Morgunblaðið - 01.10.1996, Blaðsíða 50
50 ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1996
I DAG
MORGUNBLAÐIÐ
DVERGTÚLÍPANI - T. urumiensis
HAUSTLAUKAR
- TÚLÍPANAR
BAK við samheitið
blómlaukar leynist
stór og fjölbreyttur
hópur plantna, sem
eiga það sameigin-
legt að vera ræktað-
ar upp af forðavef,
sem ýmist er kallað-
ur laukur, hnýði eða
jarðstöngull. Oftast
eru þessar plöntur á
markaðnum í dvala
eða á laukforminu,
en mun sjaldnar þeg-
ar þær eru í blóma -
nema þá afskornar.
Þegar kemur fram
í miðjan september
verða auglýsingar
um haustlauka áberandi, en í
mars er hins vegar verið að aug-
lýsa vorlauka. Það ruglar mann
svo í ríminu að laukarnir sem
blómstra á vorin eru alls ekki
vorlaukar, heldur haustlaukar og
þeir sem blómstra miðsumars eða
síðla sumars eru ekki haustlaukar
heldur vorlaukar. Þessar nafn-
giftir, haust- og vorlaukar, eiga
við hvenær blómlaukarnir eru
settir í jörðu. Vorlaukarnir eru
gróðursettir á vorin. Sem dæmi
um vorlauka má nefna begóníur,
dalíur og gladíólur. Þetta eru
laukplöntur, sem eru viðkvæmar
fyrir frosti og því þolir laukurinn
ekki að vera úti vetrarlangt. Þær
þurfa þó flestar langan vaxtar-
tíma til að þær nái að blómgast
og þess vegna þarf oftast að
koma vorlaukunum til innan húss
og fiytja síðan út þegar frost-
hætta er um garð gengin. Haust-
laukar eru gróðursettir á haustin.
þetta eru harðgerðir blómlaukar,
sem þola frost og ýmsir þeirra
blómstra ár eftir ár. Meðal haust-
laukanna eru flestar algengustu
og vinsælustu laukjurtirnar svo
sem krókusar, páskaliljur og
túlípanar.
Túlípanar eru líklega vinsæl-
ustu blómlaukarnir í ræktun á
Islandi bæði í görðum og eins eru
þeir seldir afskornir í miklu
magni. Túlípanarnir eru upprunn-
ir í Mið-Asíu og talið er að rækt-
un þeirra hafi fyrst hafist í Pers-
íu, sem er sama ríkið og við köll-
um nú íran. Þeir höfðu verið í
ræktun um aldir eða jafnvel ár-
þúsundir þegar Evrópubúar
kynntust þeim. Ræktun þeirra
var mjög í tísku í Tyrklandi á 16.
öld ogum 1550, þegar Jón biskup
Arason barðist mót siðbreyting-
unni með lífið að veði, stundaði
tyrkneski sendiherrann í Austur-
ríki blómarækt. Hann kynnti
túlípanann fyrir austurrísku hirð-
inni og þar með breiddist túlíp-
anaæðið eins og logi um akur um
alla Vestur-Evrópu en heijaði
hvað mest í Hollandi. Hollending-
ar hafa æ síðan ræktað mest allra
af túlípönum og enn er sungið
um túlípana frá Amsterdam.
Flestir túlípanalaukar sem seldir
eru í verslunum hafa verið rækt-
aðir á hollenskum ökrum.
Haustlaukana er
auðvitað best að
setja niður sem fyrst
til þess að þeir geti
myndað rætur áður
en frystir fyrir al-
vöru. Mína fyrstu
túlípana setti ég þó
niður um miðjan des-
ember í gaddfreðna
jörð og notaði járn-
karl og hitaveituvatn
til að grafa holur
fyrir þeim. Þetta eru
þeir langlífustu
túlípanar sem ég hef
eignast, því einn
þeirra blómgaðist nú
í sumar eftir tuttugu
ár. Ég mæli þó ekki með þessari
gróðursetningaraðferð og fæstir
túlípanar verða svona langlífir,
marga þarf að dekstra dálítið til
að fá aftur blómgun og sumir
blómstra ekki nema einu sinni.
Blómvísir næsta árs myndaðist í
lauknum í sumar og til þess að
blómvísirinn þroskist nægjanlega
þarf laukurinn hlýrra umhverfi
en hér er almennt. Sumir kippa
túlípanalaukunum upp strax eftir
blómgun og segja með sér að þar
sem þeir séu ódýrari en sumar-
blóm megi kaupa nýja lauka að
hausti. Þeir sem vilja reyna að
viðhalda þeim eiga að brjóta
frævuna af strax og blómblöðin
detta, en láta laufið visna veru-
lega áður en það er íjarlægt eða
það sem betra er, grafa þá lauk-
inn upp, hreinsa af lauf og mold
og geyma laukinn við a.m.k. 20
gráður fram á haust. Hver laukur
blómstrar aðeins einu sinni, en
nýir hliðarlaukar myndast. Þeir
stærstu eru svo gróðursettir aftur
um haustið, hitt fer í úrkast.
Garðyrkjufélagið hefur flutt
inn lauka handa félagsmönnum í
nokkra áratugi. Á haustlaukalist-
anum er auðvitað úi'val garðtúlíp-
ana, en einnig eru þar villitúlípan-
ar. Þeir eru frekar lágvaxnir jafn-
vel aðeins 15 sem háir og
blómstra mun fyrr en garðatúlíp-
anar. Þeir hafa flestir reynst mjög
harðgerðir og blómstra hér ár
eftir ár og fjölga sér smám sam-
an. Sveiptúlípani - Tulipa tarda
- er frá A-Túrkestan. Hann er
aðeins 15-20 sm á hæð, blöðin
Ijósgræn á lit, löng og mjó. Blóm-
blöðin eru gul með hvítri brydd-
ingu og enda í dálitlum oddi. Þau
standa 4-6 saman í sveip á stöngl-
inum. I sólskini opnast blómið
alveg og er þá líkast stjörnu,
enda oft kallað stjörnutúlípani
áður fyrr. Annar smávaxinn villit-
úlípani er mjög líkur sveiptúlíp-
ana. Það er dvergtúlípani - T.
urumiensis frá NV-íran. Þá má
þekkja í sundur á að blóm dverg-
túiípanans eru algul að innan en
dálítið græn- eða rauðleit að utan.
Báðar þessar tegundir eru
skemmtilegar í steinhæð, fyrir-
hafnarlausar og árvissar.
S.Hj.
BLOM
VIKUNNAR
344. þáttur
Umsjón Ágúsla
B j ö r n s d ó Ui r
SKÁK
llmsjón Margeir
Pétursson
Staðan kom upp á opnu
móti í Martigny í Sviss í
ágúst. Svisslendingurinn
Allegro (2.205), var með
hvítt, en rúmenski stór-
meistarinn Florin Gheorg-
hiu (2.475) hafði svart og
átti leik.
43. - Be5! 44. Rxg3 -
Hxg3 (Nú á hvítur
ekki viðunandi vörn
við hótuninn 45. —
Bxf3 46. gxf3 -
Hxh3+ og nú er 45.
Rxe5? — Hxh3 mát.
Hann reyndi:) 45. e4
— Bxe4 46. Hgel —
Bxf3 47. Hxe5 —
Dh4 og hvítur gafst
upp.
Astralski alþjóða-
meistarinn Alexander
Wohl sigraði nokkuð
óvænt á mótinu með
6 vinninga af 7 mögu-
legum. Hann tók þátt
til að æfa sig fyrir Ólympíu-
mótið í Jerevan sem nú er
að ljúka.
SVARTUR leikur og vinnur
Farsi
VELVAKANDI
Svarar í síma 569 1100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Netfang: lauga@mbl.is
Enn um
holtasóley
MARTHA Björnsson
garðyrkjufræðingur
hafði samband við Vel-
vakanda og segir ekki
rétt hjá Hjalta Björns-
syni þar sem hann segir
rangt að kalla lauf holta-
sóleyjar ijúpnalauf. Hún
segir latneska heitið á
holtasóley vera dryas
octo petala og vitnar hún
í Garðblómabókina eftir
Hólmfríði Sigurðardótt-
ur, en þar segir m.a.:
„...holtasóley, ijúpna-
lauf, dryas octo petala,
yndislegur íslenskur
dvergrunni, sem er að-
eins um 15 sm hár...“ I
raun eru það lauf jurtar-
innar sem eru kölluð
ijúpnalauf en blómið
sjálft holtasóley.
Martha segir að þess-
ar upplýsingar sé , að
finna í flestum blóma-
bókum.
Fjöldi fólks hefur
hringt til Velvakanda til
að árétta þetta.
Louisu
Matthíasdóttur
vantaði
ÁSGERÐUR hringdi til
Velvakanda og furðaði
sig á að Árni Th. Björns-
son listfræðingur hafi
ekki nefnt nafn Louisu
Matthíasdóttur þegar
hann talaði um þekktar
listakonur í þætti sínum
í sjónvarpinu fyrir
skömmu. Louisa Matthí-
asdóttir er þekktur lista-
maður í Bandaríkjunum
og víðar og finnst Ás-
gerði að Árni hefði ekki
átt að sleppa henni í
upptalningu sinni.
Tapað/fundið
Reiðhjól tapaðist
DÖKKGRÆNT 18
tommu karlmanns-
Mongoose-reiðhjól, af
gerðinni Thres Hold, tap-
aðist frá Einimel sl.
fimmtudag. Finnandi er
vinsamlega beðinn að
hringja í síma 552-9065.
Baldur er týndur
BALDUR, brúnn orien-
tal-köttur, hvarf frá Lau-
fengi 156 að kvöldi
föstudagsins 27. septem-
ber. Hann er mjóleitur
og grannur (ekki ósvip-
aður siamsköttum) og
einstaklega gæfur. Hafir
þú orðið hans var ertu
vinsamlega beðin(n) að
hafa samband í síam
586-1237.
Pennavinir
da ÁTJÁN ára finnsk
stúlka með áhuga á tón-
list, íþróttum, vísindum,
náttúrulífi, bókmennt-
um o.fl.:
Maua Heikkila,
Palikkapolku 1A 15,
00420 Helsinki,
Finiand.
PERÚSKUR 22 ára
piltur í borginni Mínks
í Hvíta-Rússlandi vill
eignast pennavinkonur
á svipuðu reki:
Gonzalo Portilla,
Poste Restante,
Main Post Office,
Minsk 220050,
Belarus.
Víkveiji skrifar...
VÍKVERJI hefur ekki farið á
knattspyrnuleik frá árinu
1948, þegar Melavöllurinn var og
hót. Gamlar taugar til KR urðu
þess þó valdandi, að á því varð
breyting um þessa helgi. Fjölmiðlar
og þá ekki sízt Morgunblaðið höfðu
sannfært lesendur, hlustendur og
áhorfendur um, að líkur væru á að
þetta gamla, sögufræga lið úr hin-
um einna sanna Vesturbæ, mundi
endurheimta fyrri frægð að þessu
sinni. Svo varð ekki. Akurnesingar
voru einfaldlega mun betri.
Á 48 árum hefur ekki orðið mik-
il breyting á knattspyrnuvellinum
sjálfum. Eða sjáum við hinar gömlu
hetjur í hillingum?! Hins vegar hef-
ur orðið mikil breyting utan sjálfs
leikvangsins. Fólkið er fleira. Há-
vaðinn er meiri. Bjór og kampavín,
sem sást meðal áhorfenda, þekktist
ekki á Melaveilinum. Undarlegar
aðfarir leikmanna Akurnesinga eft-
ir sigurinn komu Víkveija á óvart.
Þeir hlupu til áhorfenda sitt hvorum
megin vallarins og hentu sér á
magann! Var það virðingarvottur
við áhorfendur eða þá Akurnesinga,
sem þarna voru?!
Eitt hefur þó breytzt á leikvang-
inum sjálfum. Víkveiji gat ekki
betur séð en framkoma hvers leik-
manns við annan væri mun grófari
en í þá góðu gömlu daga og í sum-
um tilvikum allt að því ruddaleg.
Hvað eftir annað lágu leikmenn
eftir óþyrmilega árekstra við keppi-
nauta sína. Varla þykir þetta
íþróttamannslega að verki staðið?
Það var heldur bijóstumkennan-
legt að sjá KR-inga ganga niður-
lúta frá leikvanginum að leiknum
loknum. Er ekki æskilegt að leikn-
um Ijúki með meiri reisn þótt hann
tapist?
xxx
EFTIR hádegi á sunnudag út-
varpaði Ríkisútvarpið dag-
skrá, sem var hjá Kaffileikhúsinu í
janúar sl., þar sem kynnt var leik-
húsmúsík eftir Atla Heimi Sveins-
son. Tónskáldið sagði frá verkunum
og tónlist.armenn og leikarar fluttu.
Þetta var fyrri hluti þessarar dag-
skrár og ef rétt var skilið verður
síðari hlutinn sendur út n.k. sunnu-
dag.
Ástæða er til að vekja athygli á
þessu efni. I stuttu máli sagt er hér
um einstaklega skemmtilega dag-
skrá að ræða. Hún sýnir m.a. ótrú-
lega fjölbreytni í verkum þessa stór-
merka tónskálds. Atli Heimir er
fyrst og fremst þekktur fyrir fram-
úrstefnuverk, eins og hann sagði
sjálfur frá. Leikhúsmúsík hans
kemur úr allt annarri átt. Og hið
sama má líka segja um Iög hans
við kvæði Jónasar Hallgrímssonar,
sem nýlega voru kynnt.
Það er orðið mjög brýnt að gefa
verk Atla Heimis og annarra tón-
skálda samtímans út á geisladiskum
þannig að landsmenn hafi tækifæri
til að fá nokkra yfirsýn yfir verk
þessara listamanna, sem sumir
hveijir eiga sennilega eftir að lifa
lengur með þjóð sinni en flestir
þeir, sem mest ber á hveiju sinni.
xxx
SKYNDILEGA hafa stjórnvöld
tekið við sér og boðað verð-
lækkun á papriku fyrr en til stóð.
Landbúnaðarráðuneytið hefði ekki
brugðið við með þessum hætti, ef
ekki hefði verið vakin athygli á því
okurverði, sem er á papriku um
þessar mundir. Það segir töluverða
sögu um þá landbúnaðarstefnu, sem
hér er rekin.