Morgunblaðið - 01.10.1996, Qupperneq 35

Morgunblaðið - 01.10.1996, Qupperneq 35
MORGUNBLAÐIÐ Fullorðinsfræðslan matshæft einingarnám: ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996 35 IVIENNTUIM Atvinnurekendur eru nú í fyrsta sinn í stjórn Rannsóknaþjónustu Háskólans Leonardó stærsti útgj aldaliðurinn RANNSOKNAÞJONUSTA Háskóla íslands hefur tekið yfir rekstur Tækniþróunar hf. og sitja nú fulltrú- ar atvinnulífsins í fyrsta sinn í stjórn innan Háskóla íslands. Af hálfu atvinnurekenda voru kjörnir Baldur Hjaltason fram- kvæmdastjóri Lýsis hf., Jón Sigurðs- son framkvæmdastjóri Össurar hf. og Þorkell Sigurlaugsson fram- kvæmdastjóri þróunarsviðs Eim- skipafélags íslands. Aðrir í nýkjör- inni stjóm eru Ágústa Guðmunds- dóttir prófessor í raunvísindadeild, Ingjaldur Hannibalsson dósent í við- skipta- og hagfræðideild og Þor- steinn 1. Sigfússon prófessor í raun- vísindadeild. Fyrsti stjórnarfundur var haldinn í vikunni. Nýjar starfsreglur um Rann- sóknaþjónustu voru samþykktar í september 1995 og í apríl 1996 tók Rannsóknaþjónustan við verkefnum Tækniþróunar hf., sem er aðallega rekstur Tæknigarðs og rekstur Tækniþróunarsjóðs. Tækniþróun hf. var stofnuð fyrir rúmum 10 árum af ýmsum fyrirtækjum og var Tæknigarður eitt fyrsta verkefnið sem fyrirtækið beitti sér fyrir. Velta 52 millj. kr. í skýrslu sem Hellen Gunnarsdótt- ir framkvæmdastjóri Rannsókna- þjónustu Háskólans lagði fram á háskólaráðsfundi fyrir skömmu kom fram að rekstur stofnunarinnar fyrir árið 1996-97 er áætlaður rúmar 52 m.kr. og þar af fara 32,6 m.kr. í margvíslega styrki, s.s. nemenda- skipti milli skóla og fyrirtækja, starfsmannastyrki og samstarfsverk- efni. Stærsti einstaki rekstrarliður skrifstofunnar er rekstur Landsskrif- stofu Leonardó, starfsþjálfunaráætl- unar ESB, sem nemur 21,5 m.kr. tMIUM Þið kaupið 3 stk. og verðið kemur á óvart, tilboð sem enginn fær staðist, Laðeins kr. 1.436 Ath! Tilboð þetta stendur ^meðan birgðir endast. Sloggi Maxi Stærðir 40-50 95% bómull, 5% lycra Reykjavik: Olympia, Laugavegi og Kringlunni; Hagkaup, Kringlunní, sérvörudeild, Skeiían, Kjörgarður, Eiðistorg; Borgarapótek; Gullbrá; Glæsimeyjan; Lítstykkjabúðin. Kópavogur: Apótek Kópavogs Hafnarfjörður: Verslun Bergpóru Nýborg; Embla Mosfellsbær: Fell Akranes: Perla Borgarnes: Kaupf. Borgfirðinga , Stykkishólmur: Heimahornið ísafjörður: Krisma Bolungarvík: Bjarni Eiríksson Patreksfjörður: Höggið Hólmavík: Kaupf. Steingrímsfjarðar Hvammstangi: Kaupf, V-Húnvetninga Blönduós: Kaupf, Húnvetninga Sauðárkrókur: Kaupf, Skagfirðinga Akureyri: KEA, Hrísalundur, Amaró, Hagkaup Húsavík: Kaupf. Þingeyinga Mývatn: Verslunin Sel Egilsstaðir: Kaupf. Héraðsbúa Neskaupstaður: Lækurinn Vopnafjörður: Kaupf. Vopnfirðinga Hornafjörður: Kaupf. A-Skaftfellinga Hella: Kjarval Vestmannaeyjar: Mozart Selfoss: Vöruhús K.Á. Keflavík: Samkaup Njarðvík: Hagkaup Grindavík: Palóma Lýðskól- inn starf- ar í vetur BORGARRÁÐ samþykkti á fundi í síðustu viku að leggja Lýðskólanum til 1,5 m.kr. Gerir þetta framlag, auk 2 m.kr. framlags frá Norræna húsinu, honum kleift að hefja starfsemi 14. október nk. Verður hægt að veita 20 nemendum skólavist og starfar skólinn í tíu vikur. Verður á næstum dögum auglýst eftir umsóknum. Segir Oddur Albertsson skólastjóri að markhópurinn sé ungt fóík sem er ekki í skóla né hefur atvinnu og hefur ekki rétt til atvinnu- leysisbóta. Munu íjórir kenn- aramenntaðir starfsmenn sjá um starfið og reyna að leysa úr vandamálum sem upp geta komið. í fyrra störfuðu tveir kennaramenntaðir starfsmenn með nemendum auk náms- og félagsráðgjafa. Háskóli íslands 47 aðstoðar- menn FJÖRUTÍU og sjö háskóla- kennarar fengu styrki til að ráða sér aðstoðarmenn á haust- misseri, en alls bárust 59 um- sóknir að íjárhæð 9,5 m.kr. Voru flestir styrkirnir að upp- hæð 63 þúsund krónur. Að sögn Halldórs Jónssonar framkvæmdastjóra stjórnar Aðstoðarmannasjóðs var farin sú leið að hafa styrkina lága til að leyfa sem flestum að njóta þessa nýja sjóðs. Upphæðin samsvarar um 10 stunda vinnu á viku með námi á haustönn. „Upphæðin er nánast varla boð- leg fyrir námsmanninn en á hitt verður að líta að vinnan gagnast báðum aðilum vel. Nú veltur á velvilja kerfísins og ekki síst Alþingis hvort styrkja- kerfið heldur áfram,“ sagði Halldór. 14 styrkir fóru í félagsvís- indadeild, 1 í guðfræðideild, 6 í heimspekideild, 1 í lagadeild, 8 í læknadeild, 10 í raunvísinda- deild, 1 í tannlæknadeild, 3 í verkfræði og 3 í viðskipta- og hagfræðideild. Samtök fámennra skóla Ný stjórn NÝ stjórn var kjörin á aðal- fundi Samtaka fámennra skóla sem haldinn var í Stjórutjarnar- skóla um liðna helgi. Formaður er Rúnar Sigþórs- son, Skólaþjónustu Eyþings, Akureyri, Ólafur Arngrímsson, Stórutjarnarskóla er varafor- maður, meðstjómendur eru þau Dagbjört Hjaltadóttir, Grunn- skólanum í Súðavík, Birgir Karlsson, Heiðarskóla og Sif Vígþórsdóttir, Hallormsstaða- skóla. Skólanám eða fjarnám Grunnnáni, fornám og fyrstu 4 áfangar framhaldsskóla í kjarna- greinuni allt árið og enska, Þýska og þýska f'. ferðaþjónustu, spænska, norska, danska, sænska, ICELANDIC. Námsaðstoð: Öll lullorOinslræOslan Gerðubergi 1, sími 557 1155 I leimasíða: hltp//www/ice.is/f-f Netfang: fTfý«:ice.is,. .. . ,

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.