Morgunblaðið - 01.10.1996, Page 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
ERLENT
MORGUNBLÁÐIÐ
Reuter
Stjórnvöld í Pyongyang saka S-Kóreu um morð
Enn einn Norður-
Kóreumaður felldur
250
handteknir
LEVON Ter-Petrosyan, forseti
Armeníu, hefur notað óeirðirnar
í vikunni sem leið sem átyllu til
að láta handtaka pólitíska and-
stæðinga og hindra andóf gegn
stjórninni. Stjórnarerindrekar og
armenskir stjórnarandstæðingar
segja að allt að 250 manns hafi
verið handteknir, margir þeirra
hafi ekkert tengst óeirðunum.
Yfirvöld tilkynntu á sunnudag
að Ter-Petrosyan hefði náð endur-
kjöri í forsetakosningunum helg-
ina áður, með 51,8% atkvæða.
Hefði forsetinn fengið minna en
50% kjörfylgi hefði þurft að kjósa
að nýju milli hans og heista and-
stæðings hans, Vazgen Manukyan,
sem fékk 42%. Manukyan sakar
forsetann um kosningasvik.
Herinn er enn með allmikinn
viðbúnað í höfuðborginni, Jere-
van, eins og sést á myndinni, sem
var tekin á sunnudag.
Hamar og
sigð víkja
Moskvu. Reuter.
LIÐIN eru fimm ár frá því
að Sovétríkin liðu undir lok
og enn þurfa Rússar að nota
gömlu sovésku vegabréfin
með áletruðum hamri og sigð.
Nú hillir hins vegar undir það
að hamarinn og sigðin víki
fyrir tvíhöfða erni keisara-
tímans og nafn Rússlands
verði letrað á skilríki.
Borís Jeltsín, forseti Rúss-
lands, undirritaði á föstudag
tilskipun um útgáfu nýrra
vegabréfa frá og með 21.
október, að því er haft var
eftir Sergei Jastrzjembskí,
talsmanni forsetans.
Sovétríkin lifa þó víða enn
í kerfinu og þurfa ferðamenn
til dæmis enn að greina frá
„ástæðum heimsóknar til
Sovétríkjanna" við komuna
til Rússlands. Þá eru til haug-
ar af bréfsefni frá Sovét-
tímanum.
Seoul, Genf. Reuter.
SUÐUR-kóreskir hermenn felldu í
gær enn einn norður-kóresku kaf-
bátsmannanna, sem stigu land í
Suður-Kóreu fyrir tæpum hálfum
mánuði, og hafa þá alls 22 verið
skotnir. Yfirvöld í N-Kóreu saka
þau s-kóresku um að hafa drepið
mennina, sem hafi í raun verið
skipreika, með köldu blóði.
Að sögn yfirvalda í S-Kóreu var
N-Kóreumaðurinn drepinn í átök-
um við s-kóreska hermenn, sem
hafa þá fellt 11 en aðrir 11 fund-
ust skotnir. Talið er, að þeirra eig-
in félagar hafi ráðið þeim bana.
Einn var tekinn lifandi og talið er
hugsanlegt, að enn leiki þrír laus-
um hala.
Fimm s-kóreskir hermenn hafa
fallið í leitinni að N-Kóreumönnun-
um, þar af einn fyrir hendi félaga
síns, sem hélt hann vera einn af
kafbátsmönnunum. Þar að auki
var einn óbreyttur borgari særður
vegna mistaka.
Skipreika menn?
í yfirlýsingu stjórnarinnar í Py-
ongyang í N-Kóreu sagði, að yfir-
völd í S-Kóreu hefðu átt að bjarga
n-kóresku hermönnunum vegna
þess, að þeir hefðu í raun verið
skipbrotsmenn. Þess í stað hefði
tugum þúsunda hermanna verið
sigað á þá og þeir skotnir með
köldu blóði. Var því haldið fram,
að viðbrögð S-Kóreustjórnar mætti
rekja til hennar eigin erfiðleika
heimafyrir og í samskiptunum við
Bandaríkin og Japan.
Kommúnistastjórnin í Pyongy-
ang heldur því fram, að kafbáts-
mennirnir hafi verið óvopnaðir en
það stangast á við fréttir frá S-
Kóreu en samkvæmt þeim voru
þeir vel vopnaðir og jafnvel búnir
s-kóreskum einkennisbúningum og
vopnum.
Suður-Kóreustjóm ætlar að fara
fram á það við Bandaríkjastjórn,
að sameiginlega heræfingar ríkj-
anna verði teknar upp aftur en
þeim var frestað til að greiða fyrir
samningi Bandaríkjastjórnar og
N-Kóreustjórnar um að sú síðar-
nefnda hætti við hugsanlegar áætl-
anir um smíði kjarnorkuvopna.
Major hvattur til að
hindra áform um EMU
London. Reuter, The Daily Telegraph.
JOHN Redwood, sem skoraði John Major á hólm
í leiðtogakjöri brezka Ihaldsflokksins í fyrra,
hvatti nafna sinn til þess á sunnudag að hindra
að önnur ríki ESB reyndu að komast framhjá
skilyrðum Maastricht-samningsins fyrir þátttöku
í Efnahags- og myntbandalagi Evrópu (EMU).
Major hafði áður sagt að hann myndi ekki láta
undan þrýstingi hægrivængs flokksins um að
útiloka EMU-aðild Breta nú þegar.
Major sagði á föstudag að andstæðingar ESB
í þingflokknum væru að sóa tíma og orku með
því að reyna að fá hann ofan af þeirri stefnu að
„bíða og sjá“ hvernig EMU þróaðist. Hann sagði
að þvert á móti myndi Bretland taka þátt í samn-
ingaviðræðum um tilhögun EMU „þar til ég verð
fullkomlega viss um að ég hef náð öilu, sem
hægt er, út úr þeim í þágu brezkra hagsmuna."
Útiloka alla nema Lúxemborg
Redwood svaraði ummælum Majors með því
að segja að Bretum væri frjálst að taka þátt í
viðræðunum um útfærslu EMU. Hins vegar væru
skilyrðin fyrir þátttöku í myntbandalaginu skýr,
eins og þau væru sett fram í Maastricht-sáttmál-
anum og um þau þyrfti ekki að semja frekar.
„Það, sem Bretland getur haft áhrif á, er hvort
lönd, sem ekki uppfylla skilyrðin, fá að taka þátt
í EMU,“ sagði Redwood. „Bretland ætti staðfast-
lega að segja nei við slíku. Það myndi útiloka öll
ríkin nema Lúxemborg."
Hann bætti því við að færi EMU úr böndunum
vegna þess að ríkjum, sem í raun væru óhæf til
þátttöku, yrði hleypt inn í upphafi, myndu eigend-
ur verðbréfa, útgefinna í pvróum, eiga skaða-
bótakröfu á hendur ESB. „Án skýrrar breytingar
Redwood
Major
á samningnum yrði áfram lagaleg óvissa og ESB
varnarlaust fyrir málssókn," sagði Redwood.
„Fullkomið rugl“
,★★★*
EVRÓPA^
Kenneth Clarke fjármála-
ráðherra sagði á sunnudag að
það væri „fáránlegt" að reyna
að spilla EMU-áformum ann-
arra ESB-ríkja. Andstæðingar
ESB í þingflokki íhaldsmanna
telja hins vegar að árið 1999,
er Bretland verður í forsæti
ráðherraráðs ESB, gefist gott tækifæri til slíks.
„Hugmyndir um að Bretland geti í raun hindrað
aðra í að halda áfram eru fullkomið rugl. Við
höfum engin meðul til þess,“ sagði Clarke.
Fjármálaráðherrar G7
Aukinn
EMU-áhugi
Washington. Reuter.
LEIÐTOGAR sjö helstu iðnríkja heims, G7-
hópurinn svokallaði, sýnir áformunum um
Myntbandalag Evrópu (EMU) stöðugt meiri
áhuga og segja fjármálaráðherrar ríkjanna,
sem funduðu í Washington um helgina, mikil-
vægt að sameiginlegi gjaldmiðillinn, evró,
verði jafnstöðugur og þýska markið er nú.
Robert Rubin, fjármálaráðherra Bandaríkj-
anna, sagði að fundinum loknum að hann
hefði það sterklega á tilfinningunni að Evr-
ópuríki væru staðráðin í að láta EMU-áformin
verða að veruleika. Franski fjármálaráðherr-
ann, Jean Arthuis, sagði að gerð hefði verið
grein fyrir niðurstöðum ráðherrafundar ESB
í Dublin nýverið og ákvörðunum, sem þar
hefðu verið teknar um framkvæmd EMU.
Seðlabankastjóri Þýskalands, Hans Tiet-
meyer, sagði rikin hafa áhuga af því að þegar
þýska markið hyrfi af vettvangi myndi nýja
sameiginlega myntin taka við hlutverki þess.
„Annars gæti orðið fjár-
magnsflótti í átt til dollars
sem myndi hafa áhrif á pen-
ingamarkaði. Það hefur eng-
inn áhuga á að það gerist,“
sagði Tietmeyer.
Allir fjármálaráðherrarn-
ir voru sammála um að þeir
teldu æskilegt að gengi
Bandarikjadollarans væri
sterkt. Frakkar hafa löngum krafist þess að
gengi dollara yrði hækkað en Arthuis sagði
nú einungis að hann styddi öflugan, banda-
rískan gjaldmiðil.
Frjálslynd-
ir heita
samstöðu
SJÖ ftjálslyndir stjórnmála-
flokkar í Rússlandi stofnuðu
um helgina nýjan samstarfs-
vettvang sem ætlað er að skapa
flokkunum nýja ímynd og auka
þeim fylgi. Leiðtogi flokkasam-
bandsins, Jegor Gajdar, sagði
að eftir væri að móta hvernig
samtökin störfuðu og hvernig
ákvarðanir yrðu teknar á vett-
vangi þeirra. Ekki tókst umbót-
asinnum að grafa stríðsöxina
alveg því Gajdar sagði að Jab-
loko, flokkur Grígorís Javlínsk-
ís, væri jafnaðarmannaflokkur
sem ekki ætti heima í samtök-
um ftjálslyndra flokka.
Clinton eykur
forskotið
NÝ könnun CNN/USA Today
um fylgi frambjóðenda vegna
forsetakosninganna í Banda-
ríkjunum í nóvember, sem birt
var á sunnu-
dag, sýnir
að forskot
Bills Clint-
ons forseta
á Bob Dole,
forsetaefni
Repúblik-
ana, hefur
aukist á ný
og er nú
14%. Fengi Clinton 51% at-
kvæða, samkvæmt könnuninni,
Dole 37% og Ross Perot 6%. I
könnun sem birtist á laugar-
dag, nam fylgi Clintons 48%,
Doles 39% og Perots 6%.
Ást á
grænu ljósi
MARKAÐUR fyrir pillur og
smokka getur dregist saman
ef nýtt breskt-hollenskt getn-
aðarvarnatæki nær útbreiðslu.
Mælir það hormónasamsetn-
ingu í þvagi kvenna og á að
geta með mikilii nákvæmni
sagt fyrir um hvenær kona á
það á hættu að verða þunguð
og hvenær ekki. Kvikni grænt
ljós á tækinu er henni óhætt
að eiga samræði án getnaðar-
vamar en kvikni rauða ljósið
er allur varinn góður.
Aðgerðir
gegn Búrma?
BRETAR hvöttu í gær til al-
þjóðlegra aðgerða gegn herfor-
ingjastjórninni í Búrma vegna
vaxandi sóknar hennar gegn
umbótasinnum. Komið var í
veg fyrir, að haldinn væri fund-
ur lýðræðissamtaka Aung San
Suu Kyi á heimili hennar um
helgina. Ætla Bretar að taka
málið upp hjá Evrópusamband-
inu í dag.
Vísindakirkja
fyrir rétt
RÉTTARHÖLD hófust í gær í
Lyon í Frakklandi yfir 23
stjórnendum Vísindakirkjunnar
(Scientology). Búist er við, að
þau varpi Ijósi á starfsemi sér-
trúarsafnaðarins, sem breiðst
hefur til margra landa. Sak-
borningarnir eru sagðir hafa á
samviskunni manndráp og
sviksamlega fjáröflun. Kirkjan
hefur verið sökuð um að hafa
haft fjármuni af ríkum, trú-
gjörnum einstaklingum með
vafasömu aðferðum er leitt
hafi bæði til líkamlegs og and-
legs heilsutjóns viðkomandi.
Clinton