Morgunblaðið - 03.10.1996, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1996 21
VEGFARENDUR virða fyrir sér morðstaðinn daginn eftir að ódæðisverkið var framið.
Rannsóknin á morðinu á Olof Palme, forsætisráðherra Svíþjóðar
Efasemdir um suð-
urafrísk tengsl
FÉLL Olof Palme forsætisráðherra
fyrir byssukúlu truflaðs manns eða
voru þar að verki skipulögð undirróð-
urssamtök, innlend eða erlend? Þess-
arar spurningar hafa Svíar spurt sig
síðan morðnóttina 28. febrúar 1986
en svörin hafa látið á sér standa og
morðvopnið hefur ekki einu sinni
fundist, Eftir nýjar vísbendingar um
að Palme hafi verið myrtur að undir-
lagi suður-afrísku leyniþjónustunnar
spyija Svíar enn á ný hvað hafi leg-
ið að baki.
Vísbendingar um aðild Suður-Afr-
íkustjórnar komu fram þegar í maí
1987 og er ein af mörgum kenning-
um í þá átt að samtök hafi staðið
að baki morðinu en ekki Christer
Pettersson sem Lisbet Palme benti á
í réttarhöldum 1989, sem morðingja
manns síns. í Svíþjóð er tekið var-
lega undir suður-afrísku vísbending-
arnar og lætur sænska lögreglan í
veðri vaka að nýjar vísbendingar um
Pettersson séu komnar fram.
Suður-Afríkuslóðin og fyrri
kenningar
Rúmum hálfum mánuði eftir að
Palme var myrtur var rúmlega þrítug-
ur maður handtekinn en honum var
fljótlega sleppt og hefur nafn hans
ekki komið upp aftur. í árslok 1986
var sænska lögreglan farin að rann-
saka meint tengsl morðsins við kúr-
díska hryðjuverkamenn sem þegar
árið 1985 höfðu haft uppi morðhótan-
ir við Palme vegna stjórnmálastarfa
hans. Kúrdaslóðin svokallaða hefur
síðan orðið einna langlífust af samsæ-
riskenningunum. Með tímanum hafa
aðrar kenningar bæst við, svo sem
að hægrimenn innan sænsku lögregl-
unnar hafi staðið að morðinu, banda-
ríska leyniþjónustan CIA hafi viljað
Palme feigan eða hann hafi verið
myrtur vegna vitneskju um ólögleg
vopnaviðskipti við írak og Iran.
Á mánudaginn rifjaði ítalska blaðið
Corriere della Sera einnig upp að
nefnd hefðu verið tengsl morðsins við
hina ólöglegu ítölsku frímúrarastúku
P2, auk þess sem blaðið sagði tilgát-
ur hafa komið fram um ástríðuglæp
því það hefði verið alkunna að Palme
hefði gerst fjölþreifinn til kvenna.
Þeirri kenningu hefur þó ekki verið
fleygt í sænskum fjölmiðlum.
I maí 1987 birti Svenska Dagblad-
et fréttir þess efnis að suður-afríska
leyniþjónustan hefði staðið að morð-
inu. Samkvæmt fréttunum varð suð-
ur-afrísku leyniþjónustunni ljóst upp
úr 1980 að sænska stjórnin studdi
dyggilega við bakið á baráttunni
gegn aðskilnaðarstefnunni og að Olof
Palme beitti sér af alefli í þeirri bar-
áttu. Því var hann á dauðalista suður-
Nýjar vísbendingar um að suður-afríska
leyniþjónustan hafi staðið að baki morðinu á
Olof Palme, forsætisráðherra Svía, 1986 falla
vel að aðstæðum í heimsmálum þá og umsvif-
um Palmes. Hins vegar falla þær síður að
aðstæðum morðnóttina í Stokkhólmi, eins
o g Sigrún Davíðsdóttir rekur hér á eftir.
afríska yfirvalda yfir
óvini ríkisins. Upplýs-
ingamar um Palme
komu fi'á njósnara suð-
ur-afrísku stjórnarinnar
að nafni Craig William-
son.
Árið 1985 stofnaði
hann samtökin Long
Reach til að vinna að
yfirliti yfir óvini ríkisins
erlendis. Vitneskjuna
hafði blaðið frá sænsk-
um kaupsýslumanni
sem sagði að þrír menn
hefðu komið til Svíþjóð-
ar í tjaldvagni nokkrum
vikum eða mánuðum
fyrir morðið, sem þeir
skipulögðu og framkvæmdu, hugs-
anlega í samvinnu við sænska hægri-
öfgahópa.
I kjölfat' hruns aðskilnaðarstefnu
og stjórnar hvíta minnihlutans í
Suður-Afríku hafa farið fram víð-
tækar rannsóknir á ódæðisverkum
fyrri stjórnar og handbenda hennar.
Nelson Mandela forseti hefur valið
þá leið að setja á fót svokallaða
sannleiksnefnd, þar sem þeir er
ákærðir eru fyrir glæpi af pólitískum
toga geta farið fram á sakarupp-
gjöf, játi þeir glæpi sína. Upplýs-
ingarnar nú um tengsl suður-afrí-
skra leyniþjónustumanna við Palme-
morðið hafa komið fram í sannleiks-
nefndinni.
Það eru sex suður-afrískir fyrrum
leyniþjónustumenn, sem nú benda
hver á annan, ýmist fyrir morðið eða
aðild að því. Dirk Coetzee, fyrrum
yfirmaður dauðasveita stjórnarinn-
ar, bendii' á Ant nokkurn White,
fyrrum starfsmann Long Reach,
sem nú rekur fyrirtæki í Moz-
ambique og segir upplýsingarnar
koma frá njósaranum Riian Sander
sem aldrei var stór fiskur í njósna-
netinu. Opinberlega lætur Sander
nægja að segja að White gæti hafa
myrt Palme. Éugene de Koek, eftir-
maður Coetzee, segist vita hver
hafi framið morðið,
sem Craig Williamson,
stofnandi Long Reach,
hafi skipulagt. William-
son aftekur að samtök-
in hafi fengist við morð.
Njósnarinn Peter Cas-
seltbn og vinur Will-
iamson segir White
ekki morðingjann held-
ur Evrópubúi og muni
de Kock ljóstra upp um
nafn hans eftir að rétt-
arhöldum yfir honum
ljúki.
Ant White hefur lýst
því yfir að ásakanirnar
eigi ekki við nein rök
að styðjast. Samkvæmt
fréttum sænska utanríkisráðuneytis-
ins hefur White haft samband við
sænska sendiráðið í Mozambique og
sagst reiðubúinn að svara spurning-
um sænskra yfii'valda en ráðuneytið
verst annars allra frekari frétta. í
viðtali við sænska útvarpið á mánu-
daginn sagði Ignatius P. de Svardt,
sendiherra Suður-Afríku í Svíþjóð,
að hann hefði lengi búist við að upp-
lýsingar um morðið kæmu fram í
málflutningi fyrir sannleiksnefndinni
því þessi hugsanlegu tengsl hefðu
áður verið kunn. Hins vegar sagði
hann að rétt væri að hafa í huga að
þarna töluðu örvæntingarfullir menn
sem tilbúnir væru að segja hvað sem
væri til að koma sér undan dómi.
Petterson ákærður aftur?
Þó allar fréttir af suður-afrískum
tengslum Palme-málsins séu skoð-
aðar gaumgæfilega í Svíþjóð, ekki
síst í fjölmiðlum, berast þær fréttir
frá rannsóknarnefnd málsins að nýj-
ar vísbendingar um sekt Christers
Petterssons séu komnar fram.
Christer Pettersson er fæddur
1947, hefur tengsl við sænska und-
irheima, ekki alveg hreina sakaskrá
og kann að fara með skotvopn. í
desember 1988 var hann handtekinn,
grunaður um morðið á Olof Palme
Olof Palme
ANT White
en hann neitaði ölium sakargiftum.
í lok maí 1989 hófust réttarhöld yfir
honum og við vitnaleiðslur í júní
benti ekkja Palmes, Lisbet, á Petters-
son, sem manninn er skotið hefði
mann hennar nóttina 28. febrúar. í
lok júlí var Pettersson dæmdur í
undirrétti í lífstíðarfangelsi fyrir
morðið á Palme. í byrjun nóvember
hnekkti Hæstiréttur dómnum og
Pettersson var fijáls maður.
Það sem bjargaði Pettersson var
að ástæður fyrir morðinu þóttu óljós-
ar, auk þess sem morðvopnið hefur
aldrei fundist. Á þeim tíma var því
haldið fram að hann hefði verið jafn-
aðarmaður og því væru pólitískar
ástæður morðsins útilokaðar, meðan
engar aðrar haldbærar fyndust í
staðinn. Nú er því haldið fram í
sænskum fjölmiðlum að nýjar vís-
bendingar gegn Pettersson hafi kom-
ið fram og sýni þær meðal annars
tengsl hans við hægrisinnaða öfga-
hópa, sem tæplega hafi leigt hann
til morðsins, en kannski veitt honum
innblástur til aðgerða. Þar sem Pett-
ersson hefur þegar komið fyrir dóm
vegna málsins þurfa þær þó að vera
mjög veigamiklar til að málið fáist
tekið upp aftur.
Vitni, er sá morðingjann horfast í
augu við Lisbet Palme, þar sem hún
beygði sig yfir mann sinn, sagðist við
réttarhöldin yfn* Pettersson ekki viss
hvort þetta hefði verið hann. Viðkom-
andi segist nú vera næstum alveg
viss um atð þetta hafi verið Pettersson
en óttist um líf sitt ef hann komi fram
með vitneskju sína. Eiturlyfjasali er
þekkti Pettersson dó fyrir nokkru. Á
banabeði sagðist hann hafa látið Pett-
ersson hafa skammbyssu fyrir morðið
en aldrei fengið hana aftur. Þessar
og fleiri nýjar vísbendingar, sem lög-
reglan vill ekki upplýsa hveijar séu,
hafa komið fram á árinu.
Lögreglan hefur enn ekki gefíð
upp alla von um að morðvopnið eigi
eftir að finnast. Morðkúlan var steypt
hjá Winchester byssusmiðjunni í
Bandaríkjunum 1983. Kúlur frá
þessum tíma voru seldar á tveimur
stöðum í Svíþjóð en hugsanlega einn-
ig utanlands. Sams konar kúla var
notuð í óupplýstu póstráni 1983.
Byssan fannst aldrei en kúlunni og
byssunni, sem notuð var í ráninu,
var stolið fyrr það ár. Tveir finnskir
bræður voru handteknir grunaðir um
ránið en sleppt vegna skorts á sönn-
unum. í Palme-rannsókninni var
þeim síðan boðin rúm milljón ís-
lenskra króna hvorum fyrir að segja
til vopnsins, en neituðu, því þar með
hefðu þeir óbeint játað á sig ránið.
Kenning lögreglunnar er að byssan
hafi verið notuð í eiturlyfjasölu þar
sem hinn látni kunningi Petterssons
hafi komist yfir hana og þar sé þá
komin byssan sem hann segist hafa
látið Pettersson fá.
Sem lið í morðrannsókninni hefur
verið gerð persónulýsing á morðingj-
anum með því að safna saman allri
vitneskju um hann. Samkvæmt lýs-
ingunni var morðinginn einn að verki
og lifði einangruðu lífi á jaðri samfé-
lagsins. Sú lýsing passar við Petters-
son og sömuleiðis sú lýsing vitna að
morðinginn hafi verið klunnalegur í
hreyfingum og ekki borið sig örugg-
lega að. Morðvopnið er skammbyssa
og morðkúlan venjuleg blýkúla sem
tæknilega séð hefði getað farið í
gegnum fórnarlamb sitt án þess að
deyða það. Ef um samsæri þraut-
þjálfaðra leyniþjónustumanna væri
að ræðaþykir ósennilegt að morðing-
inn hefði verið klunnalegur í hreyf-
ingum og sennilega valið kúlu sem
skaðað hefði fórnarlambið.
Þrátt fyrir að hin nýja vísbending
sé rökrétt og falli að aðstæðum 1986
eru veigamikil rök sem mæla á móti
öllum samsæriskenningum. Svíar
verða því enn að sætta sig við óviss-
una um morðið á Olof Palme. Og
þó það væri vísast léttbærara að
hugsa til þess að hann hefði fallið
fyrir skoðanir sínar og stjórnmála-
starf er enn of margt sem mælir
gegn því að svo hafi verið.
fiortstofurnmr f ri
Bmykitl Fnrnittirt
trn ktnssisknr.
Komið til okkar er þið viliið
fallegar og vandaðar borð-
stofur á hagstæðu verði.
Verð frá ca. 286.000,- miðað
við borð með 6 stólum, vegg
skáp og skenk.
\S*\
HÚSGAGNAHÖLUN
Bild'liiifði 20- n: Kuk - S:.4X7 IIú')