Morgunblaðið - 01.10.1996, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 23
ERLEIMT
Flokksþing breska Verkamannaflokksins í Blackpool
Áhersla lögð á einingii og
efnahagslega ábyrgð
Blackpool, London. Reuter, The Daily Telegraph.
TONY Blair, leiðtogi breska
Verkamannaflokksins, setti þing
flokksins í Blackpool í gær, það
síðasta fyrir næstu þingkosningar.
Verður þar iagt mest upp úr ein-
ingu út á við þrátt fyrir margs
konar ágreining inn á við og upp
úr þeim nýju áherslum, sem Verka-
mannaflokksmenn vonast til að
fleyti sér í valdastólana eftir 17 ár
í stjórnarandstöðu.
Miklar væringar hafa verið inn-
an flokksins að undanförnu út af
stefnunni í eftirlaunamálum en svo
virðist sem tekist hafi að lægja
mestu öldurnar þar. Reynir nú
flokkurinn að höfða til óákveðinna
kjósenda, t.d. með því að lofa, að
komist hann til valda, verði löng
bið krabbameinssjúklinga eftir
uppskurði úr sögunni.
Sagan frá 1992 víti
til varnaðar
Fyrirheit um að færa 10 millj-
arða ísl. kr. frá rekstri heilbrigði-
skerfisins og til umönnunar sjúkl-
inga er eitt af fáum kosningalof-
orðum Blairs og efnahagsráðgjafa
hans, Gordon Browns, sem geta
haft. í för með sér aukin útgjöld
fyrir ríkið. Blair ætlar ekki að láta
söguna frá 1992 endurtaka sig en
þá notfærðu íhaldsmenn sér mik-
inn loforðalista Verkamanna-
flokksins til að útmála hann sem
fyrirhyggjulaus-
an skattpíningar-
flokk.
Búist var við,
að Blair myndi
leggja á það
áherslu í setning-
arræðu sinni, að
flokksmenn yrðu
að beita sig jám-
hörðum aga þeg-
ar kæmi að því að forgangsraða
málum, sem krefðust aukinna út-
gjalda. Vitað er hins vegar, að
vinstrimenn í flokknum, sem hafa
verið í hálfgerðri útlegð í 20 ár,
eru með langan óskalista og halda
því fram, að forystan sé tilbúin til
Tony Blair
að kaupa völdin með því að kasta
öllum stefnumálum fyrir róða.
Mikið en minna forskot
Ný Gallupkönnun sýnir, að for-
skot Verkamannaflokksins á
íhaldsflokksinn hefur heldur
minnkað, úr 33 prósentustigum í
27. Er það meðal annars rakið til
deilna innan Verkamannaflokksins
um stefnuna í málefnum Skotlands
og um tengsl flokksins við verka-
lýðsfélögin. Eftir sem áður er það
mjög mikið og á það er bent, að
á svipuðum tíma fyrir síðustu kosn-
ingar hafði íhaldsflokkurinn tvö
prósentustig umfram Verka-
mannaflokkinn.
Úrslit í Bosníu úrskurðuð lögmæt
Forsætisráð
kemur saman
í Sarajevo
Sarajevo. Reuter.
LEIÐTOGAR múslima, Króata og
Serba í Bosníu, þeir Alija Izet-
begovic, Kresimir Zubak og Momc-
ilo Krajisnik, náðu í gær samkomu-
lagi um að halda fyrsta fund for-
sætisráðs landsins í Sarajevo og
var hann haldinn á Saraj-móteli.
Talsmenn Öryggis- og sa mvinnu-
stofnunar Evrópu (ÖSE) úrskurð-
uðu á sunnudag að úrslit sem birt
hafa verið í kosningunum 14. sept-
ember skyldu gilda.
Miklar öryggisráðstafanir voru
við fundarstaðinn og var öll um-
ferð í grennd við það bönnuð.
Hart var deilt um fundarstað for-
sætisráðsins í tvær vikur og neit-
aði Krajisnik lengi vel að fara til
Sarajevo en þar hafði hann ekki
stigið fæti sínum í rúm fjögur ár.
Krajisnik vildi að fundurinn yrði
haldinn á landamærum sambands-
ríkjanna tveggja, Serba annars
vegar og múslima og Króata hins
vegar en þessi tvö ríki mynda sam-
bandsríkið Bosníu.
Friður ótraustur
Niðurstaða ÖSE um úrslit kosn-
inganna mun að líkindum verða til
þess að viðskiptaþvinganir Sam-
einuðu þjóðanna gegn Serbíu-
Svartfjallalandi verða endanlega
felldar úr gildi, að sögn heimildar-
manna.
Hugmyndir höfðu verið uppi í
liðinni viku um endurtalningu
vegna þess að kjörsókn þótti sums
staðar vera meiri en eðlilegt gæti
talist og ásakanir um kosningas-
vindl gengu á báða bóga.
Robert Frowick, formaður
nefndar ÖSE í Bosníu, viðurkenndi
að ýmislegt hefði farið úrskeiðis í
kosningunum en nauðsynlegt væri
að halda áfram friðarferlinu vegna
þess að ástandið væri svó ótraust
í landinu.
Vígstaðan efld?
Talsmenn Atlantshafsbanda-
lagsins, NATO, vöruðu í gær við
því að múslimar væru ef til vill að
reyna að styrkja hernaðarstöðu
sína með því að leggja undir sig
nokkur lítil þorp á lítilli landtotu
múslima er hart var barist um í
stríðinu. Er hún í norð-austurhluta
Bosníu í grennd við ána Drínu.
Yfirráðasvæði Serba er þar mjó
landræma, nokkrir kílómetrar að
breidd og tengir hún austur- og
norðurhéruð þeirra.
Stjórn múslima harðneitar því
að verið sé að ógna Serbum en
ónefndur liðsforingi í her NATO
benti á að kæmust múslimar alla
leið að Drínu væri þeir búnir að
kljúfa svæði Serba í tvennt.
Reuter
Kosið í Uttar Pradesh
ÞINGKOSNINGAR hófust í gær
í fjölmennasta sambandsríki
Indalands, Uttar Pradesh og var
myndin tekin á kjörstað í borg-
inni Hapur. Talið er að kosning-
arnar muni fyrst og fremst
verða geysihörð barátta milli
miðju- og vinstrabandalags H.D.
Deve Gowda, forsætisráðherra
Indlands, og hins þjóðernissinn-
aða hindúaflokks Bharatiya Jan-
ata.
Clarke
hafnar
skatta-
lækkun
London. Reuter.
BRESKI íhaldsflokkurinn heldur
flokksþing sitt eftir rúma viku, 8.
þ.m., og eins og staðan er í breskum
stjórnmálum ríður flokknum á, að
ekkert verði til að skyggja á það.
Kenneth Clarke fjármálaráðherra er
enn einu sinni í sviðsljósinu eftir að
hafa hafnað pólitískum skáttalækk-
unum.
John Major forsætisráðherra von-
ast til að geta notað vikulangt
flokksþingið til að jafna deilur innan
flokksins vegna Evrópumálanna og
losa hann um leið við það spillingar-
orð, sem farið hefur af honum.
Kenneth Clarke sagði á sunnudag,
að hann myndi ekki beita sér fyrir
skattalækkun í þeirn tilgangi einum
að auka fylgi við íhaldsflokkinn og
viðurkenndi jafnframt, að flokkurinn
hefði ekki staðið við eitt helsta kosn-
ingaloforð sitt frá 1992. „Almenn-
ingur mun ekki láta blekkjast af
skattalækkun nú vegna þess að við
höfum áður lofað skattalækkunum
en ekki staðið við það,“ sagði Clarke.
Evrópuand-
stæðingar reiðir
Það eru sérstaklega Evrópuand-
stæðingarnir í íhaldsflokknum, sem
eru reiðir Clarke vegna þessarar
yfirlýsingar, en hann er mikill Evr-
ópusinni eins og kunnugt er. Draga
. þeir enga dul á, að þeir vilji sjá
tvennt gerast: Að flokkurinn losi sig
við Clarke og þannig verði komið í
veg fyrir aðild Bretlands að EMU,
Evrópska myntbandalaginu, og
skattar verði lækkaðir til að bæta
stöðuna í næstu kosningum.
Yfirlýsingar Clarkes um helgina
um skattalækkanir urðu til þess, að
síðdegisblaðið Sun spurði hvaða
flokk Clarke styddi en haft var eftir
einum samráðherra hans í síðustu
viku, að „hans vandamál" væri hvað
hann væri heiðarlegur og hreinskil-
inn.
Helgaidvöl í heimsborg
fyrir líkama og sál
Listasöfn, leikhús og
lífsins lystisemdir
Boston
á mann í tvíbýli í 3 daga
í nóvember*.
'lnnifalið: Flug, gisting ogflugvallarskattar.
Hafðu samband við söluskrifstofur okkar, umboðsmcnn, fcrða-
skrifstofumar cða söludeild Fluglciða í síma SO SO100
(svarað mánud. - föstud. kl. 8-19 og á laugard. kl. 8 -16).
FLUGLEIÐIR
Traustur íslenskur ferðafélagi