrauna-
starfsemi. Ekki má heldur gleyma
hlut Byggðastofnunar í breyttu
mynstri sjávarútvegsins í landinu
síðastliðin 10 ár. Með sameiningu
og hagræðingu sjávarútvegsfýrir-
tækja hefur til dæmis verið hægt
að leysa vanda fyrirtækja í mörg-
um smærri byggðarlögum. Eg
nefni Grenivík og Hofsós," tók
Guðmundur fram.
Þá nefndi Guðmundur að út úr
Hlutafjársjóði Byggðastofnunar
hefðu orðið til sjö til átta stór
fýrirtæki og sum þeirra væru
komin á opna hlutabréfamarkað-
inn.
Efnahagsástandið
annað en 1985
Eðlilegra hefði verið að mati
Guðmundar að skipta skýrslu Rík-
isendurskoðunar niður í tímabil,
enda hefði efnahagsástandið
breyst frá árinu 1985. Hann gagn-
rýnir því til viðbótar útreikninga
í skýrslunni. „Mér sýnist t.a.m.
lýsandi fyrir vinnubrögð skýrslu-
höfunda hvernig fundinn er út 8,5
milljarða króna fórnarkostnaður.
Miðað er við 2,5 milljarða króna
upphaflegt eigið fé án varasjóðs á
verðbólgutímum fyrir utan að út-
lán voru óverðtryggð. í framhaldi
af því er vaxtareiknað á spariskír-
teinavöxtum framlagið á hverju
ári. Ekki er tekið tillit til afskrift-
arsjóðs upp á 1.200 til 1.300 millj-
ónir króna í dag.“
Guðmundur sagði að farið hefði
í taugarnar á sér að gerð hefði
verið enn ein fortíðarskýrslan um
Byggðastofnun. „Byggðastofnun,
ein lánastofnana, hefur „kannski"
leyfí til að tapa og þarf ekki að
ávaxta eigið fé. Henni er ætlað,
samkvæmt reglugerð, að viðhalda
eigin fé og því markmiði hefur
nokkurn veginn verið náð á meðan
aðrir sjóðir hafa tapað miklu og
bankar þurft að leita aðstoðar,"
sagði hann.
Guðmundur sagðist eiga von á
því að skýrslan yrði til umræðu á
næstunni hjá stjórn Byggðastofn-
unar.
SIEMENS
Nýjar þvottavélar á ótrúlegu kynningarverði.
Fáðu þéreina!
WM 20850SN
its þuottavél!
53.900 kr. w-
Við bjóðum á næstu
vikum þessartvær
glæsilegu Siemens
þvottavélar á sérstöku
kynningarverði sem
ekki verður endurtekið.
Nú er lag að gera
góð kaup.
• 11 grunnkerfi fyrir suðuþvott, mislitan þvott,
straufrítt og ullarþvott.
• Stiglaus stilling á þeytivinduhraða:
500 - 800 sn./mín. (WM 20850SN),
600-1000 sn./mín. (WM 21050SN).
• Vatnsborðshnappur.
• Skolstöðvunarhnappur.
• Hagkvæmnihnappur (e).
• Fíngangshnappur (aðeins á WM 21050SN).
• Sérstakt ullarkerfi.
• Frjálst hitaval frá köldu upp í 90° C.
• Ryðfrítt stál í belg og tromlu.
SMITH &
NORLAND
Nóatúni 4 ■ Sími 511 3000
UMB0ÐSMENN 0KKAR
Á LANDSBYGGÐINNI:
Akranes:
Rafþjónusta Sigurdórs
Borgarnes:
Glitnir
Borgarf jörður:
Rafstofan Hvítárskála
Snœfeilsbœr:
Blómsturvellir
Grundarf jörður:
Guðni Hallgrímsson
Stykkishólmur:
Skipavík
Búðardalur:
Ásubúð
ísafjörður:
Póllinn
Hvammstangi:
Skjanni
Sauðárkrókur:
Rafsjá
Sigluf jörður:
Torgið
Akureyri:
Ljósgjafinn
Húsavik:
öryggi
Vopnafjörður:
Rafmagnsv. Árna M.
Neskaupstaður:
Rafalda
Reyðarf jörður:
Rafvélaverkst. Árna E.
Egilsstaðir:
Sveinn Guðmundsson
Breiðdalsvik:
Stefán N. Stefánsson
Höfn i Hornafirði:
Króm og hvltt
Vík i Mýrdal:
Klakkur
Vestmannaeyjar:
Tréverk
Hvolsvöllur:
Rafmagnsverkst. KR
Hella:
Gilsá
Selfoss:
Árvirkinn
Grindavik:
Rafborg
Garður:
Raftækjav. Sig. Ingvarss.
Keflavik:
Ljósboginn
Hafnarf jörður:
Rafbúö Skúla.
Álfaskeiði
Morgunblaðið/Þorkell
SÉRA Flóki Kristjánsson messaði fyrir fullri kirkju sl. sunnudag.
Sr. Flóki Kristinsson þjónar erlendis
Draumastaða allra !
að taka við jafn
ómótuðu embætti
SÉRA Flóki Kristinsson lætur af
embætti sóknarprests í Langholts-
kirkju og tekur við þjónustu við ís-
lendinga á meginlandi Evrópu í dag.
Þorsteinn Pálsson kirkjumálaráðherra
segir einu afskipti ríkisstjómarinnar
hafa falist í því að veita samþykki
og tryggja íjárveitingu vegna emb-
ættisins út árið. Flóki segist halda
að draumastaða allra sé að fá að tak-
ast á við jafnnýtt og ómótað starf.
Þorsteinn sagði að kirkjan hefði
lengi óskað eftir því að til embættis-
ins yrði stofnað. Einu afskipti ríkis-
stjórnarinnar hefðu verið að veita
samþykki fyrir embættinu og tryggja
milljón króna fjárframlag til að
standa straum af kostnaði við emb-
ættið út árið. Nauðsynlegt yrði að
leita eftir fjárveitingu vegna embætt-
isins á næsta ári, en talið er að um
5 milljónir króna kosti að standa
straum af embættinu árlega.
Þorsteinn sagði að ríkisstjómin
féllist á mat kirkjunnar um hvort
þörf væri á embættinu og kirkju-
stjórnin tæki ákvörðun um hverjum
væri boðið embættið. Sr. Flóki hefur
verið skipaður í embættið til eins )
árs. Að því loknu verður embættið i
auglýst laust til umsóknar.
Úttekt gerð á þörfinni
Sr. Flóki sagðist ætla sér ár til
að gera úttekt á því hvort þörf væri
fyrir embættið. Hins vegar vildi hann
engu spá um hvaðan embættinu yrði
þjónað í framtíðinni.
Sr. Flóki tók fram að ekki væri
um sérstaka þægindastöðu prests að
ræða. „Enginn þarf að óttast að ég
ætli að fara sóa fjármunum hins
opinbera til þæginda fyrir sjálfan £
mig. Í mörg ár hefur verið rætt um |
að kirkjan vildi þjóna íslendingum á
sem bestan hátt og fjölbreytni væri
í þjónustunni. Lengi hefur verið talað
uin að vaxtarbroddurinn í þjónustu
kirkjunnar sé alls kyns sérþjónusta
og geysimargir sérþjónustuprestar
em núna að störfum. Embættið er
ein sérþjónustan enn,“ sagði hann.
Biskup íslands auglýsti í gær
embætti sóknarprests í Langholts-
prestakalli laust til umsóknar og er
umsóknarfrestur til 1. nóvember.
Ráðið í stöður frétta- og
dagskrárgerðarmanna
ÁSGEIR Tómasson, Kristján Róbert
Kristjánsson og Jóhanna Margrét
Einarsdóttir hafa verið ráðin í stöð-
ur fréttamanna hjá Ríkisútvarpinu.
Þá hafa þær Eva María Jónsdóttir
og Anna Krístín Jónsdóttir verið
ráðnar dagskrárgerðarmenn á Rás
2. ,
Ásgeir Tómasson hlaut 7 atkvæði
í stöðu fréttamanns á innlendri
fréttadeild útvarps þegar fjallað var
um ráðningar á fundi útvarpsráðs í
gær. Kristján Róbert Kristjánsson
hlaut einnig 7 atkvæði í stöðu á er-
lendri fréttadeild. Jóhanna Margrét ,
Einarsdóttir hlaut 6 atvæði og Bryn-
hildur Ólafsdóttir eitt atkvæði í stöðu
fréttamanns til afleysinga á inn- .
lendri fréttadeild. ■
Auglýst var eftir þremur frétta-
mönnum í fastar stöður á fréttastofu
og var um að ræða eina stöðu á inn-
lendri fréttadeild, eina á erlendri
féttadeild og eina stöðu á innlendri
fréttadeild til afleysinga í eitt ár.
Nítján umsóknir bárust um stöðurnar
en þijátíu og þrír sóttu um stöðu
dagskrárgerðarmanna á Rás 2.
Ekki Mitsubishi Pajero
BlLL sem kynntur var sem ný út-
gáfa af Mitsubishi Pajero jeppa í
Morgunblaðinu á sunnudag heitir í
raun Mitsubishi Challenger og mun
ekki koma á markað í Evrópu.
Hann er byggður á sama grunni
og pallbíllinn Mitsubishi L200, er
þegar á markaði í Japan og væntan-
legur á bandarískan markað eftir
hálft ár. Stefán Sandholt, sölustjóri
bifreiðadeildar Heklu, segir að mik-
ið hafi verið hringt til umboðsins
og spurt um nýja bílinn, en hann
muni ekki koma á markað hér á
landi, frekar en öðrum löndum Evr-
ópu.