Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 19
ERLENT
Sótt að Jeltsín á fyrsta haustfundi Dúmunnar
Segja Rússland
vera án leiðtoga
Moskvu. Reuter.
DUMAN, neðri deild rússneska
þingsins, kom í gær saman í fyrsta
sinn frá því Borís Jeltsín forseti
tilkynnti að hann myndi gangast
undir hjartaaðgerð. Stjórnarand-
stöðuleiðtogar sögðu í ræðum að
Rússland væri nú án leiðtoga og
kröfðust þess að gerðar yrðu þegar
í stað ráðstafanir til að afstýra al-
gjöru stjórnleysi.
„Ef bíllinn eyðileggst og bílstjór-
inn er fluttur á sjúkrahús þarf að
skipta um bíl og bílstjóra," sagði
þjóðernissinninn Vladímír Zhír-
ínovskí eftir að haustþingið var
sett. Hann og fleiri stjórnarand-
stöðuleiðtogar sögðu að glundroði
ríkti í Rússlandi í ijarveru Jeltsíns
og ræður þeirra bentu til þess að
hart yrði sótt að stjórn Viktors
Tsjernomyrdíns á þinginu.
Anatolí Tsjúbajs, skrifstofustjóri
forsetans, efndi til blaðamanna-
fundar og vísaði á bug vangaveltum
um að hann eða aðrir fölsuðu undir-
skrift Jeltsín á tilskipanir og gæfu
þær út án vitundar hans.
Jeltsín tilkynnti 5. september að
hann hefði samþykkt að gangast
undir hjartaaðgerð og forsetinn
hefur verið á sjúkrahúsi frá 13.
september. Aðstoðarmenn hans
segja hann vinna í mesta lagi í
þijár klukkustundir á dag og gert
er ráð fyrir að hann verði skorinn
upp við kransæðastíflu eftir sex til
tíu vikur. Læknar forsetans sögð-
ust í gær „fullsáttir" við niðurstöðu
nýrra rannsókna á líffærum forset-
ans.
Jeltsín ræddi í gær við Jevgení
Prímakov utanríkisráðherra um
ástandið í Miðausturlöndum og
Afganistan. Forsetinn-sendi einnig
skilaboð til Dúmunnar í tilefni af
setningarfundinum og hvatti þing-
mennina til að auka afköst þingsins
„verulega".
Tillaga
um ríkisráð
Talið er að haustþingið muni
aðallega einkennast af baráttu við
stjórnina um fjárlagafrumvarpið og
kröfum um að stjórnin greiði millj-
ónum verkamanna margra mánaða
laun sem eru í vanskilum.
„Stjórnin er ófær um að leysa
nokkurn skapaðan hlut,“ sagði
Gennadí Zjúganov, leiðtogi komm-
únista, öflugasta stjórnarandstöðu-
flokksins. „Ef svo heldur fram sem
horfir fær Rússland sömu örlög og
Sovétríkin."
Zjúganov lagði til að stofnað
yrði ríkisráð til að ræða vandamál
landsins og ákveða aðgerðir til úr-
bóta. Ráðið yrði skipað fulltrúum
beggja deilda þingsins og ráðherr-
um, auk fulltrúa varnarmálaráðsins
og öryggisráðs Rússlands.
Grígorí Javlínskí, leiðtogi Jab-
loko, flokks umbótasinna, sagði að
í fjarveru Jeltsíns hefði komið fram
skýr ágreiningur og valdabarátta
milli Tsjernomyrdíns, Tsjúbajs og
Alexanders Lebeds, yfirmanns ör-
yggisráðsins. Hart var deilt á Lebed
er hann ávarpaði þingið og hann
kallaður svikari vegna friðarsamn-
inganna í Tsjetsjníju.
Reuter
RÚSSNESKIR hermenn sofa með hendurnar á byssum sinum í
herflutningavél á leið frá Grosní í Tsjetsjníju. Fyrsta áfanga
brottflutnings hersveitanna frá Tsjetsjníju var lokið i gær.
Málþing um Reykjavíkurfundinn
Ásakanir um spillingu meðal breskra þingmanna
Hvernig bregðast
Rússar við
stækkun NATO?
AÐILD grannríkja Rússlands að Atl-
antshafsbandalaginu (NATO) getur
verið viðkvæmt mál og kom það fram
við hringborðsumræður á fyrra degi
málþingsins á Grand Hóteli um tíu
ára afmæli Reykjavíkurfundar Ron-
alds Reagans Bandaríkjaforseta og
Míkhaíls Gorbatsjovs Sovétleiðtoga í
gær. Júrí Resjetov, sendiherra Rúss-
lands, sagði að Rússar mundu áskilja
sér rétt til að segja öllum alþjóðlegum
samningum lausum ef NATO yrði
stækkað og þá fyrst og fremst af-
vopnunarsáttmálum.
Stækkun NATO verði
endurskoðuð
„Við höfum ekki neitunarvald um
það hverjum verður veitt aðild að
NATO, en það ætti að endurskoða
málið,“ sagði Resjetov. „Ef NATO
verður stækkað mun Rússland líta
svo á að alþjóðlegir samningar séu
ekki bindandi."
Ríki Varsjárbandalagsins fyrrver-
andi hafa lagt áherslu á aðild að
NATO, en stjórnvöld í Moskvu hafa
tekið slíkum hugmyndum fálega og
litið á þær sem ógnun.
Max Kampelman sendiherra, sem
var einn af samningamönnum
Bandaríkjamanna í öryggismálum og
var með Reagan í för á leiðtogafund-
inum, sagði að menn drægju sig út
úr sáttmálum ef þeir viidu. Slíkir
sáttmálar héldu aðeins meðan það
væri hlutaðeigandi aðiljum í hag að
halda þá.
Kampelman sagði hins vegar að
ekki væri raunsætt annað en að gera
ráð fyrir því að Atlantshafsbandalag-
ið yrði stækkað.
„Það hefði gerst fyrr ef menn
hefðu ekki borið hag Rússa fyrir
brjósti," sagði Kampelman. „Þar sem
ganga verður út frá stækkun NATO
verður að hugsa fyrir tryggingum
. . . Menn ættu að velta fyrir sér
sáttmála, sem væri ætlað að draga
úr áhyggjum Rússa.“
Aðdragandi þessara orðaskipta
Resjetov
Kampelmans og
Resjetovs voru
ummæli Sergeis
Rogovs, stjórn-
anda Rannsókn-
arstofnunar á
Bandaríkjunum
og Kanada í
Moskvu, um það
að ekki væri að
furða að Rússar
tækju óstinnt upp
þegar athugasemdir þeirra um
stækkun NATO væru virtar að vett-
ugi. Áform um stækkun væru bein
ögrun við Rússa. Vitnaði hann til
þeirra orða Jevgenís Prímakovs, ut-
anríkisráðherra Rússlands, að Rúss-
ar mundu grípa til „viðeigandi að-
gerða“ kæmi til stækkunar NATO.
Richard Pipes, prófessor við Har-
vard-háskóla, er meðal þeirra fáu á
Vesturlöndum, sem gagnrýna áform-
in um stækkun NATO.
Hann sagði í viðtali við Morgun-
blaðið á þriðjudag að hann væri mjög
andvígur stækkun NATO og hún
væri að fullu ástæðulaus. Slíkt mundi
aðeins verða vatn á myllu einangrun-
arsinna, kommúnista og lýðskrum-
ara í Rússlandi.
Óttinn við einangrun
„Horfðu á málið frá sjónarhóli
Rússa," sagði Pipes. „Rússar segja
við sjálfa sig; við afnámum kommún-
ismann, tókum upp lýðræði og mark-
aðsbúskap, við leystum upp Varsjár-
bandalagið og nú ætlið þið að ein-
angra okkur.“
Pipes sagði að ráðlegra væri að
hafa stækkun bandalagsins í bak-
höndinni til að nota ef Rússar færu
að gera sig líklega til útþenslu. Hann
bætti því við að stækkun NATO
kæmi áhrifasvæðum austurs og vest-
urs ekki við. Rússar gerðu sér grein
fyrir því að Vesturlönd mundu ekki
líða til dæmis innrás í Ungveijaland,
hvort sem Ungveijar væru í NATO
eða ekki.
Blair vill óháða rannsókn
London. Reuter.
TONY Blair, leiðtogi breska Verka-
mannaflokksins, hvatti í gær til
óháðrar rannsóknar á pólitískum
fjárframlögum í Bretlandi vegna
deilna um meinta spillingu í röðum
þingmanna, einkum þingmanna
Ihaldsflokksins. Mikla athygli hefur
vakið sú ákvörðun bresks þing-
manns að hætta meiðyrðamáli á
hendur blaðinu The Guardian, sem
sakað hefur hann og fjöida þing-
manna um pólitíska spillingu með
því að þiggja fé frá fulltrúum þrýsti-
hópa.
Aðspurður um meintar greiðslur
til tveggja þingmanna Verka-
mannaflokksins frá fulltrúa þrýsti-
hópa, sagði Blair, að gera yrði
greinarmun á framlögum í kosn-
ingasjóði einstaklinga og greiðslum
fyrir að bera upp fyrirspurnir á
þingi, þó frá sama aðila kæmu.
Blaðið The Guardian birti í gær
lista með nöfnum 24 þingmanna
úr öllum þingflokkunum þremur
sem það segir, að fengið hafi
greiðslur í kosningasjóði sína frá
sama hagsmunagæslumanninum,
Ian Greer, sem beitt hefur sér fyrir
þrýstihópa gagnvart þingmönnum.
Meðal þeirra, sem þegið hafa
greiðslur frá Greer, er íhaldsflokks-
þingmaðurinn Neil Hamilton, en
hann harðneitaði í gær, þriðja dag-
inn í röð, að þær hefði hann fengið
fyrir að beita sér á þingi í þágu
Mohammeds al-Fayeds, eiganda
Harrods-verslunarhússins, svo sem
Guardian hefur haldið fram.
Hamilton hætti á mánudag meið-
yrðamáli á hendur blaðinu vegna
ásakananna. Bar hann því við að
hafa ekki efni á frekari lögsókn en
ritstjóri blaðsins sagði ástæðuna þá,
að Hamilton hefði séð fram á að
tapa málinu. Vart hafði hann hætt
meiðyrðamálinu er blaðið birti nýjar
ásakanir á hendur honum þess efnis
að hann hefði þegið greiðslur fyrir
að bera upp fyrirspurnir á þingi.
John Major, forsætisráðherra,
hefur varið Hamilton, sem segja
varð af sér starfi viðskiptaráðherra
í október 1994 vegna ásakana Gu-
ardian. Hafði Major, og einnig Mic-
hael Heseltine, aðstoðarforsæt-
isráðherra, fallist á að bera vitni
fyrir dómi en ekki kom til þess þar
sem málinu var áður hætt.
Slæmt fyrir Major
Ásakanir um pólitíska spillingu
í röðum breska Ihaldsflokksins er
hið óþægilegasta fyrir John Major
en ásetningur hans hefur verið að
flokksþingið, sem hefst í næstu
viku, yrði upphafið að pólitískum
endaspretti er tryggja myndi fram-
haldandi völd flokksins.
Major hefur vonast til að flokks-
þingið myndi veita honum tækifæri
til að hamra á jákvæðri efnahags-
þróun síðustu missera og hrekja
þær fullyrðingar Tony Blairs um
að Verkamannaflokkurinn væri
gjörbreyttur og með nýja stefnu er
leiða myndi hagsæld yfir þjóðina.
Nýjar kannanir hafa aukið baráttu-
hug íhaldsmanna en þær sýna, að
bilið milli íhaldsflokksins og Verka-
mannaflokksins hefur minnkað.
MUAR SYSTURM
Laugavegi 92 (Víí hliðina á Stjörnubíói) Sími 562-5660