Morgunblaðið - 01.10.1996, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Sónartæki dregur úr
ferðalögnm sjúklinga
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
STEFÁN Pétur Jónsson, formaður Lions, afhendir Hannesi
Sigmarssyni yfirlækni sónartækið.
í skoðun fylgst með því sem verið
er að skoða og jafnvel fengið út-
prentaðar myndir, t.d. af fóstri.
Myndbandstækið gerir að verkum
að hægt er að taka skoðun upp og
fylgjast með seinna. Læknar á
staðnum geta þá einnig sent mynd-
bandið annað til að fá álit annarra
lækna og sérfræðinga, sem sjá bæði
hvernig skoðunin var framkvæmd
og hvað hún leiddi í ljós.
Sónartækið sem nú er staðsett á
Seyðisfirði kemur til með að draga
úr þeim Qölda sem áður þurfti að
leita annað til þess að fara í þær
rannsóknir sem nú er hægt að fram-
kvæma á staðnum. Auk þess að
gefa læknum á staðnum tækifæri á
að veita víðtækari og betri þjónustu,
sparast mikill kostnaður, tími og
erfiði sem annars leiðir af ferðalög-
um vegna læknisrannsókna.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
FÉLAGAR í UÍ A mættu til fundar um málefni ÍSÍ.
Málefni Iþróttasam-
bandsins kynnt UIA
Egilsstöðum - Málefni íþrótta-
hreyfingarinnar voru til umræðu á
fundi sem Ungmenna- og íþrótta-
samband Austurlands stóð fyrir.
Á fundinum héldu erindi þeir Ell-
ert B. Schram, forseti íþróttasam-
bands íslands og Stefán Konráðsson,
framkvæmdastjóri sambandsins.
í erindi sínu íjallaði Ellert B.
Schram um skipulag íþróttahreyf-
ingarinnar og hugmyndir um sam-
einingu íþróttasambandsins og
Ólympíunefndar Islands.
Stefán Konráðsson skýrði frá
fjármálum íþróttahreyfingarinnar,
en ÍSÍ hefur orðið fyrir gagnrýni
þar að lútandi.
Um 25 manns mættu til fundar-
ins á Egilsstöðum víðsvegar að af
Austurlandi.
Seyðisfirði - Lionsmenn á Seyðis-
firði afhentu nýlega Sjúkrahúsi og
Heilsugæslustöð Seyðisfjarðar són-
artæki að gjöf. Fyrir tæki af þessari
gerð hefði Sjúkrahúsið annars þurft
að greiða um 3,5 milljónir króna.
Afhendingin fór fram við hátíðlega
athöfn á 410. fundi Lionsfélagins á
Seyðisfirði að viðstöddum gestum.
Það var formaður Lionsfélagsins,
Stefán Pétur Jónsson, sem afhenti
gjöfina. Hannes Sigmarsson yfir-
læknir tók við henni og þakkaði fyr-
ir hönd Sjúkrahússins og Heilsu-
gæslunnar.
Rúnar Reynisson læknir skýrði
síðan frá helstu notkunarmöguleik-
um tækisins. Hægt er að skoða
ýmis innri líffæri manna með því.
Það er gert með því að nemi sem
sendir hljóðbylgjur og nemur viðnám
þeirra er settur í námunda við það
svæði sem skoða á. Á þennan hátt
má sjá lögun þess, stærð og stað-
setningu og þannig greina ýmsa
kvilla, sjúkdóma og skemmdir.
Þannig er hægd; að skoða nýru, lif-
ur, hjarta og blöðruhálskirtil svo
nokkur dæmi séu nefnd. Þá eru
tæki sem þessi mikið notuð við
mæðraskoðun. Mikill kostur er talinn
að ekki þarf að gera holskurði né
að undirbúa þann sem á að skoða
með lyfjagjöf. Tækið er útbúið með
tveimur skjám, prentara og mynd-
bandstæki. Þannig geta þeir sem eru
Morgunblaðið/Pétur Kristjánsson
Varðskipið
Týr aðstoð-
ar Hugin
VEtil
hafnar
Seyðisfirði - Á laugardaginn
dró varðskipið Týr fiskveiði-
skipið Hugin VE 55 til hafnar
á Seyðisfirði.
Huginn hafði orðið vélarvana
þar sem hann var við rækjuveið-
ar út af Héraðsflóa á föstudag-
inn. Var talið að dexilbolti hefði
gefið sig og hann kæmist til
hafnar fyrir eigin vélarafli. í
ljós kom að bilunin var meiri
en álitið var í fyrstu og tók fisk-
veiðiskipið Dagfari því Hugin í
tog og ætlaði að draga til hafn-
ar.
Veður var fremur vont, allt
að tíu vindstigum í verstu
hviðunum og gekk ferðin seint.
Varðskipið Týr var statt
skammt undan og það því feng-
ið til að taka við. Menn voru
ekki taldir í hættu.
Nýr geisladiskur með aust-
firskri tónlist kominn út
Egilsstöðum - Austfirskir stak-
steinar nefnist nýr geisladiskur
sem gefinn er út af Danshljóm-
sveit Friðjóns Jóhannssonar.
Á diskinum eru eingöngu lög
og textar eftir austfirska höfunda.
Mörg þeirra eru þekkt á Austur-
landi og hafa verið spiluð á sam-
komum og dansleikjum í fjölda ára
en aldrei verið gefin út. Elstu lög-
in eru frá 1965-70.
Friðjón Jóhannsson hljómsveit-
arstjóri segir jafn mikilvægt að
varðveita tónlist eftir höfunda
samtímans eins og fundargerðir
og skýrslur. Hann segir brýnt að
virkja áhuga fólks og telur að
safna þurfi efni markvisst til þess
að halda starfi sem þessu áfram.
Friðjón Jóhannsson benti á að
á sínum tíma hefðu til dæmis á
milli 25-30% nemenda í Alþýðu-
skólanum á Eiðum verið starfandi
í hljómsveitum og samið tónlist
þannig að mikið af efni sé til.
Geisladiskurinn Austfirskir
staksteinar inniheldur margar
gerðir danstónlistar og eru höf-
undar laga og texta 16 talsins.
Danshljómsveit Friðjóns Jó-
hannssonar skipa þeir Friðjón Ingi
•Jóhannsson, Eyþór Hannesson,
Árni Oðinsson og Daníel Friðjóns-
son.
Aðstoðartónlistarfólk, sem leik-
ur á geisladiskinum, er Hreggviður
Jónsson, Charles Ross, Stefán
Bragason, Aðalheiður Borgþórs-
dóttir og Einar Bragi Bragason.
Diskurinn Austfirskir stakstein-
ar er seldur í hljómplötuverslunum
á Austurlandi og víðar.
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
DANSHLJÓMSVEIT Friðjóns Jóhannssonar frá vinstri: Friðjón
Jóhannsson, Daníel Friðjónsson, Eyþór Hannesson og Árni Óðinsson.