Morgunblaðið - 01.10.1996, Qupperneq 27

Morgunblaðið - 01.10.1996, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 27 LISTIR Erró sýnir í Þýzkalandi Er að fást við eins konar blaðamennsku Morgunblaðið/Þórarinn Stefánsson ÞÝZKIR fjölmiðlar sýndu Erró og sýningu hans mikinn áhuga. Hannover. Morgunblaðið BÖRNUM bannaður aðgangur nema í fylgd með fullorðnum. Þessa við- vörun bar fyrir augu mín þegar ég gekk í salinn. Fólkið streymdi að og flestir barnlausir. Það sem fyrir augu bar innandyra gaf til kynna ástæð- una fyrir aðvörunarorðunum. Mynd- ir Errós voru margar hveijar ekki ætlaðar viðkvæmum sálum. Að sýningunni á verkum Errós stóð Wilhelm Busch-félagið sem jafn- framt rekur safnið Wilhelmt-Busch- Museum Deutsches Museum fiir Karikatur und kritische Grafik Hannover eða Þýskt safn fyrir teikn- ingar og gagnrýna grafík. Nafn sitt dregur félagið af rithöfundinum og fígúrumálaranum Wilhelm Busch sem þekktastur er fyrir teiknimynda- sögur sínar af þeim prökkurum Max og Moritz. Þar sem margar af mynd- um Errós eru geysistórar sáu for- stöðumenn safnsins þann kost vænst- an að flytja sýninguna í geysistóran sal, Orangerie, í herragarðinum „Herrenhausen" sem er staðsettur í Ensku görðunum nálægt háskólanum í Hannover. Umgjörðin um sýninguna er þar með einkar glæsileg og vekur mikla athygli þar sem þessi herra- garður dregur til sín ferðafólk sem og borgarbúa vegna fegurðar. Þrátt fyrir nóg pláss fyrir mynd- irnar gekk uppsetningin ekki alveg vandræðalaust fyrir sig. Salurinn sem er um 100 metra langur og 13 metra breiður gerir það að verkum að setja verður upp skilrúm til að fylla uppí hið geysimikla rými. Gunn- ar Kvaran forstöðumaður Kjarvals- staða sá, ásamt listamanninum, um uppsetningu verkanna. Fann 420 pólitísk verk Til sýnis eru 65 olíumálverk, 45 myndir í klippimyndastíl og í Forum Kultur í Kreissparkassa Hannover, sem er banki sem styrkir sýninguna fjárhagslega, eru 25 vatnslitamyndir til sýnis. Verkin spanna 30 ára tíma- bil í sögu listamannsins og er elsta myndin frá árinu 1946. Stór hluti Sýning á verkum Errós stendur nú yfír í Hann- over, en 20 ár eru síðan verk hans voru síðast til sýnis í Þýskalandi. Þórarinn Stefánsson var við opnunina á sýningunni sem spannar þrjátíu ára tímabil á listferli Errós. myndanna er úr safni verka sem Erró færði Reykjavíkurborg að gjöf en einnig eru margar myndir úr öðrum söfnum í Frakklandi og víðar úr Evrópu, svo og nýjar myndir úr vir.nustofu Errós. í verkunum sem til sýnis eru fæst Erró við pólitísk málefni og veitir fyrir sér stöðu list- arinnar í hinu svokallaða „fast-food“ þjóðfélagi nútímans þar sem ljósvak- amiðlar virðast ráða ríkjum. Titill sýningiarinnar er pólitísk málverk (Political paintings) og eins og gefið er til kynna sýnir Erró að þessu sinni myndir úr hinu „pólitíska safni“ sínu. „Ég var beðinn um pólitíska sýn- ingu,“ segir Erró. „Ég fór að gramsa í fórum mínum og bjóst við að fínna kannski 50-60 myndir, en endaði á því að fínna 420 verk. Svo völdum við úr það sem var auðveldast að lána og ódýrast að tryggja. Það má segja að verkin séu eins konar „dokumentation" á pólítk og stríð- um, allt frá Víetnam til Sarajevo. Stórar þjóðir eru alltaf að segja litl- um hvað þær eiga að gera og mér líkar það ekki. Eg er hérna að fást við eins konar blaðamennsku." Setur Erró aftur inn í sögulegt samhengi Hér er um að ræða fyrstu sýningu Errós í Hannover. Fyrir um 20 árum voru verk hans síðast til sýnis í Þýskalandi en þá vakti sýning hans í Köln mikla athygli, þegar hann sýndi í fyrsta skipti Mao-myndirnar og „Amerikan Interiors“. Á þeim tíma var gefín út eins konar endur- skoðað Mao-kver sem fjallaði ein- göngu um heimsreisu Maos. Sú sýn- ing markaði djúp spor í þýska lista- heiminn og allt til dagsins í dag má segja að það sé sú ímynd sem Þjóð- vetjar hafa af Erró. Að mati Gunn- ars Kvarans mun sýningin í Hanno- ver setja Erró aftur inni ákveðið sögulegt samhengi. „Þessi sýning er að því leyti merkileg að hún sýnir sérstöðu evr- ópska poppsins og sérstöðu Errós í hinu evrópska umhverfi. Eins sýnir hún þær tengingar sem Erró hefur við bæði þýska, franska og ítalska listamenn." Mikið er gert úr sýningu Errós og vegleg bók, sem jafnframt er sýning- arskrá, hefur verið gefin út. Umfjöll- un fjölmiðla hefur verið með allra mesta móti og nú þegar hafa birst ítarlegar greinar og jákvæðar um- sagnir í tveimur stærstu blöðum Hannover. Við opnunina var margt um manninn og forsætisráðherra Neðra-Saxlands, Gerhard Schröder, opnaði sýninguna. íslendingar bú- settir í Hannover og í nágranna- byggðum fjölmenntu og nutu sam- neytis við listamannin og sambýlis- konu hans, Vilaij. Gunnar Kvaran forstöðumaður Kjarvalsstaða og Guð- rún Jónsdóttir fulltrúi menning- armála hjá Reykjavíkurborg voru einnig viðstödd, svo og sendiherra íslands í Bonn, Ingimundur Sigfús- son, og kona hans, Valgerður Vals- dóttir. Að lokinni formlegri opnun höfðu gestir tækifæri til að skoða myndimar við mjúkan djassundirleik og var íslendingum ásamt aðstand- endum og heiðursgestum að lokum boðið til kvöldverðar í boði sendiherra og konsúls íslendinga í Hannover. „Það má segja að það eina sem við íslendingar höfðum uppá að bjóða á erlendri grund sé menning okkar og listir," sagði Ingimundur aðspurð- ur um gildi sýningar sem þessarar fyrir land og þjóð. Það var ekki laust við að menn fínni til sín þegar ísland fær athygli sem þessa. „Með þessum hætti getum við best kynnt okkar land og það sem við höfum fram að færa. Við höfum t.d. séð í dag hvað hægt er að ná til margs fólks í gegn- um svona viðburð." Vissulega á mikill fjöldi eftir að kynnast íslandi í gegnum verk Er- rós, en þau verða til sýnis í Hanno- ver til 3. nóvember. Þaðan fer sýn- ingin til Miinchen, Hamborgar og til Berlínar. Allt í allt munu Þjóðveij- ar og gestir þeirra geta notið listar Errós til septemberloka á næst ári. Ljós og gler MYNPLIST Stöðlakot GLERLIST Marta María. Opin daglega frá 14-18. Til 29. september. Aðgangur ókeypis. ÞAÐ er mun meira paufast á listavettvangi en flesta grunar og sumir einstaklingar og listhópar eru með vinnustofur og listhús á höfuð- borgarsvæðinu sem við, er rýnum í þessa hluti, vitum jafnvel lítið um. Þannig þekki ég næsta fátt til vinnustofu og list- húss Mörtu Maríu Hálfdánardóttur í Garðabæ og vissi raunar ekki að slík- ur samruni fyrir- fyndist í sveitarfé- laginu þótt eðlilega séu þar fleiri eða færri listamenn bú- settir. Listakonan nam glerskurð hér á landi fyrir allmörg- um árum og hefur verið starfandi í faginu síðan. Hún hefur einnig sótt ýmis námskeið og viðað að sér þekkingu á ferðum sínum erlendis. Telst þetta sjötta einkasýning hennar, auk þátttöku á samsýning- um heima og sýningarsal „Evers“ í Köln. Um er að ræða léttan leik lita og forma, efniviðurinn er munn- blásið gler, blýfals og jám, þar sem meira er stílað á yndisþokka og samræmi en afgerandi átök við miðilinn. Lausnirnar geta verið í besta máta þokkafullar og þá eink- um í þeim verkum sem hanga í gluggunum niðri, svo sem „Úr iðr- um jarðar“ (8 og 9) og og enn frekar uppi „Úmbrot (12) og „Upp- hafið“ (15). Þessi verk bera af á sýningunni fyrir stígandi í lit og ósamsvarandi, asymmetrísk, form, sem skapa lífrænt flæði og inn- byrðis spennu. Annars vegar í rofnum sporöskjulaga formum en hins vegar ferhyrndum. Hreinu hringformin, sem mikið ber á, eru hins vegar meira hreint skreyti og fullstöð, ná ekki fiugi að segja má. Þá má að ósekju koma fram að númer mynda á síst af öllu að staðsetja á þeim sjálfum, heldur ber að koma þeim vel fyrir í ná- grenninu, svo auð- velt sé að finna þau og augað nemi þau skýrlega. Sérviska á hér alls ekki heima en er því miður fulláberandi á einstökum sýn- ingum, svo nokkur tími fer í að átta sig, en hér er um viðvaningshátt að ræða sem aðeins má afsaka á almennum myndsölu- stöðum. Marta María hefur góða litatil- fínningu, sem kemur helst fram í fyrrnefndum verkum, einkum hvað verkið Umbrot snertir, þar sem uppistaðan er brúnt, appelsínugult, ásamt því að aflangt vírverk sker miðjuna og tvö mógræn laufblöð mynda eins konar hreyfiás. Von- andi ber hún gæfu til að þroska þessa eiginleika og um leið má hún að ósekju vera ófeimnari við átök við liti og form. Bragi Ásgeirsson Því miður tókst ekki að birta þessa umsögn áður en sýningunni lauk. r H ö P P D RJI + + Í HjARTA- MERriDAf! Hægt er að greiða heimsenda miða með greiðslukorti í síma 581 3947. Sendum hvert á land sem er. a Hjartavernd Lágmúla 9 108 Reykjavík Þökkum eftirtöldum adilum veittan stuðning SPARISJÓÐUR REYKJAVlKUR w OG NAGRENNIS Tæknival ^ÖRVAL-IÍTSÝN © TOYOTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.