Morgunblaðið - 03.10.1996, Qupperneq 20
20 FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
Ákveðið í Washington að hefja þegar friðarviðræður á ný
Palestímimenn lýsa von-
briffðum með árangurinn
Washington. Reuter. ^ ' * '
Reuter
PALESTÍNUMENN stöðvuðu alla umferð í fimm mínútur í gær
til að lýsa stuðningi við Arafat og syrgja fallna landa sína. Isra-
elskir friðarsinnar efndu til útifundar í Tel Aviv á þriðjudag.
BILL Clinton Bandaríkjaforseti
sagði á fréttamannafundi í gær að
Benjamin Netanyahu, forsætisráð-
herra ísraels, og Yasser Arafat,
forseti Palestínumanna, hefðu náð
samkomulagi um að taka aftur upp
þráðinn í friðarsamningunum. Clin-
ton viðurkenndi að ekki hefði tekist
að leysa deilurnar á leiðtogafundin-
um sem hann efndi til í Washington
en lögð yrði áhersla á að ræða strax
á sunnudag brottflutning hers Isra-
ela frá borginni Hebron á Vestur-
bakkanum.
Arafat var þungur í bragði á
sameiginlegum fréttamannafundi í
gær og tjáði sig ekkert sjálfur um
niðurstöðuna. Hann hafði m.a. kraf-
ist þess að ísraelsher yrði þegar
kallaður frá Hebron og umdeildum
jarðgöngum í Jerúsalem yrði lokað
en Netanyahu hafnaði báðum þess-
um kröfum. Netanyahu sagði á
fundinum að hann væri staðráðinn
í að draga herlið ísraela frá Hebron
og ljúka friðarsamningnum en
tryggja yrði jafnframt öryggi ísra-
els.
„Leiðtogafundurinn hefur mis-
tekist vegna ósveigjanleika ísra-
ela,“ sagði einn af samningamönn-
um Palestínumanna í Washington,
Hasan Asfour. „Ég vona að þjóð
araba hafi skilið hvað við eigum í
vændum". Annar fulltrúi Palestínu-
manna sagði Clinton hafa reynt að
bjarga fundinum en ljóst væri að
Netanyahu væri maður sem vildi
fremur stríð en frið. Fleiri Palest-
ínumenn lýstu óánægju sinni og
sögðu friðarferlið í mikilli hættu.
„Ef ríki heims, almenningur í
arabalöndum og friðarhópar í ísrael
grípa ekki til sinna ráða mun ekki
verða neinn friður á svæðinu og
ofbeldið mun halda innreið sína á
ný,“ sagði Mustafa Natsheh, borg-
arstjóri Hebron.
„Mikill sigur“
Talsmenn ísraelsstjórnar voru
ánægðir. „Árangur leiðtogafundar-
ins er að áliti ríkisstjórnar ísraels
mikill sigur. Allar kröfur ... sem
við lögðum fram í viðræðununum
sem farið hafa fram linnulaust síðan
við komum hingað voru samþykkt-
ar,“ sagði Danny Naveh, ritari ísra-
elsstjórnar, í símaviðtali við ísra-
elska útvarpið frá Washington.
ísraelskir lögrelumenn skutu í
gær til bana Palestínumann sem
kastaði gijóti í bíl þeirra. Hafa nú
alls fallið rúmlega 70 manns í átök-
unum sem hófust þegar Netanyahu
lét opna jarðgöng er liggja að hluta
um trúarlega mikilvæg svæði músl-
ima í Jerúsalem. Leiðtogar Palest-
ínumanna segja að innibyrgð reiði
og örvænting Palestínumanna
vegna þess að ísraelar hafi ekki
staðið við ákvæði friðarsamning-
anna hafi brotist út er göngin voru
opnuð.
Irakar
ráðast
áSÞ
Dubai, Bagdad. Reuter.
ÍRAKAR réðust á miðvikudag
harkalega að Sameinuðu þjóðunum
(SÞ) sem þeir sökuðu um að koma
í veg fyrir að samningur Iraka og
SÞ um olíusölu í skiptum fyrir
matvæli tæki gildi. Segjast írakar
hafa staðið við samkomulag um
eyðingu vopna.
Charles Duelfer, eftirlitsmaður
SÞ, fer fyrir nefnd sem átti að hafa
eftirlit með því að írakar eyddu
öllum efna- og lífefnavopnum, svo
og langdrægum eldflaugum í kjöl-
far Persaflóastríðsins. Segir Duel-
fer að skýrslur íraka uin eyðinguna
séu fullar af villum.
Dagblað Uday, sonar Saddams
Husseins, leiðtoga íraks, gagnrýndi
Boutros Boutros-Ghali, fram-
kvæmdastjóra SÞ, og sagði hann
tefja fyrir því að samkomulag um
olíusölu fyrir mat tæki gildi. Hann
vildi þóknast Bandaríkjamönnum
svo að þeir féllust á að framlengja
setu hans í stóli framkvæmdastjóra.
Bandaríska flugmóðurskipinu
Carl Vinsom var á miðvikudag snú-
ið á leið heim frá Persaflóa. Það
er nú á Ómanflóa, og verður á
áhrifasvæði fimmta flotans banda-
ríska fram í næstu viku en þá sigl-
ir það til Bandaríkjanna. Nú er því
aðeins eitt bandarískt flugmóður-
skip á Persaflóa, Enterprise.
Bókstafstrú nýrra valdhafa í Afganistan veldur áhyggjum
Reuter
AFGANSKAR konur verða nú að hylja andlit sitt á almanna-
færi og þeim hefur verið bannað að vinna utan heimilisins og
afla sér menntunar.
Samgönguráðherra Perú um
brotlendingu Boeing-757 þotu
Þotan fórst
vegna bilunar
í sljórntölvum
Ancon, Lima. Reuter.
Búist við
átökum í
Panjsher
Kabúl. Reuter.
LIÐSMENN Taleban-hreyfingar-
innar og hermenn Ahmad Shah
Masoods, fyrrum yfirmanns stjórn-
arhersins í Afganistan, virtust al-
búnir til átaka í gær í mynni Panjs-
her-dalsins. Hafði Masood lýst yfir
neyðarástandi í dalnum og sýndi
þess engin merki, að hann og hans
menn ætluðu að gefast upp fyrir
Taleban. Talebanar hafa hins veg-
ar hörfað frá Salang-jarðgöngun-
um þar sem herstjórinn Abdul
Rashid Dostum og hans menn eru
fyrir.
Masood lýsti yfir neyðarástandi
í Panjsher-dal í gær og fyrirskip-
aði brottflutning kvenna, barna og
aldraðs fólks en allir vopnfærir
menn bjuggu sig undir að veija
dalinn. Verður hann ekki auðsóttur
enda tókst Sovétmönnum aldrei að
leggja hann undir sig meðan þeir
voru með herlið í Afganistan.
Óttast bandalag Masoods
og Dostums
Einhveijar þreifingar hafa verið
á milli Masoods og Dostums um
bandalag gegn Taleban-hreyfing-
unni en ljóst er, að hún vill fyrir
alla muni koma í veg fyrir það.
Sher Mohammed Stanakzai, sem
skipaður hefur verið utanríkisráð-
herra Talebana-stjórnarinnar í
Kabúl, sagði í gær, að hún ætti í
engum deilum við Dostum, sem
ræður stórum hluta Norður-Afgan-
istans.
Rússneska stjórnin hefur lagt til
við leiðtoga annarra ríkja í Sam-
veldi sjálfstæðra ríkja, að efnt verði
til fundar í Almaty, höfuðborg
Kasakstans, til að ræða um ástand-
ið í Afganistan og hvernig megi
koma í veg fyrir, að átökin berist
inn í Sovétríkin fyrrverandi.
Konur sviptar mannréttindum
Talebanar, sem hafa lýst yfir
stofnun íslamsks ríkis í Afganistan,
hafa skipað konum að hætta vinnu
ut.an heimilisins og mega þær ekki
lengur sjást á almannafæri án þess
að hylja andlitið. Þær mega ekki
lengur afla sér menntunar og sjón-
varp hefur verið bannað. Karlar
eiga að láta sér vaxa skegg og í
gær skipuðu þeir svo fyrir, að allir
skyldu leggjast á bæn fimm sinnum
á dag.
Þessar fyrirskipanir Talebana
hafa vakið ugg í ýmsum nágranna-
ríkjum Afganistans og telja margir,
að þær muni verða til að sverta
nafn íslamstrúarinnar í augum
umheimsins. Talsmenn tveggja
helstu samtaka múslima í Pakistan
sögðu í gær, að kvennakúgun Tale-
bana væri óréttlætanleg.
Undir þetta hefur verið tekið
annars staðar og víða gætir ótta
við, að ýmsar hreyfingar bókstafs-
trúarmanna taki sér Talebana til
fyrirmyndar.
FLUGSTJÓRI perúskrar farþega-
þotu af gerðinni Boeing 757-200,
sem fórst við strendur Perú í gær,
tilkynnti um meiriháttar bilun í
stjórntækjum þotunnar skömmu áð-
ur en samband við hana rofnaði.
Allir, sem um borð voru, 70 manns,
fórust.
Brak þotunnar fannst síðdegis í
gær marandi í kafi um 5 km undan
ströndum Perú og 60 km vestur af
borginni Ancon. Hafði flugvélin
brotnað í tvennt.
Svartaþoka var á slysstað í fyrri-
nótt og fram eftir degi í gær og
hamlaði það leit og björgun. í gær-
kvöldi hafði lík eins farþega fundist.
Elsa Carrera de Escvalante, sam-
gönguráðherra, sagði að slysið virt-
ist hafa átt sér stað vegna bilunar
í stjórntölvum þotunnar. „Hvað er
að gerast? Hver er flughæð okkar?
Af hveiju fæ ég viðvörun um jarð-
nánd? Erum við yfir sjó eða landi?“
sagði Carrera, að flugmaðurinn
hefði spurt er hann hafði samband
við flugturninn í Lima. Hið síðasta
sem heyrðist var að hann sagðist
hafa dregið úr afli hreyflanna en
samt ykist flughraði þotunnar.
Þotan fór frá Lima hálfri stundu
eftir miðnætti, klukkan 5:32 að ís-
lenskum tíma í gærmorgun. Fimm
mínútum síðar hafði flugstjórinn,
Erick Schreiber, samband við flug-
turninn, sagðist giíma við bilun og
bað um heimild til að snúa aftur til
Lima.
Carrera sagði að flugstjóranum
hefði verið tjáð hvar hann væri
staddur, yfir sjó. Bað hann þá um
að flugvél yrði send á loft til að leið-
beina sér til baka og fékk þau svör
að hún yrði komin til móts við hann
eftir 15 mínútur.
Þotan hvarf síðan af ratsjám og
allt samband rofnaði við hana 28
mínútum eftir að hún hóf sig á. loft.
Um borð í þotunni, sem var í eigu
flugfélagsins Aeroperu, voru 61 far-
þegi og níu manna áhöfn og fórust
þeir allir. Þotan var smíðuð 1992
og hafði farið í 2.630 flugferðir er
hún fórst.
Öryggisstofnun samgöngumála í
Bandaríkjunum (NTSB) lagði í gær
til 17 endurbætur á Boeing 757-þot-
um til að reyna að koma í veg fyrir
annað slys af því tagi, sem átti sér
stað í Kólumbíu.
A
Attburar
látnir
London. Reuter.
BRESK kona, sem ákvað að
hlíta ekki læknisráði og reyna
að ala áttbura er hún gekk
með, hefur nú misst þá alla.
Skýrðu læknar frá þessu f
gær.
Málið hefur vakið mikla at-
hygli ekki síst vegna þess að
konan, Mandy Allwood, seldi
sögu sína dagblöðum fyrir
stórfé. Læknar vildu að hún
léti eyða nokkrum fóstranna
til að auka lífslíkur hinna.