Morgunblaðið - 01.10.1996, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
MORGUNBLÁÐIÐ
NEYTEIMDUR
ÚRVERINU
S veskj ublóðmör
og lifrarlummur
Morgunblaðið/RAX
UNNIÐ við pökkun á harðfiski í Unni ehf. á Þingeyri.
Fiskvinnsla hafin
á ný á Þingeyri
UM þessar mundir er víða verið að
taka slátur. Það má nýta innmatinn
með ýmsu móti, búa til sælkera-
rétti úr lifur, hjörtu og nýrum. Sig-
ríður Sigmundsdóttir matreiðslu-
maður og þjónn kennir við Hús-
stjórnarskólann á Hallormsstað.
„Lifrarpaté"
Þegar hún var beðin að gefa les-
endum hugmyndir að því hvernig
nýta má innmat benti hún á að
lifrarpylsa væri í raun og veru
„paté“. „Það þarf að krydda meira
en ef um sígilda lifrarpylsu er að
ræða og þá má t.d. nota basil, kjarr-
mentu (oregano), meira af pipar en
venja er og svo framvegis. Þá er
einnig gott að setja aukalega egg
i deigið og minnka mjölmagnið en
bæta aðeins við lifur og hveiti í
staðinn. Þetta er síðan sett í jóla-
kökuform og bakað í vatnsbaði í
einn til einn og hálfan klukkutíma.“
Þá má einnig prófa að hafa deig-
ið með salvíu, steyttum einibeijum
og beikonbitum til að fá fram villi-
bragð.
Sigriður segir ekki ráðlegt að
frysta lifrarpaté því það kunni að
molna. Það geymist hinsvegar í viku
í ísskáp. Hægt er að borða þetta
kalt eða steikja í sneiðum á pönnu.
Lifrarbuff
Sigríður segir sjálfsagt að nota
hjörtu og nýru i lifrarpylsu. Auk
Nýtt
Hreinsiefni
fyrir bíla
OLÍS hefur tek-
ið í sölu nýtt
hreinsiefni fyrir
bifreiðar sem
heitir Black in a
Flash. Um er að
ræða hreinsiefni
til þrifa á bif-
reiðum jafnt
innan dyra sem
utan. Efnið
hentar á alla liti
og á að koma í veg fyrir upplitun
vegna sólarljóss. Þá er silikon í
efninu sem ver og hrindir frá sér
óhreinindum. 500 ml brúsi kostar
395 krónur.
Vissir þú að
KRYDDIÐ allrahanda er úr beij-
um tijáa sem vaxa á Indlandi og
eru af myrtuætt. Kryddið er þurrk-
að og malað og til dæmis notað í
kæfur, slátur, rúllupylsu og ein-
staka kökur.
þess má nota þennan innmat i
buff. Þegar búið er að hakka kjöt-
ið er blandað saman við það einu
eggi, hveiti, kartöflumjöli og
kryddi. Buffin eru mótuð og þau
steikt með lauk á pönnu. Það getur
líka verið gott að setja lauk í deig-
ið. Borið fram með brúnni lauk-
sósu.
Lifrarlummur úr afgöngum
Ef til eru soðnar kartöflur má
stappa þær gróflega og blanda sam-
an við lifur sem búið er að skola,
þurrka og taka af himnuna. Hún
er skorin í mjög litla bita eða mauk-
uð. Hlutföllin eiga að vera helming-
ur kartöflur og helmingur lifur.
Bætið eggi saman við og kartöflu-
mjöli. Kryddið og búið til lummur.
Steikið og berið fram með soðnu
grænmeti og góðri sósu eða bráðnu
smjöri.
Blóðmör með sveskjum
og beikoni
Undanfarin ár hefur það færst í
aukana að kryddmagnið sé aukið í
lifrarpylsu. í stað þess að setja rús-
ínur í blóðmör segist Sign'ður viss
um að sveskjubitar eða jafnvel
döðlubitar og beikon væri gott að
setja í staðinn. Mörinn má nýta ef
vill. Hann er þá hitaður og hams-
arnir vinsaðir frá. Tólgina má síðan
nota og blanda til helminga með
olíu þegar á að djúpsteikja.
TIL stóð að innan tíðar yrði opnað
fyrir innflutning á ýmsu sælgæti
sem ekki hefur í nokkur ár mátt
selja hérlendis sem og annarri
vöru sem inniheldur sterk litar-
efni. Er um að ræða sælgæti á við
M&M hnetu-, og súkkulaðikúlur,
allskyns skærlituð hlaup, ind-
verskt súrsað grænmeti (relish),
drykki á við bandaríska krakka-
drykkinn Kool-Aid og svo fram-
vegis.
„EFTAríkin þ.e.a.s Noregur, ís-
land og Lichtenstein hafa ekki end-
anlega ákveðið með hvaða hætti
aukefnatilskipanir ESB verða.
Norska stórþingið fjallar um auk-
efnalistann í lok þessa árs og því
mun ekkert komast á hreint í þess-
Kostar um
4.000 krónur
á árí að hafa
frystikistu
FRYSTIKISTA sem rúmar 250
lítra notar að meðaltali 1,5 kíló-
wattstundir á dag, þ.e.a.s. ef að-
stæður eru eðlilegar. Ársnotkun
nemur því 550 kílówattsstundum
og hver kílówattsstund kostar 7.33
krónur sem verða 4.031 krónur á
ári.
Full frystikista notar jafnlítið
rafmagn og sú tóma og það er
æskilegt að hún sé á köldum stað.
Þá notar hún 5% minna rafmagn
fyrir hvert stig sem umhverfishit-
inn er lægri. Hæfilegt hitastig í
kistunni er um -18°C og
rafmagnsnotkunin eykst um 5%
fyrir hvert stig sem hitinn er lægri.
Gæta skal þess að kæliristin á
bakhlið kistunnar sé hrein og að
nóg loft geti leikið um hana. Inni-
lokuð og rykug kælirist getur vald-
ið 30% meiri rafmagnsnotkun.
um málum fyrr en eftir áramót.
Þegar nýr aukefnalisti hefur verið
settur hér á landi má gera ráð fyr-
ir aðlögunartíma sem gæti orðið
allt frá sex til tólf mánuðum áður
en hann tæki endanlega gildi“, seg-
ir Sigríður Klara Árnadóttir hjá
Hollustuvemd ríkisins.
Sælgæti eins og M&M kúlur eru
til að mynda fáanlegar í fríhöfninni
á Keflavíkurflugvelli og íslenskir
ferðamenn getað tekið þær með sér
á leiðinni heim. Hinsvegar hafa þær
ekki verið seldar í verslunum hér-
lendis.
Það verður semsagt nokkur bið
á að íslenskir neytendur geti keypt
þessar vörur í einhveijum stór-
markaðanna eða næstu sjoppu.
FISKVINNSLA hófst á ný á Þing-
eyri fyrir skömmu með því að nýtt
fyrirtæki, Unnur ehf., tók til starfa.
Lögð er áhersla á söltun og harð-
fiskframleiðslu.
Aðaleigendur fyrirtækisins eru
þrír, Sigfús Jóhannsson fram-
kvæmdastjóri, Ragnar Gunnarsson
og Guðberg Kristján Gunnarsson.
Starfsmenn eru nú fímm og þeim
verður fjölgað ef vel gengur að afla
hráefnis, að sögn Sigfúsar. Keyptur
er afli af fímm trillum, meðal ann-
ars eigin trillu, Unni, sem Ragnar
er á.
Sigfús segir að fiskur verði einn-
HORFUR eru á, að rússneski
þorskkvótinn í Barentshafi verði
uppurinn fyrir mánaðamót en
hann er alls 318.000 tonn. Nokk-
uð af honum var selt þannig að
líklega var kvóti rússnesku skip-
anna um eða innan við 300.000
tonn.
Samkvæmt opinberum tölum
voru Rússar búnir að veiða
204.000 tonn af þorski 1. ágúst
sl. á móti 198.000 tonnum á sama
tíma í fyrra. Þá kemur einnig
fram, að þeir hafa veitt meira nú
en í fyrra innan fiskverndarsvæð-
isins við Svalbarða eða um 60.000
tonn.
100.000 tonnum landað
Síðastliðið vor hafði dregið
verulega úr löndunum Rússa í
Noregi miðað við sama tíma í fyrra
en þá jukust landanir þeirra og
nú hafa þeir landað alls í Noregi
rúmlega 100.000 tonnum á móti
108.200 tonnum á sama tíma í
ig keyptur á fiskmörkuðum eftir
því sem tækifæri gefist. Hann seg-
ir auðvelt að sækja fisk í gegnum
jarðgöngin og nú sé einnig mögu-
legt að kaupa fisk lengra að, til
dæmis af Suðurnesjum, vegna
tölvutengingar fiskmarkaðanna.
Auk harðfiskverkunar og söltun-
ar er fyrirhugað að selja ferskan
fisk tvisvar í viku, vera með vísi
að fiskbúð. Ragnar segir að Þing-
eyringar hafi hingað til orðið að
fara til ísafjarðar til að fá almenni-
legan fisk í soðið. Þá segjast þeir
stefna að því að koma upp aðstöðu
til reykingar.
fyrra. Hefur mestu verið landað í
Áustur-Finnmörk.
í Noregi er búist við, að löndun-
um Rússa þar geti lokið mjög
skyndilega. Þeir eru nú að láta
smíða fyrir sig skip í Danmörku
og Þýskalandi og fyrir þau verður
meðal annars greitt með þorsklönd-
unum þar. Þá er talið, að meira
hafi verið um þorsklandanir í
Múrmansk en í fyrra og þetta og
lítill útistandandi kvóti hljóta að
leiða til þess, að lítið verði um land-
anir í Noregi það sem eftir lifír árs.
55 kr. meðalverð
í fyrra greiddu Norðmenn að
meðaltali 65 kr. ísl. fyrir kílóið af
Rússaþorski en í ár töluvert minna
eða um 55 kr. Alls hafa þeir keypt
Rússafisk fyrir 5,5 milljarða ísl.
kr. á þessu ári en fyrir rúmlega
sjö milljarða kr. í fyrra. Eftir-
spurnin eftir þorski er þó góð og
á ýmsum mörkuðum hefur hann
verið að hækka í verði.
Innflutningur á sterkum litarefnum
Bið á litríku sælgæti
Klárast þorskkvóti
Rússa í október?
Norðmenn gera ráð fyrir færri löndunum
• • I ■ j * v - * " * E ■ B * 3 - ■
HEIMILISIÐNAÐARSKOLINN. LAUFÁSVEGI 2, REYKJAVÍK, SÍMI 551-7800 FAX 551 5532
Upplýsingar og skráning á skrifstofu skólans mánudaga til fimmtudaga frá kl. 10.00 til 13.00. Skráning stendur yfir og lýkur 28. okt. 1996.
y
BUTASAUMUR
21. okt.-18. nóv.
‘ Kennari: Bára
Guðmundsdóttir.
9 Mánud.
| kl. 19.30-22.30.
JURTALITUN
24. okt.-15. nóv.
Kennari:
Guðrún Kolbeins.
Fimmtu- og föstudaga
kl. 19.30-22.30.
PAPPlRSGERÐ
14. okt.-11.nðv.
Kennari:
Þorgerður Hlöðversdóttir.
Mánudaga kl. 19.30-22.30.
Áhersla er lögð á nýtingu og
endurvinnslu náttúrulegra efna.
KNIPL
14. okt.-2. des.
Kennari:
Anna Sigurðardóttir.
Mánud. kl. 19.30-22.30.
UTSKURÐUR
22. okt.-19. nóv
Kennari: Bjarni Þór.
Þriðjud.
kl. 19.30-22.30.
SPJALDVEFNAÐUR
14. okt,—28. okt.
Kennari:
Ólöf Einarsdóttir.
Þriðjud. og
fimmtudaga
kl. 19.30-22.30.
ALM. VEFNAÐUR
28. okt.—20. nóu.
Kennari:
Herborg Sigtryggsdóttir.
Mánu- og miðvikudaga
kl. 19.30-22.30.
GAMALT OG G0TT Hér er að ferðinni nýtt og spennandi námskeið
- NOTAÐ 0G FL0TT Þar sem markmiðið er að endurnýta gömul föt,
23.okt-20. nóv.
Kennari:
Rut Bergsteinsdóttir.
Miðvikudaga
kl. 19.30-22.30.
efnisafganga, rúmföt, borða, slaufur, snúrur,
tölur, hnappa og annað sem liggur í skútfum
og skápum engum að gagni. Nú má engu henda
- allt skal notað.
L’HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN VILL VEKJA ATHYGLI Á AÐ BARBRO GARDBERG VERÐUR MEÐ SÝNINGU Á BANDVEFNAÐI í ANDDYRI NORRÆNA HÚSSINS 5. TIL 27. OKTÓBER.